Morgunblaðið - 22.12.1999, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Landbúnaðarráðherra skipar nefnd til að
skoðafósturvisaurnorskumkúastofni ^
'G-Mu/'J D-
Það kemur sér vel núna að hafa vöi á réttu farartæki til að geta flýtt sér hægt.
Eigendur skyldusparnaðar fá
innstæður sínar sendar í pósti
273 milljónir
greiddar út um
áramót
Samkeppni í
heimasíðugerð
meðal grunn-
skólanema
FRÆÐSLURÁÐ Reykjavíkur hef-
ur samþykkt að undirbúa verðlauna-
samkeppni í heimasíðugerð meðal
grunnskólanemenda í Reykjavík, á
árinu 2000. í tillögunni segir að
heimasíður skipi á komandi árum á
ríkari sess í samskiptum skólasamfé-
lagsins og því sé vel við hæfí að fela
yngstu kynslóðinni að opna þessar
mikilvægu dyr framtíðarskólans fyr-
ir andblæ nýrrar aldar.
Reglur keppninar hafa ekki verið
útfærðar nákvæmlega en Sigrún
Magnúsdóttir, formaður fræðslur-
áðs, segir hugmyndina vera þá að
elstu nemendur grunnskólanna vinni
saman að gerð heimasíðu fyrir skól-
ann sinn og síðurnar verði svo metn-
ar eftir því hversu vel þær eru unnar,
meðal annars með tilliti til ferskleika
og nýjunga.
Sigrún segir mikið talað um að
grunnskólarnir þurfi að hafa góðar
heimasíður. „Pað býr svo mikið í
þessum krökkum, þau eru mörg
hver orðin klárari á tölvur en margir
fullorðnir og ég er sannfærð að það
getur komið margt skemmtilegt út
úr þessu,“ segir Sigrún.
ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR greiðir
þessa dagana út allan þann skyldu-
sparnað sem enn liggur á skyldu-
sparnaðarreikningum landsmanna.
Samkvæmt upplýsingum frá íbúða-
lánasjóði eru alls um rúmlega 273
milljónir að ræða, sem skiptast milli
3.773 einstaklinga. Lægstu upp-
hæðirnar eru innan við ein króna en
þær hæstu eru á þriðja hundrað
þúsund.
Verið er að loka skyldusparnað-
arkerfínu alfarið og samkvæmt lög-
um skal íbúðalánasjóður greiða út
allan þann skyldusparnað sem ligg-
ur á skyldusparnaðarreikningum
þann 1. janúar árið 2000. í samræmi
við þetta ákvæði er öllum sem eiga
innistæðu send ávísun hvort sem er
um háa eða lága fjárhæð að ræða.
Vextir eru reiknaðir til 1. janúar
2000, en eftir þann dag munu inn-
stæður á skyldusparnaðarreikning-
um hvorki bera vexti né verðbætur.
íbúðalánasjóður bendir eigend-
um skyldusparnaðar, sem eiga lög-
heimili erlendis, á að hafa samband
til að fá innistæður sínar greiddar
út, þar sem oft á tíðum liggja ekki
fyrir nógu tryggar upplýsingar til
að hægt sé að senda þeim ávísanir.
Hallur Magnússon, jfirmaður
gæða- og markaðsmála Ibúðalána-
sjóðs, segir ástæður þess að fólk
eigi ennþá innistæður á skylduspar-
naðarreikningum bæði vera þá að
það hafí kosið að ávaxta fé sitt með
þessum hætti og einnig að það hafi
hreinlega gleymt þeim og ekki veitt
reikningsyfirlitum athygli.
Lax & síld
Góðgæti d jólaborðS
Nýr rektor Kennaraháskóla Islands
Menntun
og mann-
auður
Ólafur Proppé
UM ÁRAMÓT tók
dr. Ólafur Proppé
prófessor við
starfi rektors Kennara-
háskóla íslands, en frá-
farandi rektor er Þórir
Ólafsson sem verið hefur
rektor undanfarin átta
ár. Ólafur var spurður
hvernig hið nýja starf
horfði við honum.
„Ég hlakka til þess að
takast á við þetta veiga-
mikla starf. Fyrir tveim-
ur árum voru fjórir eldri
starfsmenntaskólar sam-
einaðir í einn. Með sam-
einingu þessari var lagð-
ur grundvöllur að eflingu
starfsmenntunar þeirra
starfsstétta sem sinna
kennslu, þjálfun, uppeldi
og umönnun hér á landi.
Það er mikið verk óunnið
til þess að hinn nýi há-
skóli verði í raun ein, öfl-
ug stofnun."
-Er starfsmenntun kennara
að breytast um þessar mundir?
