Morgunblaðið - 05.11.1999, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1999 41
Varist „herbergi“ 305
Hjörtur
Gíslason
NÚ ER þolinmæði
okkar hjónakorna á
þrotum. Við komum
heim frá Albufeira í
Potrúgal í lok septem-
ber eftir tveggja vikna
dvöl á hótel Alagoamar
á vegum ferðaskrifstof-
unnar Úrvals Útsýnar.
Gistiaðstaða okkar var
slík að hvergi var við-
unandi. Við kvörtuðum
strax án þess að það
skilaði viðunandi ár-
angri. Fyrir heimferð-
ina útfylltum við
kvörtun á staðlað eyðu-
blað í fjölriti. Það hafði
engin áhrif. Hinn 13.
október boðsendum við
meðfylgjandi bréf til þjónustudeildar
Úrvals Útsýnar og afrit til fram-
kvæmdastjóra. Viðbrögð við því voru
engin. Að áliðnum októbermánuði
sendum við framkvæmdastjóra Úr-
vals Útsýnar tölvupóst þar sem við
leituðum leiðréttingar mála okkar.
Ekkert svar hefur enn borizt.
Vegna þessarar ótrúlegu fram-
komu starfsmanna ferðaskrifstof-
unnar Úrvals Útsýnar sjáum við okk-
ur knúin til að láta frá okkur heyra á
vettvangi þar sem væntanlega er
tekið eftir því hvað við höfum að
segja. Hér fer á eftir sá hluti kvört-
unarbréfs okkar, sem rekur mála-
vexti og umkvörtunarefni okkar:
Einbreiður sóil og skúffa
„Við keyptum gjafabréf, sem gefíð
var út af Úrval Útsýn. Það var metið
á 150.200 krónur með forfallatrygg-
ingu, flugvallaskatti og fleiru. Á
gjafabréfinu stendur: Pakkaferð
Portúgal - Alagoamar, Faro 1
studio - stúdíó. I góðri trú töldum
við okkur fá þarna góða gistingu,
enda fengum við þær upplýsingar að
Úrval Útsýn byði aðeins upp á góða
gistingu.
Það er skemmst frá því að segja
að vonbrigði okkar við komuna á
gististað voru gífurleg. Okkur
hjónakomunum, sem vorum hvíldar
þurfí eftir mikla vinnu undanfarnar
vikur og mánuði, var ætluð eins her-
bergis skonsa, reyndar með baði og
eldunaraðstöðu, en einbreiðum
svefnsófa með skúffu undir. Hana
mátti draga undan og sofa í henni og
reyndar mátti lyfta henni lítillega
frá gólfí, en hvergi í sömu hæð og
svefnsófínn var í. Hann var ekki
hægt að lækka.
Við lýstum strax mikilli óánægju
okkar með þennan aðbúnað við farar-
stjóra (Amar og Perlu), en þrátt fyrir
blítt viðmót þeirra var ekkert hægt að
gera fyrir okkur fyrr en í fyrsta lagi
eftir viku og viðurkenndu þau bæði að
við værum að borga of mikið fyrir
þennan aðbúnað. Við ákváðum að láta
slag standa, sætta okkur við skúffuna
og láta þessi vonbrigði ekki eyðileggja
fyrir okkur ferðina og töldum hvoru
öðru trú um að það gæti bara verið
gott að lúlla í sófa og skúffu.
Við ákváðum þá að slappa af í
kvöldsólinni og fórum út á svalir með
smá hressingu. Þá tók fyrst steininn
úr. Herbergiskytran sneri út að
hringtorgi við mestu umferðargötu
bæjarins. Sól kom aldrei á svalirnar
og þar var ekki vært fyrir mengun
og hávaða. En það var ekki allt, um-
ferðarhávaðinn gerði út um nætur-
svefninn. Við náðum aldrei fullum
nætursvefni vegna hávaða í umferð,
hávaðasömum öskukörlum og því
miður kom það fyrir að samferðafólk
okkar var anzi hávaðasamt við heim-
komu síðla nætur. Við hrukkum upp
við hverja skellinöðru, sem fór um
hringtorgið, árekstra þar um miðjar
nætur og fleira. Við gerðum það að
gamni okkar að hringja heim í Úrval
Útsýn og spyrja hvers konar gist-
ingu þeir biðu upp á í Albufeira. ,Að-
eins mjög góða gistingu," var svarið
og okkur var ekki skemmt.
