Morgunblaðið - 22.12.1999, Page 56

Morgunblaðið - 22.12.1999, Page 56
56 MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR t Elskuleg móðir mín, MARGRJET GRÍMSDÓTTIR, áður til heimilis á Laugavegi 70, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Eir að kvöldi sunnu- dagsins 19. desember. Fyrir hönd aðstandenda, Jón Víglundsson. t Elskuleg móðir mín og tengdamóðir, ÞORGERÐUR JÓNSDÓTTIR frá Súðavík, lést á Landakotsspítala mánudaginn 20. desember, Fyrir hönd ættingja og vina, Gunnlaugur Vignir Gunnlaugsson, Ragnhildur Jóhannsdóttir, Ragnhildur Jónasdóttir. t Innilegar þakkir til alira, sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÁRNA G. MARKÚSSONAR, Skriðustekk 21, Reykjavík. Sigríður Inga Jónasdóttir, Jónas Þ. Árnason, Guðjón M. Árnason, Rannveig H. Gunnlaugsdóttir, Halldóra G. Árnadóttir, Jónas Á. Ágústsson, Ragnheiður Þ. Árnadóttir, Sigurður Á. Sigurðsson, Kristján M. Árnason, Sigurlína Rósa Kristmundsdóttir, María Árnadóttir, Karl A. Karlsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir til allra sem sýndu samúð og hlýju við andlát tengda- móður, ömmu og langömmu, KRISTÍNAR BENTÍNU SVEINBJÖRNSDÓTTUR, frá Þverhamri, Breiðdal. Sérstakar þakkir tii starfsfólks á Skjólgarði, Höfn. Guð blessi ykkur öll. Árni Guðmundsson, Margrét Aronsdóttir, Birgir Guðmundsson, Erna Hjartardóttir, Hörður Guðmundsson, Geirlaug Þorgrímsdóttir, Hermann Guðmundsson, Ólafía Jónsdóttir, Smári Guðmundsson, Auður Hjaltadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Inniiegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför RAGNHEIÐAR VILMUNDARDÓTTUR. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Sjúkra- húsi Suðurlands og Skjóli, sem annaðist hana í veikindum hennar. Elín Vilmundardóttir, Vilborg Vilmundardóttir og aðrir aðstandendur. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við and- lát og útför systur okkar, ELÍNAR MÁLFRÍÐAR HELGADÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks elliheimilisins Grundar fyrir góða umönnun. Andrea Helgadóttir, Anna María Helgadóttir. LEIFUR ORRI ÞÓRÐARSON + Leifur Orri Þórð- arson fæddist í Reykjavík 1. júní 1974. Hann Iést á Landspítalanum 16. desember siðastlið- inn og fór útför hans fram frá Seljakirkju 20. desember. Minn ástkæri Leifur Orri kvaddi þennan heim föstudaginn 16. desember 1999. Ég var svo lánsöm að vera við hlið hans þegar sál hans kvaddi - um- hyggjusama, elskulega, góða, nær- gætna, óeigingjarna, sterka sál, sem gerði Leif að Leifi. Ég naut nærveru Leifs aðeins í tvö ár. Þessi síðastliðin tvö ár voru bestu og innihaldsríkustu tvö ár af stuttri ævi minni. Ég mun sakna fyrstu ást- ar minnar af öllu mínu hjarta, en í stað þess að syrgja hann hef ég kosið að fagna honum og ævi hans. Það er í anda þess fagnaðar sem ég skrifa þessar línur. Þrátt fyrir hindranir naut Leifur lífsins til fulls. Eftir fyrsta áfallið var Leifur ákveðinn í að lifa áfram eins vel og hann gat. Hann vann að end- urhæfingu sinni með svo miklum ákafa og var að endurheimta stjóm á hreyfingu og mæli með undraverð- um árangri. Þetta er mér mikil hugg- un, því það gladdi hann ákaft áður en hann veiktist aftur. Leifur var ákaflega umhyggju- samur og gefandi einstaklingur. Hann var sannur vinur vina sinna og hann prýddi allt sem stúlka óskar sér. Hann var mjög hvetjandi og var alltaf nálægur þegar maður þurfti á honum að halda og jafnvel þegar þess þurfti ekki. Leifur hvatti mig oft þegar ég hafði ekki trú á sjálfri mér. Ég heyri hann enn segja: „Þú getur þetta, Nerissa." Ég dáðist alltaf að Leifi Orra fyrir styrk hans. Hann vildi aldrei að nokkur vorkenndi honum vegna sjúkdóms hans. Hann vorkenndi aldrei sjálfum sér og var svo sterkur í þehTÍ trú að hann gæti sigr- ast á sjúkdómi sínum. Jæja ,elsku Leifur Orri, þú sigraðist á sjúkdóminum. Þú lést hann aldrei buga þig, vonir þínar og drauma, ást þína á lífínu og öllu því sem það hefur að bjóða, og ást þína á öllu góðu. Leifur Orri, þú munt lifa í minningum okkar og þú skilur eftir hluta af sjálfum þér í okkur sem þekktum þig og elskuðum. Ég mun aldrei gleyma þér og þakka þér af öllu hjarta fyrir að gefa mér þig allan og sýna mér hversu stórkostleg sönn ást getur verið. Þakka þér fyrir að kenna mér að vera ekki hrædd og fylgja hjarta mínu í öllu sem ég geri. Þakka þér fyrir að ég náði þangað sem ég er í lífinu og þakka þér fyrir að hjálpa mér að þroskast í þá per- sónu sem ég er í dag. Tvö ár eru of stuttur tími, en ég er þakklát fyrir að hafa átt þau frekar en ekki. Til fjölskyldu Leifs Orra og