Morgunblaðið - 05.11.1999, Page 47

Morgunblaðið - 05.11.1999, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1999 47 Þegar ég og Stefnir lékum okkur við bátasmíðina í fjörunni í Borgar- nesi, var sem raunveruleikinn end- aði og við tók draumur þar sem æv- intýri voru óendanleg. Þessir tímar eru dýrmætir fyrii- mig og þá mynd sem ég geymi af Böðvari. Hann var góður við okkur. Bar mikla um- hyggju fyrir okkur og öllu því sem við gerðum og var ávallt áhugasam- ur um allt það sem sneri að öðrum. Fyrir mér er slíkur áhugi óeigin- gh-ni og göfuglyndi. Fyrir nokki’um vikum hitti ég Böðvar í síðasta sinn, þar sem hann og Stefnir komu í kaffi heim til ömmu ásamt Böðvari litla. Hann var áhugasamur um mína hagi, hvað ég væri að gera og hvernig gengi. Hann var ánægður að allt gengi vel fyrir mína hönd og þessi fundur okkar sýndi einfaldlega hjartalag Böðvars. Hann sýndi öllu áhuga sem sneri að öðrum, hlustaði með sínu einlæga viðmóti og fyrir mér var hann alltaf einstakui'. Þakklæti er mér efst í huga fyrir þau forréttindi að hafa þekkt mann eins og Böðvar. Ég mun geyma all- ar minningai'nar og fá að njóta þeirra allt mitt líf og fyrir mér eru þessar minningar dýrmætur fjár- sjóður. Guð blessi þig, Nína mín, og fjöl- skylduna, ömmu og systkinin og styi'ki ykkur í gegnum sorgina og megi minningin um Böðvar lýsa upp líf ykkai- í framtíðinni. Ó, Jesú, séu orðin þín andláts síðasta huggun mín, sál minni verði þá sælan vís með sjálfum þér í paradís. (H.P.) Ólafur Stefánsson. Það voru erfíð tíðindi sem ég fékk árla morguns hinn 27. október að hann Böðvar frændi væri týndur. Það eru svo margar spurningar sem vakna, en íslensk veðrátta getur verið svo harðskeytt og gerir oft engin boð á undan sér. Elskulegi frændi minn, þú og Nína voruð alltaf svo góð við mig þegar ég dvaldist svo oft hjá ykkur í Borgarnesi. Við Styrmir lékum okk- ur svo mikið saman og þú og Nína tókuð mér alltaf opnum örmum og ég var alltaf velkominn til ykkar þegar ég gat komist. Mér leið alltaf eins og heima hjá mér. I minning- unni verður þú alltaf brosmildur og hlýlegur í umgengni og minntir svo á hann pabba minn, þið voruð svo líkir. Þú komst nokki-um sinnum til mín á meðan ég var að byggja og sagðir mér hvað þér litist vel á það sem ég væri að gera. Það fannst mér svo sannarlega hvatning frá þér komin, sjálfum smiðnum. Kveðjan er stutt og kynnin máttu vera lengri, þú varst í blóma lífsins, Böðvar minn. Elsku Nína mín, Styrmir, Selma, Regína, Stefnir og Þorvaldur, þið eruð svo sterk, þið vissuð hvað þið áttuð og nú stendur minningin ein eftir um góðan mann. Við fjölskyldan vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Mér fínnst ég varla heill né hálfur maður og heldur ósjálfbjarga, því er ver. Ef værir þú hjá mér, vildi ég glaður verða betri en ég er. Eitt sinn verða allir menn að deyja. Eftir bjartan daginn kemur nótt. Eg harma það, en samt ég verð að segja að sumarið líður allt of fljótt. (Vilhj. Vilhj.) Björgvin Sigmar Stefánsson. Það er nú þannig að á kveðju- stund er margt sem rifjast upp en ætlum við ekki að.vera með upp- talningu í þessum fáu þakkarlínum. En í upprifjun okkar um Böðvar er alltaf það sama sem kemur upp í hugann og það er hversu nærgæt- inn, orðvar og ljúfur maður hann var. Það var svo auðvelt að þykja vænt um hann. Það var oft glatt á hjalla þegar Nína og Böðvar komu til okkar hvort sem um heimsókn var að ræða eða til að rétta okkur hjálparhönd við ýmsa vinnu, alltaf var Böðvar boðinn og búinn til að hjálpa til