Morgunblaðið - 18.01.2000, Qupperneq 48
*48 ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
Tamið á tungu-
máli hestsins
í Hindisvík
Fræðslustarf er víða öílugt í hestamannafé-
lögunum og nú um þessar mundir eru víða
að hefjast námskeið ýmiskonar, reið-, tamn-
"Inga- og járninganámskeið. Ingimar Sveins-
son, fyrrverandi kennari á Hvanneyri, er nú
farinn að halda námskeið vítt og breitt um
landið og kíkti Valdimar Kristinsson inn í
Hestamiðstöðina í Hindisvík þar sem hann
kenndi „af frjálsum vilja“.
INGIMAR hefur þróað þessa að-
ferð upp úr frasðum Mounty
Roberts „Join up“ og aðlagað ís-
lenskum aðstæðum. Lengi vel var
þessi aðferð kennd nær eingöngu á
’Hvanneyri en eftir að Ingimar fór
í „úreldingu“ eins hann kallaði það
hefur hann lagt land undir fót og
kennt víða, bæði hérlendis sem er-
lendis.
Námskeiðið í Hindisvík stóð yfir
í þrjá daga, föstudagurinn féll út
vegna raddleysis kennarans sökum
hálsbólgu en ekki var annað að
heyra en hinn ákveðni rómur Ingi-
mars væri kominn í samt lag og í
staðinn var kennt á mánudags-
kvöldið. Nemendur voru að fara á
joak hrossunum á öðrum degi nám-
~ skeiðsins þegar blaðamann bar að
garði og var Örn Ingólfsson að
ríða brúnum mjúkbyggðum fola
sem var þó ekkert sólginn í að
halda áfram en allt hafði gengið
vel og þegar hann fór af baki elti
klárinn knapann eins og fylgispak-
ur hundur.
Rammslægur á 45 þúsund
Næstur í röðinni var Sölvi Sig-
urðarson kunnur tamningmaður
en hann var með rauðan fola sem
félagi hans Gunnar Valsson hafði
keypt ásamt Páli Viktorssyni á
uppboði í Hindisvík fyrr í vetur
fyrir 45 þúsund krónur.
Sá rauði var mjög kvikur að sjá
Vóg greinileg slægð til í honum.
Hann rétt náði að skrapa ysta
byrðið á gallanum hjá Ingimari
þegar hann og Sölvi reyndu að
koma hnakknum á bak þess rauða.
Ingimar lét engan bilbug á sér
finna enda regla númer eitt að láta
hestinn ekki finna fyrir hræðslu
eða óöryggi - jafnvel þótt maður
sé með hjartað í buxunum. En
kunnugir segja að það sé reyndar
óþekkt tilfmning hjá Ingimari.
Hræðsla, hvað er nú það?
Þegar hnakkurin var kominn á
bak þeim rauða leit ekki vel út
með að koma volkanum á reiðan-
um á sinn stað undir taglinu. Þá
gekk Ingimar aftan að honum þótt
hann hefði rétt nýlega slegið til
hans. Krækti hann písknum undir
taglið og dró það að sér og hélt því
þétt meðan Sölvi laumaði volkan-
um undir taglið. Um leið sneri
Ingimar sér að þeim sem á horfðu
og sagði þetta óbrigðult ráð til að
hafa þá rólega meðan reiðinn væri
spenntur.
Þá létu þeir þann rauða hlaupa
nokkra hringi og ekki hrekkjaði
hann hnakkinn og áhorfendur
veltu vöngum yfír hvort hann
myndi nú bera það við þegar Sölvi
væri kominn í hnakkinn. Allt fór
þetta vel sá rauði að vísu nokkuð
kvikur og ljóst að lítið mátti út af
bera svo hann reyndi að losa sig
við knapann. Ingimar er hins veg-
ar búinn að kortleggja rækilega
hvað á að gera, hvað má gera og
hvað má ekki gera þegar komið er
í hnakkinn.
