Morgunblaðið - 22.12.1999, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 22.12.1999, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1999 53 -----------------------------W JÓNÞ. SIGURÐSSON + Jón Þ. Sigurðs- son vélstjóri fæddist í Hnífsdal 10. apríl 1912. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 16. des- ember síðastliðinn. Foreldrar hans voru þau Sigurður Guð- mundsson, f. 1874, d. 1955, og Elísabet Jónsdóttir, f. 1881, d. 1930. Þau Sigurð- ur og Elísabet eign- uðust ellefu börn, þau Kristján, f. 1907, d. 1909; Kristján, f. 1910; Sigríði, f. 1910, d. 1938; Jón Þorleif, f. 1912, d. 1999; Olgu, f. 1913; Kristjönu, f. 1915; Herdísi, f. 1916, d. 1992; Elísabetu, f. 1918, d. 1918, Arnór, f. 1920, Bjarna, f. 1921 og Tómas, f. 1922. Jón kvæntist 27.9. 1934 Sigur- pálu Jóhannsdóttur frá Akureyri, f. 1912, d. 1975. Saman eignuðust þau sex börn, þau eru: 1) Elísabet, f. 1934, maki hennar er Sverrir Sigþórsson, f. 1932, börn þeirra eru Edda Sigurrós, f. 1953, Gústav Bergmann, f. 1956, og Sigurjón Smári, f. 1958. Edda er gift Gott- skálki Friðgeirssyni, f. 1953, og saman eiga þau Jón Eyþór, f. 1989. Áður átti Edda Auði Elísa- betu, f. 1971. Auður á Sindra Má Jónasson, f. 1991. Gústav er giftur Ilrafnhildi Júlíusdótt- ur, f. 1956, og saman eiga þau Júlíus, f. 1979, og Maríu Rós, f. 1995. Gústav á einnig Tryggva, f. 1979. Tryggvi á Aron Frey, f. 1999. Siguijón Smári, f. 1958, á Sverri Stefán, f. 1981, og Eirík Smára, f. 1992. 2) Hörður Hugi Jónsson, f. 1939, var kvæntur Sigríði Björnsdóttur, þau skildu. Dóttir Sigríð- ar, Unnur Þórhalls- dóttir, er stjúpdóttir Harðar. Þau Sigríður eiga saman Jón Þór, f. 1959, og Ólaf, f. 1965. Með seinni konu sinni, Bryndísi Sigurðar- dóttur, á hann Hugrúnu, f. 1976, en þau skildu. Einnig á Hörður Önnu, f. 1974. Jón Þór giftist Ragnhildi Maríusdóttur, f. 1960, d. 1988. Dóttir hans er Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, f. 1981. Ólaf- ur er giftur Önnu Kjærnested, f. 1965. Sonur þeirra er Unnar, f. 1983. 3) Þóra, f. 1942, d. 1943. 4) Birgir, f. 1948, er kvæntur Stein- unni Maríu Pétursdóttur, f. 1946. Saman eiga þau Sigurveigu, f. 1969, Snjólaugu, f. 1974, Sigur- pálu, f. 1975, Silju Ósk, f. 1982, og Pétur Örn, f. 1984. Birgir á einnig Kristbjörgu, f. 1966, og Árna, f. 1970. Kristbjörg er gift Henrý Ragnarssyni, f. 1968, og á með honum óskírðan son, f. 1999. Hún á einnig Láru, f. 1990, með fyrri manni si'num David Cruse. Árni er í sambúð með Sigrúnu Nikulás- dóttur, f. 1967, og á með henni Hring, f. 1994. Sigurpála er í sam- búð með Skarphéðni Smith og á með honum Birgittu Rós, f. 1997. 5) Lilja, f. 1950, giftist Júlíusi Sig- urðssyni, f. 1946, d. 1999. Saman eignuðust þau Inga Rafnar, f. 1976, og Jón Pál, f. 1982. Lilja á einnig Elísabetu Guðbjörnsdóttur, f. 1967. 6) Tómas, f. 1952, er kvæntur Guðrúnu Jónsdóttur, f. 1954, og saman eiga þau Sóleyju, f. 1974, Þóru, f. 1979, og Kristínu, f. 1982. Sóley er gift Aart Schalk, f. 1977, saman eiga þau Önnu, f. 1999. Jón fæddist í Hnífsdal og ólst þar upp. Hann stundaði sjó- mennsku frá fermingaraldri, tók hið minna mótornámskeið í Reykjavík árið 1931 og mótorn- ámskeiðið hið meira árið 1946. Hann var vélstjóri á ýmsum skip- um. Jón flutti til Siglufjarðar 1936. Hann var í siglingum á stríðsárunum 1941 og 1942 og vann í mörg ár sem vélstjóri við aflstöð Sfldarverksmiðja ríkisins á Siglufirði. Hann flutti til Reykja- víkur árið 1962 og vann lengst af við húsvörslu, síðustu árin í Sam- vinnubanka fslands. Á