Morgunblaðið - 18.01.2000, Page 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000
NEYTENDUR
MOR GUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Lyfjafyrirtækin Glaxo
Wellcome og SmithKline Beecham
tilkynna samruna
Verður stærsta lyfja-
fyrirtæki í heimi
BRESKU lyfjafyrirtækin Glaxo
Wellcome PLC og SmithKline
Beecham PLC tOkynntu í gær að
tekist hefði samkomulag um sam-
runa fyrirtækjanna og verður hið
sameinaða fyrirtæki stærsta lyfja-
fyrirtækið í heimi. Markaðsvirði
sameinaða fyrirtækisins er áætlað
114 milljarðar punda, eða um 13.500
milljarðar íslenskra króna, og á
heimsmarkaði yrði markaðshlut-
deOd þess 7,3%. Viðræður um sam-
runa fyrirtækjanna áttu sér stað fyr-
ir tveimur árum en þá fóru þær út
um þúfur vegna ágreinings um
stjórnunarhætti.
Talsmenn fyrirtælganna segja að
samruninn muni hafa í för með sér
sparnað upp á einn milljarð sterl-
ingspunda íyrir skatta, eða um 118
milljarða króna. Um 25% af sparnað-
inum verður varið til rannsókna og
þróunarstarfa. Samanlagður starfs-
mannafjöldi fyrirtælqanna er um
107 þúsund manns og hafa talsmenn
fyrirtækjanna tilkynnt að starfs-
mönnum verði fækkað eitthvað en
ekkert hefur verið sagt um hve
mörgum verður sagt upp störfum
eða hvar niðurskurðurinn verði. Höf-
uðstöðvar hins sameinaða lyfjarisa
verður í London, en einnig verður
fyrirtækið með stjómstöðvar í
Bandaríkjunum.
James Frost, stjórnarformaður
R. Raphael & Sons
Sérþekking innan
Raphaels kemur FBA
vel í sókn erlendis
SÉRÞEKKING innan enska einka-
bankans R. Raphael & Sons á eftir
að nýtast Fjárfestingarbanka at-
vinnulífsins hf. vel í sókn sinni á al-
þjóðamarkað, að mati James Frost,
stjórnarformanns Raphaels. FBA
festi nýlega kaup á öOum hlutabréf-
um í bankanum sem voru í eigu
Frost og fjölskyldu hans. Frost
mun sitja áfram í stjórn bankans en
ný stjórn hefur ekki verið skipuð.
Frost segir aðdragandann að
kaupum FBA á Raphael stuttan.
„Það einfaldar málið að sami eig-
andi var að öllum hlutabréfum
bankans. Forsvarsmenn FBA
höfðu samband við mig í byrjun
desember og gerðu tilboð í bank-
ann. Ég sá að FBA og Raphael
gætu átt vel saman vegna þess að
þarna gafst tækifæri til að auka þá
þjónustu sem Raphael getur veitt,
þar sem bankarnir búa hvor um sig
yfir ákveðinni sérþekkingu," segir
Frost. Fram hefur komið að FBA
hyggst auka þjónustu Raphaels
með því að bjóða viðskiptavinum
MONIANINI
Ilámarks gœði,
einstakt bragð
Kryddlegnir
hvítlauksgeirar
með öllum mat!
Dreifing Heilsa ehf • sími 533 3232
bankans fjármálaþjónustu á Netinu
og eignastýringu.
„Einkabankaþjónusta fyrir fjár-
sterka aðila á sér langa sögu á
Bretlandi og starfsfólk R. Raphael
& Sons býr yfír sérþekkingu sem
er mikilvæg fyrir ÉBA að mínu
mati og á eftir að nýtast íslenska
bankanum vel í sókn sinni, sérstak-
lega hér á Bretlandi,11 segir Frost.
Átta starfsmenn veita
sveigjanlega þjónustu
R. Raphael & Sons er rúmlega
200 ára gamall einkabanki og hefur
aðeins verið í eigu tveggja aðila.
