Morgunblaðið - 18.01.2000, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000 49»'
KIRKJUSTARF
MINNINGAR
ÞÓRA
ÞÓRÐARDÓTTIR
+ Þóra Þdrðardótt-
ir fæddist á fsa-
firði 17. mars 1923.
Hún lést á Land-
spítalanum 10. jan-
úar síðastliðinn og
fór útför hennar
fram frá Fossvogs-
kirkju 17. janúar.
Gottersjúkumaðsofa
meðan sólin í djúpinu er,
og ef til vill dreymir þá
eitthvað
semenginnívökusér.
(Davíð Stef.)
lífi sínu, manninn sinn
sem beið í Sólarland-
inu. Hún lokaði augun-
um og bauð okkur góða
nótt.
„Þó ég sá látinn,
harmið ekki með tár-
um. Hugsið ekki um
dauðann með harmi og
ótta. Ég er svo nærri að
hvert eitt ykkar tár
snertir mig og kvelur.
En þegar þið hlæið og
syngið með glöðum
hug, lyftist sál mín upp
í mót til ljóssins. Verið
glöð og þakklát fyrir
Safnaðarstarf
Alfa-nám-
skeið í Hafn-
arfjarðar-
kirkju
NÆSTKOMANDI fimmtudag-
skvöld, 20. janúar, kl.19, fer fram
kynning á Alfa-námskeiði í Strand-
bergi, safnaðarheimili Hafnarfjarð-
arkirkju og boðið verður þá upp á
léttan kvöldverð. Sjálft námskeiðið
hefst viku síðar, fimmtudagskvöldið
27. janúar, einnig kl.19, en fundir á
námskeiðinu hefjast með léttum
málsverði hverju sinni.
Alfa er fyrsti stafurinn í grísku,
sem er frumtunga Nýja-testamentis-
ins og vísar til þeirra orða þess um
Jesúm Krist, að hann sé upphafið og
takmarkið. Alfa-námskeið felst í
vikulegum
samverustundum í tíu vikur þar
sem á einfaldan og aðgengilegan hátt
er fjallað um megin spurningar lífs-
ins og svör kristinnar trúar við þeim.
Alfa-námskeið felst jafnframt í gef-
andi og þægilegu samfélagi þar sem
umhyggja og trúarleg hlýja umlykur
þátttakendur. Eftir málsverð fer
fram fræðsla, síðan er spjallað og
leitað samfélags við Guð í bæn og
kyrrð og áhersla lögð á það, að Guðs
andi fái höndlað huga og hjörtu og
miðlað innri gleði og friði.
Alfa-námskeið fór fram á sama
stað á liðnu haustmisseri og fylgdi
því mikil blessun. Námskeiðið er
samkirkjulegt því fræðsluna annast
bæði fólk úr Þjóðkirkjunni og Samfé-
laginu Veginum. Það vottar einlægan
vilja til þess að styrkja einingu krist-
inna manna á nýbyrjuðu fagnaðar-
og kristnitökuhátíðarári og er öllum
opið sem vilja kynnast áhrifamætti
lifandi trúar í Jesú nafni. Æskilegt er
að tilkynna komu sína á kynningar-
fundinn og fá frekari upplýsingar um
námskeiðið í síma 695-4490,869-6215
eða 862-5877.
Sr. Gunnþór Ingason, sóknar-
prestur, hefur umsjón með þessu
Alfa-námskeiði í Strandbergi, safn-
aðarheimili Hafnarfjarðarkirkju.
Prestar Hafnarfjarðarkirkju.
Fullorðins-
fræðsla Laugar-
neskirkju
Nú hefur fullorðinsfræðsla Laug-
arneskirkju starf sitt á nýju ári, en
tímar eru haldnir hvert þriðjudags-
kvöld kl. 20 í safnaðarheimili
kirkjunnar. Að þessu sinni mun
Þórarinn Björnsson guðfræðingur
flytja einkai- áhugavert erindi sem
ber heitið: „Þegar kirkjan flutti á
mölina“. Að tímanum loknum kl. 21
hefst Þriðjudagur með Þorvaldi, lof-
gjörðarstund þar sem Þorvaldur
Halldórsson leiðir söng, Gunnar
Gunnarsson leikur á flygil og sr.
