Morgunblaðið - 05.11.1999, Side 70
'/ 70 FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1999
MORGUNB L AÐIÐ
. >
Hundalíf
•
Ferdinand
Já, ungfrú, Þegar ég fór að heiman í Einhvern veginn, Drullugur
„svúiastía”. morgun þá var ég hreinn. tiitölulega, upp fyrir haus.
á mörkunum.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringiunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Fölsun ljóðhefðar
og fleira smávegis
Frá Guðmundi Guðmundarsyni:
LISTASKÁLDIÐ góða Jónas Hall-
grímsson skráði mergjaða ádrepu
fyrir nálægt 180 árum svohljóðandi:
yLeirskáldum á ekki að vera vært“!
I lok 18. aldar ríkti slíkt hörmung-
arástand hér á landi að 1/5 hluti
þjóðarinnar dó úr hungri, kulda og
vesöld á einu ári. Eldgos og hafís
áttu þar hlut að máli.
A þessu ömurlega tímabili í þjóð-
arsögunni voru það fyrst og fremst
metnaðarfullir „lærdómsmenn" og
ekki síst Ijóðskáldin, sem stöppuðu
stálinu í þjóð okkar. Ljóðagerðin
var kjölfestan, sem átti greiðan að-
gang að hjörtum þjóðarinnar og
ömurlegur rímnakveðskapur leið
smám saman undir lok.
Ljóðskáld síðustu aldar upp-
tendruðust gjaman á erlendri
grund, fylltust heimþrá, metnaði og
þjartsýni mitt í ömurleikanum hér
heima. Sáu fyrir sér ættjörðina í
dýrðarljóma frelsis og framfara á
mörgum sviðum. Það verður að telj-
ast kaldhæðni örlaganna að framan-
greind tilvitnun listaskáldsins um
leirskáldin skuli nú á tímum eiga
brýnt erindi við íslenska þjóð og at-
vikin haga því svo að hópur „lær-
dómsmanna" heldur nú verndar-
hendi yfir leirburðinum! Tii frekari
áherslu smáupprifjun.
„Rauðir og róttækir"
Það er aðeins eitt ráðuneyti, sem
ávallt hefur verið efst á óskalista
kommúnista, þegar þeir hafa eygt
möguleika á stjómarsetu; mennta-
málaráðuneytið.
Síðan hafa þeir leyft sér að mis-
nota aðstöðu sína þar eins og mest
má verða, með því að pota sínum
mönnum til starfa og stjómunar
sem víðast. Þeir hafa heldur ekki
hikað við að falsa kennslubækur og
umtuma mikilvægum hefðum. Ég
ætla aðeins að rifja upp lítið atriði,
sem snertir grein þessa. Bannaður
var utanaðlærdómur og þar með að
blessuð börnin máttu alls ekki læra
ljúfu ljóðin góðskáldanna eins og
þau hafa gaman af að læra þau og
syngja. Ymsir frábærir kennarar
hafa margoft í áhugaverðum
greinaskrifum bent á ótal mörg
slæm mistök, sem bráðnauðsynlegt
væri að breyta og lagfæra, án nokk-
urs árangurs! Er ekki löngu kominn
tími til að ræða ítarlega við fagfólk-
ið og leiðrétta sem flest af marg-
háttuðum mistökum.
Svavar Gestsson er menntaður
austantjalds eins og ýmsir fram-
verðir hinna róttæku og hefír ávallt
reynst trúr sinni köllun.
I þessu sambandi vil ég vekja at-
hygli á því að atvikin höguðu því svo
fyrir löngu, að ég fór um skeið ár-
lega á vörusýningar austantjalds.
Mig furðaði mikið á því, hvemig ísl.
námsmenn gætu þrifist í hinu of-
sóknarfulla andrúmslofti þar
eystra. Þarna ríkti í raun og sann-
leika rauður fasismi með grimmi-
legri kúgun. Það hefir þurft mikið
þrek til að stunda nám þama og
upplifa ótal margt sem blasti við á
öllum sviðum. Og þó tekur steininn
úr að koma hingað heim og gerast
trúboði þessarar helstefnu.
Svavar hefir nú uppskorið heið-
ursverðlaun fyrir störf sín og fram-
göngu og stundar þjóðrækni í
Kanada. Marga íleiri garpa mætti
að sjálfsögðu nefna en það biður
síns tíma.
Til íhugunar ætla ég í lokin að
nefna til sögu annan Svavar (föður
geimfarans) sem búið heflr í
Kanada í 42 ár samfellt.
Sl. haust kom hann hingað heim í
stutta heimsókn. Bæði í útvarpsvið-
tali og spjalli við mig og fleiri kunn-
ingja sagði hann: „Mig furðar mest
á ljóðagerðinni. Hvað er eiginlega
að ske hjá ykkur? Ég hef ekki hug-
mynd um, hvað þeir þykjast vera að
gera. Þetta em bara ruglukollar."
Þetta er tímabær orðsending inn
yfir „þagnarmúrinn“ til „gáfu-
mannafélagsins", sem stöðugt lof-
syngur prósann!
Einföld lausn
I raun og vem er til mjög einföld
lausn á þessu þrasi um kveðskap-
inn. Ostuðluð ljóð em prósi. Hann
virðist kominn til að vera en á skil-
yrðislaust að gangast við sínu rétta
nafni með yfirskriftinni: Prósi. Ljóð
era stuðluð! Málið útrætt!
Hættum allri fölsun strax og lát-
um kveðskapinn á nýrri öld flokkast
réttilega eins og vera ber í ljóð og
prósa!
GUÐMUNDUR
GUÐMUNDARSON,
Lynghaga 22.
Afengi fyrir unglinga;
framtak Nýkaupa
Frá Ölfu Kristjánsdóttur:
ÉG sem móðir þriggja ungra bama
vil hvetja fólk til að gera innkaup sín
annars staðar en í Hagkaupi og Ný-
kaupi eftir furðulegt framtak versl-
unarkeðjunnar í áfengismálum.
Við Islendingar búum við áfengis-
böl; þetta er skætt eiturlyf þó dreif-
ing þess sé að vísu leyfð samkvæmt
lögum. Unglingadrykkja hér á landi
er svo alvarleg og sérkennileg að
heimsathygli vakti eftir þátt er-
lendra fréttamanna um þetta efni
fyrir nokkmm ámm. Þemað í þætt-
inum var; á íslandi býr glæsileg nor-
ræn þjóð, vel menntuð; en ungling-
arnir þeirra eru fyllibyttur! Með
fylgdu myndir af dauðdrukknum
börnum, sumum liggjandi á götum
miðbæjar Reykjavíkur.
Ef einhver alvara er á bak við bar-
áttuna gegn fíkniefnum er lágmarkið
að við sættum okkur ekki við dreif-
ingu þeirra úr matvöraverslunum.
Þið ráðið hvað þið gerið. Ég versla
annars staðar.
ALFA KRISTJÁNSDÓTTIR,
ráðgjafi um skjalastjómun.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.