Morgunblaðið - 24.12.1999, Blaðsíða 96
-
r
KOSTA
með vaxta þrepum
ft) Bl SAIIVKKAM.INN
www.bi.is
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBLJS, AKUREYRI: KA UPANGSSTRÆTI1
FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Jólafagnaður
Verndar og
Hjálpræðis-
hersins
JÓLAFAGNAÐUR Hjálpræð-
ishersins og Vemdar verður
haldinn í dag í Herkastalanum
Kirkjustræti 2 í Reykjavík og
hefst með borðhaldi kl. 18. All-
ir þeir, sem ekki hafa tök á að
dveljast hjá vinum og vanda-
mönnum á aðfangadagskvöld
eru hjartanlega velkomnir á
jólafagnaðinn.
Hanna Johannessen, for-
maður jólanefndar Verndar,
segir að þetta sé í fertugasta
sinn sem Vemd stendur að
jólafagnaði. Til fjölda ára var
jólafagnaðurinn í húsi Slysa-
varnafélags íslands að
Grandagarði en nú hin síðari
árin í góðu samstarfi við Hjálp-
ræðisherinn og í hans húsnæði.
Formaður
skólanefndar
hótar afsögn
GUÐMUNDUR Hallgrímsson, for-
maður skólanefndar Tónlistarskóla
Garðabæjar og formaður Sjálf-
stæðisfélags Garðabæjar, segir að
afsögn sín úr skólanefndinni vofí
yfir komi Agnes Löve til starfa sem
skólastjóri frá áramótum. Starf-
semi skólans virðist í uppnámi eftir
að bæjarstjórn Garðabæjar ákvað
einróma í atkvæðagreiðslu að ráða
Agnesi. Skólanefndin mælti með
ráðningu Smára Ólasonar, yfir-
kennara skólans, og hann naut mik-
ils stuðnings í kennaraliðinu. Allir
starfsmenn hafa undirritað yfírlýs-
ingu, sem borin verður í öll hús í
Garðabæ, þar sem vinnubrögðum
bæjarstjórnar er mótmælt. „Ég var
búinn að vara meirihlutann alvar-
lega við að það gæti orðið stórslys
ef þeir tækju ekki tillit til þess sem
ég var að segja,“ sagði Guðmundur.
■ Afsögn/14
Jöhann G. Bergþórsson segir að samningum frá 1991
um Fljótsdalsvirkjun hafí verið við haidið
Eðlilegt að Landsvirkjun láti
gerða samninga ganga í gildi
JÓHANN G. Bergþórsson verkfræð-
ingur segir að samningum sem gerðir
voru á milli Landsvirkjunar og nor-
rænnar verktakasamsteypu árið
1991 um framkvæmdir við Fljóts-
dalsvirkjun hafi alla tíð verið við
haldið og að hann hefði talið eðlilegt
að Landsvirkjun léti þá ganga í gildi,
í stað þess að tilkynna að haldið verði
nýtt útboð vegna framhalds fram-
kvæmda við Fljótsdalsvirkjun, líkt og
Friðrik Sophusson, forstjóri Lands-
virkjunar, gerði í Morgunblaðinu í
gær.
Segir Jóhann að það hljóti að vera
lögfræðilegt álitamál hvort þau fyrir-
tæki, sem lögðu fram tilboðið á sínum
tíma, eigi ekki einhvem rétt en fyrir
liggi að þau lögðu 68 milljónir í kostn-
að vegna málsins á sínum tíma á þá-
virði, sem sjálfsagt séu hátt á annað
hundrað milljóna á núvirði.
Sjálfur átti Jóhann aðild að málinu
þar sem fyrirtæki hans, Hagvirki og
Hagvirki-Klettur, áttu aðild að nor-
rænu verktakasamsteypunni sem
hafði nafnið Nortak. Komu fyrirtæk-
in NCC í Svíþjóð, Eeg Hemiksen í
Noregi, sem reyndar sé 100% í eigu
NCC, og framkvæmdadeild norsku
landsvirkjunarinnar, Stadkraft, að
þessari samsteypu, auk íyrirtækja
Jóhanns.
Frávikstilboð sem sparaði
Landsvirkjun hálfan milljarð
Landsvirkjun gekk til samninga
við Nortak og formleg yfirlýsing var
undirrituð í september 1991 en fram-
kvæmdimar síðan blásnar af í októ-
ber sama ár, eins og kunnugt er.
Samningurinn byggðist á frávikstil-
boði verktakanna sem sparaði rúman
hálfan milljarð fyrir Landsvirkjun
með nýrri hönnun á verkefninu, legu
ganga o.s.frv.
„Þessum samningi eða yfirlýsing-
um hefur verið viðhaldið alla tíð síð-
an,“ segir Jóhann, seinast í fyrra að
beiðni Landsvirkjunar. Hafi þá verið
gert ráð fyrir að framkvæmdir hæf-
ust í upphafi þessa árs. Yfirlýsing for-
stjóra Landsvirkjunar í Morgunblað-
inu í gær bendi til að nú hafi
fyrirtækið hins vegar gefið út tilskip-
un um að virkjunin skuli endurhönn-
uð og boðin út að nýju.
