Morgunblaðið - 18.01.2000, Page 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Te lenor lætur í minni pokann fyrir BT
Samstarf í stað
ráðandi hlutar
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
NORSKA fjarskiptafyríi'tækið Tel-
enor hefur samþykkt tilboð British
Telecom, BT, um að eignast 49,9
prósent í Esat, írska símafyrirtæk-
inu, sem Telenor hafði reynt að
eignast meirihlutaeign í. Lærdóm-
ur Telenor af þessari misheppnuðu
tilraun til meirihlutaeignar og öðr-
um óförum nýlega þvingar fyrir-
tækið til að hugsa málin upp á nýtt.
Tilboð BT kom fram eftir að fyr-
irtækið hafði yfírboðið Telenor um
kaup á Esat. Denis O’Brien stofn-
andi og framkvæmdastjóri Esat
barðist gegn kauptilraun Telenor
og hafði sagt tilboðið mestu árás
síðan víkingaferðimar voru og hétu.
BT hefur starfað með Telenor á
öðrum vettvangi og tilboð þeirra
þykir bera vott um að þeir vilji
gjarnan halda í velvilja Telenor.
Samkvæmt tilboði BT getur Tele-
nor skipt á 49,9 prósenta hlut sínum
í Digifone, dótturfyrirtæki Esat, á
33 prósenta hlut í Esat. Með viðbót
upp á fimm milljarða norskra króna
getur Telenor síðan eignast í allt
49,9 prósenta hlut í Esat. Það er
sama verð á hvern hlut og BT borg-
ar fyrir hlutabréf í Esat. Telenor
hafði áður lýst því yfir að boðið í Es-
at væri merki um vilja fyrirtækisins
til að eignast ráðandi hlut í fyrir-
tækjum erlendis, en ekki bara vera
meðleikendur þar. Eftir þessa mis-
heppnuðu tilraun og aðra mis-
heppnaða tilraun tU að kaupa síma-
fyrirtæki í Króatíu verður Telenor
hins vegar að horfast í augu við
hversu erfitt það er að ná fótfestu á
mörkuðum, þar sem samkeppnis-
aðUarnir eru margfalt stærri.
Forráðamenn Telenor hafa nú
lýst því yfir að þeir stefni á að kom-
ast inn á markaði, þar sem síma-
væðing er enn í lágmarki, en gæti
vaxið. Með því að koma fljótt tU sög-
unnar eigi lítið fyrirtæki eins og
Telenor möguleika á að ná fótfestu
áður en stóru fyrirtækin beina
þangað athygli sinni og fjármagni.
Rýmislausn # 7
Er lagerinn sprunginn?
Það er algengt vandamál að lagerhúsnæði fýllistvegna aukinna umsvifa. Hefðbundin lausn erað
byggja nýtt lagerhúsnæói. Slfkar framkvæmdir eru þó oft á tíðum óþarfar.
Við hjá Rými erum með lausnina á þessu vandamáli. Með MOVO brautarekkum getum við
hannað lausnir sem eru bæði þægilegar og henta núverandi húsnæði. Með MOVO getur þú
frestað nýju lagerbyggingunni og náð hámarksnýtingu út úr núverandi húsnæði.
Háteigsvegi 7
Reykjavík
Sími 511 1100
Rými ehf er nýtt dótturfyrirtæki HF. Ofhasmiðjunnar
Forstjóri Sony veldur fjaðrafoki
á japönskum fjármálamarkaði
Hlutabréf
Sony of hátt
verðmetin?
FORSTJÓRI Sony-fyrirtækisins,
Nobuyuki Idei, olli uppnámi nýlega
á japönskum fjármálamarkaði þeg-
ar hann lýsti því yfír að gengi
hlutabréfa í Sony væri orðið of
hátt.
„Þegar litið er til hagnaðarstigs
fyrirtæksins væri eðlilegt verð
kringum 20.000 jen á hlut. Verð
fyrir ofan það myndi vera bóla,“
sagði Idei fréttamanni Reuters-
fréttastofunnar, að því er fram
kemur í Financial Times.