Frá stofnun og til ársins 1983 var
hann í eigu Raphael-fjölskyldunnar
og þar til nú í eigu James Frost og
fjölskyldu. Bankinn er í Aylesbury,
höfuðstað Buckinghamshire, um 30
km vestan við London. Þar starfa
nú átta manns og veita fjársterkum
aðilum einkabankaþjónustu.
„Einkabanki er banki sem býður
einstaklingum persónulega þjón-
ustu,“ segir Frost í samtali við
Morgunblaðið. „Við höfum fáa við-
skiptavini en ég get ekki gefið tölur
af neinu tagi upp.“ Frost segir við-
skiptavinum þjónað á einstak-
lingsbundinn og sveigjanlegan hátt.
„Við þekkjum viðskiptavini okkar
vel og komum til móts við þá, jafn-
vel utan afgreiðslutíma," segir
Frost.
Athafnamaður ■ stjórnum
fjölmargra fyrirtækja
Auk þess að gegna starfi stjórn-
arformanns Raphaels er Frost
einnig stjómarformaður og aðal-
framkvæmdastjóri breska olíufé-
lagsins Save Group Plc. Aðspurður
segist hann ekki hyggjast bæta við
sig störfum að sinni. Save Group er
ein stærsta bensínstöðvakeðja á
Bretlandi, að sögn Frosts, með um
400 bensínstöðvar. Frost situr einn-
ig í stjórn fjárfestingarsjóðsins
Framlington 1000 Smallest Comp-
anies Trust Plc. Hlutabréf Save
Group og Framlington eru skráð í
Kauphöllinni í London. Auk þess
situr Frost í stjórnum minni einka-
fynrtækja.
I fréttum af kaupum FBA á
enska einkabankanum var James
Frost m.a. nefndur sem kunnur
frumkvöðull í bresku atvinnulífi.
Aðspurður segist hann hafa hlotið
titilinn frumkvöðull ársins 1993,
viðurkenningu sem að sögn Frosts
er styrkt af Lundúnablaðinu Times.
Þriðja Nettóverslunin verður opnuð á Akranesi
Leita að húsnæði
á höfuðborgarsvæðinu
Þriðja Nettó-verslunin verður opn-
uð á Akranesi í byrjun apríl. Versl-
unin verður til húsa á Kalmansvöll-
um, í 800 fermetra húsnæði, og
verður hún rekin með sama sniði
og þær tvær Nettó-verslanir sem
fyrir eru, í Reykjavík og á Akur-
eyri.
Sigmundur Ófeigsson, fram-
kvæmdasljóri Matbæjar ehf., segir
líklegt að Akranes verði miðstöð
verslunar og þjónustu fyrir Vest-
urland, þar sé mikill uppgangur og
fólksíjölgun. Þegar hann er spurð-
ur hvort áformað sé að opna fleiri
Nettóverslanir á þessu ári segir
hann að það geti vel verið, þeir
fylgist vel með húsnæði sem Iosni
og séu með augun opin.
„Við erum alltaf að leita að hús-
næði á höfuðborgarsvæðinu en það
hefur gengið illa. Ef við fáum hent-
ugt húsnæði þar höfum við fullan
hug á að þjóna því svæði betur."
Nýtt
Krydduð
hjörtu
KARTÖFLUVERKSMIÐJA
Þykkvabæjar hefur sett á markað
nýja tegund af nasli. Um er að ræða
smáhjörtu, annars vegar með salti
og pipar og hins vegar með osti og
lauk. Þau eru seld í flestum sölu-
tumum og matvöruverslunum.
Tannkrem
NÝTT á markað er „Góða nótt
tannkrem" sem inniheldur jurtir
sem eiga að hafa róandi áhrif á fólk
þannig að auðveldara verði að
sofna. Einnig má fá tannkrem sem
hjálpar fólki að hætta að reykja,
„Nikodent“. B. Magnússon flytur
tannkremin inn en þau eru fáanleg í
flestum apótekum á öllu landinu.
Vor- og
sumarlisti
Vor- og sumar-
listinn er kom-
inn út hjá
Freemans. f
fréttatilkynn-
ingu frá
Freemans
kemur fram að
nú sé hægt að
kaupa á létt-
greiðslum og nota greiðslukort. Þá
er símaþjónusta Freemans opin
alla daga vikunnar frá klukkan 9-
22.