enda ólatur og greiðvikinn að eðlisfari. Ekki getum við hætt án þess að minnast á allar góðu stundirnai' sem dætur okkar Heiða og Guðlaug áttu með Böðvari. Þær stundir eru stelpunum mjög kærar og vitum við að þær mega þakka honum fyrir margt sem þær eflaust búa að í frammtíðinni. A hverju hausti fóru strákarnir í fjölskyldunni í veiðitúr, þar áttu þeir góðar stundir einir og með sjálfum sér. Böðvar naut sín vel í þessum ferðum, úti í náttúrunni með sonum sínum og félögum. Hans verður sárt saknað í næstu ferð. Við munum geyma allar minning- arnar í hjörtum okkar um alla tíð. Takk fyrir allt, það voru sannarlega forréttindi að fá að vera vinur hans í lífinu. Elsku Nína, við sendum þér og fjölskyldu þinni, móður hans og systkinum okkar dýpstu samúðar- kveður og biðjum Guð að varðveita minningu hans. Jóhann, Marta, Aðalheiður Jóna og Guðlaug Katrín. Vantrú voru fyrstu viðbrögð okk- ai', félaga Böðvars Björgvinssonar á ljósleiðaradeild Landssímans, þegar fréttin barst um að Böðvars væri saknað. Enginn okkar gat trúað því að eitthvað alvarlegt gæti hafa kom- ið fyrir hann, jafn áþyi'gur og var- kár maður sem Böðvar var. A einni nóttu breyttist þó von okkar í von- leysi. Þótt óveðrinu slotaði skildi það eftir sig dimman skugga og kulnaða glóð. Óteljandi spurningar sóttu að okkur. Hvað gat hafa gerst? Hvað fór úrskeiðis? Hvern- ig? Hvers vegna Böðvar? Við finn- um engin svör við spurningum okk- ar, almættið eitt býr yfir svörunum. Ljóslifandi minningin um Böðvar mun varðveitt í huga okkar og hjörtum um ókomna tíð. Skarð Böðvars í þessum fámenna hópi sem sér um að halda ljósleiðarakerfi Símans gangandi, verður aldrei fyllt. Hann var stór hluti þessa litla hóps sem í mörg ár hefur unnið meira og minna saman um allt land. Hann var einstakur maður, alltaf tilbúinn að standa við bak okkar hinna, hlusta á kvartanir okkar og vandamál og leggja sitt að mörkum tii að leysa úr þeim. Hann var ekki aðeins góður vinnufélagi heldur vin- ur og máttarstólpi jafnt við störf og utan þeirra. Böðvar var mikill hagleiksmaður og smiður og óspar á að rétta okkur félögum sínum hjálparhönd ef að- stoðar var þörf við þvað eina. Ekk- ert var sjálfsagðara en að koma og leggja parket fyi'ir sína menn. Sumarbústaðurinn upp í Borgar- firði ber hagleik hans einnig skýrt vitni. Böðvar var ekki aðeins traust- ur, vandaður og varkár, hann var ekki síður skemmtilegur í góðra vina hópi þegar lundin var létt eða eitthvað var gei-t til upplyftingar. Með Böðvari er genginn félagi og vinur sem sárt verður saknað. Eftir lifir minningin um góðan dreng. Hafðu þökk fyrir allt sem þú gafst okkur. Megi góður guð hughreysta Nínu og börnin, þeim sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Vinnufélagarnir á ljósleiðaradeildinni. Kveðja frá Landssímanum Miðvikudaginn 27. október fékk ég upphringingu frá vinnufélaga mínum þar sem mér var sagt að tveggja ágætra samstarfsmanna minna væri saknað, en þeir höfðu farið á bát út á Mývatn við þriðja mann. Um morguninn daginn áður hafði bilað ljósleiðarastrengur yfir vatnið og þó að bilanir á langlínu- kerfinu séu ekki algengar var þessi bilun lítið frábrugðin öðrum sem upp hafa komið. Það er hins vegar oft stutt á milli lífs og dauða. Það sem átti að vera venjuleg viðgerð og taka skamman tíma, snerist upp í hörmulegt stórslys, sem hefur snortið okkur öll djúpt er vinnum hjá Landssímanum. Seint á níunda ártugnum var byi'jað á einu af stæn'i verkefnum Landsímans, sem var lagning ljós- leiðara umhverfís landið. Miklu