Morgunblaðið - 18.01.2000, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Björgunarsveitarmaður mjaðmagrindarbrotnaði á Sólheimajökli
20 tonna ísstykki
féll ofan á manninn
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Björgunarraenn bera hinn slasaða niður af Sölheimajökli I þoku og rigningu.
LÍÐAN björgunarsveitarmanns,
sem slasaðist er um 20 tonna ís-
stykki féll ofan hann á Sólheima-
jökli sl. sunnudag, er eftir atvikum
góð og að sögn læknis á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur er hann ekki í
lífshættu.
Maðurinn, sem er þrítugur
Reykvíkingur, mjaðmagrindar-
brotnaði, en ekki er búið að taka
ákvörðun um hvenær hann gengst
undir aðgerð.
Maðurinn var við æfingar í ís-
klifri við sjö metra háan þver-
hníptan ísvegg á jöklinum er slysið
varð. Hann var þar ásamt tíu ný-
liðum og tveimur leiðbeinendum
úr björgunarsveitinni Kópi í Kópa-
vogi. Enginn var að klifra þegar
óhappið varð, en tveir menn stóðu
neðan við vegginn þegar ísstykkið
féll úr honum og ofan á annan
þeirra. Að sögn lögreglunnar á Vík
grófst maðurinn í mjúkan snjóinn
þegar stykkið féll á hann og hefur
það eflaust orðið honum til lífs.
Félagar mannsins gátu ekki hagg-
að ísstykkinu en með því að grafa
undan stykkinu tókst þeim að ná
manninum undan því.
Tók átta tíma að koma
manninum á slysadeild
Maðurinn var fluttur á börum
niður af jöklinum og tók flutning-
urinn um tvær kiukkustundir, en
læknir og liðsauki frá öðrum
björgunarsveitum í nágrenninu
hjálpuðu við flutninginn.
Læknirinn gaf manninum strax
deyfilyf, en hann var allan tímann
með meðvitund og bar sig óvenju-
vei að sögn viðstaddra.
Þegar komið var niður af jöklin-
um beið þar sjúkrabifreið og var
maðurinn fiuttur með henni á
slysadeild Sjúkrahúss Reykjavík-
ur. Vegna veðurs var ekki unnt að
nota þyrlu, en svartaþoka og
hvasst var á þessum slóðum í
fyrradag. Maðurinn var kominn á
slysadeildina um klukkan 22.30,
um átta tímum eftir að atvikið átti
sér stað.
Jakastykki
á stærð við
jeppa
ATLI Þór Þorgeirsson, annar
tveggja leiðbeinenda í hópi nýlið-
anna á Sólheimajökli, segir það
sorglega óheppni og í raun gegn öll-
um iíkum að ísstykki skyldi losna
einmitt í þeirri sprungu og nákvæm-
lega á þeim tíma sem ákveðið var að
fara nieð nýliða í Hjálparsveit skáta
í Kópavogi niður í sprunguna sl.
sunnudag.
Atli Þór segir að ísstykkið sem
brotnaði úr jöklinum hafi verið um
20 rúmmetrar að stærð, eða svipað á
stærð og jeppi. Sprungan var um
þrír metrar á breidd í botni og var
halli í botni hennar. Jakastykkið
losnaði ofar í sprunguveggnum og
voru þá tveir nýliðar komnir niður í
hana. „Isstykkið skreið í áttinatil
okkar niður haliann. Annar nýlið-
anna náði að hlaupa í burtu en hinn
hrasaði og ísstykkið rann yfir hann.
Aðeins andlitið og dálitið af annarri
hliðinni stóðu undan jakanum þegar
hann stöðvaðist ofan á honum. Það
sem varð manninum til lífs er að á
botni sprungunnar er vatnsblautur
snjór sem hann pressaðist ofan í. Ég
seig strax niður til mannsins og við
náðum að grafa undan honum og
létta af honum þrýstingi," segir Atli
Þór.
Maður inn var með meðvitund all-
an tímann. Það tók fjórar klukku-
stundir að losa hann og ná honum
upp úr sprungunni. Siðan var hinn
slasaði fluttur á börum niður af
sprungnum jöklinum um tveggja km
leið og tók það tvær klukkustundir
til viðbótar. Flutningnr til Reykja-
víkur í bíl tók um tvær klukku-
stundir og var hinn slasaði því ekki
kominn undir Iæknishendur fyrr en
um átta klukkustundum eftir slysið.
Atli Þór segir að maðurinn hafi
mjaðmagrindarbrotnað, rifbeins-
brotnað og hlotið fleiri mciðsli. Hon-
um líði nú eftir atvikum vel.
