Morgunblaðið - 19.01.2000, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
15. TBL. 88. ARG.
MIÐVIKUDAGUR 19. JANUAR 2000
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Deilan um
Gólanhæð-
ir í hnút
Damaskus, Washington. Reuters, AP.
SÝRLENDINGAR kröfðust þess í
gær að Israelar skuldbyndu sig
skriflega til að láta allar Gólanhæð-
irnar af hendi en Israelar sögðust
ekki ætla að svara þeirri kröfu.
„Það sem við þurfum núna er
skriflegt loforð af hálfu fsraela þar
sem þeir skuldbinda sig til að kalla
allt herlið sitt frá Gólanhæðunum og
landamærin verði eins og þau voru
4. júní 1967 [áður en ísraelar her-
námu landsvæðið]" sagði embættis-
maður stjórnarinnar í Sýrlandi.
„Við neitum að svara þessari frétt
frá Damaskus," sagði talsmaður
Ehuds Baraks, forsætisráðherra
ísraels.
Ráðgert hafði verið að Barak og
Farouq al-Shara, utanríkisráðherra
Sýrlands, kæmu saman í Bandaríkj-
unum í dag til að hefja nýja lotu frið-
arviðræðna en fundinum var frestað
vegna deilunnar um Gólanhæðirnar.
Ákveðið var að lægra settir embætt-
ismenn frá löndunum tveimur
kæmu þess í stað saman í Banda-
ríkjunum síðar í vikunni til að ræða
hvernig haga ætti viðræðunum.
Albright bjartsýn
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
ræddi í gær í síma við Hafez al-
Assad, forseta Sýrlands, um hvernig
hægt yrði að halda viðræðunum
áfram. Talsmaður Clintons neitaði
að svara því hvort hann hefði hvatt
Assad til að sýna meiri sveigjanleika
í deilunni um Gólanhæðirnar.
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, kvaðst von-
góð um að friðarumleitanirnar bæru
árangur þótt ráðherrafundinum
hefði verið frestað. Hún sagði að
deila ísraela og Sýrlendinga nú
snerist einkum um hvaða mál ættu
að hafa forgang í friðarviðræðunum.
Reuters
Isklumpa-
regn á Spáni
Madríd.AFP, AP.
ISHNULLUNGAR á stærð við
körfubolta hafa verið að falla til
jarðar á Spáni síðustu 10 dagana og
eru vísindamenn ekki á einu máli
um uppruna þeirra. Telja sumir að
þeir hafi komið utan úr geimnum en
öðrum finnst það ólfldegt. Hér skoða
tveir þeirra einn hnullunganna.
Frá 8. janúar sl. hafa fundist 18
ísklumpar, allt að fjögurra kflóa
þungir, og flestir í nágrenni Val-
encia á Austur-Spáni. Aðrir hafa
fundist við Sevilla í suðurhlutanum,
við Saragossa í norðri og í gær
fannst einn í úthverfi Madrid.
Talsmaður spænsku veðurstof-
unnar segir að útilokað sé að um sé
að ræða risavaxið hagl en jarð-
fræðingurinn Jesus Martinez Frias
telur sennilegt að ísmolamir séu
sending frá halasljömu. Marc Kid-
ger, sem starfar hjá Stjarneðlis-
fræðistofnuninni á Kanaríeyjum,
vísar því á bug. Segir hann að þá
hefði ísinn átt að falla til jarðar á
sama tíma og ekki aðeins á Spáni. Á
leiðinni í gegnum gufuhvolfið hefði
leikið um ísinn 800 gráða hiti og því
hefðu klumpamir orðið að vera
nokkrir km í þvermál í upphafi. Þá
hefðu þeir heldur ekki farið framhjá
stjarnvísindamönnum.
Flokksstjórn CDU í Þýzkalandi lýsir trausti á Schauble
Kohl lætur af heið-
ursformennsku
Berlín. AP, Reuters.