Bjarni Karlsson flytur orð og bæn.
Þessar samverur báðar eru öllum
opnar og hafa þær reynst kærkomið
tækifæri fyrir margt fólk til að iðka
trú sína í góðum félagsskap. Þau sem
koma beint á lofgjörðarstundina
ganga inn um aðaldyr kirkjunnar, en
fullorðinsfræðslufólk gengur inn um
austurgafl kirkjunnar.
Áskirkja. Opið hús fyrir alla ald-
urshópa í safnaðarheimilinu kl. 10-
14. Léttur hádegisverður. Mömmu-
og pabbastund í safnaðarheimilinu
kl. 14-16.
Bústaðakirkja. Æskulýðsfélagið
fyrir unglinga í 8. bekk í kvöld kl.
19.30 í félagsmiðstöðinni Bústöðum.
Dóinkirkja. Barnastarf í safnaðar-
heimilinu kl. 14 fyrir 6-7 ára böm, kl.
15.30 fyrir 8-9 ára börn og kl. 17 fyrir
10-12 ára böm.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10.Orgelleikur, ritningarlestur,
altarisganga, fyrirbænir. Léttur
málsverður í safnaðarheimilinu eftir
stundina.
Hallgrímskirlga. Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk-
um.
Laugameskirkja. Morgunbænir
kl. 6.45.Fullorðinsfræðsla kl. 20.
Fyrsti tími á nýju ári. Þórarinn
Bjömsson guðfræðingur flytur efnið
„Þegar kirkjan flutti á mölina".
„Þriðjudagur með Þorvaldi" kl. 21.
Lofgjörðarstund þar sem Þorvaldur
Halldórsson syngur, Gunnar Gunn-
arsson leikur á flygil og sr. Bjarni
Karlsson flytur ritningarorð og leiðir
bænastund.
Neskirkja. Litli kórinn, kór eldri
borgara, kl. 16.30 í umsjón Ingu J.
Backmann og Reynis Jónassonar.
Nýir félagar velkomnir.
Árbæjarkirkja. Foreldramorgnar
í safnaðarheimilinu kl. 10-12. Hitt-
umst, kynnumst, fræðumst.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón-
usta með altarisgöngu kl. 18.30.
Bænaefnum má koma til sóknar-
prests í viðtalstímum hans. Æsku-
lýðsstarf á vegum KFUM & K og
kirkjunnar kl. 20.
Digraneskirkja. Starf aldraðra
kl.11.15. Leikfimi ÍAK, léttur máls-
verður, helgistund og samvera. Kl.
17 TTT 10-12 ára starf á vegum
KFUM og K og Digraneskirkju.
Fella- og Hólakirkja. Foreldra-
stund kl. 10-12. Kyrrðar- og bænast-
und kl. 12.10-12.25. Organisti
kirkjunnar leikur á orgelið frá kl. 12.
Þakkar- og bænarefnum má koma til
presta og djákna kirkjunnar. Léttur
hádegisverður í safnaðarheimilinu að
lokinni bænastund. Starf fyrir 9-10
ára stúlkur kl. 15-16.Starf íyrir 11-12
ára stúlkur kl. 16.30-17.30. Æsku-
lýðsfélagið fyrir 8. bekk kl. 20-22.
Grafarvogskirkja. Opið hús kl.
13.30-16 fyrir eldri borgara, kyrrðar-
stund, handavinna, söngur, spil og
spjall. Kaffiveitingar. Kirkjukrakkar
í Rimaskóla kl. 17-18 fyrir 7-9 ára
börn. KFUK fyrir stúlkur 9-12 ára
kl. 18-19. Æskulýðsstarf fyrir ungl-
inga kl. 20-22.
Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 18.
Kópavogskirkja. Foreldramorg-
unn í safnaðarheimilinu Borgum í
dag kl. 10-12.
Seljakirkja. Mömmumorgnar kl.
10-12. Opið hús.
Víðistaðakirkja. Aftansöngur og
fyrirbænir kl. 18.30. Opið hús fyrir
8-9 ára börn kl. 17-18.30.
Ilafnarfjarðarkirkja. Opið hús
fyrir 10-12 ára börn í Vonarhöfn,
Strandbergi, kl. 17-18.30.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús
kl.17-18.30 fyrir 7-9 ára börn.
Lágafellskirkja. Foreldramorg-
unn kl. 9.30-11.30. Umsjón Þórdís og
Þuríður.
Landakirkja, Vestmannaeyjum.
Kl. 16.30 kirkjuprakkarar. Samvera
með leikjum og starfi fyrir 7-9 ára
börn.
Grindavíkurkirkja. Foreldra-
morgunn kl. 10-12.
Borgarneskirkja. TTT, tíu-tólf
ára starf alla þriðjudaga kl. 17-18.
Helgistund í kirkjunni sömu daga kl.
18.15-19.
Krossinn. Almenn samkoma kl.
20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomnir.
Hvaminstangakirkja. Æskulýðs-
fundur í kvöld kl. 20.30 á prestssetr-
inu.
Hólaneskirkja, Skagaströnd. Kl.
10 mömmumorgunn í félagsheimil-
inu Fellaborg. Kl. 16 KFUM og
KFUK fyrir börn 9-12 ára.
KEFAS. Bænastund kl. 20.30.
Þegar nýtt ár og ný öld hefur rétt
heilsað, kveður okkur frænka mín
elskuleg Þóra Þórðardóttir. Er ég lít
yfir farinn veg finnst mér ég gæfurík
að hafa fengið að kynnast henni.
Ýmsar myndir koma í huga mér er ég
hugsa til hennar því svo margs er að
minnast. Oft á tíðum gerum við okk-
m- ekki Ijóst hve mikil áhrif við sam-
ferðafólkið höfum hvað á annað. Ég
var ekki há í loftinu þegar ég horfði á
hana aðdáunaraugum og óskaði mér
að verða svona glæsileg eins og Þóra
frænka þegar ég yrði stór.
Hún átti glæsilegt heimili sem
skartaði munum sem við hin sáum
bara í kvikmyndum í þá daga. Matur-
inn, kaffiboðin, afrnælisveislumar,
allt var svo flott og framandi í augum
barns á þessum tíma. Hún var sann-
kallaður fagurkeri og raðaði hlutum,
fötum og hverju sem var svo fallega
saman. Allt sem hún lagði hendur
sínar yfir, öðlaðist glæsibrag. Þrátt
íyrir að árin væru farin að færast yfir
hana hélt hún ennþá í glæsileikann
og stelpuna í sjálfri sér.
Margt breyttist í lífi Þóru eftir
fráhvarf Jóns, mannsins sem var sól-
in í lífi hennar. Mér er svo minnis-
stætt þegar hún sagði mér söguna
þegar hún sá hann í fyrsta sinn, hve
augu hennar og andlit Ijómuðu er
hún talaði um Jón sem hún sagði að
hefði verið sín mesta gæfa.
Þóra var mjög trúuð kona, hún
trúði á Guð og framhaldslíf. Hún
trúði því að við öll ættum eftir að hitt-
ast hinum megin, og við mennimir
myndum uppskera það sem við sáð-
um á jörðinni. Oft spjölluðum við
langt fram eftir nóttu um menn og
málefni, lífið, og ekki hvað síst lífið
eftir dauðann og var hún þess fullviss
að það væri vakað yfir okkur. Hún
vissi að Jón og aðrir ástvinir hennar
væra ávallt hjá sér og það kæmi að
því að þau myndu sameinast á ný í
Sólarlandinu en eins og hún sagði, þá
kæmu menn út í lífíð og fæm aftur
inn í dauðann þar sem hinn eilífi kær-
leikur ríkir, og rnundi hún vaka yfir
okkur hinum, þegar þangað væri
komið.
