Morgunblaðið - 18.01.2000, Side 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000
MORG UNBLAÐIÐ
ERLENT
Vinstrimaðurinn Ricardo Lagos kjörinn forseti Chile á sunnudag
Ahersla á stöðug'leika
og velferðarkerfí
Santiago. AFP, AP.
Reuters
Ricardo Lagos, nýkjörinn forseti Chile, veifar til mannfjöldans eftir fréttamannafund í Santiago á sunnudag.
VINSTRISINNINN Rieardo Lagos
sigraði í síðari umferð forsetakosn-
inganna í Chile á sunnudag, hlaut um
51,3% atkvæða. Andstæðingurinn,
íhaldsmaðurinn Joaquin Lavin, hlaut
48,6%. Er þetta í fyrsta sinn sem
vinstrimaður sest á forsetastól í land-
inu síðan sósíalistanum Salvador Al-
lende var steypt í valdaráni Augustos
Pinochets hershöfðingja árið 1973.
Kjörsókn var mikil, um 7,3 milljón-
ir af alls átta milljónum atkvæðis-
bærra mættu á kjörstað og fór allt
vel fram. Lavin, sem er 46 ára og
starfaði eitt sinn fyrir herforingja-
stjóm Pinochets, viðurkenndi ósigur
sinn og fór á fund sigurvegarans í að-
alstöðvum hans á hóteli í höfuðborg-
inni, Santiago, síðdegis á sunnudag.
Hundruð stuðningsmanna Lagos
fögnuðu ákaft er keppinautarnir
birtust á svölum með eiginkonurnar
sér við hlið og föðmuðust. Lavin
sagði að væntanlegur forseti gæti
treyst sér. „Ég er reiðubúinn að að-
stoða hann við að takast á við vanda-
mál landsins og vinna að einingu
Chilemanna,“ sagði hann.
Pinochet-málið skipti litlu
Báðir frambjóðendurnir forðuðust
eftir mætti að falla um mál Pinochets
í kosningabaráttunni en vora sam-
mála um að mótmæla því að hann
skyldi vera handtekinn í Bretlandi.
Heimildarmenn telja flestir að mál
Pinochets hafi haft lítil áhrif á niður-
stöður forsetakosninganna.
Einræðisherrann fyrrverandi er
þingmaður og álíta því stjómvöld í
Chile að hann eigi að njóta friðhelgi
sem slíkur. Á hinn bóginn hafa báðir
frambjóðendur sagt að þeir myndu
ekki reyna að hindra að mál Pin-
ochets verði tekið upp í Chile eins og
ættingjar þeirra sem létu lífið eða
hurfu á stjórnaráram hans krefjast.
Lagos hefur tekið skýrt fram að það
sé dómstóla landsins að taka ákvörð-
un um slík mál, ekki forsetans.
„Ég mun ekki gleyma fortíðinni en
mun horfa til framtíðar," sagði hann
á útifundi með tugþúsundum fagn-
andi stuðningsmanna á sunnudag.
Lagos er 62 ára gamall, menntað-
ur í hagfræði í Bandaríkjunum og
var eindreginn stuðningsmaður All-
ende, átti m.a. sæti í ríkisstjórn hans.
Einnig hefur hann gegnt ráðherra-
embættum eftir að Pinochet fór frá.
Lagos hefur hins vegar fjarlægst
marxíska hugmyndafræði og var nú
frambjóðandi samsteypu mið- og
vinstriflokka sem hafa farið með
völdin eftir að Pinochet fór frá árið
1990. Er Lagos ræddi við fráfarandi
forseta, miðjumanninn Edouardo
Frei, í síma þegar úrshtin vora ljós
sagði Lagos að samstarf þeirra
tryggði jafnvægi og stöðugleika í
Chile. Lagos tekur við embættinu 11.
mars og er kjörtímabilið sex ár.
Skæraliðar reyndu að myrða Pin-
oehet árið 1986 og var Lagos einn af
mörgum vinstrimönnum sem örygg-
islögreglan handtók vegna grans um
aðild að tilræðinu. Það virðist hann
ekki hafa átt en var í fangelsi í
nokkra daga, gerðist einn af at-
kvæðamestu talsmönnum þess að
lýðræði yrði endurreist og hefur
lengi verið hetja í augum andstæð-
inga hershöfðingjans.
Lagos er nú hófsamur sósíalisti og
talinn á svipuðum stað í hinu póli-
tíska litrófi og boðberar svonefndrar
Þriðju leiðar. Þekktastur þeirra er
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, sem hefðbundnir vinstrimenn
saka margir um svik við jafnaðar-
stefnuna.
Óánægja með velferðarkerfi
Lagos hefur lagt áherslu á að kom-
ið verði á atvinnuleysistryggingum,
sem hefur hlotið góðan hljómgrann,
enda hefiu- efnahagsástandið í Chile
verið óvenjuslæmt síðustu árin þótt
nú virðist vera að rofa til.
