Morgunblaðið - 13.01.2000, Page 36
36 FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Morgunblaðið/Þorkell
Frá æfíngu Nemendaóperu Söngskólans í Reykjavík á Rauða tjaldinu.
Operuslettur
úr ýmsum áttum
RAUÐA tjaldið - óperuslettur úr
ýmsum áttum er yfírskrift uppfærslu
Nemendaóperu Söngskólans í
Reykjavík sem sýnd verður í Smára,
Tónleikasal Söngskólans, Veghúsa-
stíg 7, um helgina. Frumsýning verð-
ur á föstudagskvöld kl. 20, önnur sýn-
ing laugardag kl. 16 og hin þriðja á
sunnudagskvöld kl. 20.
Meðal þátttakenda í sýningunni
eru þær Sigurlaug Jóna Hannesdótt-
ir, nemi á áttunda stigi, og Nanna
María Cortes, nemi í kennaradeild.
Blaðamaður fékk að kippa þeim út af
æfmgu stundarkorn og spyrja þær út
í verkefnið. Þær sögðu að á sýning-
unni mætti heyra brot úr hinum og
þessum óperum - og þess vegna væri
undirtitillinn óperuslettur úr ýmsum
áttum. „Eitt er mjög dramatískt, at-
riðið úr La Boheme, en hitt er allt
frekar létt,“ segir Nanna María.
Sýningin er sett saman á nýstár-
legan hátt úr óperunum Bastiana og
Bastiano og Brúðkaupi Figaros eftir
Mozart, öðru brúðkaupi, Leyni-
brúðkaupinu, eftir Cimarosa, Sögum
af Falstaff eftir Verdi og Nicolai og
Bóhemunum eftir Puccini. Atriðin
verða bæði leikin á nútímavísu, með
islenskum texta, og sungin í sinni
upphaflegu mynd á viðeigandi tungu-
máli. Þetta er gert til þess að sýning-
in verði aðgengilegri og textamir fari
ekki fyrir ofan garð og neðan hjá hin-
um almenna hlustanda, eins og oft vill
verða.
Þær Sigurlaug og Nanna eru al-
sælar með námið í Söngskólanum og
segjast helst ekki vilja gera neitt ann-
að en að syngja. Sautján nemendur
syngja í sýningunni nú um helgina en
auk þess sér hópur nemenda um lýs-
ingu, sviðsmynd, búninga, förðun og
fleira sem tengist sýningunni. Stúlk-
ur eru í miklum meirihluta á sviðinu,
fjórtán á móti einungis þremur pilt-
um. „Og strákarnir eru ekki í ljósa-
deildinni eins og svo oft áður,“ upp-
lýsir Nanna. Sú deild mun að þessu
sinni eingöngu vera skipuð stúlkum.
Æfingastjóri og píanóleikari sýn-
ingarinnar er Claudio Rizzi og leik-
gerð og leikstjóm er í höndum Asu
Hlínar Svavarsdóttur. Stjómandi er
Garðar Cortes. I einsöngshlutverk-
um era þau Auður Guðjohnsen, Ás-
laug H. Hálfdánardóttir, Bryndís
Jónsdóttir, Guðríður Nanna Helga-
dóttir, Guðríður Þ. Gísladóttir, Haf-
steinn Þórólfsson, Ingibjörg Aldís Ól-
afsdóttir, ívar Helgason, Jónas
Guðmundsson, Kristveig Sigurðar-
dóttir, Kristín R. Sigurðardóttir,
Linda P. Sigurðardóttir, Magnea
Gunnarsdóttir, Nanna María Cortes,
Ragnheiður Hafstein, Sigurlaug
Jóna Hannesdóttir og Þóra Guð-
mannsdóttir.
Rauða tjaldið er fjórtánda verkefni
Nemendaóperannar sem starfað hef-
ur á vegum Söngskólans frá árinu
1982. Aðgöngumiðasala er við inn-
ganginn, en einnig er hægt að
tryggja sér miða með því að hafa
samband við skrifstofu Söngskólans.
