Morgunblaðið - 24.12.1999, Síða 81
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1999 81
Bindindis-
dagur
fjölskyld-
unnar í
Ráðhúsinu
VEGLEG skemmtun var haldin 4.
desember í Ráðhúsi Reykjavíkur í
tilefni af Bindindisdegi fjölskyld-
unnar. Skemmtunin var einstaklega
vel sótt og voru nokkur hundruð
manns mætt tii þess að fylgjast
með skemmtidagskránni, en að-
gangur var ókeypis.
Þeir sem skemmtu voru börn,
unglingar og fullorðið fólk. Yfír-
skrift dagsins var „Veldu lífið“. Ól-
afur Zophaníasson og Erdna Varð-
ardóttir fluttu lag Bindindisdags-
ins, Veldu lífið. Erdna söng líka lög
af nýútkomnum geisladisk sínum
Jólanótt. FjöguiTa ára dóttir henn-
ar lagði henni lið í einu laginu.
Yngri kór Kársnesskóla söng sig
inn í hug og hjarta viðstaddra, en
þetta voru 60 átta ára börn. Lúðra-
sveit Laugarnesskóla spilaði. Ungl-
ingar úr hæfileikakeppninni Skrekk
sýndu atriðþ úr keppninni, Guð-
mundur Þór kom með Latabæjar-
brúðurnar: Sollu stirðu og Glanna
glæp, og gerðu brúðurnar mikla
lukku. Kristín Steinsdóttir las upp
úr bók sinni Kleinur og karrý.
Atli Rafn söng lagið Grimmhildur
Grámann, af nýju teiknimyndaplöt-
unni Jabadabadú. Jólasveinninn
kom í heimsókn og gaf börnunum
svolítið gott og Jón Indriði, sem að
undanförnu hefur farið í grunnskól-
ana með forvarnarfræðslu, gaf
mönnum sýnishorn af því hvernig
hann talar við krakkana.
Bindindisdagur fjölskyldunnar er
orðinn árviss viðburður. Hann er
haldinn af Stórstúku íslands, í sam-
starfi við ýmsa forvarnaraðila í
landinu.
--♦ ♦♦-
Tónlistar-
menn
heiðraðir á
styrktar-
tónleikum
Mikil viðbrögð við
ókeypis veiru-
varnarforriti
VEGNA gífurlegra undirtekta
landsmanna við tilboði Snerpu um
að fá AVP-veiruvarnarforritið
endurgjaldslaust fram yfir áramót
þá hefur Snerpa ákveðið að bæta
við stöðum þar sem hægt er að
nálgast AVP.
Alag á kerfi Snerpu var með all-
ra mesta móti í gær og fyrradag.
Nú hefur verið settur upp spegill
(mirror) af skráarsvæði AVP á Isl-
andi. Sá spegill er staðsettur hjá
Tölvun í Vestmannaeyjum, en
Tölvun er einn af söluaðilum AVP
á Islandi. Með þessu móti vonast
Snerpa til þess að iétta álagið á
kerfunúm þannig að fleiri geti nýtt
sér þennan möguleika og verið
fljótari að sækja forritið. Slóðin í
forritið er http://avp.snerpa.is.
Búið er að sækja 200 eintök af
, jólapakkanum" og var mest af því
sótt í fyrrakvöld.
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Landsbankinn og
Landsbréf gefa
börnum jólagjafir
Aftansöngur
sýndur beint
á Skjá einum
og á mbl.is
Á AÐFANGADAG verður Skjár
einn með beina útsendingu frá aft-
ansöng kl. 18. Sjónvarpað verður frá
Grafarvogskirkju. Utsendingin verð-
ur einnig send út á Netinu á mbl.is
þar sem Islendingar um allan heim
geta fylgst með íslenskum aftansöng.
Þetta er í fyrsta skipti sem sjón-
varpað er beint frá aftansöng á ís-
landi og mun gefa þeim sem ekki
komast í kirkju tækifæri til að fylgj-
ast með.
Sr. Vigfús Þór Ámason predikar
og þjónar fyrir altari. Organisti
guðsþjónustunnar er Hörður Braga-
son. Kór Grafarvogskirkju syngur.
Einleikarar eru Birgir Bragason,
bassi, Bryndís Bragadóttii- á fiðlu og
Einar Jónsson á básúnu. Egill Ólafs-
son syngur.
-----♦ ♦ ♦
Leitað eftir
vitnum
Á TÍMABILINU frá 17.-21. desem-
ber sl. var ekið á Toyotu Corollu, bláa
að lit, við Flyðrugranda 16 í Reykja-
vík og fór tjónvaldur af vettvangi.
Ökumaðm- bifreiðarinnar sem olli
tjóninu er beðinn að gefa sig fram við
rannsóknardeild lögi'eglunnar í
Reykjavík svo og þeir sem urðu vitni
að óhappinu.
STARFSFÓLK Landsbunka Islands
hf. og Landsbréfa hf. fór nýverið
með jólagjafir til Bamaspítala
Hringsins, Bama- og unglinga-
geðdeildar Landspít alans við Dal-
braut, Sjúkrahúss Reykjavíkur og
fleiri sjúkrahúsa úti um land.
Landsbankinn og Landsbréf ákváðu
að gefa bömum sem dvelja á sjúkra-
húsum landsins yfir hátíðamar jóla-
gjafír, í stað þess að senda við-
skiptavinum og samstarfsaðilum
jólakort.