vina, þakka ykkur fyrir allt saman og iýrir að hugsa um hann þegar ég gat ekki verið hjá honum. Þakka ykkur fyrir styrk ykkar og stuðning á þessum tíma sorgar og missis. Huggið ykkur öll við það að vita að elsku Leifur Orri er núna engill og brosn- niður til okkar. Nerissa Brown. Systursonur minn og vinur, Leifur Orri, er fallinn frá eftir stutt en erfið veikindi. Hann var einkasonur yngstu syst- ur minnar, Unnar Leifsdóttur, og manns hennar, Þórðar Höskuldsson- ar. Þessi litla fjölskylda bjó lengst af í Kambaseli 53 í Reykjavík eða frá því árið 1980. Leifur Orri hóf því skóla- göngu sína þar í Seljaskóla. Arið 1984 veiktist móðir hans af t ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Stapahrauni 5, Hafnarfirði, sími 565 5892 Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Áralöng reynsla. Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson, útfararstjóri útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlið 35 ♦ Sími 581 3300 Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ OSWALDS sfMi 5513485 ÞJÓNUSTA ALLAN SÓLARHRINGINN AÐALSTKÆI'I íli • 101 REYKJAVÍK Davið luger Olafur Útfnrttrstj. Umsjóii Útfararstj. LÍKKISTUVINNUSTOFA EYVINDAR ÁRNASONAR -•5Í-v:; 1899 Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug vegna fráfalls eiginmanns míns, föður, fengdaföður og afa, ÞORSTEINS JÓNSSONAR, Dalbraut 23. Geirlaug Guðmundsdóttir, Gísli Þorsteinsson, Hjördís Henrýsdóttir, Þorsteinn Þorsteinsson, Guðrún Þóra Halldórsdóttir og barnabörn. arfgengri heilablæðingu, sjúkdómi sem fylgt hefur móðurfjölskyldu hans í nokkra ættliði og höggvið oft í sama knérunn. Móðir Leifs lést síðan í febrúar 1988 aðeins tveimur mán- uðum fyrir fermingu hans, eftir mjög þungbæra legu í marga mánuði. Þórður faðir Leifs Orra var því miður einnig haldinn alvarlegum sjúkdómi og lést hann langt um aldur fram í apríl 1997 eftir margi-a ára veikindi. Þrátt fyiir þessa erfiðu æsku, hélt Leifur Orri ótrauður áfram námi sínu og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1994. Þaðan lá leiðin til Akureyrar, þar sem hann stundaði nám í sjávar- útvegsfræðum við Háskólann á Ak- ureyri. A sumrin vann hann oft hjá Granda hf. þar sem faðir hans vann um árabil. Árið 1997 kynntist Leifur Orri ást- inni í lífi sínu er hann hitti Nerissu Brown, unga stúlku frá Jamaica, sem heillaði hann upp úr skónum á stutt- um tíma. Hún stundar nú doktorsn- ám í Bandaríkjunum og framundan voru heilmikil áfoiTn um sambúð þar, því Leifur átti aðeins ólokið einu prófi hér á Akureyri og síðan loka- verkefni sínu, en það gat hann unnið í Bandaríkjunum hjá vinkonu sinni og var að undirbúa það að ljúka námi sínu þar. Hann hafði jafnvel á orði að hefja síðan frekara nám, til að nýta tímann, þar til Nerissa hefði lokið sínu fimm ára námi. Því miður breyttust öll þessi áform í október s.l. er Leifur Orri fékk hina arfgengu heilablæðingu og var fluttur í skyndi á Washington Hospital Center, þar sem undirrituð dvaldi hjá honum í tíu daga, uns hægt var að flytja hann heim með sjúkraflugi. Hann dvaldi síðan í nokkra daga á Landspítalanum, en fékk fljótt pláss á Reykjalundi, til endurhæfingar. Hjá því frábæra fólki á Reykjalundi tók Leifur Orri ótrúlegum framförum á mjög stutt- um tíma og ætlaði sér að komast heim á ný, sem fyrst. Hann var í helgarleyfi frá Reykja- lundi, ásamt vini sínum Óla, er næsta áfall reið yfir. Við tók erfið, en stutt sjúkrahús- lega á Landspítalanum. Nerissa kærasta hans náði að vera með hon- um tvo síðustu dagana sem hann lifði, ásamt Davíð frænda sínum, sem vakti yfir honum daga og nætur uns yfir lauk. Þakkir okkar alh'a, sem áttum Leif OiTa, til Landspítalans og Reykjalundar fyrir frábæra umönn- un bæði við hann og okkur og starfs- fólks Flugleiða, sem alltaf var til reiðu, með stuttum fyrii'vara, vegna fjarlægðar milli Bandaríkjanna og Islands. Fjölskyldan litla í Kambaseli 53 er nú öll. Nágrönnum hennar, þá sér- staklega Sólveigu, Andrési og börn- um þeirra, eru færðar þakkir fyrir ómetanlegan stuðning í gegnum ár- in. Öðrum og nýrri íbúum hússins þökkum við einnig hlýhug og vináttu við Leif og okkur á erfiðum tímum. Leifs Orra Þórðarsonar verður minnst sem ungs, hæfileikaríks manns, krefjandi, en jafnframt gef- andi þeim sem hann náði að kynnast vel. Hann var vinur vina sinna og tengdist þeim tryggðaböndum. Farðu í friði, minn kæri Leifur Orri. Þín „sjálfskipaða móðir“ og vinur. Dagný Hildur Leifsdóttir. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl- ingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.