Morgunblaðið - 18.01.2000, Page 30

Morgunblaðið - 18.01.2000, Page 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT S kri f stof u tækn i 250 stundirl Markmið námsins er að þjálfa nemendur til starfa á skrifstofum og er áhersla lögð á tölvugreinar og bókfærslu. Námið er mjög hagnýtt og byggist að verulegu leyti á verklegum æfingum. Námið eykur samkeppnishæfni nemenda og býr þá undir krefj- andi störf á vinnumarkaði. Heistu námsgreinar eru: ■ Handfært bókhald ■ Tölvugrunnur ■ Ritvinnsla ■ Töflureiknir ■ Verslunarreikningur ■ Glærugerð ■ Mannleg samskipti ■ Tölvubókhald ■ Internet STARFSMENNTUN fjárfesting til framtíðar Mig langaði að vera vel samkeppnisfær í öllum almennum skrifstofustörfum og eftir vandlega umhugsun valdi ég Tölvuskóla íslands. Þar bætti ég kunnáttuna í Word- ritvinnslu og Excel-töflureikni og lærði hand- og tölvufært bókhald, glærugerð, verslunarreikning ásamt undirstöðuatriðum í mannlegum samskiptum og Interneti. Námið er vel skipulagt og kennsla frábær. Steinunn ^Rósq, þjonustu- Nú finnst mér ég vera fær í flestan sjól. ís|enska útv^p'sfé|aginu Öll námsgögn innifalin Opið til kl. 22.00 Tölvuskóli íslands Bíldshöfða 18, sími 567 1466 Misvísandi frásagnir af morðinu á „Arkan“ um helgina Æsilegar vanga- veitur um hver stóð að baki tilræðinu Belgrad. AFP, AP, Reuters. LÖGREGLA og stjórnvöld í Serbíu létu í gær enn ekkert hafa eftir sér um morðið sem framið var um helgi- na á hinum alræmda „Arkan“, sem var eftirlýstur fyrir stríðsglæpi, en sögusagnir og vangaveltur um hver hefði staðið að baki tilræðinu gengu fjöllunum hærra. Arkan, eða Zeljko Raznatovie eins og hann hét réttu nafni, lét lífið í kúlnahríð síðdegis á laugardag í hlið- arherbergi móttökunnar í Inter- Continental-hótelinu í miðborg Bel- grad. Umfram þetta hefur lítið feng- izt staðfest um aðstæður morðsins. Tveir lífvarða hans eru einnig sagðir hafa beðið bana í tilræðinu. Júgó- slavneska lögreglan og talsmenn stjómvalda myndu að öllu jöfnu ekki gefa út yfirlýsingar strax eftir at- burði af þessu tagi, en með tilliti til þess hve þekktur Arkan var furða margir Belgrad-búar sig á þögn yfir- valda. Vegna þess að Arkan var eftirlýst- ur af stríðsglæpadómstól Sameinuðu þjóðanna í Haag (ICTY) fyrir voða- verk framin á dögum borgarastríð- anna í Króatíu og Bosníu eru uppi vangaveltur um að ýmsir aðilar, þar á meðal að sumra sögn stjórnin í Belgrad, vildu hann feigan. Serbnesk dagblöð birtu misvís- andi lýsingar vitna á morðinu, t.d. var ekki Ijóst hvort einn byssumaður hefði verið að verki eða fleiri, og hvort hann/þeir báru grímur, svo nokkuð sé nefnt. Opinber minningar- athöfn á morgun Opinbera Tanjug-fréttastofan greindi frá því í gær, með tilvísun í stjómmálaflokk Arkans, Einingar- flokk Serbíu, að ákveðið hefði verið að halda opinbera minningarathöfn um Arkan á morgun, miðvikudag, en útfórin færi fram á fimmtudag. „Fleiri leyndarmál en byssukúlur" var fyrirsögn óháða dagblaðsins Vecernje Novosti, sem að öllu jöfnu hefur góðan aðgang að heimildum. Sagði blaðið 38 skothylki hafa fund- izt á vettvangi. Dagblaðið Danas hafði eftir glæpafræðingnum Dobrivoje Radov- anovic að hér væri um að ræða „dæmigert verk atvinnumanna“. En hann sagði erfitt fyrir árásarmann Zeljko Raznatovic, öðru nafni Arkan, heldur hér á tígrisunga, tákni al- ræmdrar sérsveitar sem hann fór fyrir í borgarastríðunum í Króatíu og Bosníu. í baksýn hafa menn hans tekið sér stöðu á skriðdreka sem þeir tóku herfangi í króatíska bænum Erdut árið 1991. að sleppa án þess að kennsl yrðu bor- in á hann vegna öryggismyndbands- upptakna hótelsins. Sagði Radovanovic að morðið markaði vatnaskil í Júgóslavíu. „Morðið á Arkan sýnir að stjómvöld eru að missa stjórn á undirsátum sínum, þannig að margir undir- heimamenn, sem hafa verið stjórn- inni nánir, munu byrja að snúa við henni baki í því skyni að reyna að forðast sömu örlög,“ sagði hann. Sagt mögulegt að Arkan hafi sett morðið á svið Ríkisrekna dagblaðið Politika sagði að morðið á Arkan væri frá- brugðið öðrum áberandi morðum tíunda áratugarins en flest þeirra hefðu verið framin er fómarlömbin stigu inn eða út úr bíl sínum. Nokkuð á annan tug þekktra blaðamanna, Spádómar Biblíunnar Námskeið um efni Opinberunarbókarinnar hefst 19. janúar í samkomusal Omega að Grensásvegi 8, Reykjavík og verður hvern miðvikudag kl. 20. ðunarkirkjan Leiðbeinandi verður Dr. Steinþór Þórðarson. Námskeiðið verður í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Omega. Allir velkomnir á staðinn! Daníelsbók - Námskeið Námskeið um efni spádómsbókar Daníels hefst 23. janúar í Boðunarkirkjunni að Hlíðasmára 9, Kópavogi. Það verður á sunnudögum kl.17. Þátttaka og námsgögn eru ókeypis. Leiðbeinandi verður Dr. Steinþór Þórðarson. Allir eru velkomnir!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.