Morgunblaðið - 22.12.1999, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1999 31
LISTIR
Hefðbundið
djasstríó
• SIG URGANGA KR í máli
og myndum er um sigurgöngu
meistaraflokks KR í kvenna-
og karlaflokki í knattspyrnu
sumarið 1999. Auk þess er í
bókinni yfirlit yfir starfsemi
yngri flokka KR í knattspyrnu.
Fjallað er um leiki sumar-
sins, greinar og viðtöl við aldna
sem unga KR-inga, sem og við-
töl við forsvarsmenn annarra
félagsliða. I bókinni eru fjöl-
margar myndir frá leikjum
sumarsins og stemmningunni
jafnt innan vallar sem utan.
Ritnefnd bókarinnar var
skipuð Sigurjóni M. Egilssyni,
Ólafi Biynjari Halldórssyni,
Óskari Hrafni Þorvaldssyni og
Sæmundi Guðvinssyni. Aðrir
höfundar efnis eru Margrét
Jónsdóttir, Róbert Róbertsson,
Stefán Karl Kristjánsson o.fl.
Utgefandi er Utgáfuféiagið
Selsvör ehf. í samvinnu við
Knattspyrnudeild KR. Bókin
er 136 bls., prentuð í Prentsm-
iðjunni Grafík hf.
• TBR í 60 ár - Saga Tennis-
og badmintonfélags Reykjavík-
ur 1938-1998 er skráð af Ár-
manni Þorvaldssyni. Sagt er frá
aðdraganda stofnunar TBR,
hvernig frumkvöðlarnir kynnt-
ust badmintoníþróttinni og
hvernig henni reiddi af við erf-
iðar aðstæður á Islandi. Bygg-
ingarsaga TBR-húsanna er
rakin og einnig er sagt frá fjöl-
mörgum atburðum í sögu fé-
lagsins. Einnig er í bókinni skrá
yfir heimildir, svo og nafnalisti.
Utgefandi er Tennis- og
badmintonfélag Reykjavíkur.
Bókin er 246 bls., með um 150
myndum. Bókin er prentuð í
Asprenti. Bókin er ekki seld í
bókabúðum og seid í 400 ein-
tökum.
• SVANUR ogsumarið er eftir
Sören Olsson og Anders Jacobs-
son, í þýðingu Jóns Daníelsson-
ar. Sagan segir frá Andersson-
fjölskyldunni sem fer í útilegu.
Upphafið lofar ekki góðu því að
hvert vill fara í sína áttina, en að
lokum fara þau öll saman í
gamla húsvagninum sem pabbi
og mamma tóku á leigu fyrir
brúðkaupsferðina sína. Það er
þröngt og stundum erfitt - en
margt skemmtilegt gerist.
Útgefandi er Skjaldborg.
Bókin er218bls. Verð: 2.280 kr.
TONLIST
Geislaplutur
BETR’EN ANNAÐ VERRA
Tríó Ólafs Stephensens: Ólafur
Stephensen, pi'anó, Tómas R. Ein-
arsson, bassi og Guðmundur R. Ein-
arsson, trommur. Verðandi 1999.
ENGIN íslensk djassveit hefur
leikið jafn víða og tríó Ólafs Steph-
ensens nema þá Mezzoforte. Þó
eru þær sveitir jafn ólíkar og dag-
ur og nótt. Mezzoforte í stjörnum-
erki bræðingsins, fusion, en trió
Óla Steph hefðbundið djasstríó í
klassískum skilningi orðsins, main-
stream. Þetta er annar diskur
tríósins, en sá fyrri, Píanó, bassi
og tromma, kom út 1994.
Þó tónlistin beri sama yfirbragð-
ið á diskunum tveimur, eru þeir
um sumt ólíkir. Sá fyrri er snarp-
ari og glaðbeittari og upptakan
hefðbundin, en sá nýi var tekinn
upp á Kjarvalsstöðum og er tónn-
inn hrár einsog að var stefnt.
Á diskaumslagi er vitnað í Morg-
unblaðsumsögn eftir undirritaðan
frá 14. ágúst sl. þar sem segir:
„Ekki er það síst leikgleðin og
húmorinn sem smitar. Píanistinn
því betri sem einfaldleikinn er
meiri...“ Þetta get ég staðið við eft-
ir að hafa hlustað gaumgæfilega á
nýja diskinn: betr’en annað verra!