máli skipti að fá til verkefnisins menn sem höfðu haldgóða reynslu í lagn- ingu strengja. Það var því mikið ánægjuefni þegar okkur buðust stai'fskraftar Böðvars Björgvins- sonar. Hann hafði áður unnið hjá Símanum á árunum 1960 til 1978, lengi sem símaverkstjóri við línu- lagnir og m.a. lokið línumannsprófi og símsmiðaprófi frá Póst- og síma- skólanum. Aður en hann hóf aftur störf hjá Símanum nam hann tré- smíðar og lagði stund á þá iðn í Borgarnesi. Það var mikill fengur að fá Böðvar til starfa við ljósleið- aradeildina þegar, verkefnin voru að ná hámai'ki. Böðvar stai-faði við eftirlit með verktökum. I því starfi reynir á marga þætti, bæði í samskiptum og eins koma upp margvísleg fagleg úrlausnarefni, því að oft eru menn ekki sammála um hvernig ber að túlka útboðsgögn. Hann sýndi í starfi sínu mikla hæfileika í því að sætta sjónarmið verktaka og Landssímans og beina mönnum inn á réttar brautii’. Á þessum árum voru einnig mót- aðar verklagsaðferðir við lagningu Ijósleiðara og átti Böðvai' drjúgan þátt í því verki. Þessai' bættu verk- lagsreglur hafa leitt tO þess að kostnaður við þessi verk hefur jafnt og þétt farið lækkandi. Það var ann- ar starfi Böðvars að sjá um að stika út línu fyrir strenginn og þar með ákveða hvar ætti að leggja hann. T0 þess að það mætti vel fara varð hann að afla sér upplýsinga um jarðveg og landshætti hjá heima- mönnum, en þar kom sér vel að Böðvar var mjög félagslyndur og átti gott með að tala við fólk, eigin- leiki sem ekki er öllum jafnvel gef- inn. Trúlega var það af þessum ástæð- um sem félagar hans fengu hann tO þess að vera fulltrúa sinn í samn- ingaviðræðum við vinnuveitandann, starf sem hann innti af hendi af mikilli trúmennsku og án þess að ætlast tO launa fyrir sína hönd. Það ei' mér fullkunnugt um, þar sem hann kom til mín nokkrum sinnum og taldi að einhver af hans sam- starfsmönnum hefði dregist aftur úr í launum og ætti skilið hærri laun. Oft lagði hann áherslu á að ég væri ekki að upplýsa viðkomandi um þessa fundi. Ég vO með þessum fátæklegu orðum um góðan dreng senda eigin- konu Böðvars, Önnu Nínu, sem einnig starfar hjá Landssímanum, og börnum þeirra mínar innilegustu samúðarkveðjur. Samstarfsmenn þenTa hjóna hjá Símanum vilja votta fjölskyldunni dýpstu hluttekn- ingu og biðja þess að Guð styrki og varðveiti þá, sem eftir lifa. Páll Á. Jónsson. „Hann afi minn er núna engill hjá Guði.“ Það var hann Böddi litli, sonai'- sonur Böðvars, sem sagði mér þetta, um leið og hann tók í höndina á mér og leiddi mig út í bfl. Svona einfalt er þetta í huga barns sem vissi hvert afi hafði farið og af hverju hann kom ekki aftur. Hann hafði farið til Guðs. Böðvar hafði oft þurft að kveðja fjölskyldu sína og vera að heiman um lengri eða skemmri tíma vegna starfa sinna. Alltaf fylgii' því tregi þegar menn kveðja ástvini, en jafn- framt tilhlökkun að koma heim að verki loknu. Nú hefur verið lagt í síðustu ferðina og heimkoma önnur en áætlað var. Sá er þetta skrifar hefur notið þeirrar gæfu í tæp 40 ár, að eiga Böðvar að vini og samstarfsmanni. Margar góðar minningar hafa sótt á hugann nú síðustu daga, sem létt hafa erfiðar stundir. Nú síðast ferðalag með konum okkar um Þýskaland, Sviss og Ítalíu, núna í okkóber. Eins samvei-ustundir með fjölskyldum okkar og mörgum góð- um vinum í gegnum árin. Mikils virði er vinátta sona okkar sem þekkst hafa frá því þeir voru börn, og nú síðustu ár verið sam- starfsmenn okkar. Nú þegar lagt hefur verið í síð- ustu ferðina sitjum við eftir og