Morgunblaðið - 18.01.2000, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000 33
LISTIR
Rauðar ástarsögur
ÖPERA
IVemendaópera Söng-
skólans í Smáranum
vlð Veghósastfg
RAUÐA TJALDIÐ
Nemendaópera Söngskólans í
Reykjavík flutti óperudagskrána
Rauða tjaldið; atriði úr óperum eft-
ir Puccini, Mozart, Verdi, Cimarosa
og Otto Nicolai. Leikstjóri: Ása Hlín
Svavarsdóttir, píanóleikari og
stjórnandi: Claudio Rizzi. Laugar-
dag kl. 16.00.
SÚ staðreynd að íslendingar
eiga óvenju marga úrvals söngvara
miðað við höfðatölu hefur vakið at-
hygli langt út fyrir landsteinana.
Auðvitað hljómar þetta eins og
hver annar gorgeir, en er engu að
síður satt. Það er varla fréttnæmt
lengur þótt tveir og jafnvel þrír ís-
lenskir söngvarar starfi við sama
óperuhús erlendis, og langt er síðan
tveir íslenskh’ söngvarar sungu
saman í Parsifal-uppfærslu á Scala.
Maður hlýtur því að spyrja sig
hvort íslendingar séu söngvinnari
en aðrar þjóðir. Það finnst manni
nú harla ólíklegt, en vera má þó, að
sakir smæðar okkar og fæðar, þá
fái hver og einn sem á annað borð
sýnir hæfileika í þá veru að syngja,
meiri athygli, meiri hvatningu og
tækifæri til að þroska hæfíleikana.
Það má vel ímynda sér að nýting
söngstofnsins sé góð, þar sem flest-
ir sem á annað borð sýna viðleitni
fá að spreyta sig. En varla væri
söngmenningin svona vel á sig
komin, ef ekki væri hlúð að hæfi-
leikafólkinu af kunnáttu.
Nemendaópera Söngskólans í
Reykjavík skipuð sautján ung-
mennum flytur um þessar mundir
óperudagskrána Rauða tjaldið, óp-
eruslettur úr ýmsum áttum, eins og
það er kallað í efnisskrá. Dagskráin
er byggð upp af sungnum óperuat-
riðum og leiknum, þar sem fléttað
er saman íslenskum þýðingum á
sungnum atriðum, söng, spaugi og
gríni. Hópurinn setti þetta sjálfur
saman undir stjórn leikstjóra síns
Asu Hlínar Svavarsdóttur. Hvað
dagskrána sjálfa varðar og upp-
byggingu hennar, þá verður að
segjast eins og er að varla gat mað-
ur ímyndað sér að óreyndu, að svo
ólíkar glefsur úr ýmsum áttum
gætu fallið svo vel saman í eina
heild. Atriðin voru tengd saman
með þeim þráðum sem voru þeim
sameiginlegir, og rauði þráðurinn í
fléttunni var auðvitað ástin. Þannig
runnu atriðin saman í eina allsherj-
ar ástarsögu sem brotin var upp af
ýktum og farsakenndum ærslaleik
sem rímaði vel við sungnu óperu-
atriðin. Það sem einkenndi sýning-
una var gleði, innileiki og fjör.
Krakkarnir gerðu þetta virkilega
vel og af mikilli einlægni. Söngur-
inn var undantekningarlaust skin-
andi góður og vísbending um að
margir af þessum krökkum gætu
átt eftir að láta til sín taka í söng-
listinni.
Hafsteinn Þórólfsson söng
ísmeygilega galdrakarlinn Colas úr
Bastian og Bastienne og Linda P.
