Morgunblaðið - 05.11.1999, Side 46

Morgunblaðið - 05.11.1999, Side 46
46 FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ¥ Börnin í Bannalandi Hefur enda löngurn verið vitað að það er aðeins eitt sem er verra en skoðanaleysið og það er sannfæringin. Eftir Ásgeir Sverrisson Börn eru yfirtak rökvís og það eru þau þrátt fyrir að þeir, sem teljast þroskaðir, iðki fátt annað en að mis- bjóða dómgreind þeirra. Slíkt atferli er yfirleitt nefnt „upp- eldi“. Börn bera fram grundvall- arspurningar og fá ekki skilið hvers vegna tiltekið athæfi er stundum leyfilegt en forboðið við aðrar aðstæður. Hugur þeirra er ef til vill ekki óskrifað blað en hann er hreinn, þótt fljótlega hefjist ferðin niður eftir rakvél- arblaði lífsins, sem skilar þeim inn í heim hinna fullorðnu. í löndum á borð við ísland geta óhófleg áhrif reglugerða- fikla og völd mishæfra stjórn- málamanna VIÐHORF iðulega af sér boð og reglur, sem eru flestu þokkalega skynsömu fólki með öllu óskiljanlegar. Á ferðinni óhjákvæmilegu niður rakvél- arblaðið og í gegnum skolprör fullorðinsáranna hafa sumir menn öðlast sannfæringu á til- teknum sviðum og telja það helga skyldu sína að brjóta sam- ferðafólk sitt í lífinu undir þau viðmið, sem þau sannindi fela í sér. Hefur enda löngum verið vit- að að það er aðeins eitt sem er verra en skoðanaleysið og það er sannfæringin. Ein stærstu mistök margra stjórnmálamanna birtast í þeirri sannfæringu þeirra, að þeir séu í hlutverki hinna fullorðnu í sam- félaginu en hugtakið „almenning- ur“ sé safnheiti yfir alla hina, sem séu börn. Þetta á ekki aðeins við um íslenska stjórnmálamenn heldur gerast eriend starfssystk- ini þeirra einnig sek um að líta á sig í hlutverki „uppalenda" í þjóð- félaginu. Þegar við bætist þrýst- ingur frá hagsmunahópum og lífsháttaklúbbum af ýmsum gerð- um hrekur vinsældaleitin stjórn- málamenn undan vindi og þeir gerast sérstakir talsmenn slíkra fyrirtækja. í mörgum tilfellum bætist síðan hin óhagganlega vissa í þennan hóp sálarhræringa með þeim afleiðingum að heimskuleg verk og vond eru Það er að sönnu sérkennilegt að enn skuli um það deilt á ís- landi hvort almenningi í landinu sé treystandi til að ákveða hven- ær og við hvaða aðstæður hann velur að festa kaup á áfengum drykkjum. Umræðan er á hinn bóginn upplýsandi vegna þess að hún dregur skýrlega fram það hrokafulla uppeldishlutverk, sem stjórnvöld og stjórnmála- menn hafa tekið sér. Jafnframt leiðir hún í ljós tvískinnunginn, er einkennir málflutning margra stjórnmálamanna og raunar heilu samtaka þeirra, sem í orði kveðnu lofa frelsi einstaklingsins til að ráða lífi sínu en sýna enga tilburði til að beita áhrifum sín- um í nafni þeirrar hugmynda- fræði. Hvorki þarf að kalla til rök- spekinga, félagsfræðinga eða sæmilega lífsreynda drykkju- menn til að leiða í ljós að sú áfengisstefna, sem íslensk stjórnvöld hafa fylgt á undan- liðnum áratugum, er gjörsam- lega gjaldþrota, gagnslaus með öllu og stenst ekki skoðun. Þvert á móti má auðveldlega færa traust rök fyrir því að þessi stefna hafi kallað alkóhólisma, ógæfu og hrylling yfir þjóðina. Islendingar kunna ekki að um- gangast áfenga drykki og það ástand mála má einkum rekja til þess að slíkar veigar hafa flokk- ast undir hið forboðna í þjóðfé- laginu. Sökum þessa og vegna uppeldishlutverksins, sem ráða- menn og lífsháttaklúbbarnir hafa tekið sér, hefur verið fylgt þeirri stefnu að takmarka „aðgengi“ að áfengi. Þar með hefur verið skapað það viðhorf, ekki síst á meðal hinna ungu, að áfengi sé spennandi og dularfullur varn- ingur, sem aðeins megi neyta við tilteknar aðstæður eftir að hann hefur verið sóttur í leynd- ardómsfullar verslanir, sem rík- isvaldið rekur. Brjálsemisleg verðlagning hefur síðan stuðlað