Morgunblaðið - 18.01.2000, Side 44

Morgunblaðið - 18.01.2000, Side 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FYRIR um ári skrifaði ég grein í Mbl. sem hét „Stjórnarskráin og fískveiðistjórnin". Greinin endaði á þessari setningu: „Þeim, sem margsinnis hafa reynt að vara við eins og greinarhöfundi og fleirum, verður tæplega kennt um þegar Hæstiréttur kveður upp fleiri dóma yfír því fúski og hrossakaup- um sem látið hefur verið viðgang- ast hvað eftir annað við setningu laga í mikilvasgustu atvinnugrein þjóðarinnar." Nú er undirréttardómur fallinn aftur og réttaróvissa um löggjöfína staðreynd þar til dómur Hæsta- réttar verður kveðinn upp. Af þessu tilefni vil ég minna á: Allir kjörnir alþingismenn skrifa undir drengskaparheit um að halda stjórnarskrá landsins, þegar þeir taka sæti á Alþingi í fyrsta sinn. Æðstu embættismenn þjóðarinnar, þar með taldir ráðherrar, skrifa einnig undir drengskaparheit um að halda stjórnarskrá landsins. Því eru það ótvíræðar skyldur um- ræddra aðila að gæta þess að lög- gjöf um skerðingu á atvinnufrelsi í mikilvægustu atvinnugrein þjóðar- innar standist ákvæði stjórnarskrár. Vafa- atriðum sem upp kunna að koma á að túlka einstaklingi í hag. Núverandi stjórnkerfi hefur reynst vonlaust sem stjórntæki við fisk- veiðar. Nægir að nefna ástand í fjölda sjávarþorpa og brott- kast afla. Þá kemur upp sígild spurningin um „hvað á að taka við?“ Hvernig væri að byrja upp á nýtt? Hvernig? Við getum notað stjórnarskrána. Sjávarútvegsnefnd Alþingis hefur fullt umboð til að starfa af meira sjálfstæði. Alþingi er löggjafarvald og ráðuneyti framkvæmdavald. Al- þingi á að semja lög og ráðuneyti að framkvæma fyrirmæli laganna. Það stendur hvergi í stjórnar- skránni að framkvæmdavaldið eigi að ráðskast með löggjafarvaldið. Sjálfstæði sjávarútvegsnefndar er mikilvægt. í nefndinni eiga sæti þjóðkjörnir fulltrúar sem einir hafa umboð þjóðarinn- ar til að semja ábyrga löggjöf sem takmark- ar atvinnufrelsi í sjáv- arútvegi. í 76. gr. stj órnarskrárinnar segir: „Öllum er frjálst að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa. Þessu frelsi má þó setja skorður með lögum, enda krefjist almanna- hagsmunir þess.“ Stjórnarskráin kveður því skýrt á um að ekki megi skerða atvinnufrelsi nema almannahagsmunir krefji. Því er eftirfarandi vönduð, fagleg undirbúningsvinna forsenda þess að takmarka megi atvinnufrelsi í sjávarútvegi: 1. Gera umhverfis- og áhættu- mat fyrir hvern flokk veiðarfæra. Tilgangur væri að láta meta - á faglegan hátt - helstu áhættuþætti sem fylgja veiðum með tilteknum Fiskveiðistjórnun Með faglegri vinnu á vegum löggjafarvalds- ins telur Kristinn Pét- ursson að mögulegt sé að semja nýja löggjöf sem stenst ákvæði stjórnarskrár. veiðarfærum við fiskveiðar. Verk- fræðistofa, eða ráðgjafarfyrirtæki, myndi henta vel til að vinna slíkt verkefni fyrir sjávarútvegsnefnd. Slíkt faglegt mat er grundvallar- forsenda þess að hægt sé að semja vandaða löggjöf í þessari mikil- vægu atvinnugrein. Atvinnufrelsi er tæplega heimilt að takmarka eftir hugdettum frekar en fangelsa fólk eftir geðþótta. Skerðing á at- vinnufrelsi varðar stjórnarskrár- vörð grundvallarmannréttindi. 2. Þegar faglegt mat liggur fyrir um helstu áhættuþætti tiltekinna veiðarfæra þá getur sjávarútvegs- nefnd - á grundvelli faglegs mats - fjallað um hugsanlega valkosti við veiðistjórnun. Samkvæmt 76. gr. stjórnarskrár verður atvinnufrelsi einungis takmarkað ef almanna- hagsmunir eru í húfi. Áhættuþætt- ir við fiskveiðar verða að vera ótví- ræðir og án vafaatriða með vísan til stjórnarskrár. Vafaatriði á að túlka einstaklingum í hag, enda mannréttindaákvæði sett til vernd- ar einstaklingum en ekki stjórn- völdum. Með faglegri vinnu á vegum löggjafarvaldsins er mögulegt að semja nýja löggjöf sem stenst ákvæði stjórnarskrár um atvinnu- frelsi, eignarrétt, jafnréttisreglu og án framsals á valdi frá Alþingi til ráðherra. í núverandi löggjöf er framsal á valdi frá Alþingi til sjáv- arútvegsráðherra. (Álitsgerð Sig- urðar Líndals 1992 og hæstaréttar- dómar 1988, bls. 1532 og 1535) Slíkt samrýmist ekki stjórnarskrá eins og Hæstiréttur