Morgunblaðið - 18.01.2000, Side 1
14. TBL. 88. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuters
Jarðskjálftans
ÆTTINGJAR þeirra sem fórust í jarðskjálftanum
mannskæða í Kobe í Japan komu saman við hæð ná-
lægt borginni í gærmorgun til að minnast þess að
fimm ár eru liðin frá því skjálftinn reið yfir.
Margir ættingjanna grétu við veggskildi með
nöfnum þeirra 6.432 manna sem fórust í jarð-
skjálftanum. Syrgjendur kveiktu einnig á 6.432
í Kobe minnst
kertum til minningar um hina látnu í almennings-
garði í miðborginni og lögðu um 200 ljósker í höfn-
ina.
Japönsk dagblöð lögðu forsíður sínar að mestu
undir greinar um jarðskjálftann og stærsta
sjónvarpsstöð landsins sýndi minningarathafnir og
þætti um náttúruhamfarirnar í sjö klukkustundir.
Deilur fsraela og Sýrlendinga
Friðarviðræð-
um frestað
Jerúsalem. AFP, AP.
NÆSTU lotu friðai’viðræðna ísraela
og Sýrlendinga, sem átti að hefjast í
Bandaríkjunum á morgun, hefur ver-
ið frestað, að sögn embættismanns í
ísraelska forsætisráðuneytinu í gær.
Embættismaðurinn sagði að Ehud
Barak, forsætisráðherra Israels, færi
ekki til Bandaríkjanna í dag eins og
ráðgert hafði verið og ekki væri vitað
hvenær viðræðurnar hæfust að nýju.
Viðræðumar hófust um miðjan des-
ember og gert var hlé á þeim 11. jan-
úar án þess að verulegur árangur
hefði náðst.
Utvarpsstöð í Israel sagði að
Bandaríkjastjórn hefði skýrt Barak
írá því að tilgangslaust væri að hefja
viðræðumar að nýju að svo stöddu því
engin trygging væri fyrir því að Sýr-
lendingar myndu senda utanríkisráð-
herra sinn á næsta fund. Bandarískir
embættismenn sögðu þó í gærkvöldi
að Israelar og Sýriendingar myndu
senda sérfræðinga til Bandaríkjanna
innan viku til að freista þess að koma
viðræðunum á skrið.
Fyrr um daginn höfðu Sýriending-
ar gefið til kynna að þeir hygðust
fresta viðræðum ráðherranna vegna
óánægju með að ísraelar skyldu ekki
vilja skuldbinda sig strax til þess að
láta allar Gólanhæðimai- af hendi.
Barak hefur ekki útilokað að ísra-
elar láti hæðimar af hendi en kveðst
vilja fá að vita hvað hann fái í staðinn
áður en hann skuldbindi sig til þess.
Hann krefst þess að samskiptum ríkj-
anna verði komið í eðlilegt horf, að
gerðar verði ráðstafanir til að tryggja
öryggi ísraels og að ísraelar fái yfir-
ráð yfir vatnsbólum. Sýrlendingar
vilja hins vegar að ísraelar skuldbindi
sig fyrst tU að draga herlið sitt frá
Gólanhæðunum, sem þeir hemámu
árið 1967, og flytji á brott 17.000 gyð-
inga sem búa á svæðinu.
Barak ræðir við Arafat
Barak átti óvæntan fund með Yass-
er Arafat, leiðtoga Palestínumanna, í
gærkvöldi og þeir ræddu hvort fram-
lengja ætti frestinn til að ná sam-
komulagi um meginatriði varanlegs
friðarsamnings um tvo mánuði.
Stefnt hefur verið að því að gengið
verði frá frumdrögum samningsins
fyiir 13. febrúar og hann verði síðan
undirritaður í september.
Morðið á „Arkan(<
Vangavelt-
um vísað
ábug
Belgrad, Haag. AP, AFP.
EINN aðstoðarmanna Slobod-
ans MUosevic Júgóslavíuforseta
vísaði í gær á bug vangaveltum
þess efnis, að
rUdsstjórnin
hefði staðið að
baki morðinu
á Arkan, ein-
um alræmd-
asta stríðs-
manni Serba
um helgina.
Þrálátur orð-
rómur er á
kreiki um að
Arkan hafi haft á prjónunum
áform um að semja um að bera
vitni gegn fyrrverandi stríðs-
herrum Júgóslavíu og því hafi
Milosevic viljað hann feigan.
Þótt liðnir væru tveir dagar
frá morðinu, sem framið var á
hóteh í miðborg Belgrad síð-
degis á laugardag, hafði í gær
engin opinber yfirlýsing borist
frá júgóslavnesku lögi’eglunni
um málið.