að smygli, fíkniefnaneyslu og landadrykkju auk þeirrar hams- lausu helgardrykkju, sem ein- kennir ísland með tilheyrandi hryllingi, ofbeldi, skemmd- arverkum og ógæfu. Því er stundum haldið fram að drykkja myndi aukast ef verslun með áfengi yrði gefin frjáls þannig að fólkið í landinu gæti nálgast það í sérverslunum eða matvörubúðum. Sú spurning blasir vitanlega við hvort nauð- synlega beri að telja aukna áfengisneyslu til neikvæðra fyr- irbrigða, þau sannindi þurfa all- tjent ekki að vera viðtekin. Hins vegar sýnir reynslan að í þeim löndum þar sem fólk getur nálg- ast áfengi án fyrirhafnar er um- gengnin við það eðlilegust. Verk- efnið á Islandi er einmitt að stuðla að eðlilegri umgengni við þennan vímugjafa og menningar- vaka. Sökum ósamkvæmni, skorts margra stjórnmálamanna á rök- vísi, áhrifa lífsháttaklúbba á borð við bindindishreyfinguna og ítaka fólks, sem hefur atvinnu sína af því að móta hátterni sam- ferðamanna sinna, sitja Islend- ingar uppi með reglugerðafarg- an, sem einkennist af mótsögn- um og fyrirlitningu á dómgreind almennings. Ríkisvaldið eitt má selja áfengi. Bannað er að auglýsa tó- bak á Islandi en ríkisvaldinu leyfist að senda út erlent sjón- varpsefni til allra landsmanna þar sem sígarettur eru auglýstar og bendlaðar við glæsimennsku og hugdirfsku. Ræðir þar um kappaksturskeppni, sem ríkis- sjónvarpið sýnir reglulega frá og nefnist „Formúla 1“. Slík keppni er í raun ein tóbaksauglýsing. Áfengi má ekki auglýsa en slíkar auglýsingar má nálgast í er- lendum sjónvarpsstöðvum, blöð- um, tímaritum og á interneti. Lyf má ekki auglýsa en slíkt efni mega Islendingar lesa á interneti. Miðlar, heilarar og skottulæknar geta auglýst þjón- ustu sína en það mega menntaðir læknar ekki. Hins vegar má aug- lýsa klám og annað það, sem fellur undir það heillandi hugtak „kynlífsiðnaður", í blöðum, tíma- ritum og sjónvörpum á íslandi. Þannig fá „börnin" á íslandi misvísandi og órökrétt „skila- boð“, eins og nútíminn kallar það, frá hinum „fullorðnu". Og líkt og gerist í raunverulegu barnauppeldi minnkar virðing hinna ungu um leið og álitið hrynur. BÖÐVAR BJÖRGVINSSON + Böðvar Björg- vinsson síma- verkstjóri, sem lést af slysförum í Mý- vatni 26. október sl. fæddist að Melum við Akureyri 16. nóvember 1942. Foreldrar hans voru hjónin Björg- vin Sigmar Stefáns- son, vélstjóri, f. 4. október 1910, d. 9. nóvember 1972 og Kristín Böðvars- dóttir f. 15. júní 1920, d. 30. mars 1949. Við lát Kristínar tók Selma systir hennar við heimil- inu og gekk börnum hennar í móðurstað. Systkini Böðvars eru Sigríður f. 12. september 1940, gift Klemens B. Sig- tryggssyni á Seyðisfirði, þau eiga fimm börn. Guðný f. 1. ágúst 1944, býr í Slagelse í Dan- mörku, var gift Christian Nis- sen, þeirra synir eru tveir. Stef- án f. 7. desember 1945, kvæntur Huldu Karen Ólafsdóttur í Hafnarfirði, þau eiga þijá syni. Eiginkona Böðvars er Ánna Nína Stefnisdóttir, fulltrúi hjá Landssímanum, f. 27. október 1946 í Kópavogi. Þau gengu í hjónaband 23. nóvember 1968. Börn Böðvars og Nínu eru Þú fæddist fyrir norðan um haust og fórst svo norður einn napr- an haustdag - til að deyja. Það er svo sorglegt og ósanngjarnt að ég trúi því ekki ennþá. Við áttum marga framtíðar- drauma saman og svo margt ógert. Þú sagðir alltaf að þú mundir deyja á undan mér, en þá héldum við að við yrðum gömul og sæt hjón sem mundum leiðast á pósthúsið í hálkunni með jólakortin okkar og eiga allan tíma í heiminum. Þú kvaddir snöggt og svo skyndi- lega og núna veit ég ekki hvort ég get lifað án þín, en ég verð að gera það vegna barnanna okkar. Þú fórst mjög varlega með til- finningar þínar, en þegar þú gafst þig þá gerðir þú það alveg. Þú elskaðir fjölskylduna þína, börnin þín og mig svo