Morgunblaðið - 18.01.2000, Síða 76
1
MORGUNBLADIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVÍK, SÍMl 5691100, SÍMBRÉF5G91181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000
VERÐ í LAUSASÖLU150 KR. MEÐ VSK.
Morgunblaðið/Ómar
Atta rafverk-
takar sviptir
starfsleyfi
LÖGGILDINGARSTOFA hefur
svipt átta rafverktaka starfsleyfi
sem ekki höfðu komið sér upp
gæða- og öryggisstjórnunarkerfi
fyrir 1. janúar 1999 samkvæmt
reglum þar að lútandi. Einkum er
um að ræða svokallaða einyrkja
eða verktaka með lítil fyrirtæki og
mun þetta vera annað skiptið sem
Löggildingarstofa grípur til þess-
ara aðgerða.
Að sögn Jóhanns Ólafssonar
deildarstjóra rafmagnsöryggis-
deildar Löggildingarstofu hafa
umræddir rafverktakar möguleika
á að endurheimta starfsleyfi sín
með því að sýna fram á að þeir
hafi komið sér upp gæðakerfinu.
Um 500 rafverktakar hérlendis
hafa starfsleyfi frá Löggildingar-
stofu.
„Á síðasta ári unnum við að því
að fá rafverktaka til þess að koma
sér upp gæðakerfi á eigin starf-
semi,“ segir Jóhann og bætir við
að Löggildingarstofu hafi tekist að
fá alla rafverktakana til að koma
sér upp gæðakerfinu nema þá átta
sem um ræðir, þrátt fyrir ítrekað-
ar tilraunir.
Ekki önnur leið fær
„Ekki var því önnur leið fær fyr-
ir okkur en að svipta þá starfsleyf-
inu. Þetta er gert til að tryggja ör-
yggi almennings í landinu, sem á
heimtingu á því að tryggt sé að
þeir rafverktakar sem Löggilding-
arstofa veitir starfsleyfi fari eftir
gildandi lögum og reglum."
Jóhann segir að ekki sé flókið
mál fyrir rafverktaka að koma sér
upp gæðakerfinu því eftir því sem
starfsemin sé minni sé gæðakerfið
einfaldara.
Að sögn Jóhanns felst gæðakerf-
ið m.a. í því að vera með skilgreint
vistunarkerfi í starfseminni og að
tryggt sé að verktakarnir fari yfir
verk sín að þeim loknum.
Kjarasamnmgaviðræðurnar hafa faríð hægt af stað
Samiðn gagnrýnir seina-
gang einstakra félaga
Spúlað í
hlýindunum
f HLÝINDUNUM að undanförnu
hefur gefist kærkomið tækifæri til
vorverka eins og þeirra að spúla
gangstéttir eftir sanddreifíngu
borgarstarfsmanna í vetur. Einnig
finnast lítt kræsilegar leifar af um-
búðum skotelda frá því um ára-
mdtin, sem merjast ofan í glufur og
sprungur, fáum til yndisauka.
ÍJumarbústaður
eyðileggst í eldi
ELDUR varð laus í gærkvöldi í
sumarbústað í landi Snorrastaða í
Laugardal, rétt austan við þéttbýl-
ið á Laugarvatni. Greiðlega gekk
að slökkva eldinn en bústaðurinn
er illa farinn, jafnvel ónýtur. Sum-
arbústaðurinn var mannlaus þegar
eldurinn kom upp.
Kona á næsta bæ lét Neyðarlín-
una vita og þaðan bárust boð um
atburðinn til lögreglunnar á Sel-
fossi um klukkan 21.45. Var sagt að
eldtungur stæðu upp úr þaki sum-
arbústaðarins. Slökkviliðið á Laug-
■^i'vatni var kallað út svo og
slökkviliðið á Selfossi. Ryðja þurfti
veginn heim að sumarbústaðnum
svo að slökkvilið kæmist þangað
með tæki sín. Rúma klukkustund
tók að slökkva eldinn.
FORSVARSMENN Samiðnar
gagnrýna seinagang ýmissa stéttar-
félaga við að setja fram kjarakröfur í
samningaviðræðunum og telja að sú
vinna sem fram fer á vettvangi ASÍ
varðandi sameiginleg mál launþega-
samtakanna gagnvart ríkinu gangi
mjög hægt.
Á heimasíðu Samiðnar á Netinu
eru birtar fréttir af gangi mála í
kjaraviðræðunum og þar segir að
vegna þess hvað vinnan á vettvangi
ASÍ gangi hægt sé hún farín að
trufla verulega aðra vinnu. „Vinnu-
brögð ASÍ þyrfti að taka til endur-1
skoðunar og reyna að flýta allri sam-
eiginlegri vinnu,“ segir á
heimasíðunni.
Erum að verða
dálítið pirraðir
Þorbjörn Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Samiðnar, segir að
mjög lítið sé að gerast þessa stund-
ina í samningamálunum. Samiðn hafi
sett sér það markmið að gera tilraun
til að ljúka samningum áður en nú-
gildandi samningar renna út 15.
febrúar, en hann efast þó um að það
takist vegna þess hægagangs sem
verið hefur í viðræðunum. „Við erum
að verða dálítið pirraðir á því hvað
þetta gengur hægt,“ sagði hann.
Listaverk
eftir Kjar-
val kemur í
leitirnar
eftir 33 ár
Blöndudsi - Málverk eða öllu held-
ur krítarverk sem Jdhannes Kjar-
val gerði líklega veturinn 1966-
1967 kom nýlega í leitirnar. Það
var Sigursteinn Guðmundsson,
fyrrverandi yfirlæknir á Blöndu-
dsi, sem fann myndina í gömlu ddti
í eigu Lionsklúbbs Blöndudss. Sig-
ursteinn hefur afhent núverandi
stjdrn klúbbsins verkið til varð-
veislu.
Sigursteinn sagði í samtali við
Morgunblaðið að félögum í Lions-
klúbbi Blöndudss starfsárið 1966-
1967 hefði verið „skipað“ að gera
„listaverk" sem þeir og gerðu og
var haldin sýning á þessum verkum
og uppboð í kjölfar hennar. Af ein-
hveijum ástæðum, sem Sigursteinn
þekkti ekki, komu verk eftir meist-
ara Kjarval og Þorvald Skúlason á
Hópur forystumanna Alþýðu-
sambandsins og einstakra lands-
sambanda innan þess er þessa dag-
ana á ferðalagi um Danmörku og
Noreg til að kynna sér skipulagsmál
verkalýðshreyfingarinnar í þessum
löndum. Eru þeir væntanlegir til
þessa sýningu, en þáverandi stjdrn
Lionsklúbbsins drd verkin út úr
uppboðinu og hefur líklega talið að
fá mætti hærra verð fyrir myndirn-
landsins undir lok vikunnar. Er
reiknað með að lgai-aviðræður hefj-
ist af fullum þunga í næstu viku, skv.
upplýsingum forsvarsmanna stéttar-
félaga og Samtaka atvinnulífsins,
sem haft var samband við í gær.
ar á öðrum vettvangi. Sigursteinn
fann ekki mynd Þorvaldar Skúla-
sonar og hefur enga hugmynd um
hvar hún geti verið niðurkomin.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson.
Sigursteinn Guðmundsson með hið nýfundna Kjarvalsmálverk.