Morgunblaðið - 18.01.2000, Page 35

Morgunblaðið - 18.01.2000, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000 35 Litríkt og skemmtilegt TOIVLIST Akurejrarkirkja SINFÓNÍUTÓNLEIKAR Málmblásaratónleikar Sinfón- íuhljómsveitar Norðurlands. Stjórnandi Guðmundur Óli Gunn- arsson. Sunnudagur 16. janúar 2000. Á ÞRIÐJU tónleikaefnisskrá Sin- fóníuhljómsveitar Norðurlands á þessu starfsári voru einvörðungu verk fyrir málmblásara. Þrátt fyrir að eingöngu ein deild úr hljómsveit- inni hafi verið þarna að verki þá sýn- ir fjölbreytni í vali tónverka og túlk- un að tónleikarnir voru engan veginn einhæfir, þeir voru bæði lit- ríkir og skemmtilegir. Það er mikil- vægur þáttur í þjálfu sinfóníuhljóm- sveita að sem flestir hljóðfæraflokkar og deildir fái að spreyta sig í krefjandi og leiðandi hlutverkum. Þannig er mikilvægt að strengjadeildin komi fram sem strengjasveit og blásarar þá gjarn- an, annaðhvort sem tréblásarasveit, oft í kvintett, eða eins og á þessum tónleikum sem málmblásarasveit. Á þann hátt verður samræmi betra í færni hljóðfæraleikara hinna ýmsu hljóðfæragerða og þetta fyrirkomu- lag ætti einnig að auka ánægju þeirra hljóðfæraleikara sem þátt í þeim taka. Hins vegar finnst mér álitamál hvort slíkir tónleikar eigi að vera auka- eða viðbótartónleikar á tónleikaskrá vetrarins og á aðaltón- leikum verði lögð áhersla fyrst og fremst á sinfóníska skipan hljóm- sveitarinnar. Ég þykist vita að þá sé komin upp sú augljósa staða að miklu betur þurfi að búa að hljóm- sveitinni til þess að svo megi verða, bæði þyrfti að ráða hljóðfæraleikara í hlutastarf og sjá hljómsveitinni fyr- ir betri starfs- og tónleikaaðstöðu. Er ekki mál að þessi 20. aldar vandi verði leystur og honum verði ekki breytt í 2000 vanda? Mikilvægt liðsinni bættist málm- blásurum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands á tónleikunum í Akur- eyrarkirkju sl. sunnudag, en það voru fólagar úr Serpent í Reykjavík. Hljóðfæraleikarar, sem kenna sig við blásturshljóðfæri sem líktist lög- un nöðru, með fjórum sveigjum, og var mikilvægt hljóðfæri með sínum djúpa og mjúka tóni í blásaraflokk- um Evrópu frá miðri 16. öld. Heim- ildir gi-eina frá notkun serpents í byrjun 19. aldar. Hljóðfærið serpent var yfirleitt smíðað úr hnotu og klætt með leðri, ekki málmblásturs- hljóðfæri í þess orðs fyllstu merk- ingu. Serpent-hljóðfæraflokkurinn einskorðar sig heldur ekki við málm- blásturinn eingöngu, heldur tekur skipan flokksins mið af þeirri stefnu að skapa svið fyrir þá tónlistarmenn, sem flytja vilja aðra tónlist en þá sem ákveðnir aðilar sinna nú þegar, s.s. sinfóníu- og lúðrahljómsveitir, kvartettar og kvintettar svo dæmi séu nefnd. Einnig leggur Serpent sig fram um að flytja íslenska blás- aratónlist og vera til taks fyrir tón- skáld sem semja vilja fyrir óhefð- bundna hljóðfæraskipan. Þessu hlutverki var Serpent-hópurinn trúr í samvinnu sinni við Sinfóníuhljóm- sveit Norðurlands á sunnudaginn og með því vali tónverka sem þar hljómuðu. Á tónleikapalli voru 20 hljóðfæraleikarar, sem léku á trompeta, horn, básúnur, túbur, kontrabassa og slagverk. Hljómsveitarstjóri var Guðmund- ur Oli Gunnarsson, aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Efnisskráin spannaði yfir tónverk allt frá Sónötu áttunda tónsins eftir hið feneyska víðfræga barrokk-tón- skáld gullna hornahljómsins, Giov- anni Gabrieli, til eins af okkar upp- rennandi tónskáldum Tryggva Baldvinssonar (f. 1965), sem átti fyrsta nýja tónverkið („í tilefni dagsins11) sem frumflutt var á tón- leikum árið 2000 á Akureyri. Jafnt var í liði tónskálda frá Bretlandi og Bandaríkjunum, eitt