algjörlega, skilyrð- islaust og endalaust og fyrirgafst allt. Það eina sem þú þurftir fyrir þig var svolítill harðfiskur og há- karl, að hlusta stundum á jazz og blús og að eiga góðan hamar því þú varst alltaf að gera eitthvað, - fyrir aðra. Eg veit að í dag græt ég gleði mína í rúm 30 ár og ég veit að sá dagur rennur upp að ég get hætt að gráta og ég veit líka að þú verður alltaf hjá mér. En það er samt svo sárt - núna. Farðu í friði, elsku kærastinn minn. Þín Nína. „Einstakur11 er orð sem notað er þegar lýsa á því sem engu öðru er líkt, faðmlagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd. „Einstakur11 lýsir fólki sem stjómast af rödd síns hjarta og hefur í huga hjörtu annarra. „Einstakur" á við þá sem era dáðir og dýrmætir og hverra skarð verður aldrei fyllt. „Einstakur" er orðið sem best lýsir þér. (Terri Fernandez). Elsku besti pabbi okkar. Þetta ljóð segir svo margt um hvemig þú varst og hvað þú varst fyrir okkur. Þú varst besti pabbi í heimi. Við erum heppin að hafa átt þig að, þú varst svo góður, skemmtileg- ur og alltaf til staðar. Við erum líka heppin að vita hvað þér þótti vænt um okkur og þú vissir hvað okkur þótti vænt um þig. Núna er allt svo óraunverulegt og Styrmir Freyr raf- virkjanemi, f. 27. apríl 1971 í sambúð með Helgu Hafdísi Gísladóttur þroska- þjálfanema, Selma Kristín, deildar- stjóri í London, f. 14. júlí 1972, í sam- búð með Paul Henry Murphy end- urskoðanda, Regína hjúkrunarnemi f. 2. desember 1975 í sambúð með Sig- tryggi Arnari Árna- syni kerfísfræðingi. Sonur Böðvars með Emmu Magnúsdóttur en ættleiddur af Herði Diego Arnórssyni er Þor- valdur Ægir rafeindavirki, f. 20. ágúst 1968, í sambúð með Guðnýju H. Helgadóttur raf- eindavirkja, þeirra sonur er Hörður Fannar f. 5. apríl 1998. Sonur Nínu með Kristni Reyni Sigtryggssyni er Stefnir Þór rafvirki, f. 16. maí 1963, kvænt- ur Margréti Valdísi Friðþjófs- dóttur, starfsmanni Eimskips og húsmóður. Þeirra börn eru Böðvar Freyr f. 5. mars 1995, Freyja Sif og Runólfur Stefnir f. 18. júní 1999. __ títför Böðvars fer fram frá Áskirkju í Reylqavík í dag og hefst athöfnin kl. 15. það er erfitt að þurfa að kveðja þig svona fljótt. Minningin um þig lifir í hugum okkar og hjörtum að eilífu. Þangað til við hittumst næst. þín Styrmir, Selma og Regína. Elsku pabbi minn, nú ertu farinn frá okkur, eins og sumarið sem leið svo fljótt, alltof fljótt. Það sem ég hefði viljað segja þér og segja um þig hefði verið hægt að koma fyrir í heilli bók en læt ósagt og geymi í hjarta mínu. Allar minn- ingar er skjótast upp í huga mér um þig eru fullar af birtu og yl. Þú tókst mig að þér er ég var barn, á líkum aldri og hann sonur minn, nafni þinn, er í dag. Og þú gekkst mér í föðurstað og hef ég aldrei getað ímyndað mér betri föður eða vin en þig. Og hvernig þú stóðst við hlið mér í öllu er ég tók mér fyrir hend- ur, hversu smátt eða hve vitlaust mörgum þótti, þá varst þú alltaf þar og studdir mig og styrktir af öllum mætti. Mig langar að skila til þín kveðj- um frá bömum mínum, Böðvari, Freyju og Runólfi, er þú unnir svo mjög, enda bamakall mikill og góð- ur afi, sá besti. Mikið hafa þau misst. Og allt sem við áttum eftir ógert gerum við saman hinum meg- in. Þinn Stefnir Þór. Ég kynntist Böðvari fyrir rúmum 15 áram þegar ég byrjaði að búa með Stefni Þór í kjallaranum hjá þeim Nínu í Borgarnesi. Frá fyrstu stundu reyndist hann mér mjög vel og var ávallt reiðubú- inn til að hjálpa mér á allan hátt. Það kom best í ljós þegar bama- börnin komu. Þá var afi Böddi alltaf tilbúinn til að passa þau og líta eftir þeim ef með þurfti. Böðvar, takk fyrir allan þinn stuðning, hjálp og þær stundir sem þú áttir með nafna þínum, Böðvari Frey, sem trúir því að þú sért að smíða hjá englunum. Við