Morgunblaðið - 22.12.1999, Síða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Engin silki-
mjúk umskipti
Reuters.
Ekki var spáð vel fyrir Póllandi fyrst eftir
hrun kommúnismans en annað kom á dag-
inn. Það, sem hjálpaði meðal annars, var, að
miðstýringin var í raun dauð áður en um-
skiptin urðu; kommúnistum hafði aldrei tek-
ist að eyðileggja kirkjuna og síðan hafa Pól-
verjar notið nálægðarinnar við Evrópu-
sambandið.
eftir Jeffrey Sachs
The Project Syndicate.
ÞAÐ er auðvelt að lofa byltingar
sem gerast annars staðar. Að und-
anfömu hafa Vesturlandabúar
fagnað því að tíu ár eru liðin frá
endalokum kommúnismans sem og
þeirri staðreynd að hann hrundi án
nokkurra blóðsúthellinga. í ríkjum
fyrrum Sovétríkjanna hafa hins
vegar tíu erfið breytingarár dregið
úr saeluvímunni.
Sumt hefur gengið eftir. Ung-
verjaland stendur betur en flest
önnur fyrrum kommúnistaríki.
Eistland hefur siglt framúr öðrum
Sovétríkjum og mikil vandamál
blasa við Suður-Evrópu. Önnur ríki
hafa hins vegar komið á óvart. Árið
1989 héldu allir að Pólland væri
dæmt til glötunar en hefur í staðinn
orðið miðstöð hringiðunnar. Tékkl-
and, sem var í mestu uppáhaldi,
hvarf frá flauelsmjúkri byltingu til
þokukenndra umbóta.
Rússland hefur verið helsta ráð-
gátan. Það komst hjá hruni því sem
almennt var spáð af nú atvinnu-
lausum Kremlarsérfræðingum. En
Rússland neitaði líka að verða eins
og allir hinir. Sjálfur hélt ég að
hrun kommúnismans myndi yngja
rússneskt þjóðfélag upp mun fyrr,
jafnvel þótt ég hefði frá byrjun leitt
að því rök að Rússland ætti grýtta
braut í vændum og þjóðin þyrfti á
umtalsverðum fjárstuðningi að
halda frá Vesturlöndum.
Þrátt fyrir að margvíslegar um-
breytingar séu komnar vel af stað
þá er líklega hægt að draga nú þeg-
ar nokkurn lærdóm af umskiptum
fyrrverandi kommúnistaríkja:
Markaðir virka en þurfa traust-
an lagaramma til að geta starfað
eðlilega.
I þeim ríkjum sem hægt var að
breyta lagarammanum hratt og
fella niður verðlagsstjórn, óteljandi
styrki, og tryggja frjálst gengi, þar
byrjuðu markaðsöflin að starfa
fljótt og af skilvirkni. Með umbót-
unum var heillavænlegum öflum
framboðs og eftirspurnar gefínn
laus taumur, eins og reynsla Pól-
verja sannaði svo áþreifanlega og
batt þar með enda á viðvarandi
skort sem ríkt hafði í gamla kerf-
inu. En þar sem nýr lagarammi
krafðist ákveðinna ríkisstofnana
sem tók tíma að skapa höfðu hraðar
endurbætur oft miður eftirsóknar-
verðar afleiðingar. Hröð einkavæð-
ing, sérstaklega hin umfangsmikla
eignartilfærsla í Tékkóslóvakíu,
þar sem landsmenn fengu ávísun á
eignarhluta ríkisins, og í Rússlandi
Þar sem unnt reynd-
ist að breyta fyrir-
liggjandi lagarömm-
um hafa markaðs-
öflin náð sér vel á
strik en annars
staðar ekki.
sem og öðrum fyrrverandi ríkjum
Sovétríkjanna, bar ekki tilætlaðan
árangur. Yfirfærsla eigna ríkis til
einkaaðila skapaði ekki í raun
hreina eignaraðild. Það sem verra
var; hraðri einkavæðingu fylgdi
stóraukin spilling, fjársvik stjórn-
enda og lömun á fyrirtækjunum.
Þótt draga hefði mátt úr misnotk-
uninni var meginástæða þess að
áætlunin mistókst sú að umbætur á
ríkinu héldu ekki í við efnahagsum-
bætur.