Eitt sem hann lætur nemendur
sína gera er að ríða hestunum með
hringband um hestsins sem þeir
L E T TA
DANSSVEIFLU
ÁTVEIM
DÖGUMi
____ stu
námskeið
um helgina
557 7700
hringdu núna
Áhugahópur
um almenna
dansþátttöku
á íslandi
Netfang: KomidOgDansid@tolvuskoli.is
Heimasíða: www.tolvuskoli.is/KbmidOgDansid/
Gleraugnasalan,
Laugavegi 65.
VÖRN FYRIR AUGUN
Gleraugu fyrir unga fólkið
Sá rauði dansaði létt með Sölva sem heldur um hálsbandið en beislis-
taumurinn notaður síðar þegar ljóst er að folinn svarar rétt.
Ingimar heldur þétt í taglið á þeim rauða, hvergi banginn þótt hann hafi
fengið snögga sendingu frá honum stuttu áður. Tamningamaðurinn
Sölvi Sigurðarson laumar volkanum undir taglið.
MorgunblaðiðA'aldimar Kristinsson
Sá brúni orðinn vel hændur að tamingamanninum Erni Ingólfssyni og
ekki annað að sjá en að hann sé tilbúinn til samstarfs.
halda í áður en þeir fara að leiða
hestinn með beislistaumnum. Allt
gekk þetta vel og undravert var
hvað sá rauði sótti stíft að mannin-
um þegar hann var laus. A sama
hátt og sá brúni elti hann Sölva
um allt. Búið að byggja upp full-
komið traust eða eins Magnús Þ.
Lárusson hestafræðingur orðaði
það svo skemmtilega að búið væri
að ganga frá tryggum samstarfs-
samningi. Og það er einmitt það
sem þessi svokallaða græna hesta-
mennska gengur út á, að spila út
frá forsendum hestsins og tala það
tungumál sem hann skilur.
Sýningaskrá
Bænda-
samtakanna
tilbúin
BIRT hefur verið á heimasíðu
Bændasamtakanna sýninga-
áætlun fyrir kynbótasýningar
ársins.
Niðurröðun sýninganna er
með nokkuð hefðbundnu sniði
en efst á blaði er stóðhesta-
sýning sem að þessu sinni er
ekki staðsett en ljóst þykir að
hún verði vart haldin í Gunn-
arsholti eins verið hefur í
fjölda ára. Er greinilegt að
ekki hefur verið tekin endan-
leg ákvörðun um staðsetningu,
en Reykjavík þykir mjög lík-
leg eða svæði Fáks í Víðidal.
Stóðhestasýning verður
haldin 3. til 6. maí. Víðidals-
sýningin verður haldin 23. til
28. maí og strax í kjölfarið
fylgir risasýningin á Gadd-
staðaflötum sem hefur verið
hrossflesta kynbótasýning um
árabil. Hefjast dómar þar 29.
maí og lýkur þeim 10. júní. A
Vindheimamelum hefjast dóm-
ar 30. maí og standa þeir til 3.
júní.
Vestur-Húnvetningar fá tvo
daga hjá dómurunum, 5. og 6.
júní og félagar þeirra í aust-
ursýslunni fá jafnmarga daga í
Húnaveri, 6. og 7. júní. Þessu
næst bera dómarar niður á
Melgerðismelum 8. til 10. júní.
I Borgarnesi verða dómar 13.
til 16. júní og á sama tíma
verða hross metin á Stekk-
hólma á Héraði en 19. júní á
Fornustekkum í Hornafírði.
Þann sama dag verður farin
yfirreið um Vestfirði og kíkt á
hross sem þar kunna að leyn-
ast.