Við byrjuðum að búa við þessi
ósköp á miðvikudegi og á mánudegi
hringdi Amar fararstjóri í okkur og
sagði að við gætum fengið tveggja
herbergja stúdíóíbúð, sem sneri út að
sundlauginni seinni vikuna. Þar væri
hjónarúm og allur aðbúnaður mun
betri. En við þyrftum að borga 11.000
krónur aukalega fyrir herlegheitin.
Vegna þessarar
ótrúlegu framkomu
starfsmanna ferðaskrif-
/ /
stofunnar Urvals Ut-
sýnar, skrifar Hjörtur
Gíslason, sjáum við okk-
ur knúin til að láta frá
okkur heyra á vettvangi
þar sem væntanlega er
tekið eftir því hvað við
höfum að segja.
við við Soffíu R. Þórisdóttur og svar-
ið var einfalt. „Þetta er gjafabréf á
verðlistaverði. Ykkur var nær að
kynna ykkur ekki hvað í því fólst áð-
ur en þið keyptuð bréfið.“
Við verðum að segja eins og er:
Ykkur hlýtur að vera illa við þá, sem
þið gefíð gjafir. Það, sem okkur var
boðið upp á, er virtri ferðaskrifstofu
ekki sæmandi. Framkoma ykkar við
okkur og skeytingarleysi vegna um-
kvartana okkar er ykkur ekki sæm-
andi.“
Okkur þykir leitt að þurfa að fara
þessa leið til að vekja athygli á lé-
legri þjónustu, en vegna þess að við
höfum ekki verið virt viðlits, sjáum
við okkur knúin til þess. Ferðaskrif-
stofuna Úrval Útsýn hefur sett veru-
lega niður í huga okkar, Það er svo
rétt að geta þess, öðrum til viðvörun-
ar, að við vorum í „herbergi" númer
305.
Höfundur er blaðamaður.
Nú ern liðin 2 ár síðan við opnuðum
við Kleppsveg. Haltu upp á það með
okkur um helgina.
Við vorum farin að þrá
betri aðbúnað, að geta
nýtt okkur svalirnai- og
sofa á nóttunni í sama
rúmi. Við ákváðum því
að þiggja þetta „kosta-
boð“ þrátt fyrir að okkur
þætti einkennilegt að
þurfa að borga fyrir að
fá leiðréttingu mála okk-
ar.
Linnulaust spangól
allar nætur
En Adam var ekki
iengi í Paradís. Á
þriðjudegi hringir Arn-
ar aftur og okkur sagt
að þetta hafi allt verið
misskilningur. Við get-
um alls ekki fengið íbúð sundlaugar-
megin, heldur götumegin, en góðu
fréttirnar séu að við þurfum „aðeins"
að borga 5.000 krónur fyrir skiptin.
Þá var okkur nóg boðið. Það var
nætursvefn, sem freistaði okkar,
enda höfðu tveir hundar slegizt í hóp
þeirra, sem héldu fyrir okkur vöku,
en þeir spangóluðu linnulaust allar
nætur. Því var boðið um aðra íbúð,
er sneri út að götunni, hávaðanum
og menguninni, engin lausn.
En sagan er ekki nærri öll enn.
Þegar við fórum að kynna okkur að-
búnað ferðafélaga okkur og hve
mikið þeir greiddu fyrir hann, var
okkur endanlega nóg boðið. Fólk,
sem gisti við sömu ömurlegu að-
stæðurnar og við, borgaði 114.000
krónur í allt. Fólk, sem var í tveggja
herbergja íbúðum með hjónarúmi,
sem hægt var að sofa í, svölum sem
sólin skein á og var laust við umferð-
arhávaðann, borgaði það sama og
við, jafnvel á betri hótelum eins og
Brisa Sol.