Sigurðardóttir var kátbrosleg, ást-
sjúk Bastienne. Jónas Guðmunds-
son og Kristín R. Sigurðardóttir
voru skínandi fín Rodolfo og Mimi
úr La bohéme. Söngur Kristínar í
aríunni Donde lieta usci var virki-
lega góður. ívar Helgason og Ingi-
björg Aldís Ólafsdóttir voru fyndin
og skemmtileg í hlutverkum
Marcellos og Músettu. Ingibjörg
Aldís söng einnig aríu greifafrúar-
innar úr Brúðkaupi Fígarós Dove
sono, og sýndi að mikils er af henni
að vænta. Hún söng einnig dúett
með vinnukonunni Súsönnu, sem
sungin var af Magneu Gunnarsdótt-
ur og það var músíkalskur og fal-
legur söngur. Kristveig Sigurðar-
dóttir og Nanna María Cortes
sungu frábærlega atriði úr Kátu
konunum frá Windsor efth- Nicolai,
þar sem þær hafa nýverið báðar
fengið eins ástarbréf frá John
nokkrum Falstaff. Efniviðurinn er
auðvitað sá sami og í óperu Verdis,
og fléttuðust atriðin saman, þar
sem þær Ragnheiður Hafstein,
Guðríður Þóra Gísladóttir, Auður
Guðjohnsen og Þóra S. Guðmanns-
dóttir sungu samsvarandi ástar-
bréfsatriði úr Falstaff. Þessi flétta
var skemmtileg söngkonurnar allar
voru mjög fínar. Óllu illskeyttari
voru þær Sigurlaug Jóna Hannes-
dótir og Þóra S. Guðmannsdóttir í
hlutverkum systranna Karólínu og
Elísettu úr gamanóperunni Leyni-
brúðkaupinu eftir Cimarosa. Þær
sungu af mikilli innlifun og drama-
tík og Áslaug H. Hálfdánardóttir í
hlutverki friðelskandi föðursystur
þeirra Fidölmu var einnig mjög
góð. Guðríður Nanna Helgadóttir
og Bryndís Jónsdóttir luku dag-
skránni með dúett Marcellinu og
Súsönnu úr Brúðkaupi Fígarós og
skiluðu þvi skínandi vel.
Heldarsvipur dagskrárinnar var
fínn. Söngvararnir voru allir svart-
klæddir, en sviðsmyndin, rauða
tjaldið var í senn táknræn fyrir þær
sögur sem þarna voru sagðar, fal-
legur bakgrunnur og andstæða
svartra leikara og hvitra veggja
salarins; - rauður þráður ástarinn-
ar í svarthvítum veruleika. Ása
Hlín Svavarsdóttir náði miklu út úr
þessum ferska söngvarahópi og upp
vakna spurningar hvort svona dag-
skrár vel valdra óperuatriða saman
settar af listfengi og góðum smekk
yrðu ekki vel fallnar til vinsælda.
Enn er ónefnt stærsta hlutverkið
í sýningunni og það langerfiðasta; -
hlutverk hljómsveitarinnar, sem
Claudio Rizzi lék á píanóið af mikl-
um þrótti. Claudio studdi vel við
söngvarana, fylgdi framvindunni og
stjórnaði af skörungsskap. Það
virtist honum ekkert mál að vippa
sér úr einni óperu yfír í aðra, úr
einum stíl yfir í annan. Og þetta
gerði hann listavel, og dró fram þá
stemmningu sem hæfði hverju at-
riði af mikilli fagmennsku.
Bergþóra Jónsdóttir
Verð frá
Tegund
Avensis
Vectra
Passat
Laguna
Vélarstærð
1600 16v
1600 16v
1600 8v
160016v
Hestöfl
110
101
101
107
ABS
já
já
já
já
Ilnakkapúðar
5
5
5
5
CD
nei
nei
nei
já
Fjarstýrð hljómtæki
nei
nei
nci
j«
Hátalarar
4
6
4
6
Þokuljós
nei
nei
nei
já
1.680.000 kr.
1.660.000 kr.
1.690.000 kr.
1.678.000 kr.
Loftpúðar
4
2
4
Gijótháls 1
Sími 575 1200
Söludeild 575 1220
Renault Laguna kostar frá 1.678.000 kr.
Það er mikilvægt að gera vandlegan samanburð úður en ákvörðun er tckin um bflakaup.
Eins og taflan hér að ofan sýnir er Renault Laguna betur búinn en aðrir bflar í
sambærilegum verðflokki. Ilafðu gæðin að leiðarljósi. Prófaðu Renault Laguna.
RENAULT