Morgunblaðið - 05.11.1999, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1999 43
ölvustýrt
mgt komnar
Morgunblaðið/Kristinn
í tæknivæddu framtíðarheimili sjást engir rofar eða merki um flókið
tölvukerfi. í þessari íbúð, sem er sýnishorn frá Ljósvirkja, eru til dæmis
hreyfi- og hitaskynjarar, ósýnilegir hátalarar sem eru innbyggðir í vegg-
ina auk snertiskjáa sem eru í líki mynda á veggjunum.
framt tengdur við kerfið og ef hann
hringir byrjar viðkomandi að tala þar
sem hann er staddur, án þess að hefð-
bundið símtól komi nokkuð þar við
I sögu.
Hægt er að stjórna kerfi af þessu
tagi í gegnum Netið en það er í raun
eitt kerfi sem stýrir mörgum tölv-
um. Þannig geta þeir sem eiga svona
kerfi fylgst með því sem er að gerast
heima hjá sér frá vinnustað sínum,
eða hvaðan sem er, í gegnum Netið.
I kerfinu er jafnframt öflugt örygg-
iskerfi sem getur látið eiganda sinn
vita ef óboðna gesti ber að garði.
„Það er hægt að hafa það þannig að
húsið sendir þér tölvupóst eða SMS-
skilaboð ef eitthvað óvenjulegt er á
seyði. Ef til dæmis hitastigið hækk-
ar óvenjulega mikið eða ókunnug
hreyfing er numin í húsinu,“ segir
Erling.
Tekur tölvan völdin?
Lesendur spyrja sig væntanlega að
svo stöddu hvert öryggi slíkra kerfa
sé? Geta eigendur þeirra átt á hættu
að tölvan taki völdin á heimilinu, þar
sem nánast allt er orðið tölvustýrt?
Erling segir að tölvan láti eigendur
sína vita ef eitthvað óvenjulegt sé á
seyði og eigendur eigi því að geta
brugðist við einhverju sem fer úr-
skeiðis strax. Ef vandamál koma upp
eigi þau að vera auðleysanleg.
En hefur „venjulegt" fólk þörf fyr-
ir svo mikil þægindi á heimili sínu?
Telur Erling að markaður sé fyrir
kerfi með mestu möguleikunum hér-
lendis? Erling segir að hús Guðjóns
sé búið fullkomnustu kerfum á mark-
aðnum og hann sé því frumkvöðull á
landinu að því leyti. Hann segist hins
vegar vinna að því sjálfur að sýna
fólki fram á hvað möguleikamir eru
margir og að fólk geti sjálft valið
hversu langt það gengur. „Það er
hægt að kaupa lítil og einföld kerfi
sem stjórna bara ljósunum og þau
eru á vægu verði. Svo er hægt að
ganga lengra ef menn viija það og þá
er kostnaðurinn orðinn meiri,“ segir
hann.
Guðjón segir aðspurður um hvort
hann hafi þörf fyrir öll þessi þægindi
að í fyrsta lagi þjóni hússtjórnarkerf-
ið honum á þann hátt að hann nær að
varðveita 100 ára gamalt útlit hússins
en jafnframt að fylgjast með nýjustu
tækni á þessu sviði, en í því felist
meðal annars hans starf.
Erling segir að eftirspurn eftir
þeirri þjónustu sem fyrirtæki hans
veitir hafi aukist verulega að undan-
fömu og það hafi í raun komið sér á
óvart hvað neytendur væru mótttæki-
legir fyrir svona búnaði. Hann fái
fjölda símtala á dag þar sem spurt er
út í möguleikana. Hann bendir á að
hægt sé að senda sér tölvupóst á
info@ljosvirki.com og hann veiti allar
upplýsingar.
Dr. Joachim S. Hermann
Elín Sigurgeirsdóttir
Bjarni Elvar Pjetursson
Eyðing tanna af völd-
um sýru æ algengari
Heildarmeðferð og
tannplantar voru
meðal umræðuefna
á ársþingi Tann-
læknafélags Islands.
Anna Sigríður
Einarsdóttir ræddi
við nokkra fyrirles-
ara þingsins og
komst að því að
bithækkun er
flókin aðgerð.
ARSÞING Tannlæknafélags
íslands stendur yfir þessa
dagana og er yfirskrift
þingsins Heildarmeðferð.
Sex fyrirlesarar kynna niðurstöður
sínar á þinginu, m.a. dr. Joachim S.
Hermann, aðstoðarprófessor og yfir-
maður tannplanta við Háskólann í
Basel. En Hermann fjallar á fyrir-
lestri sínum í dag um varanleika tann-
planta og fagurfræðina sem legið get-
ur að baki gerð þeirra.
Tannplantar byggjast á frekar
nýrri tækni sem ekki á sér nema tæp-
lega fjömtíu ára sögu og á rætur sín-
ar í Svíþjóð. Tannplantar fela í sér að
títaníumskrúfa er fest í beinið og
gervitönn komið fyrir þar á og þykir
sú aðferð gefast betur en notkun
hefðbundinna gervitanna.
Hermann kynnir fundargestum
kosti svissneskrar tannplantaaðferðar
sem hann segir ekki reynast síður vel
en þá sænsku. „Með svissnesku að-
ferðinni er lögð meiri áherslu á fagur-
fræðilega þáttin, líkt og sjúklingamir
sjálfir gera í dag,“ segir Hermann og
kveður fólk vilja fá fallega tönn í stað
þeirrar sem það missti.
