Morgunblaðið - 22.12.1999, Page 32
32 MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ALMANAK HÁSKÓLANS
Jótagjöf útivistarfóf/fins
Verð íq. 735
Fæst í öllum bókabúðum
HRAÐSUÐUKANNA
Þráölaus og þægilegur
ketill sem tekur 1,9 lítra.
Gefur frá sér hljóð þegar
vatn sýður. Vatnshæðar-
mælir. 2000 w
NUDDT/EKI
Tilvalin jólagjöf fyrir alla
sem þjást af vöðvabólgu.
Innrautt Ijós og titringur.
íslenskar leiðbeiningar
fylgja.
H ANDÞE YTARI
Einfaldur þeytari með 5
hraðastillingum. Stál-
þeytarar sem þola mikið
álag. ^
BLANDARI
Kröftugur blandari með
3 stillingum. Sérlega
auðveldur í þrifum. Kaffi-
og kryddvörn fylgir með.
BR AUÐRIST
Rafeindastýrð 800 W
brauðrist með afþýðingu.
Mylsnubakki.
GUFUSTRAUJÁRN
Fallegt 1200 W gufu-
straujárn. Sjálfstæður
hitastillir og gufustýring.
Gaumljós og tausnúra.
108 Rvk-Sími 5880500
LISTIR
Morgunblaðið/Þorkell
Frá sýningu Elísabetar Haraldsdóttur í Man, Skólavörðustíg’
Leirfjallasýn
MYIVDLIST
Listasalurinn Man,
Skóiavörðustfg 14
LEIRLIST
ELÍSABET
HARALDSDÓTTIR
Til 31. deseraber.
Opið á verslunartíma.
LEIRLIST er merkileg listgrein
sem spannar marga ólíka anga af þrí-
víðri list. Eins og Elísabet Haralds-
dóttir notar leirinn í Listasalnum
Man við Skólavörðustíg, er um högg-
myndir að ræða þó svo að áferðin, lit-
imir, glerungurinn og leirinn leyni
sér ekki. Öll verkin á sýningunni
fjalla um fjöll og fjallasýn, einkum
eins og við sjáum þau fyrirbæri úr
lofti. Að þessu leytinu er sýning El-
ísabetar nátengd veruleikanum utan
höfuðborgarsvæðisins, fjallgörðum,
dalverpum og óbyggðum landsins,
þeim stóra hluta eyjarinnar sem virk-
ar óbyggjanlegur, hrikalegur og ók-
leifur nema fyrir fuglinn fljúgandi, og
farþega á flugleiðum innanlands.
Eitt heljarlangt verk, andspænis
inngangi í salinn, er eins og óendan-
legir fjallgarðar sem birtast manni
þegar Isafjarðarvélin kemur að norð-
an og lækkar flugið á Húnaflóanum
til að fylgja eftir endaleysum Strand-
anna. Þá sjá farþegar eitthvað sem
líkist stærðarhlutföllunum í verki El-
ísabetar; tiltölulega lága fjallstopp-
ana móti ótrúlegri lengd sjálfra fjall-
garðanna. Raðir af ferningslaga
plöttum úr misjafnlega brenndum
leir minna frekar á fjöllin eins og þau
líta út þegar flogið er beint yfir þeim.
Séu einhverjir hnökrar á framsetn-
ingu þessara ágætu verka Elísabetar
má skrifa það á reikning undirstöð-
unnar fremur en sjálfra verkanna.
Þau standa fyllilega fyrir sínu og gott
betur. En það er eilítið misráðið að
nota silfurlitan málmstokk til að hvíla
fjöllin á því það dregur óþarflega úr
áhrifamætti efniviðarins. Það hefði
verið mun snarpara og heilladrýgra
að festa fjöllin beint á vegginn, eða
láta þau hvíla á krossviði sem skorinn
væri eftir rótum þeirra svo að sem
minnst sæist í undirstöðuna. Málm-
liturinn er alltof glannalegur í nám-
unda við leirinn. Þá minnir hann um
of á staðlaða og sótthreinsaða ál-
rammana sem notaðir eru í listgjafa-
verslunum, og deyða undantekninga-
laust allt sem þeir umlykja.