efri árum vann Jón við móttöku gesta á Gullna hananum. Utför Jóns fer fram frá Foss- vogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 10.30. Elsku afi. í gegnum tíðina höfum við skrifað um þig greinar í blöðin á tyllidögum. Tilefni þessarar greinar er þó ekki gleðilegt. Þú hefur kvatt þennan heim eftir langa og inni- haldsríka ævi. Erfitt er að sætta sig við að við sjáumst ekki aftur. Einhvern veginn gerðum við ráð fyrir að þú yrðir allt- af til staðar. Eins og þú hefur alltaf verið. Við kunnum svo vel að meta þig, hlógum að þrjóskunni í þér og dáðumst að atorkunni og dugnum. Stoltar sögðum við frá fyndnum uppátækjum og ótrúlegum afrekum þínum. Þú taldist aldrei neitt venjulegt gamalmenni og sjálfur hefur þú sennilega aldrei talið þig vera gam- almenni yfir höfuð. Ohræddur við nýjungar allt fram til síðasta dags, keyptir þér nýjan jeppa og hófst að æfa golf nú í vor, kominn hátt á ní- ræðisaldur. Þegar fjölskyldan fluttist til Nor- egs um tíma sást þú um að við misst- um ekki af fréttum og fréttatengdu efni, enda bárust okkur segulban- dsupptökur af því sem þér þótti fréttnæmt hverju sinni, oftar en ekki með sérstökum heimatilbúnum fréttaskýringum. Samviskusamlega sendir þú hvert orð sem vinkona þín Vigdís Finnbogadóttir lét frá sér fara. Þessar upptökur hafa nú öðlast sérstakt gildi í sögu fjölskyldunnar. Upptökurnar af Tóta klifrara og fleiri sögum eru einnig ómetanleg- ar. Sögur, sem við þekkjum öll svo vel, eru til, sagðar af þinni alkunnu frásagnargleði. Nú er enginn til að fylgjast með að pabbi standi sig í viðhaldi á bíln- um, tiltekt í bíslkúrnum, á skíðum eða öðru. Hann kemur þó til með að standa sig, það veist þú manna best. Hafi einhver haft trú á pabba, varst það þú. Stuðningur þinn við hann var mikill og samband ykkar byggð- ist á gagnkvæmu trausti og vináttu alla tíð. Anna litla, yngsti afkomandi þinn, er fegin að hafa fengið að kynnast þér. Það var svo gaman að sjá hvað þú gladdisl þegar hún kom í heim- sókn til þín þótt þú hafir verið orð- inn veikur. Að lokum viljum við þakka þér fyrir allar góðar samverustundir. Þrátt fyrir að vera aðeins tvær af fleiri tugum afkomenda áttum við einlægt og innilegt samband við þig sem hefur veitt okkur mikið. Við eigum um þig margar fallegar minn- ingar sem koma til með að lifa um ókomin ár. Sóley og Þóra. Það er erftitt að þurfa að sjá á eft- ir jafn merkum manni og honum afa okkar. Það verður tómlegt án afa því lífsglaðari mann var erfitt að finna. Afi var sífellt að snúast í hinu og þessu, oftast þó einhverju tengdu rauða jeppanum sínum. Það var með ólíkindum hvað hann sinnti börnum sínum, barnabömum og nú síðast barnabarnabörnum, hann var alltaf til staðar ef eitthvað vantaði. Það voru okkar forréttindi að afi bjó heima hjá okkur í nokkur ár, fyrst í Yztaselinu og síðar í Hvassa- berginu. Þegar við bjuggum í Yzta- selinu var endalaust hægt að leita til afa og skipti þá engu hvort maður vildi heyra sögu fyrir svefninn eða tefla skák eða bara komast í súkku- laðiskálina hans sem var gædd þeim ótrúlega hæfileika að tæmast aldrei alveg. Á þessum árum var afi á kafi í kartöflurækt og það var vinsælt að fá að fara með afa upp að Korpúlfs- stöðum þar sem garðurinn var og taka upp kartöflur og enda síðan daginn á því að fá að stýra rauða jeppanum. Á veturna fór afi reglu- lega með okkur strákana í sund í Sundhöllinni og var tilgangurinn oftast sá að afi þurfti að æfi sig á stökkbrettinu, þetta var þegar afi var 75 ára. Þegar við fluttumst til London 88 brá