Næst er röðin komin að
landsmótinu sem haldið verður
í Reykjavík 4. til 9. júlí. En hlé
verður gert á sýningarhaldi
fram í ágúst þar sem byrjað
verður á Vindheimamelum 4.
til 5. ágúst. Helgina eftir, 11.
og 12. ágúst, verða tvær sýn-
ingar, önnur á Vesturlandi,
ekki nánar staðsett, en hin á
Akureyri. Síðasta sýning árs-
ins er svo að venju á Gadd-
staðaflötum 17. til 19. ágúst.
Mótaskrá Landssambands
hestamannafélaga er að heita
má tilbúin og er nú til yfir-
lestrar hjá félögum víða um
land.
Lítill áhugi fyrir
stóðhestauppeldi
í Gunnarsholti
Ekkert verður af stóðhestauppeldi á
stóðhestastöðinni í Gunnarsholti
eins og fyrirhugað var. Hrossarækt-
arsamtök Suðurlands auglýstu fyrr í
vetur að ungir folar yrðu teknir í fóð-
ur og hirðingu á stöðinni í vetur. Við-
brögð við auglýsingunni voru afar
dræm, aðeins tveir aðilar höfðu pant-
vashhuQi
VIÐSKIPTAHUGBÚNAÐUR
> Fjárhagsbókhald
l Sölukerfi
I Viðskiptamanna
kerfi
i Birgðakerfi
I Tilboðskerfi
I Verkefna- og
pantanakerfi
I Launakerfi
I Tollakerfi
Vaskhugiehf. Siðumúla 15-Sími 568-2680
að fyrir fimm fola um helgina. Að
sögn Kristins Guðnasonar, formanns
samtakanna, hefði þurft minnst 15
fola í fóður til að setja slíka starfsemi
í gang.
Hann sagði allt samkvæmt áætlun
hvað varðar starfsemi sæðingastöðv-
arinnar og gerði hann ráð fyrir að
byrjað yrði að taka hesta í þeim er-
indagjörðum inn á stöðina í febrúar
en frysting sæðis myndi hefjast í
febrúar.
Kristinn sagði að úr því að fallið
yrði frá að taka unga hesta í uppeldi
á stöðinni skapaðist aukið rými fyrir
hryssur sem væntanlega koma á
stöðina í vor og væri nú hægt að hafa
þær í einshestastíum meðan á dvöl
þeirra í Gunnarsholti stæði.
Þá sagðist Kristinn vonast eftir
meiri ásókn í sæðingarnar en var á
síðasta ári en mikilvægt væri að
bjóða upp á eftirsótta hesta. Gerði
hann sér vonir um að Orri frá Þúfu
fengist í fersk sæðingar sem gerði
það að verkum að einhver takmark-
aður fjöldi hryssna gæti fengið við
klárnum á því sem mætti kalla frjáls-
an markað.
Fákur
á Netið
HESTAMANNAFÉLAGIÐ Fákur
hefur nú opnað heimasíðu á Net-
inu og fylgir þar með í kjölfarið á
Herði í Kjósarsýslu. Síðan var
opnuð með viðhöfn á sunnudag
og lítur prýðilega út. Á henni er
að sjálfsögðu forsíða eins og
gengur og nafnalisti yfir stjórnar-
menn og þá sem skipa nefndir fé-
lagsins.
Þá getur að líta lög félagsins
og ein síða hefur að geyma dag-
skrá í félagsstarfinu og er þar
búið að dagsetja alla þá liði sem
ákveðnir hafa verið allt til jóla-
balls 30. desember á þessu ári.
Sérsíða er fyrir mótaskrá sem
hefur að geyma öll mót sem hald-
in eru á félagssvæðinu á árinu og
einnig er ágætt kort af félags-
svæði Fáks.
Sérsíða er fyrir landsmótið sem
haldið verður á mótssvæðinu en
þar er lítið komið inn enn sem
komið er annað en það að mótið
verði haldið tiltekna daga. Þar er
gert ráð fyrir upplýsingum á
ensku en reikna má með að lands-
mótssíðan eigi eftir að blómgast á
næstu vikum og mánuðum eftir
því sem nær líður móti.