Sýningarverkefnið Veg(g)ir á Kjarvalsstöðum
Stór flötur
og fólk
fylgist með
SÝNINGARVERKEFNI undir yfírskriftinni Veg(g)ir
verður hleypt af stokkunum í miðrými Kjarvalsstaða
í dag. Mun það standa til 18. maí næstkomandi.
Framkvæmd verkefnisins byggir á tveimur megin-
þáttum; annars vegar að veita listafólki tækifæri til
að vinna úr hugmyndum sínum á eða út frá stórum
fleti, langveggur miðrýmis Kjarvalsstaða er 24 metr-
ar á lengd og um 3,5 metrar á hæð, og hins vegar að
leyfa gestum safnsins að fylgjast með þróun hvers
listaverks frá upphafi til enda.
Þátttakendur í verkefninu eru listafólk á ýmsum
aldri sem unnið hafa í ólíka miðla og eiga þannig að
endurspegla að nokkru fjölbreytnina í íslenskri
myndlist í dag. Þetta eru Daði Guðbjörnsson, Gunn-
ar Örn, Hlynur Hallsson, Katrín Sigurðardóttir,
Ragnheiður Jónsdóttir og Ráðhildur Ingadóttir.
Framkvæmdinni er ætlað að vísa með sterkum
hætti til hverfulleika lífs og listar. Að loknu sér-
hverju sýningartímabili verður framlag hvers lista-
manns fjarlægt eða það hulið bak við nýtt lag af
málningu sem um leið verður undirlag þess sem
næst kemur á vegginn - þannig á sér stað viss tæm-
ing um leið og hringrás er leidd áfram.
Listafólkið mun miða vinnu sína við að verkin
standi fullgerð í að minnsta kosti síðustu vikuna á
hverju tímabili, nema þau séu þess eðlis að þau verði
að þróast fram á síðustu stundu.
Veg(g)ir eru samfellt verkefni í tíma. Listamenn-
irnir munu vinna verk sín hver á eftir öðrum og fá
þrjár vikur hver. Listunnendum verður boðið að
vera við „lokun“ hvers áfanga, sem verður kynnt
sérstaklega, og fer fram á fimmtudagskvöldi. Þá
mun sá listamaður sem er að ljúka störfum kynna
verkefni sitt og hugleiðingu um það. Við sama tæki-
færi mun næsti listamaður, sem er þá að hefja sitt
verk, kynna sínar hugmyndir og áætlanir. Síðasta
„lokunin" verður um leið eins konar uppgjör fyrir
verkefnið í heild.
Sýningarskrá verður gefin út eftir að sýningar-
verkefninu í heild lýkur og það þannig til Iykta leitt.
Þar verður að finna upplýsingar um þátttakendur,
ljósmyndir af verkum hvers og eins á sýningunni
sem og frekari umfjöllun um verkefnið.
Framkvæmdatími verkefnisins verður eftirfarandi:
13. janúar til 3. febrúar: Hlynur Hallsson, 3. til 24.
febrúar: Daði Guðbjörnsson, 24. febrúar til 16. mars:
Katrín Sigurðardóttir, 16. mars til 6. aprfl: Ráðhild-
ur Ingadóttir, 6. til 27. aprfl: Gunnar Örn, 27. aprfl
til 18. maí: Ragnheiður Jónsdóttir.
Morgunblaðið/Sverrir
Hlynur Hallsson
Ráðhildur Ingadóttir
Gunnar Örn
Rccbok
— ADIDAS
FATNAÐUR í ÚRVALI
MIKIÐ ÚRVALAF ÚTIVISTARFATNAÐI,
ÍÞRÓTTAGÖLLUM, T-B0LUM O.FL 0.FL.
Skíðaúlpur
Skíðabuxur
Skíðahanskar
Adidas skór
Reebokskórm. púða
íþróttagallar
Verð nú
5.990, -
6.990, -
1.000,-
4.990, -
2.990, -
4.990, -
Verð áður
11.990
12.900,-
6.990
9.900
7.900
9.900.-
I
BOLTAMAÐURNN
LAUGAVEG/ 23 • SÍMI 55 1 5599