hefur túlkað hana. Á það atriði hefur enn ekki reynt fyrir dómstólum en telja má líklegt að Hæstiréttur túlki fram- sal á svipaðan hátt þó um sé að ræða framsal til að skammta at- vinnufrelsi með reglugerð. Höfundur er framkvæmdastjóri. Nýtum stjórnarskrána Kristinn Pétursson KÓPAVOGSBÆR FÉLAGSHEIMILIÐ GULLSMÁRI LEIÐBEINANDI í HANDMENNT Laus er til umsóknar 25% staða leiðbeinanda í handmennt í félags- heimilinu Gullsmára, Gullsmára 13 í Kópavogi. Hæfniskröfur: • leikni í samskiptum • frumkvæði og fjölhæfni • skipulagshæfileikar Starfssvið: • að leiðbeina eldra fólki í handmennt • að annast innkaup og endursölu á handmenntavörum Hér er um nýtt starf að ræða og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst. Laun skv. kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga. Upplýsingar veitir forstöðu- maður 18.-20.janúar í síma 554 3400 frá kl. 10 - 11. Umsóknum skal skila í afgreiðslu félagsheimilisins Gullsmára, Gullsmára 13 fyrir kl. 17.00 þ. 21. janúar. Félagsheimilið Gullsmári er starfsvett- vangur eldra fólks í Kópavogi þar sem starfsmenn vinna með fólkinu í heimilis- legu umhverfi að skapandi og þroskandi verkefnum. Starfsmannastjóri Vélaverkstæði Hjalta Einarssonar ehf., Melabraut 23—25, 220 Hafnarfjörður ^ Rennismiður óskast A/ið óskum eftir að ráða rennismið eða nema í rennismíði. í starfinu felst öll alhliða renni- vinna, bæði á rennibekk, venjulega og hálfsjálf- virkan CNC-bekk, fræsivélar og borverk. Mikil og fjölbreytt vinna í boði. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar veitir Unnar í síma &93 3844. Afgreiðslustarf 50 - 80% starf Snyrtivöruverslunin Libia óskar eftir að ráða starfsmann til afgreiðslu- og þjónustustaifa. Um er að rxða STARFSSVIÐ ► Almenn þjónusta og ráðgjöf við viðskiptavini HÆFNISKRÖFUR hlutastarf í góðu starfsumhverfi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. ► Snyrtifræðimenntun ► Hæfni í mannlegum samskiptum ► Þjónustulund Nánari upplýsingar veittar hjá Gallup. Umsókn ásamt mynd þarfað berast Ráðningarþjónustu Gallupfyrir föstudaginn 21. janúar n.k. - merkt „Afgreiðslustarf 133294". CtAT ,T IIP RÁÐNINGARÞJÓNUSTA Smiöjuvegi 7 2, 200 Kópavogi Sfmi: 540 1000 Fax: 564 4166 Netfang: r a d n i n g a r @ g a I I u p . i s í samstarfi við RAÐGARÐ Atvinna í boði Ábyggilegur laghentur maður óskast. Þarf að hafa meirapróf bifreiðastjóra. Má gjarnan vera iðnlærður, „þúsundþjalasmiður" en ekki skil- yrði. Æskilegt er að hlutaðeigandi geti hafið störf sem fyrst. Áhugasamir leggi inn nafn og símanúmer og upplýsingar um fyrri störf á auglýsingadeild Mbl. fyrir föstudaginn 21. janú- ar merkt: „Fjölbreytt starf — 9145". Tara heildverslun ■ Vegna aukinna umsvifa óskum við eftir snyrtifræðingi til sölu- og kynningastarfa Allar upplýsingar fást í síma 564 5200 Tara heildverslun tara@isgatt.is Blaðbera vantar Flókagötu Garðabær - Flatir Hafnarfjörður - Iðnaðarhverfi Upplýsingar í síma 569 1122. Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sinum vandaðar og áreiðanlegar fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 54.000 eintök á dag. Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavík þar sem eru yfir 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1. Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913. Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins. Mjólkurfræðingur Óskum eftir að ráða mjólkurfræðing til starfa í framleiðsludeildum fyrirtækisins. Um er að ræða framtíðarstarf fyrir duglegan, áhugasam- an og samstarfsfúsan einstakling. Góð vinnu- aðstaða. Skriflegar umsóknir sendist okkur fyrir 20. janú ar nk. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrif stofunni á annarri hæð. Upplýsingar um starfic veitir starfsmannastjóri. Hlutastarf Vantar konu í þrif á morgnana. Upplýsingar á staðnum eftir hádegi. Skólflbrú. Veitingahús, Skólabrú 1 Rafeindavirki óskast í spennandi framtíðarstarf hjá framsæknu fyrir tæki. Reynsluleysi engin fyrirstaða. Þeir, sem hafa áhuga, skili upplýsingum til auglýsingadeildar Mbl., merktar: „Rafeinda- virki — 9148" og haft verður samband.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.