Morgunblaðið - 18.01.2000, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
100% aukning í sölu á
endurunnum vörum milli
Morgunblaðið/Kristján
Sigurður VE kemur til hafnar í Krossanesi á laugardagskvöld með um 1400 tonn af loðnu.
Sigurður VE með fyrsta loðnufarminn í Krossanes á árinu
Norsku skipin angra
Islendingana á miðunum
NÓTASKIPIÐ Sigurður VE kom
með fyrsta loðnufarminn í Krossa-
nes sl. laugardagskvöld. Skipið var
með tæplega fullfermi, eða um
1.400 tonn af stórri og fallegri
loðnu, eins og Kristbjörn Árnason
skipstjóri orðaði það. Alls kastaði
Sigurður nótinni 12 sinnum en skip-
ið fékk stærstan hluta aflans á einni
nóttu. Þetta var jafnframt fyrsti
loðnufarmur skipsins sl. hálft ár,
eða frá því í júlí á síðasta ári og
fannst skipverjum svo sannarlega
kominn tími til að komast í slaginn
áný.
Kristbjörn sagði að veiðin hefði
verið léleg á föstudagskvöld en
ágæt veiði kvöldið áður. Hann sagði
að mikill fjöldi skipa hefði verið á
miðunum austur af Dalatanga og
allt að 30 skip að reyna fyrir sér á
innan við 6 mílna hring.
Auk íslensku skipanna voru mörg
norsk og færeysk skip á svæðinu og
sagði Kristbjörn að Norðmennirnir
væru bæði frekir og leiðinlegir á
miðunum og að hann væri ekki sá
eini sem kvartaði undan þeim. „Ég
get ekki skilið hvernig stendur á því
að Norðmenn hafa komist inn á að
veiða þennan stofn og ég tel að það
sé eitthvað sem menn ættu að
skoða, sagði Kristbjörn og bætti við
að hann hefði heyrt af því að enn
íleiri norsk skip væru á leið á miðin.
Kristbjörn sagðist sjálfur ekki
hafa séð mikið af loðnu á svæðinu
en þó hefðu aðrir skipstjórnarmenn
orðið varir við töluvert magn. Hann
sagði það slæmt að engin rannsókn-
arskip væru á miðunum til að
hjálpa skipunum við leitina. Engu
síður var hann bjartsýnn á að fram-
undan væri góð tíð og mikil veiði.
UM 32 tonn af endurunnum vörum,
millibobbingum og öryggisgúmmí-
hellum voru afgreidd frá Gúmmí-
vinnslunni á Akureyri í lok síðustu
viku og er það langstærsta sending
sem afgreidd hefur verið á einum
degi hjá fyrirtækinu.
Gúmmívinnslan samdi um sölu á
18,7 tonnum af millibobbingum í
troll til Noregs nýlega og voru þeir
hluti af hinni stóru sendingu og þá
voru einnig sendar öryggisgúmmí-
hellur upp í samning sem gerður var
á liðnu ári við Keflavíkurverktaka,
en þeir kaupa samkvæmt honum
8000 öryggisgúmmíhellur. Líkur eru
á að hellurnar verði fleiri þegar upp
verður staðið að sögn Stefáns Ant-
onssonar markaðsstjóra Gúmmí-
vinnslunnar.
Stefán sagði að mikil aukning
hefði verið í sölu á endurunnum vör-
um frá fyrirtækinu, útflutningur
hefði aukist milli ára og einnig salan
innanlands. Um 100% aukning varð í
sölu á þessum vörum milli áranna
1998 og 1999 og þá var um 40% sölu-
aukning í stáldeild félagsins, en þar
eru m.a. framleiddir bobbingar úr
stáli.
„Sú var tíðin að hér var yfirleitt til
þokkalegur lager af endurunnum
vörum úr gúmmí, en nú verðum við
hafa okkur öll við að framleiða upp í
samninga. Við eigum eftir að skoða
hvernig við verður brugðist, t.d.
hvort hagkvæmt sé að taka upp
vaktavinnu í deildinni til að mæta sí-
aukinni eftirspurn," sagði Stefán. A
síðasta ári var bætt við vél sem
pressar hellurnar og jókst afkasta-
getan þá verulega, en vélin, sem þró-
uð var og smíðuð hjá fyrirtækinu,
pressar 100 gúmmíhellur á dag.