En kannski hefði leikgleðin og
húmorinn verið enn meiri ef hlust-
endur hefðu verið í salnum.
Tríó Óla Steph hefur fastmótað-
an stíl sem ekki breytist. Hljóm-
sveitarstjórinn leikur laglínurnar
og kryddar gjarnan með blokk-
hljómum. Tómas slær bassann með
sveiflu og allt kórónar svo Guð-
mundur R. Einarsson með burst-
unum og heldur háværari en menn
eiga að venjast á þessari breiddar-
gráðu í þessari djasstegund. Lögin
fara yfirleitt ekki yfir fimm mínút-
ur og þá sjaldan bassi eða tromm-
ari taka sólóa eru þeir stuttir og
hnitmiðaðir. Ólafur er kannski
bestur þegar hann er lýrískastur
einsog í Vísum Vatnsenda-Rósu
(þriðja hljóðritun íslenskra djass-
leikara á þeirri þjóðvísu) og í sól-
ónum bregður fyrir andblæ St.
James Infirmary er Jack Teagar-
den flutti allra manna best. Fjórir
ópusar eru úr söngvabók Elling-
tons: Perdido eftir básúnuleikara
meistarans Juan Tizol, kynningar-
lag hans Take the A-train sem
Billy Strayhorn samdi, I’m begin-
ing to see the light again þar sem
Johnny Hodges og meirað segja
Harry James komu að og svo Just
squeeze me - ópus sem erfitt er að
flytja svo réttur djassandi ríki og
hefði ég gjarnan viljað skipta á
honum og hinni stórskemmtilegu
útsetningu Óla á Close your eyes
þarsem sænska þjóðlaginu Ach
Vármland du sköna er ofið inní. En
þó þá perlu vanti á diskinn er húm-
orinn að sjálfsögðu oft annarsveg-
ar þegar tríó Ólaf Steph er hins-
vegar og La Scala heitir blús eftir
Óla, þar blæs hann í þjálfaraflautu
í upphafi, Guðmundur þyrlar og
Johnny come marching in hljómar
áðuren Óli upphefur blúsinn með
Basie-stæl.
Samspil þeirra félaga er glimr-
andi í Whistle while you work og
þar er byggð upp kitlandi spenna;
Perdido er í stjörnumerki Tómasar
og Takin a chance on love Guð-
mundar og svo er spunalínan falleg
hjá Óla í When you wish upon a
star - afturá móti finnast mér Oh,
good grief og Once I had a secred
love dálítið köntuð. Þá hafa verið
nefndir allir ópusarnir á skífunni
nema einn: Viltu með mér vak’ í
nótt eftir Henna Rasmus. Gaman
að heyra þetta fína lag píanistans
gamla og við hæfi á þessum diski.
Óli Steph hefur oft sagt að tríóið
spili djass fyrir fólk sem ekki hefur
gaman af djassi - það kann að
vera, en þeir sem hafa gaman af
djassi geta líka haft gaman af Óla
Steph og félögum.
Vernharður Linnet
SKÍÐAPAKKAR
Baraa stgr. frá kr. 12.255
Unglinga stgr. frá 17.900
FuUorðlns stgr frá 21.375
LANGB þœgiXegir smelluskór
stgr. frvi fcr. 11.305._
stgr.afsláttur
CARVING SKÍBI
\stgr. frá kr. 12.255
SKÍÐAFATNAÐUR
p ^Áfmúla 40
Simi 553 5320
kérslunin
ALVORU SKIÐA VERSLUN
Skíðakennarar aóstoða við ual á skíðum
COMfOKT
Þú ert kominn á slóðina,.,
www.boksala.is
ENS
Ný þvottavél frá Siemens.
Þvottavél eins og allir vilja
eignast!
• Algjör nýjung: Sérstakt krumpuvarnarkerfi • Tekur 6 kg • Óvenjustór lúga
• 15 þvotta- og sérkerfi • 35 mínútna hraðkerfi • 1000 snjmín. • Allar innstillingar
mjög auðveldar* Glæsileg hönnun • Vélin er algjörlega rafeindastýrð
• Þvottavirkniflokkur A • Orkuflokkur A • Mjög þýðgeng og hljóðlát þvottavél
Hún hefur slegið í gegn!
éé SMITH &
W NORLAND
Nóatúni 4 • 105 Reykjavík • Sími 520 3000 • www.sminor.is
Umboðsmenn um land allt!