Ummæli Ideis höfðu tilætluð
áhrif, og í kjölfarið lækkaði gengi
hlutabréfa Sony um hámark þess
sem leyft er á einum degi, eða úr
27.700 jenum í 25.700 jen, og var
þetta nefnt „Sony-sjokkið“ meðal
greiningaraðila á markaði. Hluta-
bréf í Sony höfðu sveiflast mjög
dagana á undan á japönskum
hlutabréfamarkaði, eða frá 18.430
jenum í 32.250 jen á hlut.
Svo virðist sem þetta sé í fyrsta
sinn sem að forstjóri stórfyrirtækis
segir að hlutabréf í því fyrirtæki
sem hann stýrir séu of hátt verð-
lögð, en áður hafði Steve Ballmer,
forstjóri Microsoft, valdið tauga-
titringi á hlutabréfamörkuðum
með yfirlýsingu um að hlutabréf
tæknifyrirtækja væru almennt of
hátt verðlögð sem leiddi til lækk-
ana í þeim geira.
I dálki Lex á baksíðu sama blaðs
FT segir m.a. að þegar forstjórar
stórfyrirtækja leggja til að hluta-
bréf þeirra séu of hátt verðlögð sé
rétt að leggja við hlustir. Þar segir
einnig að hlutabréf Sony hafi tvö-
faldast í verði gagnvart Topix-vísi-
tölunni á undangengnu ári og hafi
verð þeirra verið orðið 75% yfir
verðstuðli annarra stórra rafeinda-
fyrirtækja eins og Matsushita og
Pioneer. Því sé erfitt að mótmæla
ummælum Nobuyuki Ideis.
Sony-fyrirtækið vinnur nú að því
að þróa nettengdar viðskiptalausn-
ir og -vörur, og fjárfestar virðast
hafa haft þá tiltrú á því sem sést í
þróun hlutabréfaverðsins. En í
dálki Lex er varað við því að það
muni taka allnokkurn tíma að
koma slíkum lausnum á markað og
fá þær til að skila hagnaði. A með-
an komi tekjur Sony mikið til frá
sölu á rafeindatækjum, og í ljósi
samdráttar í japönsku efnahagslífi
og hás gengis á jeninu sé það ekki
auðveld leið til auðlegðar.
Loks segir í dálki Lex að athuga-
semdir forstjóra Sony veki ekki að-
eins upp spurningar um samsetn-
ingu viðskipta Sony-fyrirtækisins,
heldur einnig um hvernig japansk-
ir fjárfestar hafa verðlagt fyrirtæki
sem byggja starfsemi sína á Net-
inu. Sá hluti hækkana sem orðið
hafa á Topix-hlutabréfavísitölunni
sem tengist netfyrirtækjum hefur
verið að aukast mjög, og muni
gengi japanskra hlutabréfa ef til
vill þurfa leiðréttingar við í fram-
tíðinni.
AV!S<
Bílaleiga
Sérstök fyrirtækjaverð
Lækkið rekstrarkostnað
AVIS býður fyrirtækjum
sérkjör innanlands
sem erlendis.
AVIS mælir með Opel (we
\harder
S:568-8888
DugguvogurlO - 104 Reykjavik
-/elína
Fegurðin kemur innan frá
Laugavegi 4, sími 551 4473
Nú býður Nýherji viðskiptavinum sínum ekki einungis aukin þægindi á vinnu-
stað - heldur líka utan hans. Með fjarvöktunarþjónustu Nýherja er tölvuvinnsla
og öryggi tækja vaktað með sjálfvirkum hætti allan sólarhringinn. Notuö er
nýjasta tækni til að fylgjast með tækjum og hugbúnaði og er öllu kerfinu
stjórnað frá vöktunarmiðstöð Nýherja.
Þegar þörf krefur eru SMS skilaboð og tölvupóstur send á tækni-
menn viðkomandi fyrirtækja. Fjarvöktunarþjónusta Nýherja
tryggir þér og starfsmönnum þínum áhyggjulausar frístundir
- og ánægjulegan vinnudag! Hafðu samband í sima 569 7827
eöa sendu póst á fjarvoktun@nyherji.is.
NÝHERJI
Skaftahliö 24 • Sími 569 7700
SIÓÖ: www.nyherji.is