Listann er hægt að nálgast hjá
Freemans í Hafnarfirði og í bóka-
búðum landsins. Listinn kostar 400
krónur.
Skóhirðuefni
MAX er nafnið á nýju skóhirðuefni,
en í einni og sömu yfirferðinni er
skóáburðurinn borinn á, pússað yf-
ir og fægt.
í fréttatilkynningu frá Besta ehf.
sem sér um innflutning á skópúð-
unum kemur fram að skóhirðuefnið
smiti ekki og Max-púðarnir fást í
svörtu, brúnu og litlausu.
Auk þess eru sérstakir púðar
íyrir vax- og olíuborna skó og rú-
skinnskó.
Púðarnir eru nú þegar fáanlegir í
nokkrum stórmörkuðum og er út-
söluverð um 360 kr.
Silfurmunir
GULLSMIÐIRNIR Dóra og Lára
í Reykjavík hafa tekið saman
höndum og hafið smíð á skartgrip-
um undir merkinu Vikivaki-skart.
Nú eru komnir á markað nýir
munir, m.a. englar sem gerðir eru
með miðaldarsilfurmunstur að fyr-
irmynd. Væntanlegir eru fleiri
munir, t.a.m. sem tengjast land-
náminu.
Slankufít-
hylki
f SFARM hefur hafið sölu á Slanku-
fit-hylkjum sem ætluð eru fólki sem
vill grenna sig. Hylkin innihalda
m.a. guarduft, amínósýrur og víta-
mín, en guarduft er náttúruafurð
sem hefur mjög háan þanstuðul og
ef í umhverfi þess er nægjanlegt
magn vatns, kemur það í veg íyrir
hungurtilfinningu, segir í fréttatil-
kynningu. Slankufit fæst í apótek-
um og heilsuverslunum þar sem
ítarlegur bæklingur liggur frammi.
Athuga-
semd vegna
millilanda-
símtala
FRAMKVÆMDASTJÓRI
Landsnets, Stefán Snorri Stef-
ánsson, hefur óskað eftir því að
koma eftirfarandi athugasemd
á framfæri vegna greinar um
millilandasímtöl sem birtist í
Morgunblaðinu sl. laugardag:
„Þar er sagt að símtöl gegn-
um Landsnet ehf. fari eingöngu
yfir Netið og að sé frekar óstöð-
ug leið. Hið rétta er að Lands-
net ehf. nýtir sér eingöngu þann
örlitla hluta Netsins sem tengir
ísland við Bandaríkin yfir
Atlantshafið, restin fer gegnum
hefðbundin símafélög. Sú lína
hefur mjög mikla flutningsgetu
og álag er langt undir hættu-
mörkum. Hætta á truflunum á
henni er því óveruleg eins og
málum er háttað í dag. Þessi leið
er einfaldlega mun ódýrari en
að vera með sérstaka leigulínu
út. Kostnaður leigulína til út-
landa fer ört minnkandi og þeg-
ar þörf er á munum við leigja
gagnalínu til Bandaríkjanna án
þess að hækka verð til við-
skiptavina okkar. Við notum
nýjustu tækni sem byggist á því
að nýta bandbreidd héðan frá
Islandi betur en áður hefur ver-
ið gert og án þess að það komi
niður á gæðum símtalanna.
Strax í New York er farið gegn-
um hefðbundið símafélag, þar
sem við njótum afar góðra kjara
sem viðskiptavinir njóta jafn-
framt góðs af og erum við á viss-
an hátt með þessu að brjóta nið-
ur landamæramúra. Hluti skýr-
ingarinnar hvers vegna við
erum með lág símgjöld er sú leið
sem við förum, tæknin sem við
notum ásamt því að við veljum
bandarískt símafélag en þar eru
símgjöld ein þau lægstu í ver-
öldinni. Hætta á rekstrartrufl-
unum þessa leið er óveruleg,
enda ber ört vaxandi fjöldi við-
skiptavina okkar og frábærar
viðtökur þeirra vitni um það.“