HELMUT Kohl, fyrrverandi kanzl-
ari Þýzkalands, sagði í gær af sér
heiðursformennsku Kristilegra
demókrata (CDU), eftir að flokks-
stjórnin setti honum þá úrslitakosti
að láta uppi það sem þarf til að kveða
niður fjármálahneykslið sem nú
skekur flokkinn, eða ríkja sæti ella.
í stuttri yfirlýsingu viðurkenndi
Kohl að sér hefði orðið á, en stóð fast-
ur á því að hann gæti ekki rofið trún-
að við þá menn sem létu honum í té fé
í flokkssjóðinn með því skilyrði að
nafn þeirra kæmi ekki fram í bók-
haldi, en slíkt er brot á gildandi lög-
um um fjármögnun stjómmálaflokka
í Þýzkalandi.
Flokksstjórnarmenn CDU fylktu í
gær liði að baki formanni sínum,
Wolfgang Schauble, en snera bökum
saman um að þiýsta á Kohl. Kohl
hefur opinberlega viðurkennt að hafa
tekið við allt að tveimur milljónum
marka, andvirði um 75 milljóna
króna, á síðustu valdaárum sínum.
Scháuble sagði á blaðamannafundi
eftir sérstakan aukafund flokks-
stjórnarinnar í Berlín, að hún hefði
beðið sig að sitja áfram og stýra að-
gerðum til að upplýsa hneykslismál-
in, þrátt fyrir að nokkrir áhrifamenn
í flokknum hefðu látið í ljós þá skoð-
un að Schauble væri sjálfur flæktur í
hneykslið og ætti að víkja.
Fleiri afsagnir óumflýjanlegar?
Staða Scháubles sem flokksfor-
manns hefur veikzt við að honum
skyldi ekki takast að fá Kohl til að
gera sitt til að hjálpa til við að binda
enda á hneykslismálin. Hefur þetta
orðið til þess að Schauble hefur virzt
þurfa að láta í minni pokann í eins
konar valdatogstreitu við fyrirrenn-
ara sinn.
:
mitten im Leben,
’WL
K
Reuters
Wolfgang Schauble, formaður CDU, kemur út af flokksstjórnarfundin-
um í gær. Angela Merkel, framkvæmdastjóri flokksins, fylgir á eftir.
Fyrir fundinn í gær höfðu nokkrir
frammámenn í CDU látið þau orð
falla að afsagnir í æðstu röðum
flokksins væra óumflýjanlegar, en á
mánudag sagði Manfred Kanther,
sem var innanríkisráðherra í stjórn-
artíð Kohls, af sér þingmennsku.
Christian Wulff, héraðsleiðtogi CDU
í Neðra-Saxlandi, hvatti til þess áður
en flokksstjórnarfundurinn hófst í
gær, að lagt yrði að þeim flokks-
mönnum að víkja sæti, sem flæktir
væra í fjármálahneykslið. Scháuble
mun hafa boðist til afsagnar á fundin-
um, en því boði var hafnað. Ekki þyk-
ir blasa við hver gæti tekið við af hon-
um undir þessum kringumstæðum.
Kommúnistinn Gennadí Seleznjov endurkjörinn forseti dúmunnar
Pútín fullyrðir að einræði sé
útilokað í Rússlandi nútímans
Moskvu. Reuters, AP.
VLADIMÍR Pútín, forsætisráð-
herra og settur forseti Rússlands,
lýsti því yfir í gær að einræði yrði
aldrei ofan á í Rússlandi nútímans og
hvatti til uppbyggilegs samstarfs
nýkjörins þings og framkvæmda-
valdsins, ekki sízt í því skyni að koma
nauðsynlegum efnahagsumbótum í
framkvæmd.
í Tsjetsjníu sagði Itar-Tass-
fréttastofan að hersveitir Rússa
hefðu brotið varnir uppreisnar-
manna í miðborg héraðshöfuðborg-
arinnar Grosní á bak aftur og hefðu
nú stærstan hluta hennar á valdi
sínu.
Neðri deild rússneska þingsins,
dúman, kom í gær saman í fyrsta
sinn frá kosningunum í desember.