Um 15 milljónir manna búa í Chile.
Atvinnuleysi er um 10%, glæpatíðni
há, einkum í stórborgunum, og vax-
andi óánægja með lélegt ástand í
mennta- og heilbrigðismálum, vel-
ferðarkerfið er lítt þróað. Lagos hef-
ur heitið að græða sár Pinochet-
skeiðsins en einnig að 200.000 ný
störf verði til á kjörtímabilinu, aðal-
lega í opinbera geiranum.
Á stjórnaráram Pinochets var
fylgt kenningum róttækra frjáls-
hyggjumanna í efnahagsmálum, rík-
isfyrirtæki einkavædd og áhersla
lögð á útflutning. Hefur grandvallar-
þáttum í þessari stefnu í reynd verið
fylgt áfram eftir 1990. Lavin, sem er
hagfræðingur, hefur ritað nokki’ar
bækur þar sem hann hælir stjórnar-
fari Pinochets en hefur að undan-
förnu sagt að tími Pinochets sé fortíð,
nú verði að huga að framtíðinni.
Verður kona
forseti
Finnlands?
AP
Tarja Halonen og Esko Aho á fréttamannafundi í Helsinki í gær. Þau
munu takast á í síðari umferð forsetakosninganna 6. febrúar nk.
Steve Norris
frambjóðandi
íhaldsmanna
London. Morgunblaðið.
ÍHALDSMENN í London hafa
kosið Steve Norris, fyrram ráð-
herra, frambjóðanda flokksins í
borgarstjórnarkosningunum 4.
maí n.k.
Steve Norris beið upphaf-
lega lægri hlut fyi'ir Jeffrey
Archer í keppninni um fram-
bjóðandasætið, en eftir að
Árcher dró framboð sitt til
baka, þegar upp komst að hann
hafði beðið vin sinn að bera
ljúgvitni fyrir sig, varð að kjósa
aftur. Kjörnefnd íhaldsflokks-
ins hafnaði þá Norris, en
breytti svo þeirri afstöðu og var
kosið á milli hans og Andrew
Boff, fyrram forseta.
Hjá Verkamannaflokknum
berjast Frank Dobson, Ken
Livingstone og Glenda Jackson
um að verða frambjóðendur
flokksins. Dobson nýtur stuðn-
ings flokksforystunnar, en Liv-
ingstone hefur um langt skeið
notið mun meira fylgis í skoð-
anakönnunum. Kjörseðlar
verða sendir til 60.000 kjósenda
í London 25. janúar, en einnig
kjósa ráðherrar og þingmenn
Verkamannaflokksins og
verkalýðsfélög. Kjörseðlar
verða að hafa borizt kjömefnd
15. febrúar og verða úrslit til-
kynnt um viku síðar.
Helsinki. Morgunblaðið.
KOSIÐ verður á milli þeirra Törju
Halonen, utanríkisráðherra og fram-
bjóðanda jafnaðarmanna, og Eskos
Aho, leiðtoga Miðflokksins, í síðari
umferð forsetakosninganna í Finn-
landi. í fyrri umferðinni, sem var á
sunnudag, fékk Halonen 40% at-
kvæða en Aho 34,4%. Þeir tveir
frambjóðendur, sem næstir þeim
komu, fengu innan við 13% hvor.
Skoðanakannanir fyrir kosningar
bentu til að þau Aho og Halonen
stæðu næstum jöfn að vígi, hvort
með um 38% atkvæða, og því komu
úrslitin allmikið á óvart. Hafði Aho
raunar yfirleitt vinninginn í könnun-
unum og því var spáð að hann myndi
sigra í síðari umferðinni, sem verður
6. febrúar nk.
Tekist á um
konu og karl
Líkur á því að Tarja Halonen verði
fyrsta konan til að gegna forsetaem-
bætti í Finnlandi hafa stóraukist og
margt bendir til að hún hafi hagnast
á því í fyrri umferðinni að kosninga-
baráttan snerist að sumu leyti upp í
einvígi milli karls og konu. Stefna
þeirra er nefnilega lík um flest. Bæði
styðja þau aðildina að Evrópusam-
bandinu og viija ekki hverfa frá
þeirri hlutleysisstefnu sem Finnar
hafa fylgt frá stríðslokum.
Tvær konur lentu í þriðja og
fjórða sæti í kosningunum, þær Riita
Öosukainen, frambjóðandi Hægri-
flokksins, sem fékk 12,8% atkvæða,
og Elisabeth Rehn, fyrsta konan til
að gegna embætti varnarmálaráð-
herra á Vesturlöndum. Fékk hún
7,9%. Tapaði hún naumlega fyiir
Martti Ahtisaari í kosningunum
1994.