söknum góðs drengs, sonar, eigin- manns, föður, afa, góðs vinar og samstarfsmanns. Við kveðjum í þeirri fullvissu og trú Bödda litla að Böðvar sé hjá Guði. Við geymum minningu um góðan dreng sem ekki gleymist. Megi góður Guð gefa fjölskyldu þinni og vinum styi'k í sorginni. Jóhann Orn og Helga. Eg veit þú fékkst engu, vinur, ráðið um það, en vissulega hefði það komið sér betur, að lát þitt hefði ekki borið svo bráðan að. Við bjuggumst við að hitta þig oft í vetur. Og nú er um seinan að sýna þér allt það traust, sem samferðafólki þínu hingað til láðist að votta þér. Það virtist svo ástæðulaust að vera að slíku fyrst daglega til þín náðist. (Tómas Guðmundsson.) Okkar kæri vinur Böðvar Björg- vinsson fórst í hörmulegu slysi hinn 26.10. sl. Svo löngu áður en manni fannst að hans tími gæti verið kom- inn. Þessar ljóðlínur Tómasar hér að ofan lýsa hugarástandi okkar. Þetta var svo óvænt, svo snöggt, svo skelfilegt. Við spyrjum, hvers vegna hann sem okkur fannst eiga svo mörgu ólokið? Fáum ekkert svar. Böðvar var góður maður, traustur og sannur vinur. Vinátta okkar stóð á gömlum grunni. Þrjátíu ár eða u.þ.b. eru lið- in síðan þeir vinimir og vinnufélag- amir kynntu konumar sínar hvor fyrir öðram. Síðan þá hefur verið óijúfandi væntumþykja og vinátta á milli okkar. Þá, eins og nú, voru þeir starfsmenn Landssímans. Við kon- urnar kynntumst fleirum úr þessum góða hópi sem þessir félagar í Landssímanum mynduðu. Lengi framan af var hópurinn stór, fjöl- mörg hjón hittust við hátíðleg tæki- færi og glöddust saman. Síðari árin hefur ýmislegt, svo sem eins og ann- ar starfsvettvangur o.fl., orðið þess valdandi að fækkað hefur í hópnum gamla, góða. Og nú hefur enn fækk- að. Alltaf var þó kjarni „gamalla", gróinna símamanna, sem hélt sam- an, og þar tilheyrðu Böðvai- og Nína, en nú er allt svipur hjá sjón. Ekki vitum við á þessari stundu hvernig við getum sætt okkur við fráfall okkar góða vinar og vinnufé- laga. Fjölmargar minningar frá sl. áratugum sækja fram. Allar góðar, - allar tengdar gleði á góðum stund- um, vináttu og hlýju. Við vottum aðstandendum þeirra sem fórast í þessu hörmulega slysi á Mývatni einlæga samúð okkar. Þessir menn voru að vinna sín skyldustörf, ótal heimili símasam- bandslaus, það var þeirra áríðandi verkefni að ráða bót á því. Það er al- mennt hugsun þessai'a manna; klára verkin fljótt og vel og ganga eins vel frá öllu og unnt er. Það var þessi trúmennska og ósérhlífni sem einkenndi Böðvar og félaga hans þetta örlagaríka kvöld, eins og alltaf. Elsku Nlna okkar og börnin ykk- ar Böðvars, tengdabörn, barnaböm, móðir hans og aðrir ástvinir, þið hafið misst mikið en eigið minningar um ljúfan og góðan mann. Guð veri með ykkur, styrki ykkur og styðji nú og alltaf. Vinir ykkai', Hera og Reimar. Góði vinur. Komið er að kveðju- stund sem engan óraði fyrir. Svo sárlega eram við minnt á hvað skammt er á milli lífs og dauða, gleði og sorgar. Við þökkum þér, elsku Böðvar, fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman. En þá varst þú alltaf hrókur alls fagnaðar og umvafðir okkur með ljúfmennsku þinni, en þegar tíminn hefur sefað sárustu sorgina munum við minnast þín þegar við gleðjumst saman. Guð geymi þig, elsku vinur. Elsku Nína og fjölskylda. Guð styrki ykkur og styðji á þessum erf- iðu tíðumum. Ykkar einlægi vinur. Guðbrandur Atli. Það setti að okkur ónotahroll við að hlusta á fyrstu fréttir í útvarpinu þennan októbermorgun. Slys hafði orðið og saknað var manna sem höfðu unnið að viðgerð á