Hún sagði og kenndi mér svo
margt um lífið, tilveruna og um
göngu lífsins og að allt hefði sinn tii-
gang, sem stundum var ekki auðvelt
að sjá, hvað þá að reyna að skilja.
Engin rós væri án þyma, það væri
okkar að hlúa að lífinu svo það myndi
blómstra, því þegar allt kæmi til alls
þá myndum við aðeins muna það
góða úr minningabók lífsins. Þóra var
einlæg og gaf auðveldlega af hjarta
sínu. Sumir teljast gjafmildir og góð-
ir því þeir gefa einhvem hluta af eig-
um sínum en aðrir gefa af sjálfum sér
og hjarta sínu af heilum hug eins og
hún gerði. Það hlýtur að teljast hin
sanna gjöf, því ef slíkt yrði sett á vog-
arskálarnar, hlýtur andinn og sálin
að vega þyngra en efnið.
Það var komið að leiðarlokum í lífi
Þóm frænku hér í þessari jarðvist.
Kominn timi til að hitta aftur ástina í
allt sem lífið gefur, og ég tek þátt í
gleði ykkar yfir lífinu."
Eins og þú kvaddir mig alltaf, kveð
ég þig nú: „Bless, elsku kerlingin
mín.“ Við hittumst svo næst í Sólar-
landinu.
Rósa.
Elsku hjartans amma mín. Nú
loksins er þjáningum þínum lokið, en
eftir situr sárt hjarta og tómarúm.
Það em margar minningamar sem
koma upp í hugann, en erfitt er að
ákveða hvað segja skal.
Ég ólst upp hjá ömmu og afa í
Bogahlíðinni alveg frá því ég fæddist,
er þau tóku mig undir sinn vemdar-
væng og hafa þau reynst mér sem
bestu foreldrar og gott betur en það.
Ég á yndislegar minningar um
æskuárin mín og get ég þakkað
ömmu það og afa. Það em ekki marg-
fr sem taka að sér lítið barn með bros
á vör, og aldrei fann ég fyrir öðra en
ég væri þeirra eigin dóttir. Þetta
finnst mér lýsa ömmu og afa vel, því
alltaf vildu þau allt fyrir mig gera og
verð ég þeim ævinlega þakklát.
Amma var mikill fagurkeri og bar.
heimili þeirra vott um það, og eftir
hveija einustu utanlandsferð bættust
við nýir hlutir, og átti hver hlutur þar
sína sögu. Amma lagði líka mikla
áherslu á að líta vel út, og alltaf leit ég
á þessa Mtlu fallegu konu með miklu
stolti, þvi hún var jú amma mín. Mér
þótti vænt um að vera með í því að
búa þig undir þessa löngu för, því ég
vissi að þú vildir kveðja okkur eins
fallega tilhöfð og þú vildir alltaf vera
og ég vona að þú hafir verið ánægð.
Nú hef ég þig ekki lengur til að
hringja í og bjóða góða nótt, eins og
við höfum gert á hverju kvöldi frá því
ég flutti að heiman eða í tæp 11 ár, en
í staðinn tala ég til þín í huganum.
Ég er mjög þakklát fyrir að hafa
fengið tækifæri til þess að halda í
hönd þína þessar síðustu stundir,
eins og þú og afi hélduð alla tíð í mín-
ar hendur.
Þótt erfitt sé að sleppa veit ég í
hjarta minu að nú líður þér vel, kom-
in aftur á háu hælana, fallega tilhöfð
og afi stendur þér við hlið og saman
gangið þið með bros á vör.