afi á það ráð að lesa fyrir okkur inn á segulband sögur og fréttir að heiman og senda okkur reglulega ásamt harðfisk og öðrum séríslenskum vöram. Þessar spólur era okkur ómetanlegur fjársjóður. Eftir að við fluttumst í Hvassa- bergið fluttist afi aftur til okkar og tók að sér að halda bflskúrnum okk- ar þeim hreinasta í Hafnarfirði og þótt víðar væri leitað. Bflskúrinn var hans leikherbergi þar sem hann gat sinnt jeppanum sínum sem fékk alltaf besta hugsanlega viðhald og var bónaður í það minnsta tvisvar í viku. Það kom alltaf betur og betur í ljós að afi var mikill spámaður og hann var ekki í vandræðum með að sjá fyrir hvað væri framundan, sér- staklega hjá vinkonum Bettýjar sem komu reglulega til að láta afa lesa í spil fyrir þær. Þegar veikindi pabba gengu yfir var gott að tala við afa því þá krist- allaðist góðmennskan og hlýjan sem bjó í honum. Umhyggjan sem hann sýndi veitti okkur öllum styrk þegar við þurftum mest á honum að halda. Afi var ekki bara gæddur þessum kostum heldur kom það í ljós þegar mest á reyndi að hann hafði alið sín börn upp með sömu mannkostum og einkenndu hann. Það reyndist okk- ur systkinunum ómetanlegt að finna fyrir umhyggjunni sem umvafði okkur frá öllum afkomendum afa Jóns. Þetta haust hefur reynst fjöl- skyldunni erfitt og vonandi gróa þau sár sem við höfum orðið fyrir með tímanum. Lífið heldur áfram stend- ur einhvers staðar og við áttum öll svo margar góðar stundir með afa og þær minningar þurfum við að vera þakklát fyrir að eiga. F.h. Bettýjar og Jóns Páls, Ingi Rafnar Júlíusson. Elsku afi minn. Loksins kom hvíldin sem þú áttir svo sannarlega skilið. Nú er dagsverki þínu lokið og hefur þú áorkað meiru en margur annar. Minning mín um þig er, að alltaf var stutt í brosið og alltaf leið mér best í návist þinni. Eg heimsótti þig fyi’ir stuttu og ég verð að segja að mér var brugðið yfir að sjá þig svona veikan, þú sem aldrei varst veikur, og rifjuðust þá upp fyrir mér allar þær góðu minn- ingar sem ég á um þig. Svo sem þeg- ar þú leyfðir okkur barnabörnunum að taka í stýrið og seinna meir keyra jeppann þinn og var þá þitt líf í okk- ar höndum, en þú hafðir bara gaman af. Þetta er að sjálfsögðu bara eitt af mörgu sem við gerðum saman og með þessum orðum vil ég sýna hversu sárt ég sakna þín og mun minningin um þig ávallt lifa í hjarta mér. Pétur O. Birgisson. Elsku afi. Nú er hann afi farinn frá okkur og að þurfa að kveðja hann er erfiðara en nokkur orð fá lýst.Trúin um að hann sé kominn til ömmu Pálu hjálpar okkur býsna mikið. Margt sem hann gerði myndi eng- um öðram en honum detta í hug. Það sem okkur er svo minnisstætt var þegar þú og Silja komuð til okk- ar „Noregs-fjölskyldunnar" árið 1991. Ekki voru þau fyrr lent en hann afi var farinn að róta í bflskúrnum, einungis til þess að fullvissa sig um að hann Tommi, sonur sinn, væri ör- ugglega fær um að sjá um skúrinn. Eftir að hann var búin að lesa yftr honum lexíurnar, fann hann afi okk- ar einkar skemmtilegt hjól sem hann var á mestallan tímann, og þá aðallega til að heilla allar nágranna- konurnar og það með þvílíkum kúnstum. Var hann kominn með annan fótinn upp á bögglaberann og aðra hendina út í loftið. Suzuki-jeppar var það sem hann heillaðist mest að, svo við tölum nú ekki um hans eigin bfla, en þeir voru þó nokkrir, og ekki má nú gleyma síðasta Suzuki-jeppanum hans sem hann keypti þá orðinn 86 ára gamall. Við fengum það oft á tilfinninguna að hanskahólfin hefðu framleitt fylltan ópalbrjóstsykur. Margar minningar læðast