Endurunnu vörurnar hjá Gúmmí-
vinnslunni eru unnar úr nánast öllu
því gúmmí sem til fellur á íslandi, en
það dugar hvergi nærri til þannig að
flytja þarf inn megnið af því gúmmí
sem notað er í framleiðsluna, aðal-
lega frá Svíþjóð og Hollandi.
Hvað útflutning varðar eru helstu
markaðslönd Gúmmívinnslunnar
Morgunblaðið/Kristján
Jakob Tryggvason, verkstjóri í endurvinnsludeild Gúmmfvinnslunnar, við nýja vél sem þróuð var og smíðuð frá
grunni hjá fyrirtækinu, en afköst hennar eni 100 öryggisgúmmíhellur á dag.
Noregur, Danmörk, Grænland og nú
nýlega Færeyjar, en fyrr í þessum
mánuði tók sölumaður til starfa þar í
landi fyrir Gúmmívinnsluna og fjög-
ur önnur fyrirtæki í samvinnu við
Útflutningsráð. „Við bindum miklar
vonir við að komast meira inn á
markað í Færeyjum í kjölfarið, en
fram til þessa höfum við ekki selt
mikið til Færeyja," sagði Stefán.
Hann sagði að eftir að farið var að
sigla einu sinni í viku frá Akureyri til
Færeyja hefðu opnast miklir mögu-
leikar á frekara samstarfi milli fyrir-
tækja á Akureyri og Færeyja.
Þá er í burðarliðnum, að sögn
Stefáns, að stofna fyrirtæki í Noregi
í samvinnu við þarlent félag, en því
er ætlað að framleiða öryggisgúm-
míhellur til að byrja með og ef vel
gengur verður bobbingaframleiðsl-
unni bætt við síðar. Gúmmívinnslan
hefur selt mikið af endurunnum
millibobbingum til Noregs en ekki
hafa áður verið seldar þangað ör-
yggisgúmmíhellur. „Við teljum okk-
ur vera með góða vöru sem á fullt er-
indi inn á þennan markað,“ sagði
Stefán.
Þá má nefna að sundlaugarhellur
sem framleiddar eru hjá Gúmmí-
vinnslunni verða að líkindum seldar
til Dubai í samvinnu við sænskt fé-
lag, en fyrirtækið er, að því er Stef-
án veit best, hið eina í heiminum sem
framleiðir endurunnar sundlaugar-
hellur úr gúmmí.
Gúmmívinnslan keypti á síðasta
ári Hjólbarðaverkstæði Einars við
Dalsbraut og mun reka það í núver-
andi húsnæði til vors, en þá hefjast
framkvæmdir við byggingu verslun-
armiðstöðvar þar. Forsvarsmenn
Gúmmívinnslunnar eru nú að leita
að heppilegu húsnæði á góðum stað
til að starfrækja verkstæðið. Þá má
nefna að á vegum fyrirtækisins er
unnið að því að Akureyri verði
naglalaus bær og hafa viðræður far-
ið fram við bæjaryfirvöld um það
hvernig best verið að slíku staðið, en
bærinn eigi m.a. hagsmuna að gæta
hvað varðar minna slit á malbiki.
Stefna þeir Gúmmívinnslumenn að
því að bærinn verði naglalaus á
næstu tveimur árum og telur Stefán
það raunhæft markmið. Hann sagði
að á milli 80 og 90% þeirra vetrar-
dekkja sem fyrirtækið seldi á síðasta
ári hafi verið svonefnd loftbóludekk.
Skólanefnd
Akureyrar
Þrjú sumar-
leyfístíma-
bil á leik-
skólum
MEIRIHLUTI skólanefndar
Akureyrar hefur samþykkt að
leikskólar bæjarins bjóði upp
á þrjú sumarleyfistímabil í
sumarið 2000 og geti foreldrar
valið milli þeirra.