Ólíkar aðstæður
Upphafleg staða skiptir máli
þegar hagkerfi eru endurskipulögð
Sumt af því sem komið hefur á
óvart við umskipti fyrrum komm-
únistaríkja hefði ekki þurft að
koma til ef hugað hefði verið nóg-
samlega að hinum
mismunandi byrjun-
arreitum. Sem dæmi
þá skapaði ringulreið-
in í Póllandi á níunda
áratugnum möguleik-
ana á örum vexti á
þessum áratug, því
hin dauða hönd mið-
stýringar hafði þegar
verið höggvin burt
þegar endurbæturnar
hófust. Þar sem mið-
stýringin var enn við
lýði, eins og í Tékkó-
slóvakíu, var örðugra
að losna við fordæmið
af ríkisframkvæmd-
um sem reknar voru
með tapi. I Kína, sem
byggist aðallega á
landbúnaði, hefur
mikilvægi stórra iðn-
aðaráforma á vegum
ríkisins ekki verið eins
mikið, og því hefði
endurbótunum mátt
fresta og traustið sett
á nýtt upphaf. En í
þróaðri sósíalistaríkj-
um, eins og Rússlandi
þar sem 90% af þjóð-
inni unnu við iðnað á
vegum ríkisins, var
verkefnið mun erfið-
ara; endurskipulag-
ning ríkiskerfisins var
nauðsynleg en hún
var jafnframt hindrun
fyrir skjótum bata.
Siðmenntað samfé-
lag er nauðsynlegt svo endurbætur
geti heppnast.
Jafnvel þar sem ríkisstjórnir
hafa góðar fyrirætlanir þá hafa
þær tilhneigingu til að vera spilltar
ef þær búa ekki við aðhald. Stjórn-
arskrár veita visst aðhald en frjáls
félög fagmanna, trúarbragða og
héraða eru hjarta hvers siðmenn-
taðs samfélags og veita betri stöð-
ugleika. Hreinsanir Stalíns í Rúss-
landi eyddu öllum sjálfstæðum
stofnunum sem hefðu getað stöðv-
að gripdeildir spilltra embættis-
manna, stjórnenda og ííkis. I Pól-
landi aftur á móti náði
kommúnisminn aldrei að eyði-
leggja kaþólsku kirkjuna eða koma
í veg fyrir uppgöngu Samstöðu.
(Stalín kvartaði eitt sinn yfir því að
það að koma á flokksreglum væri
líkt og að setja hnakk á kú.) Jafnvel
þótt þeir væru oft andvigir ýmsum
stefnumarkandi tillögum gátu
verkalýðsforingjar Samstöðu
stöðvað stjórnendur í því að stela
eignum fyrirtækja, og kirkjan var
afl sem allar ríkisstjórnir urðu að
taka tillit til.
Nálægðin við ESB skiptir máli
Landfræðileg staðsetning skiptir
miklu máli.
Það er í tísku nú um stundir að
leggja áherslu á alþjóðlegt eðli
vandamála í heiminum. En land-
fræðin skiptm samt ennþá máli. Því
nær Evrópusambandinu sem fyrr-
um kommúnistaríki voru því árang-
ursríkari og áhrifameiri varð um-
breytingin. Lönd eins og Pólland,
Ungverjaland, Tékkland, Slóvakía,
Slóvenía, Króatía og Eystrasalts-
löndin hafa náð mun meiri árangri
við að laða til sín erlenda fjárfesta,
auka útflutning og örva efnhags-
legan vöxt heldur en þeir sem eru í
meiri fjarlægð frá Evrópusam-
bandinu. Rétt eins og bandarísk
fyrirtæki sem fara til nágrannans í
Mexíkó, þá leita þýsk fyrirtæki til
sinna nágranna í austri.
Sagan varpar löngum skuggum.
Árið 1989 var talið ár nýs upp-
hafs - nú væri vaknað upp af mar-
tröð. En 1989 vakti einnig upp
gamla úlfúð og minni sem hafði ver-
ið haldið niðri á dögum kommúnis-
mans. Hvem hefði órað fyrir því við
lok tuttugustu aldar að serbneskar
goðsagnir um Kosovo-bardagann
1389 myndu efla heila þjóð til blóð-
ugra þjóðernishreinsana undir for-
ystu Slobodan Milosevic?
Aðstoð frá þróuðum löndum
getur haft mikið að segja
Að hluta til er hægt að ásaka
Vesturlönd íyrir það að hafa verið
værukær í ásetningi sínum og nísk
á fjármuni. Pólland er undantekn-
ingin sem sýnir hvað hefði getað
orðið. Þar hjálpuðu Vesturlöndin
frá upphafi með greiðslujöfnunar-
lánum og seinna með niðurfellingu
skulda. Berum þetta saman við það
sem átti sér stað í Rússlandi sem
var neitað um bráðnauðsynlega
fjárstyrki og að varanlega yrði
dregið úr skuldabyrði þeirra.