Með þessum orðum kveð ég þig,
amma mín, og fer með bænina sem
ég og afi fómm alltaf með á kvöldin.
Eg vil þakka þér fyrir allt, elsku
hjartans amma mín.
Vertu, guð faðir, faðir minn,
ífrelsarans Jesúnafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
(Hallgr.Pét)
Guð gefi þér góða nótt, góða nótt
og dreymi þig vel, elsku hjartans
amma mín.
Þín
Sigríður (Sigga).
Elsku besta amma mín, ég skil
5^/^CvNl Brúðhjón
Allur I)oróbUnaður - G1 æsiIeg gjafavara - Briíðhjdnalislar
/Ló/Vv\\t\V- VERSLUNIN
Lnuguvegi 52, s. 562 4244.
Fjárfestar athugið!
Höfum kaupendur að hlutabréfum í
OZ.com, deCode og Flögu
PPfek. AVerðbréfamiðlunin
AniíCLVhf-Verðhréf
Bf Löggilt óháð fyrirtæki í verðbréfaþjónustu
• Aðili að Verðbréfaþingi fslands •
Suðurlandsbraut 46 • Sími: 568 10 20
ekki af hveiju þú ert dáin. Mér þótti
svo vænt um þig og mér þykir það
enn.
Mig langar að þú verðir alltaf h.já.
mér. Eg elska þig og afa Jón. Þið eig-
ið að hafa góðar stundir.
Þín
Elísa Ýr.
Amma mín, ég sakna þín og ég
mun alltaf hugsa til þín.
Þinn
Arnór Jón.
Ég elska þig svo mikið og ég vildi
ekki að þú mundir deyja.
Þinn *"
Emil Þór.
Elsku vinkona okkar hún Þóra er
látin eftir stutt veikindi. Okkur lang-
ar að minnast hennar í fáeinum orð-
um. Kynni okkar af henni vom mjög
góð enda tók hún okkur strax af vin-
skap og hlýju.
Þóra var mjög lífsglöð og gjöful
persóna, sem alltaf vildi hjálpa og
liðsinna öðmm. Maður varð beinlínis
betri manneskja við það að vera í
návist hennar. Það var einhvers kon-
ar sólarbirta og heiðrílqa, sem fylgdi
henni. Þóra fylgdi líka alltaf ákveðinn
fínleiki, hún var dama fram í fingur-
góma, en þessi fínlega kona bjó yfir-'
miklum innri styrk, sem kom best í
ljós við veikindi manns hennar. Þá er
að minnast heimsókna okkar í Boga-
hlíð 8, þar var alltaf tekið á móti
manni með opnum örmum, góðum
veitingum og glaðværð. Við fjölskyld-
an munum aldrei gleyma þeim dá-
semdarstundum, sem við áttum með
þeim hjónum um nokkurra ára skeið.
En nú er komið að leiðarlokum og
um leið og við viljum þakka þér, Þóra
mín, hlýjan vinarhug, sem þú alltaf
sýndir okkur og fjölskyldu okkar,
kveðjum við þig, kæra vina, á þessfr'
fagra vetrarkvöldi með erindi úr Ijóði
Jónasar Hallgrímssonar, „Ég bið að
heilsa“:
Nú andar suðrið sæla vindum þíðum;
á sjónum allar bárur smáar rísa
og flykkjast heim að fógru landi ísa,
að fóstuijarðar minnar strönd og hlíðum.
Guðbjörg og Jón Pálsson.
Heildarlausnir fyrir
lagerinn.verslunina, heimilið,
bílskúrinn.
Hillukerfi
Trygg gæði - Gott verð!
TUVtó IS0 9001
Öryggis- og gæðastaðlar
Einfalt í uppsetningu
Skrúfufrítt
Smellt saman
f
Isoldehf.
Umboðs- og heildverslun
Nethyl 3-3a -110 Reykjavik
Sími53 53 600 - Fax5673609^