Morgunblaðið - 18.01.2000, Page 28

Morgunblaðið - 18.01.2000, Page 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Hart deilt á rfldsstjórn Verkamannaflokksins í Bretlandi Flensan hækkar hitann í heilbrigðismálunum London. Morgunblaðið. FLENSAN hefur hleypt miklum hita í stjómmálaumræðuna í Bret- landi. Svo hart var sótt að ríkisstjórn Verkamannaflokksins fyrir bágt ástand í heilbrigðiskerfinu að Tony Blair forsætisráðherra fór í sjón- varpsviðtal á sunnudag til þess að bera blak af ríkisstjóm sinni. Setti hann þá Bretum það markmið að koma heilbrigðiskerfinu á næstu sex ámm til jafns við það sem gerist með nágrannaþjóðum. Flensa lagðist á Breta sem aðra undir áramótin og þegar hún hafði herjað um hríð þótti bera á því að heilbrigðiskerfið annaði ekki þeim sem þangað sóttu. Þegar svo fréttir fóm að berast af langri bið eftir læknum, frestun aðgerða og biðlist- um, sem ekki styttust í samræmi við íyrirheit Verkamannaflokksins, hljóp pólitíkin fyrir alvöm í málið. Reyndar var ríkisstjómin sökuð um það fyrst að gera meira úr flensunni en efni stóðu til og gera hana að blóraböggli þess að sjúkrarúmum hefði ekki fjölgað og biðlistar ekki stytzt í takt við kosningaloforð Verkamannaflokksins. Talsmenn ríkisstjómarinnar bára allt slíkt af sér og bentu á, að sjúkrarúmum hefði fjölgað, þótt talsmenn lækna og ann- arra heilbrigðisstétta lýstu þvi hrein- lega yfir, að þeir fyndu bara ekki þessi nýju sjúkrarúm. Og ekki batn- aði ástandið þegar Winston lávarður, sem er læknir og þingmaður Verka- mannaflokksins, sagði í blaðasamtali að heilbrigðiskerfið væri mun veik- ara en ríkisstjómin vildi vera láta. Hann var svo tekinn á teppið í Down- ingstræti 10 og dró eftir það strax úr ummælum sínum; sagði að það sem hann vildi sagt hafa, væri að það mið- aði alft í rétta átt í heilbrigðiskerfinu fyrir tilstilli ríkisstjómarinnar. Jafn- vel þeir, sem flensan Iá þyngst á, gátu ekki annað en kímt yfir sinnaskiptun- um. En þrátt fyrir þau mun Winston ekki eiga upp á pallborðið hjá Blair- hjónunum á næstunni, því í leiðinni mun hann hafa brotið trúnað og sagt frá því, að væntanlegt bam forsætis- ráðherrahjónanna verði tekið með keisaraskurði, þegar þar að kemur. Alvarlegar brotalamir Þannig var Tony og Claire ekki skemmt, ráðherranum var ekki skemmt, þingmönnum Verkamanna- flokksins var ekki skemmt. Almenn- ingi, sem ýmist var með flensu eða þurfti á heilsugæzlu að halda af öðr- um ástæðum, var heitt í hamsi. En íhaldsmönnum, þeim var skemmt, þrátt fyrir alvöra málsins og þeir not- uðu það til hins ýtrasta að berja á rík- isstjóminni. En hvað sem leið deilum um hvort flensufaraldur væri stór eða lítill, hvort sjúkrarúm væra fleiri eða færri, eða hvort biðlistar væra lengri eða styttri, sýndu sig svo ekki varð um villzt ýmsar brotalamir í heil- brigðiskerfinu. Og sumar mjög alvar- legar. Fjóram sinnum var skurðað- gerð vegna krabbameins í hálsi Mavis Skeet frestað, m.a. vegna skorts á sjúkrarúmum í gjörgæzlu, þar sem allt var fullt af öldraðum flensusjúklingum. Nú hafa læknar tílkynnt Mavis, að krabbameinið hafi breiðst svo út að skurðaðgerð sé óframkvæmanleg. I Richmond, kjör- dæmi William Hague, formanns Ihaldsflokksins, lést lítil telpa, Hanna þriggja ára, en hjartaaðgerð á henni var frestað nokkrum sinnum, m.a. vegna stjómunarmistaka og einu sinni vegna skorts á gjörgæzlu- rúmi. Þótt enginn vilji eftir á segja að Hanna hefði lifað ef aðgerðin hefði farið fram fyrr, varpaði mál hennar samt skugga inn í umræðuna um heilbrigðiskerfið. Og Alan Milbum heilbrigðisráðherra hefur fyrirskipað rannsókn á Skeetmálinu. Samkvæmt opinberam tölum veija Bretar 6,8% þjóðartekna til heilbrigðismála en ESB-meðaltalið er 8%. Frakkar verja hins vegar 9,6% tíl þessa mála- flokks og Þjóðverjar 10,7%. Vilja hætta við skattalækkun Um helgina