Mörgum stjórnmálamönnum og
borgurum innan Bandaríkjanna
fannst sem þeir ættu ekkert með
það að aðstoða fyrrum keppinaut
sem ennþá hafði yfir að ráða um
10.000 kjarnaoddum. Sú aðstoð,
sem veitt var, var sem dropi í hafið
þegar litið var til hinna himinháu
skulda Rússlands og félagslegra
þarfa þess. Hver er svo útkoman?
Alþjóðlegi Gjaldeyrissjóðurinn út-
vegaði reyndar mestallt fjármagnið
en aðeins þegar öllum umbótasinn-
um hafði verið komið frá völdum og
hið rússneska ruplræði hafði sýnt
sig!
Höfundurinn er forstöðumaður Al-
þjóðlegrar þróunarstofnunar við
Harvard-háskóla og efnahagsráð-
gjafí ríkisstjóma íSuður-Ameríku,
Afríku, Evrópu og Asíu.
Tilkynning frá Kirkjugörðum
Reykjavíkurprófastsdæma
Jólaþjónusta starfsfólks
Gleðílega jólahátíð
Kirkjugaröar Reykjavíkurprófastsdæma
http://www.kirkjugardar.is
Jól í görðunum
Á jólum kemur fjöldi fólks í Fossvosskirkjugarð, Gufuneskirkjugarð
og Suðurgötugarð til þess að huga að leiðum ástvina sinna.
Við munum leitast við að leiðbeina ykkur eftir bestu getu.
Þjónustusímar 551 8166 og 587 3325
Aðalskrifstofan í Fossvogi, sími 551 8166, og skrifstofan í Gufunesi,
sími 587 3325, eru opnar alla virka daga frá kl. 8.30 - 16.00.
Skrifstofurnar eru opnar á Þorláksmessu og aðfangadag frá
kl. 9.00 til 15.00. Þar veitum við upplýsingar, gefum leiðbeiningar
um aðhlynningu leiða og afhendum ratkort ef þörf krefur.
Leiðsögn og prestsþjónusta
Á Þorláksmessu og aðfangadag, milli kl. 10.00 og 15.00, verða
Fossvogskirkja og þjónustuhús í Gufuneskirkjugarði opin.
Á aðfangadag munu prestar verða til staðar fyrir þá, sem vilja
staldra við í dagsins önn. Starfsmenn kirkjugarðanna verða á
vettvangi í görðunum báða þessa daga og leiðbeina fólki
frá kl. 9.00 til 15.00.
*
Ihaldsflokkurinn
Hague var-
aður við
London. The Daily Telegraph.
SUMIR liðsmenn svonefnds
skuggaráðuneytis íhaldsflokksins
breska hafa varað flokksleiðtogann,
William Hague, við og sagt að hann
verði að stjórna af meiri festu.
Um helgina gekk áhrifamaður í
flokknum, þingmaðurinn Shaun
Woodward, yfir í raðir Verkamanna-
flokksins og olli ákvörðun hans
miklu fjaðrafoki.
Einnig þykir vandræðagangur yf-
ir framboði til embættis borgar-
stjóra í London ekki hafa orðið
flokknum til framdráttar, meðal
annars hneykslismál í tengslum við
Jeffrey Ai'cher sem varð að draga
framboð sitt til baka. Síðan var öðr-
um frambjóðanda, Steven Norris,
hafnað af flokksskrifstofunni. Hague
skarst þá í leikinn og er nú ljóst að
Norris verður í framboði. I nokkra
daga var hann úti í kuldanum og
ljóst að fjölmiðlaumfjöllunin um
þessi mál hefur skaðað íhaldsflokk-
inn mikið.
Þingmenn flokksins telja m.a.
ótækt að áðurnefndum Woodward
hafi verið skýrt frá því með bréfi frá
James Arbuthnot, agameistara
þingflokksins, fyrir þrem vikum að
hann væri ekki lengur talsmaður
flokksins á þingi í málefnum London.
Deilt er einnig á Michael Ancram,
sem er formaður flokksins, fyrir að
hafa lélega stjórn á viðburðum en
bregðast síðan of harkalega við þeg-
ar vandamál koma upp.