Þrír nýir útsölu-
staðir hjá ÁTVR
ÁTVR hefur auglýst eftir húsnæði
fyrir ný útibú og samstarfsaðilum
á þremur stöðum á landinu, þ.e. í
Búðardal, á Hvammstanga og
Hvolsvelli og á að opna þau 7. júní
nk. Að sögn Höskuldar Jónssonar,
forstjóra ATVR, er einnig ráðgert
að opna útibú á Djúpavogi á þessu
ári og verða útibúin þá orðin 36.
Höskuldur sagði að leitað væri
eftir húsnæði á þessum stöðum
sem hentar fyrir útibú. Einnig
væri verið að leita eftir samstarfs-
aðilum. „Samstarfsaðilinn leggur
oftast til húsnæðið," sagði hann.
„Hann leigir okkur húsnæðið með
hillum og öllum búnaði öðrum en
afgreiðsluborði og tölvukössum
sem við eigum. Við eigum allar
birgðir og sjáum um bókhald, fjár-
vörslu og segjum til um hvað eigi
að gera við peningana."
Höskuldur sagði að einn starfs-
maður í verslununum, verslunar-
stjóri ÁTVR, fengi ráðningu sem
opinber starfsmaður hjá ÁTVR.
Verslunarstjórinn væri ráðinn í
samráði við samstarfsaðilann og
oftar en ekki væri það sá sem legði
til húsnæðið.
14. prentun loksins komin
Anna
Valdimarsdóttir
Við þökkum frábærar móttökur
við Leggðu rækt við sjálfan þig.
Því miður hefur ekki verið hægt
að anna eftirspurn en nú er
ný prentun komin i verslanir.
„Rosalega góð fyrir alla"
Guðríöur Haraldsdóttir, Rás 2
„Alveg stórmerkiieg bók"
Súsanna Svavarsdóttir, Bylgjan
„Margir hefðu gott af að lesa
[bókina]"
Katrín FjeLdsted, Morgunblaðið
4>
FORLAGIÐ
www.maiogmenning.is
Laugavegi 18 • Slmí 515 2500 • Síðumúla 7 • Slml 510 2500
Morgunblaðið/RAX
Gat kom á síðutank loðnu- og sfldveiðiskipsins Sveins Benediktssonar, eftir að það strandaði í innsiglingunni í
Grindavík í fyrrinótt. Kafara tókst að þétta lekann og er skipið nú komið til Reykjavíkur í slipp.
Strandaði við Grindavík
LOÐNU- og sfldveiðiskipið Sveinn
Benediktsson SU 77 verður írá veið-
um í a.m.k. nokkra daga eftir að gat
kom á síðutank þess þegar það
strandaði í innsiglingunni til Grinda-
víkur um klukkan tvö í fyrrinótt.
Þetta kom fram í samtali við Halldór
Jónasson skipstjóra, en skipinu var
siglt til Reykjavíkur í gær, þar sem
það fer í slipp.
„Það kemur endanlega í ljós þegar
skipið verður tekið upp hvað
skemmdirnar eru miklar," sagði
Halldór. „Ég veit ekki hvað það tek-
ur langan tíma að gera við skipið, en
vona að það sé hægt að redda þessu
til bráðabirgða á nokkrum dögum,
þannig að við náum loðnuvertíðinni."
Skipið, sem er í eigu Skipakletts
hf. á Reyðarfirði, var á leiðinni á
veiðar þegar það fór út af leið í inn-
siglingunni, með þeim afleiðingum
að það steytti á skeri og botn þess
laskaðist.
Sverrir Vilbergsson, starfsmaður
Grindavíkurhafnar, sagði að veður
hefði verið gott á þeim tíma er skipið
strandaði. Vindur hefði verið um 5
m/s og ölduhæð um 1 metri.
„Við lentum aðeins út af merkjum
- hún er svo rosalega þröng þessi
innsigling," sagði Halldór. „Það má
líkja þessu við að setja bíl inn í bfl-
skúr, það má ekkert út af bera ef
maður á ekki að fara utan í öðru
hvorum megin.“
Halldór sagði að skipið hefði losn-
að af strandstað af sjálfsdáðum og
því hefði umsvifalaust verið siglt aft-
ur að bryggju, þar sem kafari kann-
aði skemmdirnar. Þá hefði komið í
ljós að gat hefði myndast á síðutanki
skipsins og olía lekið út. Sverrir
sagði að kafaranum hefði tekist að
þétta lekann og kvaðst hann ekki
telja að mikil mengun hefði hlotist af
honum.
Að sögn Halldórs var slysavarnar-
báturinn í Grindavík kominn að skip-
inu stuttu eftir að það strandaði og
eins vai- þyrla Landhelgisgæslunnar
í viðbragðsstöðu. Hann sagðist því
ekki telja að mannskapurinn hefði
verið í teljandi hættu.