var svo komið að öll spjót stóðu á ríkisstjóminni og skoð- anakönnun sem T7ie Observer birti sýndi almenna reiði í garð ríkis- stjómarinnar fyrir slæmt ástand heilbrigðiskerfisins. Þar sögðust menn hvorki sjá betrambætur, þrátt fyrir yfirlýsingar um auknar fjárveit- ingar til heilbrigðismála, né trúa orð- um ráðherra um að biðlistar hafi stytzt. Tæp 60% aðspurðra, og kjós- endur Verkamannaflokksins vora í meirihluta þar, sögðu að ríkisstjómin ætti að veita fólki skattaafslátt ef það leitar með veikindi sín tíl einkageir- ans, en á það mega ráðherrar ekki heyra minnzt. Það er hins vegar eitt af baráttumálum íhaldsflokksins, sem hefur þó enga ástæðu til að fagna niðurstöðum skoðanankönnun- arinnar vegna þeirrar miklu van- trúar á flokkinn, sem þar kom fram. The Observer segir íhaldsmenn hug- leiða að setja Michael Portillo í heil- brigðismálin í skuggaráðuneytinu til að undirstrika mikilvægi málaflokks- ins. En það sem upp úr stendur í nið- urstöðum þessarar skoðanakönnun- ar er að mikill meirihluti fólks vill að ríkisstjómin láti af fyrirhugaðri skattalækkun í apríl nk. og veiti skatttekjunum til heilbrigðismála. Þetta aftók Tony Blair með öllu í sjónvarpsviðtali á sunnudaginn. Hann sagði skattalækkunina eitt af meginstefnumálum ríkisstjómarinn- ar og stjómin myndi ná fram betra heilbrigðiskerfi án hennar. Fjölmiðlar hafa sagt fjölmargar sögur af fólki, sem ekki hefur getað eða viljað bíða eftir aðgerð hjá opin- bera heilbrigðiskerfinu og hefur bragðið á það ráð að verðsetja hús sín upp á nýtt eða taka önnur lán til þess að gangast undir aðgerðir á einka- f reknum sjúkrastofnunum. Skozki heilbrigðisráðherrann, Susan Deacon, hefur fyrirskipað rannsókn á máli Graham Milne, 25 ára Aber- deenbúa, sem greindist með krabba- mein í lungum og borgaði 4000 pund fyrir aðgerð strax, en annars hefði hann orðið að bíða í mánuð eftir að komast á skurðarborðið í opinbera t kerfinu. En það sem tekur steininn úr, er að aðgerðin var framkvæmd á | sama sjúkrahúsinu og Graham Milne P leitaði til og af sama sérfræðingnum og greindi krabbamein Milne í upp- hafi! Bretar aftarlega á merinni Forsætisráðherrann sagði margt hafa verið gert til að bæta úr heil- brigðiskerfinu, en viðurkenndi að enn væri víða pottur brotinn, tiltók . m.a. skort á menntuðu starfsfólki í heilbrigðisþjónustunni og sagði að | ekki yrði úr honum bætt svona einn, P tveir og þrír. En hann sagði ríkis- stjórnina myndi veita auknu fé til þessara mála og setti takmarkið svo, að brezka heilbrigðiskerfið ætti á næstu fimm árum að ná því marki að standa heilbrigðiskerfum nágranna- þjóðanna á sporði. Samkvæmt The Observer er einn læknir á hveija 625 Breta (í Frakk- , landi einn á 344), árið 1997 eyddu j Bretar 869 pundum á íbúa til heil- brigðismála, meðan Hollendingar j eyddu 1245 pundum og Þjóðverjar 1490 pundum á íbúa (í Bandaríkjun- um er talan 2559 pund á mann). Gjör- gæzlurúmum hefur fækkað í Bret- landi um 25000 á síðustu tíu árum og lífslíkur krabbameinssjúklinga eru til muna verri en samanborið við Frakk- land, Spán, Holland og Svíþjóð. Þá deyja mun fleiri Bretar úr hjarta- . sjúkdómum en gerist með þeim þjóð- um, sem þeir bera sig helzt saman við og loks tínir The Observer til að færri | hjartaaðgerðir séu gerðar í Bretlandi en nokkra öðra þróuðu ríki. Hvortsem leið þín liggur á Austurvöll eða Austurland; upp á hálendið eða upp í Breiðholt er Honda CR- V rétti ferðafélaginn. Honda CR-Ver velbúinn og sprækursportjeppi á mjög hagstæðu verði og sameinar bestu kosti jeppa og borgarbíls. JL JLJUEtSL - betri bíll Vatnagörðum 24 ■ Slmi 520 U00- www.honda.is 3000. Egilsstadlr Bíla- og búvélasslan hf„ slmi 4712011. Kefíavlk: Bilavlk, slmi 421 7800. Vestmannaeyiar: Bllaverkstæðið Bragginn. simi 481 1535.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.