„Ég einbeiti mér að þeim líffræði-
legu forsendum sem leyfa slíka upp-
byggingu og hugmyndinni þar að
baki, sem er sú að gervitönnin sé
eins lík tönn og hægt er.“ Að sögn
Hermanns búa Svíar að mikilli
reynslu af gerð tannplanta, en hann
segir ekki mikið hafa verið lagt upp
úr fagurfræðinni fyrst í stað. „I þá
daga var ekki mikið spáð í fagur-
fræði. Fólk fékk gervitennur í efri og
neðri góm án nokkurrar festingar.
Tennurnar voru þannig lausar og
þetta olli að sjálfsögðu töluverðu óör-
yggi-“
Töluverðar tækniframfarir hafa þó
átt sér stað síðan og segir Hermann
það mikla framþróun að hægt sé að
eiga við eina tönn í einu. „Svissneska
aðferðin fylgir nákvæmar eftir þeim
undirstöðuatriðum sem tannplanta-
iðnaðurinn byggist á, því mikið er lagt
upp úr að tönnin líti vel út,“ segir
Hermann. „Tannplantaaðgerðir eru
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heiðursfélagi Tannlæknafélagsins
Haukur Clausen var í gærkvöld
kjörinn níundi heiðursfélagi
Tannlæknafélags fslands á aðal-
fundi þess. Haukur hefur gegnt
fjölmörgum störfum fyrir félag-
ið, setið í ýmsum nefndum, m.a.
samninganefnd við Trygg-
ingastofnun ríkisins í 12 ár.
Hann var formaður félagsins
þegar fyrst var samið við TR um
endurgreiðslu fyrir tannlækn-
ingar árið 1974.
líka mikið tilfinningamál og við gerum
okkar besta til að byggja þær á sem
vísindalegustum grunni."
Hannaði eigin aðferð
Elín Sigurgeirsdóttir kynnir gest-
um ársþingsins meðferðaráætlun um
hækkun bits. Aðferðin byggist á hug-
mynd sem Elín þróaði þegar hún var
við framhaldsnám við University of
North Carolina.
„Þetta er heildarmeðferð á einstak-
lingi sem hafði sýrueyðingar á tönn-
um,“ segir Elín. Sýrueyðing er eyðing
á tönnum vegna sýru úr fæðu, til að
mynda kóki, sem hefur í för með sér
að glerungurinn leysist upp. Elín seg-
ir sýrueyðingu vera talsvert algenga
á Islandi í dag þó sjaldan þurfi að
grípa til bithækkunar. „Þessi einstak-
lingur þurfti að fá krónur á hverja
einustu tönn. Þá þurfti að hækka bit
hans af því að það hafði fallið saman
við eyðingu glerungsins,“ útskýrir
Elín.
Ýmsar forvarnir bjóðast þó og seg-
ir Elín tyggigúmmí nýtast vel og eins
eigi fólk að halda sig frá súnam
drykkjum. Þegar um glerungseyð-
ingu á borð við þá sem hún kynnir á
þinginu er hins vegar að ræða er bit-
hækkun þó eina lausnin. „Við sjáum
meira og meira af þessu, því við Is-
lendingar erum svo miklir ofstækis-
menn og neytum til að mynda meira
magns gosdrykkja en aðrir.“
Elín segir bithækkunina þó vera
flókið ferli. Hugmyndin byggist á því
að hækka bit á nýjan leik eftir að bilið
milli nefs og höku hefur lækkað vegna
tannslits. „Það þarf að ganga út frá
vissum punktum til að geta hækkað
tennurnar rétt upp. En ef þetta er
rangt gert þá getur það haft mjög
slæm áhrif á kjálkaliði og vöðva svo
dæmi séu tekin. Síðan þarf líka að
hugsa um fagurfræðina, því það er
ekki nóg að endurbyggja bara starf-
semina.“
Staða tannlækna
önnur en lækna
Bjarni Elvar Pjetursson fræðir
fundargesti um heildarmeðferð ein-
staklinga með fjölþætt vandamál. Að
mati Bjarna Elvars er staða tann-
lækna nokkuð önnur en annarra
lækna og segir hann tannlækna hafa
meiri þörf fyrir sölukunnáttu.
„Ef við viljum veita fólki alvöru
tannlæknaþjónustu þá þarf fólkið að
borga sjálft og það þýðir að við þurf-
um að vera sölumenn," segir Bjarni
Elvar og bætir við að fáir spái í fjárút-
lát þegar þeir þurfi að láta taka úr sér
botnlangann. Bjami Elvar segir hins
vegar marga tannlækna vera raga við
slíka sölumennsku sem þýði jafnvel að
fólk fái verri þjónustu en ella.
„Það er svolítið um að tannlæknar
þori ekki að bjóða bestu meðferðina
af því að hún kostar peninga, þannig
að stundum býður maður fólki ekki
upp á það besta, þó það sé í raun
skylda hvers tannlæknis. Það er síðan
sjúklingsins sjálfs að ákveða hvort
hann vill þiggja meðferðina eða ekki.“
I fyrirlestri sínum rennir Bjami
Elvar í gegnum fjölþætt tilfelli, þar
sem sjúklingurinn er fullmeðhöndlað-
ur. Að sögn Bjarna Elvars á einstak-
lingur sem fær slíka meðhöndlun ekki
að þurfa mikla tannlæknaþjónustu
næstu árin. HeildaiTneðferðin getur
ennfremur verið fjölbreytt, því með
því móti er reynt að horfa á sjúkling-
inn í heild sinni og hugsa fram í tím-
ann þannig að viðgerðarþjónustan
endist. „Fólk frestar ekki læknisað-
gerð vegna Kanaríeyjaferðar en gerir
það með tannlæknameðferð," segir
Bjami Elvar að lokum.