Sama má segja um femingsplatt-
ana. Femingurinn sem form hegðar
sér sem rammi, en það er það sísta
sem svona leirlist þarfnast. Hún
stendur fyllilega íyrir sínu, lífræn og
utan allra stærðfræðilegra marka,
enda hafin yfir innrömmun ef út í það
er farið. Þannig em verk Elísabetar
eins hrífandi og undirstaða þeirra er
tálmandi. Það stafar líklega af þeim
rótgróna efa hennar að listin plumi
sig umbúðalaus. Hún er ekki ein um
þá missýn. Annar hver íslenskur
listamaður er of upptekinn við að
kæfa list sína með þunglamalegri
landamæravörslu.
Halldór Björn Runólfsson
Umbreyting á tíma
BÆKUR
L j ó ð
LJÓÐTIMASKYN
eftir Sigurð Pálsson, Forlagið,
Reykjavík, 1999, 63 bls.
„UMBREYTING á tíma“ segir í
upphafsljóði Ljóðtímaskyns, nýjustu
Ijóðabókar Sigurðar
Pálssonar, „umbreyt-
ing hins dauða tíma í lif-
andi líðandi tíma“.
Ljóðið er hluti bálks í
fimm hlutum; hann
heitir „Ljóðtímaskyn"
og myndar fyrsta hluta
verksins. Ljóðtímaskyn
er fyrsta bók af þrem-
ur; Ijóðabækur Sigurð-
ar eru þríleikir. Leiðar-
stefið í þessari bók er
tími og tímaskyn, eins-
og titillinn gefur til
kynna, tími í víðum
skilningi, framrás hans,
andartök og stundir.
Verkið skiptist í
fimm hluta. Sá fyrsti, „Ljóðtíma-
skyn“, er stoðin sem það hvílir á;
annar hluti nefnist „Burt“ - titilljóð
þessa hluta er langt og fjallar um út-
þrá í víðfeðmasta skilningi þess orðs:
,AUt hikar/Ekkert hnikar//Allt/Allt
langar burt/bókstaflega allt“. Og síð-
ar í sama ljóði: „Úthverfin koma í hu-
mátt/ á eftir okkur/ þegar við reyn-
um að flýja borgina" (15, 16). Þetta
ljóð kallast á við annað sem nefnist
„Stundir": „Burt frá öllum stöðum
sem binda þig//Heim til stundanna“
(Stundir, 24). Þriðji hluti Ljóðtíma-
skyns nefnist „Söngtími“, sá fjórði
„Svart-hvítt“, hvor um sig með sín
undirþemu sem tengjast meginþem-
anu. Síðasti hlutinn nefnist „Stundir"
og samanstendur af ljóðum sem ort
eru í tilefni tímamóta, svo sem af-
mæla. Þessum ljóðum fylgja tileink-
anir.
Að fanga tímann er
sameiginleg viðleitni
ljóðanna. Stundum er
þetta þungbær tími, oft
smæstu einingar tima,
svo sem andartakið
sem léttleikandi eró-
tísk handarhreyfing
tekur í ljóðinu „Hvítt
pils“ eða dagstími
skynjaður milli svefns
og vöku í Ijóðinu „Ór-
áð“. Ljóðtímaskyn
myndar mjög sterka
heild án þess þó að of
stíft sé haldið við tíma-
þemað: sum Ijóð eru
laustengd því, önnur
nátengd, svo sem ljóðið „Tíminn" í
fjórða hlutanum, „svart-hvitt“:
Tíminn
Tíminn og svívirðingar hans...
Síst eigum við þetta skilið
finnstokkur
Vorkunn
ósjálfsvorkunn
Erum svo gjaman við jarðarfór
sjálfra okkar
grátummikiðogoft
En tímanum
þarf ekki að finnast neitt
um það né annað
Þægilegtlíf
hjá þessum blessaða tíma
baralíða...
Líða í þessum glæsilega sal
fullum af grátgjömum börnum
Ljóðtímaskyn er ekki rof á ferli
Sigurðar Pálssonar þótt marki að
vissu leyti nýja stefnu, enda opnun á
nýjum þríleik sem spennandi verður
að sjá framhaldið á; textinn hefur öll
helstu höfundareinkennin, leik og
hrifnæmi, óvæntar og frumlegar
myndir. Og stundum er tónninn
mjög beittur, ef ekki hvass, svo sem í
ljóðinu „Níðangur". Kannski má
segja að fagurfræði verksins kristall-
ist í einu alsterkasta ljóði bókarinnar
sem nefnist „Ljóðlistin“.
Öminn alltaf
íútrýmingarhættu
Viðkvæmur
svonaviðkvæmur
þegarupperstaðið
Samtliggjaþama
blóðugarljaðrir
útumallt
Sigurður Pálsson
Hermann Stefánsson