upp í huga okkar þegar við hugsum til hans, og þá helst minnumst við kar- töflugarðsins hans, sem við teljum vera eina af okkar elstu minningu um hann, álfasögurnar, Tóti klifur- kall og kassetturnar sem hann las inn á. Ekki má heldur gleyma þegar hann hræddi tengdabörnin sín og fleiri með því að spá í lófann á þeim. Elsku afi okkar, í trú um að þú getir á einhvern hátt lesið eða heyrt þessar línur kveðjum við þig með miklum söknuði og erum fullvissar um að þú verndir okkur og vakir yfir okkur. Við hlökkum til að sjá þig á ný. Þínar sonardætur, Silja Ósk Birgisdóttir og Kristín Tómasardóttir. Algengasta fyrirspurnin sem afi Jón fékk frá barnabörnum sínum var sennilega : „Afi , viltu segja okk- ur álfa- og tröllasögur eða jafnvel steinasögur?“ Alltaf átti afi til sögur handa okkur, þó svo að hann yrði að skálda þær á staðnum. Sögurnar hans afa vora fullar af spennu sem og fróðleik og trúðum við ávallt öll- um sögunum hans sem og því þegar hann var að spá í lófana okkar. Hann var í eðli sínu barngóður og ljúfur en átti það líka til að vera óttalegur prakkari. Honum tókst að sannfæra mig og Kristbjörgu systur mína um það að álfar væru til í alvöra og gekk það meira að segja svo langt að í eitt skiptið fóram við að leita að álfi sem sést hafði bak við stein á Kleifum. Afi átti marga mismunandi jeppa sem hann hugsaði mjög vel um og sennilega hafa flest öll barnabörnin hans fengið sinn fyrsta ökutíma í jeppunum hans. Þegar við systurnar vorum litlar fóram við oft í heimsókn til afa í Samvinnubankann þar sem hann bæði vann og bjó. Hann lumaði ávallt á einhverju góðgæti handa okkur og stundum bauð hann okkur líka í bfltúr. Ég hitti afa síðast í byrjun júní rétt áður en ég fór til Kanada. Hann var hress og kátur eins og vanalega og lék á als oddi. Hann var svo ánægður með nýja jeppann sinn sem hann var nýbúinn að kaupa að hann sleppti mér ekki fyrr en ég féllst á að fara með honum í stuttan bfltúr. Ég vissi að afi hafði greinst með krabbamein stuttu áður og að lítið væri hægt að gera úr því sem komið væri. Eg kvaddi hann, vitandi að þetta væri sennilega í síðasta skiptið sem ég sæi hann á lífi. I byrj- un september talaði ég síðan stutt- lega við hann í síma og þótti mér voða vænt um að fá að heyra aðeins í honum. Núna er afi aftur á móti kominn á betri stað þar sem hann er orðinn hraustur aftur. Ég efast ekki um að amma Pála hefur tekið vel á móti honum sem og allir hinir sem farið hafa á undan honum. Ef þið lítið upp til himins í nótt og haldið að karlsvagninn hafi eitthvað færst úr stað þá er það sennilega bara hann afi prakkari sem hefur boðið ömmu Pálu á rúntinn um vetr- arbrautina og saman hta þau til með börnum sínum og barnabörnum. Elsku pabbi, mamma og systkini ásamt öllum mínum frænkum og frændum, ég sendi ykkur mínar innilegustu samúðarkveðjur. Hugur minn er hjá ykkur. Guð geymi þig, afi minn. Þín Sigurveig í Gimli, Manitoba. Við sátum nokkur heima hjá Pálu og létum hugann reyka aftur til lið- inna tíma með afa Jóni. Við ákváð- um að setja nokkur orð á blað, í kveðjuskyni, og til þess að þeir sem þetta lesa fái smá innsýn í það hað við vorum heppin að fá að kynnast og umgangast afa Jón eða afa í bankanum eins og hann gjarnan var kallaður fyrstu ár ævi okkar. Við rifjuðum upp allar skemmti- legu ferðimar sem við fórum með honum í jeppanum, jeppanum sem komst allt og gat allt (alla vega þeg- ar afi var undir stýri og sagði frá). Þó svo að þetta hafi ekki alltaf verið sami bfllinn áttu þeir það allir sam- merkt