Hér afhenda Valdís Amardóttir,
markaðssviði Landsbankans, og Sig-
urður Óli Sigurðsson sva'ðisstjóri
þeim Steinunni Ingvarsdóttur hjúkr-
unarframkvæmdastjóra Barnaspít-
ala Hringsins, Sigríði Friðgeirsdótt-
ur deildarstjóra ungbarnadeildar og
Svönu Pálsdóttur deildarstjóra lyf-
Iæknisdeildar bama gjafimar.
Heldur upp
á 40 ára
söngafmæli
SÖNGKONAN Hjördís Geirsdóttir
heldur upp á 40 ára söngafmæli sitt
í Næturgalanum, Siniðjuvegi,
sunnudaginn 26. desember.
Hjördís kemur fram ásamt hljóm-
sveit sinni og hefst dagskráin um
kl. 22.
Guðmundur Rafn Geirdal
skólastjóri
„I hinni íslensku alfræðiorðabók segir
um jólin: „Fæðingarhátíð Jesú, 25. des.;
upphaíl. heiðin háríð um vetrarsólhvörf
til dýrðar frjósemisguðum. Við lögfest-
ingu kristins siðar var jóladagurinn sett-
ur 25- des. og var hann talinn nýársdag-
ur til loka 16 aldar“ (bls. 209). Ef kristni
gengur út á að segja sannleikann þá er
þetta SANNLEIKURINN um jólin.
Vcrið cr að halda upp á heiðna hátíð.
TÓNLEIKAR til styrktar börnum
sem eiga um sárt að binda verða
haldnir í Háskólabíói að kvöldi 29.
desember. Þar verður tónlistarmað-
ur aldarinnar meðal annars heiðrað-
ur en val á honum fer nú fram á Visi-
.is.
Ætlunin er að safna 2 milljónum
króna á tónleikunum sem Háskóla-
bíó, Vífilfell, DV, íslenska útvarps-
félagið og Hard Rock Café standa
að.
Auk tónlistannanns aldarinnar
verða heiðraðir þeir sem flest at-
kvæði hljóta í kosningu Visis.is um
söngvara aldarinnar, söngkonu,
rokkhljómsveit, ballhljómsveit,
rokkara, plötu og lag aldarinnar.
Jólatilboð á milli-
landasímtölum
LANDSSÍMINN býður viðskipta-
vinum sínum sérstakan jólaafslátt af
millilandasímtölum á jóladag og ann-
an dag jóla. Afslátturinn nemur 15%
og verður lægsta mínútugjaldið
þessa daga aðeins tæpar 23 krónur.
Afslátturinn gildii- fyrir símtöl úr
almenna símakerfinu, GSM- og
NMT-farsímakerfunum. Þó geta við-
skiptavinir með fyrirframgreidda
GSM-áskrift (Frelsi) ekki nýtt sér
hann. Þá gildir afslátturinn aðeins ef
valið er sjálfvirkt, en ekki fyrir hand-
virka þjónustu, sem veitt er í síma
115.
Með nýju reikningagerðarkerfi
Símans gefast fleiri kostir á afslátt-
arpökkum og tímabundnum tilboð-
um af þessu tagi og verður gert
meira af slíku á næstunni.
Meðlagsgreiðendur
Meðlagsgreiðendur, vinsamlegast
gerið skil fyrir árslok
og forðist vexti og kostnað.
Innheimtustofnun sveitarfélaga,
Lágmúla 9, 108 Reykjavík,
sími 568 6099, fax 568 6299.
Okeypis talsam-
band um jólin
TAL hf. hefur ákveðið að gefa öllum
viðskiptavinum fyrirtækisins í jóla-
gjöf að geta hringt ókeypis sín á milli
á aðfangadag og jóladag.
Frá því á hádegi á aðfangadag og
síðan allan jóladag, allt til miðnættis,
verða TAL í TAL símtöl ókeypis fyr-
ir þá sem hafa Tal GSM-síma. Fyrir-
sjáanlegt er að fjöldinn allur muni
nýta sér þessa jólagjöf til að vera í
sambandi við vini og ættingja um jól-
in. Þrátt fyrir það er ekki búist við
vandkvæðum á því að ná sambandi
vegna þess hve öflugt símkerfi Tals
er, segir í fréttatilkynningu.
Með þessu móti vill Tal samgleðj-
ast viðskiptavinum sínum vegna
góðs árangurs á árinu sem er að líða.
Fjöldi viðskiptavina hefur þrefaldast
frá síðustu áramótum og eru þeir nú
yfir 35 þúsund talsins, segir enn-
fremur.
Y0GA&
STUDIO
Yoga - Sauna
Auðbrekku 14,
sími 544 5560.
Við óskum viðskiptavinum okkar 4
gleðilegra jóla ogfriðar á komandi ári
Ásmundur
Anna
Kópavogi,
Daníel
»3i. B
HALUR OG SFRUND ehf.
Sími 544 5560 og 864 1445
BIOTONE nuddvörur, Oshadhi 100% hágæða ilmkjarna-
olíur, nuddbekkir frá Custom Craftworks, nuddplaköt,
slökunartónlist, ilmker, bækur o.m.fl.
Ingibjörg
Lísa