„Hafin er mikil endurskoðun á
öllum námsbrautum skólans,
unnið er að nýrri náms- og
kennsluskrá sem að hluta til tek-
ur gildi næsta haust. Starfs-
menntun leikskólakennara,
íþróttakennara og þroskaþjálfa
breytist við þessa sameiningu
þar sem það nám er nú komið
formlega á háskólastig."
- Hvernig er skipulagi skólans
háttað?
„Kennaraháskóli Islands er
stór stofnun. Við skólann eru yf-
ir tólf hundruð stúdentar í
nokkrum deildum og skorum,
þar af um tvö hundruð í fram-
haldsnámi á mismunandi sviðum
uppeldis- og kennslufræða, skól-
inn hefur nú þegar útskrifað um
þrjátíu meistaraprófskandídata.
Auk þess starfar við skólann öfl-
ug símenntunarstofnun. Veiga-
mikið hlutverk Kennaraháskóla
íslands er líka rannsóknir og
þjónusta við samfélagið. Þess
má geta að Kennaraháskóli Is-
lands er leiðandi í þróun fjar-
kennslu á háskólastigi, um þriðj-
ungur stúdenta við skólann
stunda nám með þeim hætti.“
- Eru breytingar í aðsigi hvað
snertir þróun upplýsingatækni?
„Já, það eru mjög örar breyt-
ingar á þessu sviði og framund-
an er mikið átak í frekari notkun
upplýsingatækni við fjarkennslu
og önnur störf við Kennarahá-
skóla Islands. Við skólann er
unnið þróunarstarf á sviði upp-
lýsingatækni í skólastarfí. Kenn-
araháskóli Islands
hefur samstarf við
fjölmarga háskóla
bæði hér á landi og er-
lendis. Nemendur
skólans sækja í vax-
andi mæli hluta af námi sínu til
útlanda og hér við skólann eru á
hverju misseri nokkrir tugir er-
lendra nemenda. Auk þess hafa
kennarar skólans samstarf við
erlendar stofnanir um rannsókn-
ir og þróunarverkefni á fjöl-
mörgum sviðum."
- Hvað er framundan?
„Það er margt framundan, svo
sem ný bygging yfir bókasáfn
Kennaraháskólans og fleira sem
lýtur að upplýsingatækni og
upplýsingamiðlun. I því húsi
verða líka nýir og fullkomnir
fyrirlestrasalir."
-Á hvern hátt eru þeir frá-
► Ólafur Proppé fæddist í
Reykjavík 1942. Hann lauk kenn-
araprófi frá Kennaraskóla Is-
lands 1974. MA-prófi lauk hann
frá University of Ulinois 1976 og
doktorsprófi frá sama skóla
1983. Hann var kennari á ár-
unum 1964 til 1974, sérfræðing-
ur við skólarannsóknardeild
menntamálaráðuneytisins 1975
til 1983, lektor við Kennara-
háskóla Islands 1983, dósent við
sama skóla 1990, prófessor 1992
og tekur við rektorsstarfi við KI
um áramót. Kona Ólafs er Pétr-
ún Pétursdóttir, forstöðumaður
Hafnarborgar, og eiga þau þrjú
uppkomin börn.
brugðnir hinum gömlu?
„Þeir verða sérstaklega út-
búnir fyrir nýtingu upplýsinga-
tækni, með tölvutengingum fyrir
nemendur og fullkomnum
kennslubúnaði til margmiðlun-
ar.“
- Hvað með bókasafnið, er það
nægilega efnismikið?
„Það þyrfti aukið fé til bóka-
kaupa en eigi að síður erum við
mjög stolt af bókasafni skólans,
það er fremsta bókasafn á sínu
sviði á landinu. Það þjónar bæði
nemendum og kennurum skól-
ans, einnig þjónar það öðrum
sem stunda rannsóknir á sviðum
uppeldis- og menntunarfræða."
- Hvað eru margir kennarar
nú við skólann?
„Við Kennaraháskóla íslands
starfa um eitt hundrað háskóla-
kennarar, aðjunktar, lektorar,
dósentar og prófessorar. Fastir
starfsmenn skólans
eru um tvö hundruð
en á launaskrá eru
mun fleiri þar sem
nokkur hluti kennsl-
unnar er unninn af
stundakennurum."
-Miklar umræður hafa verið
að undanförnu um gæði kennslu
og kennaramenntun - hvað viltu
segja um hlutverk skólans í
þessu efni?
„Hlutverk starfsmenntahá-
skóla á borð við Kennaraháskóla
Islands er mikilvægt fyrir sam-
félagið. Menntun og mannauður
er vaxtarbroddur mannlífsins í
landinu og forsenda fyrir fram-
þróun. Starf kennara og annarra
stétta sem menntaðar eru við
Kennaraháskóla íslands eru
mikilvæg fyrir þjóðina og fram-
tíð hennar."
Erum mjög
stolt af bóka-
safni skólans