munum í sameiningu sjá til þess að tví- burarnir, Freyja Sif og Runólfur Stefnir, eignist sínar minningar um þig- Þín tengdadóttir, Margrét. Elsku Böðvar. Ég sá þig fyrst haustið 1997 þegar Styrmir, sonur þinn, kynnti okkur. Við Styrmir voram búin að vera saman í rúman mánuð þegar stóra stundin rann upp, að hitta tengdaforeldrana. Þú tókst á móti mér brosmildur og kynntir þig. Frá þér streymdi mikil hlýja og góðvild og mér leið strax vel í návist þinni. Ljúfmennska þín og góðlátleg kímni og gæska kon- unnar þinnar gerðu heimilið að sönnum griðareit fyrir fjölskylduna og margar áttum við þar gleði- stundirnar. Minningarnar streyma fram þeg- ar ég reyni að skrifa þessi fátæk- legu orð. Þú í eldhúsinu að matreiða stórmáltíðir þegar þið Nína kölluð- uð fjölskylduna saman. Það skipti ekki máli hvort það var á venjuleg- um sunnudegi eða á stórhátíðum. Maturinn var alltaf fyrsta flokks og þú lagðir þig fram um að allir færu heim vel mettir. „Fáðu þér meira, það er nóg til“, varstu vanur að segja. Á leiðinni heim frá ykkur var aðal umræðuefni okkar Styrmis að þessa uppskrift yrðum við að fá hjá þér. Þú varst alltaf að prófa eitt- hvað nýtt og aldrei brást þér boga- listin. Mig langar líka, kæri Böðvar, að þakka þér fyrir allt sem þú gerð- ir fyrir okkur Styrmi. Litla fallega íbúðin okkar er þitt verk. Ófáum helgum eyddir þú á heimili okkar við að setja upp innréttingar, leggja parket og flísar og aldrei var spurt um tíma eða fyrirhöfn. Hvert sem ég lít hér í íbúðinni okkar Styrmis má sjá fallegt hand- bragð þitt. Minningarnar hellast yf- ir mig og ég ræð ekki við tárin. Við söknum þín svo mikið og mér finnst ég ekki hafa þakkað þér nógsam- lega fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur. Við Styrmir ætluðum svo sannarlega að launa þér aðstoðina og góðvildina. En þá skyndilega og óvænt ertu tekinn frá okkur og eftir sitjum við úrræðalítil og harmi lost- in og spyrjum; hvers vegna þurfti þetta að gerast? En það er okkur huggun, að við eigum yndislegar minningar um þig, Böðvar minn, sem munu ylja okkur um ókomin ár. Ég þakka þér fyrir þann tíma sem ég fékk að njóta návistar þinnar. Hvíl í friði, kæri tengdafaðir. Þín, Helga Hafdís. Bið ég Guð að geyma þig góða vininn bjarta. Eg mun alltaf muna þig innst í mínu hjarta. Þín guðdóttir, Guðlaug Katrín. Þegar mamma hringdi snemma um morguninn, til að tilkynna mér að Böðvar föðurbróðir minn væri týndur á Mývatni, fannst mér eins og mig væri ennþá að dreyma ein- hvern vondan draum. Það var erfitt að trúa þessu. Engu að síður var það sannleikur. Við héldum í vonina um að hann fyndist á lífi, en þegar á leið varð vonin veikari og að lokum fengum við fréttina um að hann væri dáinn. Það kemur margt upp í huga minn sem tengist minningum úr æsku minni. Þessar minningar tengjast þó fyrst og fremst tíma sem er mér kær, ekki síst fyrir þær sakir að þessar dýrmætu minningar tengjast fjölskyldunni á einhvern hátt. Eitt stendur þó upp úr frá þeim tíma sem mér er minnisstæð- ur. En þetta vora ferðirnar okkar upp í Borgarnes að hitta Böðvar og Nínu, Stefni, Styrmi, Selmu og Regínu. Við bræðumir rifjum enn upp tímana í Borgarnesi og eigum hver okkar eigin upplifun sem geymd er í hjarta hvers og eins. Mig langar þó til þess að deila minni og þeirri minningu sem ég geymi af Böðvari. Það fyrsta sem má segja að hafi einkennt Böðvar var einfaldlega manngæska. Hann var ljúfur í alla staði og aldrei man ég eftir öðru en gæðum. Hann var einn af þeim mönnum sem löðuðu að sér fólk, með persónu sinni og öllu viðmóti. Hann var ríkur af kímni og sagði skemmtilega frá og fékk mann oft til að hlæja og það var svo einstak- lega gott að vera í kringum Böðvar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.