Á kjörskrá vora 4,2 milljónir
manna og var kjörsóknin 76,9%. Var
þetta aðeins í annað sinn frá því
Finnar losnuðu undan rússneskum
yfirráðum 1917 að þeir kjósa sér for-
seta beinum kosningum. Áður fyrr
Mowlam
prófaði
marijúana
London. Morgunblaðið.
MO Mowlam ráðherra, sem m.a. fer
fyrir herferð brezku ríldsstjórnar-
innar gegn eiturlyfjum, viðurkenndi
í sjónvarpsviðtali á sunnudag að hún
hefði á námsárum sínum í Banda-
ríkjunum reykt marijúana, en ekki
líkað og það hefði aldrei verið hluti af
lífi hennar.
Mowlam sagðist í samtalinu ekki
myndu segja af sér vegna þessa máls
og Andrew Lansley, sem fer með
sömu málaflokka og Mowlam í
skuggaráðuneyti íhaldsflokksins,
neitaði því að íhaldsmenn myndu
sækjast eftir afsögn Mowlam eftir
yfirlýsingu hennar, en það vora ein-
mitt íhaldsmenn sem kröfðust þess
að hún gerði hreint fyrir sínum dyr-
um.
Mo Mowlam hefur til þessa varizt
öllum spurningum um fíkniefnanotk-
un, en hefur alltaf viðurkennt að hafa
lifað dálítið villtu lífi á háskólaáran-
um. Ihaldsmenn kröfðu hana um yf-
irlýsingu nú í kjölfar þess að sam-
nemandi hennar við Iowa State
University kvaðst hafa séð Mowlam
handleika fíkniefni í samkvæmi, en
sagðist hins vegar ekki muna hvort
Mowlam hefði reykt eða bara rétt
efnið áfram til næsta manns.
Ihaldsmenn sögðu eftir þessa frá-
sögn að Mowlam yrði að segja allan
sannleikann og Andrew Lansley orð-
aði það svo, að sérhver sá er axlaði
þá ábyrgð að leiða baráttuna gegn
eiturlyfjum ætti að geta sagt með
sann að hið eina sem gilti gagnvart
eiturlyfjum væri að segja nei. Af orð-
um hans nú má ráða að íhaldsmenn
taki yfirlýsingu Mowlam góða og
gilda og þegar leitað var eftir við-
brögðum forsætisráðherrans sagði
talsmaður hans að hann teldi Mo
Mowlam réttu manneskjuna til að
gegna þeim starfa sem hún hefur
með höndum. Sjálf kvaðst Mowlam
myndu berjast ótrauð áfram gegn
eiturlyfjum sem gengju af fólki
dauðu, eins og heróíni og kókaíni.
Mowlam er fyrsti ráðherrann sem
viðurkennir opinberlega að hafa
neytt fíkniefna. Tony Blair forsætis-
ráðherra og Jack Straw innanríkis-
ráðherra hafa báðir neitað því að
hafa neytt fíkniefna á háskólaáram
sínum.
var kosið til kjörmannaþings, sem
aftur kaus forsetann.
Áhersla á
velferðarkerfíð
Taija Halonen er 56 ára að aldri,
lögfræðingur að mennt. I kosninga-
baráttunni lagði hún áherslu á hið
norræna velferðarkerfi og mann-
réttindamál en margir Finnar, eink-
um á landsbyggðinni, hafa það á móti
henni að hún hefur barist fyrir rétt-
indum samkynhneigðra og er ekki í
finnsku þjóðkirkjunni. Á námsárun-
um var hún raunar formaður í sam-
tökum homma og lesbía í Finnlandi
þótt hún sé ekki samkynhneigð sjálf.
Á hún eitt barn frá fyrra hjónabandi
og er nú í óvígðri sambúð. Halonen
er mikil málamanneskja og hefur
ástríðufullan áhuga á leiklist og
garðyrkju.
Fjölskyldugildin
Esko Aho er 45 ára gamall, stund-
um kallaður „Kennedy frá Kannus"
vegna þess að hann er ekki ólíkur
Kennedy heitnum í sjón. Er Aho
þakkað það að Miðflokkurinn skyldi
hafa fallist á Evrópusambandsaðild-
ina 1995 en þótt hann styðji hlutleys-
isstefnuna segist hann ekki vilja úti-
loka NATO-aðild.
I kosningabaráttunni lagði hann
mikla áherslu á mikilvægi fjölskyld-
unnar og á aukinn jöfnuð milli lands-
byggðar og borgar. Hann er kvænt-
ur og á þrjá drengi. Hefur hann
stundum verið sakaður um hégóma-
skap og þá meðal annars nefnt, að
nýlega lét hann lýtalækni fjarlægja
poka undir augunum.