Jóhann segir í þessu sambandi að
það hljóti að vera lögfræðilegt álita-
efni hvort Nordtak-grúppan eigi ekki
einhvem höfundarrétt verði stuðst
við frávikstillögu þeirra.
„Og ég veit það að Svíamir og
Norðmennimir telja sig eiga ákveðið
tilkall til verkefnisins af því að samn-
ingnum hefur verið viðhaldið á þenn-
an veg,“ segir hann. Bætir hann við
að það sé mat Svíanna, og um það
hafi þeir sent Landsvirkjun bréf í
október, að eðlilegast væri að gengið
yrði til samninga við þá og lokið við
þann samning sem var búið að gera á
sínum tíma.
Lögfræðiálit liggur fyrir
Jóhann segir Svíana hafa fylgst
grannt með framgangi þessa máls.
„Þú getur rétt ímyndað þér að ef þú
hefðir lagt 68 milljónir í eitthvert
verkefni, og svo væri sísona sagt
„takk fyrir og við ætlum bara að
byrja upp á nýtt“, þá hlytirðu að
horfa aðeins í þína pyngju því 68
milljónir frá 1991, vaxtareiknaðar til
dagsins í dag á verðbótum em sjálf-
sagt talsvert á annað hundrað millj-
ónir.“
Jóhann segist sjálfur engra hags-
muna hafa að gæta í málinu enda
urðu fyrirtæki hans gjaldþrota. Hann
óskaði hins vegar eftír því við
Landsvirkjun, á þeim tíma þegar
Hagvirki og Hagvirki-Klettur áttu í
ijárhagserfiðleikum, að hún greiddi
hans hlut í þessu dæmi, sem vom um
22 milljónir. Landsvirkjun hafi þá lát-
ið gera lögfræðiálit þar sem fram
kom að þar sem ekki væri farið að
nota þær áætlanir, sem Nortak'hafði
lagt fram og lagt í kostnað vegna, þá
væri ekki víst að þær yrðu notaðar.
Þess vegna myndi Landsvirkjun ekki
greiða fyrir réttinn. Norrænu sam-
starfsaðilarnir hljóti hins vegar að
vísa í þetta sama álit nú vegna réttar
síns í málinu. Það segi að vísu að þeir
hafi engan rétt, ef framkvæmdir hefj-
ast aldrei við virkjunina í því formi
sem hún var hönnuð af frávikstilboði
Nortak, en á hinn bóginn hljóti þetta
að þýða viðurkenningu á rétti Nor-
taks sé stuðst við tílboð þess frá 1991.
Fjölmenni í friðargöngu
Morgunblaðið/Kristinn
MIKILL fjöldi fólks tók þátt í friðargöngu sam-
starfshóps friðarhreyfinga niður Laugaveg í Reykjavík
á Þorláksmessu í gær. Ekki spillti veðrið heldur fyrir
þátttökunni enda með eindæmum hlýtt og stillt miðað
við árstíma. Gleðin og eftirvæntingin leyndi sér ekki í
andlitum þessara barna og forráðamanna þeirra á
Ingólfstorgi en þar endaði blysförin með stuttum fundi
þar sem minnst var á boðskap friðarhreyfinganna.
Margir gáfu
blóð þrátt
fyrir annríki
Á MILLI140 og 150 manns gáfu sér
tíma í mestu önnunum í gær til að
heimsækja Blóðbankann og gefa
blóð. Vöktu þessi góðu viðbrögð
landsmanna mikla gleði hjá starfs-
fólki Blóðbankans, að sögn Sveins
Guðmundssonar yfirlæknis.
Blóðbankinn tekur við blóðgjöfum
hvern fimmtudag og sagði Sveinn að
dagurinn í gær hefði verið eins og
góður fimmtudagur hjá þeim þrátt
fyrir að fólk hafi um ýmislegt að
hugsa við undirbúning hátíðanna.
Hefð er fyrir því í Blóðbankanum
að bjóða upp á tertu og súkkulaði á
Þorláksmessu til að skapa jóla-
stemmningu og mælist það greini-
lega vel fyrir hjá landsmönnum. „Við
getum náttúrlega ekki tekið það sem
gefið,“ sagði Sveinn, „að fólk mæti til
að gefa blóð á svona sérstökum degi,
þegar það er oft að hugsa um annað,
en við erum alveg óskaplega ánægð
með þessar undirtektir og förum
glöð inn í jólin."
KÉRtASNfKlÉ
jffij
m
MMNRH
T S l.T S
Slasaðist alvarlega
í bruna í Keflavík
Íslandssími f
ISLANDSBANKI
KONA slasaðist alvarlega í elds-
svoða í einbýlishúsi á Heiðarbóli í
Keflavík í gær. Hún var fyrst flutt
á Sjúkrahús Keflavíkur en eftir at-
hugun var hún flutt á bráðamót-
töku Landspítalans.
Lögregla fékk tilkynningu um
að konan væri mikið slösuð frá að-
standanda hennar um þrjúleytið í
gær. Lögregla og slökkvilið mættu
samstundis á staðinn og greiðlega
gekk að slökkva eldinn sem hafði
kviknað í einu herbergja hússins.
MORGUNBLAÐIÐ kemur
næst út þriðjudaginn 28. des-
ember. Fréttaþjónusta verður
á Fréttavef Morgunblaðsins
um hátíðimar. Slóðin er mbl.is.