ijósleiðara- streng yfir Mývatn. Það er ekki fjöl- menn stétt sem vinnur við að leggja ljósleiðara um landið og í þeim hópi era nokkrir af okkar gömlu vinum og félögum þeir Böðvar Björgvins- son, Jóhann Örn Guðmundsson og Sigurbjörn Valdemarsson. Skömmu síðar var illur gi'unur staðfestur. Böðvars var saknað og hann síðan talinn af. Leiðir okkar félaganna lágu saman fyrir áratugum og mið- punktur þessa kunningsskapar var frá upphafi Jóhann Örn. Þeir Böðvar voru frá fornu fari félagar og vinir og höfðu á yngri árum unnið saman hjá símanum. Um hríð var vík milli vina því Böðvar og kona hans Nína Stefnisdóttir fluttu í Borgarnes og settust þar að með börnum sínum og byggðu sér hús á Kjartansgötunni. Þar var jafnan síðasti áningarstaður áður en lagt var upp í veiðiferðir á Ai'n- ai-vatnsheiði en þangað héldum við félagarnir á hverju vori til veiða um árabil. Það væri ekki sannleikanum sam- kvæmt að segja að þessar ferðir hafi alltaf verið einhver dans á rós- um. Við lentum í mývargi, aflatregðu, óveðri og aurbleytu en allir eru þeir erfiðleikar löngu ■ - fyrndir en eftir lifa einungis minn- ingar um falleg vorkvöld, væna fiska og góða félaga. Það var ekki einungis farið til veiða. Af mörgum ferðum er sérstaklega minnisstæð ganga á Snæfellsjökul þar sem við stóðum á hæsta tindi um óttuskeið, sem síðan var fylgt eftir með sjó- róðri sem stóð í nærri sólarhring. Það var ekki legið í leti í þessum ferðum. Þessi hópui' átti ekki einungis samleið í leik heldur líka í stai'fí og saman áttum við félagarnir t.d. um nokkurra ára skeið lítið fyrirtæki, sem skipt var upp þegar hópurinn skiptist í tvennt. Böðvar var það sem kallað er ákafamaður til vinnu og ósérhlífinn. Við munum eftir honum við vinnu í Brekkuskógi þar sem sá í iljamar á honum ofan í hreinsibrunni og jafnan var hann fyrstur upp á morgnana að elda hafragrautinn. Böðvar og Nína fluttu til Reykja- víkur og þeir félagamir þrír fóru til starfa hjá Landssímanum hf. sem þá hét reyndar Póstur og sími en við sem þetta skrifum fóram saman til annarra starfa. Útivistai'- og ferðaáhugi þeirra félaga naut sín vel við undirbúning * og lagningu ljósleiðaranets Lands- símans umhverfis landið með öllum þeim ferðalögum um fjöll og fímindi sem því hafa fylgt. Þarna unnu þeir saman félagarnir og vinirnir áram saman og þó við hinir værum ekki í daglegu sambandi þá breytti það engu. Hvenær sem við hittumst þá varð fagnaðarfundur. Þótt þessi kunningsskapur okkai' hafi byrjað milli vinnufélaga og veiði- og ferðafélaga, þá þróaðist hann smám saman í þá átt að eigin- konurnar hafa tekið völdin og hafa að mestu séð um félagslega þáttinn í þessum litla og óformlega klúbbi okkar. Fastir punktar í þessu fé- . lagsstarfi hafa verið svonefnd Lóu- gleði um Jónsmessubil, skötuveisla á Þorláksmessu og svo auðvitað þorrablót til skiptis á heimilum okk- ar. Böðvar Björgvinsson var ekki margmáll maður en hann hafði ríka réttlætiskennd. Hann var traustur heimilisfaðir og vinur vina sinna. Alltaf hress og glaður í bragði í vinahópi. Við hrökkvum nú allt í einu upp við það að óvænt er höggvið stórt skarð í þennan hóp. Okkai- huggun er sú að minningin um góðan dreng lifir í hjartanu líkt * og fögur vornótt á heiði löngu eftir að öll óveður og erfiðleikar mann- lífsins eru gleymdir. Við biðjum þann sem yfir vorri tilvera vakir að blessa og styðja Nínu, bömin og aðra ættingja og vini í þeirra sáru sorg. Friðrik Bergsveinsson, Sveinn Hannesson og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.