heimsþekkt og annað minna þekkt í hvoru liði, þeir: Benjamin Britten (1913-1976) og Arthur Bliss (1891-1975) frá Bret- um, en Aaron Copland (1900-1990) og Raymond Premru (f. 1934) fyrir hina. Tónlistin er hafin yfir landa- mæri þannig að þessari líkingu verð- ur ekki fylgt frekar. Nema ég get ekki sleppt Einojuhani Rautavara (1928), einu fremsta tónskáldi Finna á þessari öld, en á efnisskránni var „Sálumessa okkar tíma“, mikilfeng- legt og áhrifamikil sálumessa án orða. A því ári þegar haldið er upp á að eitt þúsund ár séu liðin frá kristnitöku á íslandi var einstaklega vel til fundið að flytja á tónleikunum útsetningu Einars Jónssonar á upp- hafi tíðarsöngs heilags Þorláks. Ein- ar Jónsson, básúnuleikari og tónsm- iður, byggir útsetningu sína á nótnaafritun séra Bjarna Þorsteins- sonar, eins og þær birtast í þjóðlaga- safni hans. Frumgerðin er varðveitt í einu merkasta fornskinnhandriti okkar og er hún trúlega alíslenskrar gerðar bæði hvað hætti texta og lag- gerð varðar. Einar notar aðeins hluta úr upphafinu, en efni þess texta gefur björt fyrirheit, eða „Há- tíð ber að höndum bjarta...“. Einari Jónssyni hefur tekistfrábærlega vel að skila nútímalegri miðalda- stemmningu með úrvinnslu sinni á upphafi Þorlákstíða; notar þar einkar fagleg vinnubrögð fjölrödd- unar, sem færa áheyrendur nær þessum gamla tíma á sinn sértæka hátt. Hann lék reyndar gullfallega einleik á básúnu sína í hinu nýja verki Tryggva Baldvinssonar, „I til- efni dagsins". Það tónverk er af fjör- ugra taginu, sver sig í ætt leikhús-, dans- og kabarettónlistar, með sín- um vals- og polkasveiflum. Gáska- fullt og skemmtilegt verk; leikandi á yfirborði dagsins. Val verkefna og vandaður flutn- ingur og hljómsveitarstjórn tókst með ágætum sem varð áheyrendum til óblandinnar ánægju. Tónverkin gerðu miklar kröfur til flytjenda, sem mættu þeim með hreinum og þéttum samhljómi og einnig snerpu og lipurð í hröðum leik. Þó fannst mér helst ljóður á að ekki náðist að leika nægilega mjúkt og veikt (lág- vært) á vissum stöðum t.d. í verki Gabrielis, sérstaklega í bassahljóð- færum. Verk Rautavaara, Requiem in our time, er dramatískt umbrota- verk, sem skilur eftir djúpstæð áhrif. Að lokinni „stórstyrjöld" á „degi reiðinnar" (Dies Irae) skapaði „tára“-þátturinn (lacrimosa) and- stæð áhrif angurværðar og viss trega. Ég vil gjarnan að andstæð- urnar í þessu ágæta verki megi lýsa í hnotskurn breidd og spennuvídd þessara tónleika. Markið var strax sett hátt í upphafi tónleika með hinni magnþrungnu lúðrahyllingu Aarons Coplands, en því verki var ætlaður sá tilgangur að blása trú og kjarki í bandaríska þegna á stríðsárunum. Verkið nær slíkum áhrifum einnig á friðartímum á Akureyri. Jón Hlöðver Áskelsson Stór og þekkt fyrirtæki öfum óvenjumikið úrval af stórum og landsþekktum fyrirtækjum sem við ekki auglýsum að staðaldri og veitum aðeins upplýsingar um í einkaviðtölum og í fullum trúnaði. Hér er um að ræða heildsölur, stórverslunarfyrirtæki, framleiðslufyrir- tæki, veitingastaði, verksmiðjur o.fl. Húsnæðið fylgir oft með. Við tökum að okkur að kanna hvort ákveðin fyrirtæki séu til sölu og er það eins og annað hjá okkur, unnið í fullum trúnaði. Upplýsingar aðeins á skrifstofunni. SUÐURVERI SlMAR 581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRIMSSON. Léttnr og ineðfærilcgur GSM posi með innbyggðuin prenlara Les allar tegundir greiöslukorta ®point * sem notuð eru á íslandi. HlíðasmáralO sími 544 5060 [ snjallkort og segulrandarkort. Fax 544 5061 Hraövirkur hljóðlátur prentari. nuhlíð sími: 462

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.