Carla del Ponte, aðalsak-
sóknari við Stríðsglæpadómstól
Sameinuðu þjóðanna í Haag,
lýsti því yfir í gær að einskis
yrði látið ófreistað til að hafa
uppi á bakhjörlum Arkans, sem
var eftirlýstur fyrir að bera
ábyrgð á hrottalegum stríðs-
glæpum í borgarastríðinu í
Króatíu og Bosníu. Sagðist hún
vona að þeir sem voru honum
meðsekir næðust.
■ Æsilegar vangaveltur/30
AP
Gosaska í
10.000
metra hæð
Gvalemalaborg. AP
ELDINGAR og öskuglóð lýsa hér
upp himininn yfir Pacaya, virkasta
cldfjalli í Gvatemala. Pacaya byrjaði
að gjósa á sunnudag og hefur þegar
verið hafist handa við að flytja burt
íbúa byggða í nágrenni við eldíjall-
ið. Hundruð manna verða flutt á
brott á næstu dögum. Oskufalls hef-
ur orðið vart í Gvatemalaborg, sem
er í um 25 km fjarlægð frá Pacaya.
Þá hefur Aurora-flugvcllinum í ná-
grenni Gvatemalaborgar verið lok-
að þar sem gosösku hefur orðið vart
í allt að 10.000 metra hæð.
Fjármálahneyksli Kristilega demókrataflokksins í Þýskalandi
Milljónir færðar af
leynilegum reikningum
Berlín. AP, AFP.
HORST Weyerauch, skattai’áðgjafi
Kristilegra demókrata f Þýskalandi
(CDU), bættist í gær í hóp þeirra
sem liggja undir grun um þátttöku í
meintum fjársvikum flokksins.
Embætti saksóknara í Hessen
hefur þátt Weyerauchs í fjármála-
hneyksli CDU til rannsóknar, í kjölf-
ar þess að fyrrum héraðsleiðtogar
CDU viðurkenndu að flokksdeildin í
Hessen hefði látið flytja um 13 mil-
ljónh' marka, eða 480 milljónir
króna, af leynilegum bankareikning-
um í Sviss á árunum 1989-1996.
Rannsókn saksóknaraembættis-
ins beinist að þvi hvort kæra megi
Weyerauch og fyrrum féhirði flokks-
deildarinnar í Hessen, Casimir Sayn
Wittgenstein prins, fyrir fjársvik
eða trúnaðarbrot. En Weyerauch er
grunaður um að vera í hópi þeirra
sem höfðu umsjón með leynilegum
bankai-eikningum flokksins.
Koch ætlar að
sitja áfram
Roland Koch, ríkisstjóri í Hessen,
mætir sívaxandi þrýstingi að segja
af sér vegna málsins. Jafnaðar-
mannaflokkurinn og Græningjar í
Hessen leggja til að gengið verði til
kosninga á nýjan leik og njóta þeir
stuðnings Gerhard Schröder, kansl-
ai’a Þýskalands, en flokkur hans,
Jafnaðarmannaflokkurinn, beið af-
hroð í kosningum í Hessen í vor.
Koch, sem er með yngri leiðtogum
CDU, verst hins vegar öllum hug-
myndum um afsögn.
Kröfur um að einhverjir flokks-
leiðtoga CDU
segi af sér vegna
málsins eiga þó
auknu fylgi að
fagna. Mannfred
Kanther, forveri
Koch og fyrrver-
andi innanríkis-
ráðherra í stjóm
CDU, sagði af
sér þing-
mennsku í gær,
eftir að hafa játað á föstudag að hafa
átt þátt í að dylja erlenda reikninga.
Þá hvatti dómsmálaráðherra Þýska-
lands, Herta Daubler-Gmelin, á
sunnudag alla flokksleiðtoga innan
CDU til að segja af sér þar sem þeir
væru trausti rúnir.
Á forsíðu dagblaðsins Die Welt
vai- afsögn Wolfgangs Schaubles,
formanns CDU, síðan lögð til, en æ
fleiri krefjast afsagnar hans.
Schauble naut stuðnings Helmuts
Kohls, fyrrverandi kanslara, í bar-
áttunni um embætti flokksformanns.
Þáttur Kohls í fjármálahneyksli
CDU er til rannsóknar hjá saksókn-
araembættinu í Bonn eftir að hann
játaði í síðasta mánuði að hafa tekið
við um 2 milljónum marka í kosn-
ingasjóð CDU án þess að féð væri
bókfært.
Þá hefur Scháuble viðurkennt að
hafa tekið við 100.000 mörkum úr
hendi vopnabraskarans Karlheins
Scheibers, sem Þýskaland vill fá
framseldan frá Kanada. Scháuble
hefur einnig verið sakaður um að
hafa átt við flokksskýrslur CDU, en
neitar staðfastlega slíkum ásökun-
um.
Fáðu
þér
miða
www.hhi.is
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
MORGUNBLAÐIÐ18. JANÚAR 2000