Fyrsta tímabilið er frá 15.
júní til 15. júlí, annað frá 1. jú-
lí til 31. júlí og það síðasta er
frá 15. júlí til 15. ágúst. Einn-
ig geta foreldrar tekið sumar-
frí fyrir börn sín utan þessara
tímabila, þ.e. fyrir miðjan júní
eða eftir miðjan ágúst ef
þannig stendur á.
Horft er á þetta sem tilraun
sem gildir fyrir þetta ár og er
fyrirhugað að leggja fyrir for-
eldra könnun í haust til að
meta viðhorf þeirra til þessa
fyrirkomulags. Út frá niður-
stöðu þeirrar könnunar verð-
ur tekin ákörðun um fram-
haldið.
í tilefni þessarar samþykkt-
ar skólanefndar mælist bæjar-
ráð til þess að sumarleyfum
barna á leikskólum Akureyrar
verði sem kostur er beint inn
á þau sumarleyfistímabil sem
tiltekin eru í bókun nefndar-
innar, en foreldrar geti þó
tekið sumarfrí fyrir börn sín á
öðrum tíma ef sérstaklega
stendur á. Tilmæli bæjarráðs
eru einkum vegna skipulags
sumarafleysinga og þjónustu
yfir sumartímann.
Bæjarlög’maður
Akureyrar
Mælt með
Hákoni
BÆJARRÁÐ Akureyrar
leggur til við bæjarstjórn að
Hákon Stefánsson verði ráð-
inn í stöðu bæjarlögmanns.
Þrír sóttu um stöðuna; Ey-
þór Þorbergsson á Akureyri,
Hákon Stefánsson, Reykja-
vík og Sigurður Eiríksson,
Akureyri.
Áður hafði Ráðgarður sem
fór yfir umsóknir mælt með
því að Hákon yrði ráðinn.
Baldur Dýrfjörð sem gegnt
hefur stöðu bæjarlögmanns
lét af störfum í lok síðasta
árs.
Bæjarstjórn kemur saman
til fundar í dag og verður
málið afgreitt á fundinum.
Lögreglan
Brotist
inn á Kaffi
Akureyri
BROTIST var inn á veit-
ingastaðinn Kaffi Akureyri
aðfaranótt sunnudags. Sá
eða þeir sem þar voru að
verki höfðu lítið upp úr
krafsinu, lítilræði af pening-
um og eitthvað af áfengi. Þá
unnu þeir óverulegar
skemmdir við innbrotið, en
rúða var brotin til að komast
inn í húsið.
Þá barst lögreglu tilkynn-
ing um að brotist hefði verið
inn í bifreið á sunnudags-
kvöld og einnig var tilkynnt
um stuld á bifreið til lög-
reglunnar á Akureyri á
sunnudag, en hún fannst aft-
ur í gær.
Bj örgunar s veit
kölluð út í hvass-
virðinu á Dalvík
Garðhýsi og*
plastkörum
bjargað
BJÖRGUNARSVEIT á Dal-
vík var kölluð út til aðstoðar
síðdegis á laugardag og svo
aftur á sunnudagskvöld í
hvassviðrinu sem þá gekk yf-
ir. Að sögn lögreglu á Dalvík
var þónokkur erill en engar
stórvægilegar skemmdir
urðu.
Þakplötur fuku af einu húsi,
en heimafólki í samvinnu við
björgunarsveitarmenn tókst
að hefta frekara fok og slíkt
átti við í fleiri tilvikum þar
sem lausamunir voru á ferð
og flugi. Þá tókst að koma í
veg fyrir að garðhýsi við hús
eitt í bænum tækist á loft.
Plastkör sem voru í stæðum
niðri við höfn fóru af stað á
laugardagskvöld og stefndu
úr á sjó. Fyrir snarræði tókst
að afstýra því að þau færu
þangað.
Lögregla á Akureyri fékk
þónokkuð af tilkynningum um
minniháttar tjón í hvassviðri
helgarinnar. Engin slys urðu
á fólki að sögn varðstjóra.
Nokkuð var um að lausamun-
ir lentu á ökutækjum, bæði
kyrrstæðum mannlausum bíl-
um og eins bílum á ferð. Tjón
varð þó í öllum tilvikum lítið.