að vera öndvegis gripir sem verðskulduðu góða umgengni og einstaka natni í viðhaldi. Einn af skemmtilegustu bílunum þínum var vafalítið gamli Willysinn sem þrátt fyrir háan aldur gekk eins og klukka og fór hvert á land sem er. Innrétting bílsins var einstök og endurspeglaði vel natni og úrræða- semi eigandans. Þar hafði miðstöðv- arblásturinn á framrúðina verið bet- ur um bættur með hjálp af litlum ryksuguhaus, rúðuþurrkurnar voru tveir sjálfstæðir mótorar sem stundum þurfti að hjálpa ögn með handafli og svo var það hurðarhúnn- inn hægra megin við mælaborðið sem við vissum aldrei til hvers var nema hvað að það mátti ekki fikta í því! Afi hlýtur að hafa verið nýbúinn að teppaleggja heima í bankanum því að gólfefnið í Willysinum var brúnt, blómamunstrað filtteppi, snyrtilega skorið til og lagt vel út í hvert horn. Afi var handlaginn maður og langt fram á áttræðisaldurinn ferð- aðist hann á milli barna sinna og dyttaði að hjólum, sláttuvélum, bíl- um og öðru því sem þarfnaðist við- halds að hans mati. Þar voru unnin verk sem bára vott um gott verklag, þó svo að litavalið við blettun í bíl- ana hafi stundum verið umdeilan- legt. Afi var óþrjótandi sagnabrannur og það vora oft stóreygð andlit með spert eyra sem hlustuðu áhugasöm á sögur um álfa og huldufólk sem bjuggu í klöppum og holum. Sög- urnar hans afa vora hlaðnar svo miklum sannfæringarmætti að þai var ekki fyrr en á unglingsáram að við mörg hver áttuðum okkur á að mögulegast væri það ekki alveg satt, þetta með álfana. Það var stutt í kímnigáfuna hans afa og stundum samfléttuðust sög- umar kímni og leik. Þannig var það eitt sinn þegar við fórum vestur að Kleifum í Steingrímsfirði að afi var búinn að segja okkur frá álfum sem bjuggu í klettum og skútum. Síðan var afi farinn að sjá álfanna út um allt, en alltaf þegar að við komum hlaupandi til að kíkja voru þeir horfnir. Afi kunni ráð við því. Hann fékk Árna sonar son sinn með sér lið og klæddi hann í bláa skyrtu og setti á hann rauða húfu. Fékk honum epli og appelsínu og fór með hann út í holt. Þar var Árna komið fyrir milli tveggja stórra steina, svo rétt sást í húfuna. Síðan læddist afi heim og viti menn brátt sást til álfaferða úti í holtinu. Þær urði agndofa systurnar Kristbjörg og Sigurveig þegar þær hlupu út í glugga til að gá og sáu álf- inn með rauðu húfuna. Eftir miklar fortölur fékk afi þær með sér út í holt, þær þorðu þó ekki of nálægt. Þegar að þær spurðu afa hvað þær ættu að segja við álfinn stakk hann upp á því að þær myndu spyrja hann hvort hann ætti epli eða app- elsínur. Árni (álfur) hafði lært sína rullu og svaraði að bragði og kastaði til stelpnanna epli og appelsínu. Við erum ekki viss um hvort Kristbjörg - og Sigurveig viti enn þá af því að þetta var í raun og veru ekki álfur sem þær áttu tal við þarna út í holt- inu á Kleifum, heldur Árni bróðir þeirra. Afí var ljúfur maður með einstak- lega stórt hjarta og þrátt fyrir að barnabörnin og barnabamabörnin væra mörg áttu þau öll sitt pláss í hjarta hans. Þannig fylgdist afi vel með því sem við gerðum og þegar að kom að því að við fóram að leita okk- ur að lífsföranautum má á vissan hátt segja að það gengi ekki upp fyrr en að afi væri búinn að leggja* blessun sína yfir viðkomandi. Það er heiður að hafa fengið að kynnast manni eins og honum afa. Það hefur gefið okkur margt og minningin um hann á alltaf eftir að eiga stóran stað í hjörtum okkar. Árni, Sigurpála og Snjólaug Birgisbörn. .. _
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.