Deilur um kjör nýs þingforseta ein-
kenndu þennan fyrsta starfsdag
hennar, en þeim lyktaði með endur-
kjöri kommúnistans Gennadís Sel-
Vladimír
Pútín
Gennadí
Seleziyov
eznjovs í embættið, eftir að þing-
flokkur kommúnista náði samkomu-
lagi við miðjumenn sem styðja
valdhafa í Kreml um stuðning við
hann. Yfir 100 þingmenn úr þremur
þingflokkum gengu úr húsi áður en
atkvæðagreiðslan fór fram, í mót-
mælaskyni við samkomulagið. Sel-
eznjov var svo kjörinn með 285 at-
kvæðum gegn tveimur. Sjö sátu hjá.
Áður en þingforsetakjörið fór
fram ávarpaði Pútín dúmuna. Hvatti
hann þingheim til að hætta að beita
sér gegn framkvæmdavaldinu og
leggjast þess í stað á eitt með ríkis-
stjórninni um að leysa vandamál
landsins.
Sló Pútín með ávarpinu nýjan tón í
samskiptum við þingið, í samanburði
við það sem tíðkaðist í forsetatíð
Borís Jeltsíns. En ávarpið er einnig
ótvírætt innlegg í kosningabarátt-
una fyrir forsetakosningarnar sem
fara fram seint í marz og Pútín þykir
langlíklegastur til að bera sigur úr
býtum í. Sumir andstæðingar Pút-
íns, sem um skeið var yfirmaður
rússnesku leyniþjónustunnar, gruna
hann um að hafa tilhneigingu til ein-
ræðistilburða.
„Þá sem tala um mögulegt einræði
dreymir sjálfa um það,“ sagði Pútín
eftir ávarp sitt. „Þessi draumur
þeirra er útilokaður í Rússlandi nú-
tímans.“
Segja Grosní á valdi Rússa
„innan fárra daga“
Itar-Tass hafði eftir höfuðstöðvum
rússneska hersins í Tsjetsjníu að
hersveitir hefðu náð alla leið inn í
miðborg Grosní í gær, eftir mikla
stórskota- og loftárásahríð í fyrri-
nótt. Vladimír Rúshaíló innanríkis-
ráðherra sagði það spurningu um ör-
fáa daga hvenær mótspyrnu upp-
reisnarmanna í borginni þryti.
Varnarmálaráðherra Kína, í heim-
sókn í Moskvu, lýsti fullum stuðningi
við aðgerðir Rússa í Tsjetsjníu. En
gagnrýni á hernaðinn þar kom úr
óvæntri átt í gær; samtök rússn-
eskra hermannamæðra sökuðu yfir-
völd um að brjóta gegn viðteknum
reglum um stríðsrekstur og hvöttu
Pútín til að leita pólitískrar lausnar.
Frétta-
þula fram-
tíðarinnar
London. Reuters.
NETNOTENDUR munu síðar
á árinu geta fylgst með fréttum
dagsins með aðstoð tölvuhann-
aðrar fréttaþulu.
Þulunni hef-
ur verið gefið
nafnið Ana-
nova og er
andlit hennar
samsett úr
andlitum Fína
kryddsins eða
Posh Spice,
áströlsku
söngkonunnar Kylie Minogue
og bresku sjónvarpskonunnar
Carol Vorderman. Hægt verð-
ur að hlýða á fréttir í flutningi
Ananovu og eins má óska eftir
sérstakri umfjöllun um íþróttir,
ferðalög, veðrið og stöðu verð-
bréfamarkaða.
„Ananova mun breyta frétta-
flutningi,11 var haft eftir einum
starfsmanni fyrirtækisins sem
þróar sýndarþuluna. Henni er
ætlað að vera 28 ára einhleyp
fegurðardís, sem stundai’ fjör-
ugt félagslíf auk þess að vera
aðdáandi hljómsveitarinnai-
Oasis og Simpson-teikni-
myndafjölskyldunnar. Hönnuð-
ir Ananovu telja að hún muni
eignast fjölda aðdáenda, sér-
staklega á meðal karlmanna.
„Ananova“
MORGUNBLAÐIÐ19. JANUAR 2000
690900 090000