Þegar við hringdum heim og
kvörtuðum yfir þessu öllu, töluðum
Þjónusta
Landsfundur
Vinstrihreyfíngar-
innar - Græns
framboðs
NÝVERIÐ lauk
landsfundi Vinstrihreyf-
ingarinnar - Græns
framboðs á Akureyri.
Yfir hundrað manns
sóttu fundinn alls staðar
að af landinu.
Þessi landsfundur
sýndi svo ekki verður
um villst að Vinstri-
hreyfingin - Grænt
framboð hefur unnið
sér traustan sess í ís-
lenskri pólitík og á sér
öruggt fylgi sem
stöðugt fer vaxandi.
Það sem einkenndi
þennan fund var aðal-
lega tvennt. I fyrsta
lagi skýrar og málefna-
legar umræður allra þeirra sem tóku
til máls. Telja mátti á fingrum ann-
Landsfundur
Skilaboð Vinstríhreyf-
ingarínnar - Græns
framboðs, segir Magrét
Guðmundsdóttir, eru
ljós og skýr.
arrar handar alla þá sem ekki létu til
sín heyra. Hins vegar hversu óhikað
fólk var við að hafa róttækar skoðan-
ir og tjá þær. Skilaboð Vinstrihreyf-
ingarinnar - Græns
framboðs eru ljós og
skýr. Skilum landinu til
barnanna okkar eins og
við myndum vilja taka
við því sjálf. Stóriðja er
skyndilausn, styrkjum
sjálfbæra atvinnustarf-
semi. Höldum auði og
verðmætum sjávarút-
vegsfyrirtækjanna í
heimabyggðunum.
Kvennfrelsi er skilyrði
fyrir jafnrétti kynjanna.
Launamisrétti skal út-
rýmt. Mannréttindi í
víðustu merkingu þess
orðs skulu í hvívetna
virt. Einstaklingurinn
skal hafður í fyrirrúmi
og gert kleift að sjá sér og sínum far-
borða á mannsæmandi hátt. Á ís-
landi skal ekki sitja erlendur her. Né
skulu Islendingar vera aðilar að
hernaðarbandalögum eða taka þátt í
eða eiga aðild að árásum á aðrar
þjóðir.
Fjöldinn allur af íslendingum hef-
ur þessar skoðanir og er óragur við
að tjá sig um þær. Og þeim fer ört
vaxandi sem hafa þessar skoðanir.
Það er alfarið óviðunandi að stór
hópur af fólki lifi hér við sultarkjör
og lifí í raun við að stanslaust eru
brotin á þeim mannréttindi.
Höfundur er skrifstofumaður og sat
iandsfund Vinstrihreyfingarinnar -
Græns framboðs á Akureyri.
Magrét
Guðmundsdóttir
BYSSUR
NÝKOMNAR
SENAT0R P-3”: Gasskipt, 5 þrengingar, skefti úr Keflar (svart).
HUGSAN 3”: Undir/yfir, tvíhleypa, einn gikkur, val á milli hlaupa,
5 þrengingar og skefti úr hnotu.
BELKIS 3”: Gasskipt, 5 þreng., skefti úr hnotu 73.470-
PUMPA 3”: Einstakt verð, aðeins 39.900-
Einhleypa: 2 3/4” með viðarskefti. AðeÍílS 13.541-
GAZELLE 3”: Undir/yfir, skefti úr hnotu. VERÐ ÁÐUR 92. 626-
NÚ Á TILB0ÐI 79.600- Aðeins örfáar byssur!
RJÚPNAKIPPURNAR ERU KOMNAR AFTUR!
Grandagarði 2, Rvík, sími 580-8500 og 800-6288.
OPIÐ VIRKA DAGA 8-18 OG LAUGARDAGA 10-14
SENDUM EINNIG í PÓSTKRÖFU