Morgunblaðið - 19.01.2000, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2000 25
ERLENT
Einvíg'i milli þéttbýlis
og landsbyggðar
Forsetaslagurinn milli Esko Ahos, fyrr-
verandi forsætisráðherra, og Törju Halon-
en utanríkisráðherra getur orðið að tákn-
______rænni „borgarastyrjöld“ milli_____
landsbyggðar og þéttbýlis, skrifar Lars
Lundsten, fréttaritari Morgunblaðsins í
Finnlandi. Halonen þarf að ná miklu fylgi
meðal hægri kjósenda í Suður-Finnlandi
en Aho reynir að höfða til þeirra, sem vilja
koma í veg fyrir, að þriðji jafnaðarmaður-
inn verði kjörinn forseti.
AP
Tarja Halonen, frambjóðandi jafnaðarmanna í forsetakosningunum í
Finnlandi, horfir á Esko Aho, leiðtoga Miðflokksins, þegar úrslit fyrri
umferðar kosninganna á sunnudag voru tilkynnt.
Önnur umferð forsetakosninganna í
Finnlandi verður líklega nokkurs
konar einvígi þéttbýlis og lands-
byggðar eða fúlltrúa þeirra, Törju
Halonens, forsetaefnis jafnaðar-
manna, og Esko Ahos, forsetaefnis
Miðflokksins.
Miðflokkur Ahos hefur barist fyr-
ir hagsmunum sveitanna og dreif-
býlisins allt frá byrjun síðustu aldar
og lengi gat Bændabandalagið, eins
og flokkurinn hét áður, reiknað með
lykilhlutverki í stjórnmálunum. Vai'
þetta einkum áberandi í forsetatíð
Urhos Kekkonens á árunum 1956 til
1981.
Síðustu tveir forsetar hafa verið
úr flokki jafnaðarmanna, þ.e. þeir
Mauno Koivisto (1982-1994) og
Martti Ahtisaari (1994-2000). Þótti
það tíðindum sæta en nú virðist
Tai'ja Halonen geta orðið þriðji for-
setinn úr þeim flokki.
Það er ekki aðeins flokkspólitík
sem sker úr um fylgi þeirra Ahos og
Halonens. Sumir telja að kosninga-
baráttan geti orðið táknræn
„borgarastyrjöld“ milli suðurs og
norðurs en það vekur upp slæmar
minningar meðal margra Finna því
að fyrri hluta ársins 1918 geisaði
blóðug borgarastyrjöld einmitt á
sömu víglínunni. Frambjóðendumir
tveir skýrðu frá því strax á sunnu-
dagskvöldið að kosningabaráttan
yrði málefnaleg eins og hún hefur
verið hingað til en segja má, að fátt
eða ekkert hafi skyggt á samskipti
og kappræður frambjóðenda frám
að þessu.
Esko Aho hefur lagt áherslu á
mikilvægi fjölskyldunnai' og krist-
innar trúar og fylgi hans er mikið og
langmest í norðurhluta landsins
enda á fjölskyldan heima í Hels-
ingjabotni.
Heimilið, trúin og ættjörðin eru
kjörorð Ahos en svo vill til að þessi
orð voru áður notuð til að auðkenna
stefnu hægrimanna. Hann mun líka
keppa að því að ná til hægrisinnaðs
fólks í Suður-Finnlandi en fylgi hans
í Helsinki var ekki nema rúmlega
17 prósent í fyrri umferðinni.
Halonen - mannréttindamál
og réttlæti
Tarja Halonen reynir að höfða til
þeirra, einkum kvennanna, sem
kusu Heidi Hautala (Græningjar),
Riitu Uosukainen (Hægrifl.) og El-
isabeth Rehn (Sænska þjóðarfl.) í
fyrri umferðinni, og hún leggur
áherslu á að stefna sín í mannrétt-
indamálum og utanríkismálum sé
mjög lík þeirri sem Rehn og Hautala
fylgdu.
Uosukainen hefur hins vegar sagt
ýmislegt um flóttamenn sem Halon-
en mun seint skrifa upp á. Það er því
ekki ólíklegt, að þeir sem kusu Uos-
ukainen muni fremur kjósa Aho.
Næstu vikur verður Halonen lík-
lega að reyna að höfða enn betur en
áður til kvenna í þéttbýlinu og einn-
ig að auka fylgi sitt á landsbyggð-
inni. Aho verður hins vegar að safna
saman öllum þeim lgósendum, sem
vilja koma í veg fyrir, að þriðji jafn-
aðarmaðurinn verði kosinn forseti.
Ekki er víst að það dugi til því að
hægrimenn, sem eru í stjóm með
jafnaðarmönnum, hafa oft verið
heldur tregir tO samstarfs við mið-
flokksmenn.
Skítkast að gömlum sið?
A kosningavöku ríkisfjölmiðlanna
vom þau Aho og Halonen fljót að
lýsa því yfir að ekki yrði verið með
neitt skítkast þær þrjár vikm-, sem
eftir lifa fram að síðari umferðinni.
Það var þó algengt hér áður fyrr,
ekki síst í kosningunum 1956 þegar
síðast vai' kosið milli jafnaðarmanns
og miðflokksmanns. Þá sigraði
Urho Kekkonen með einu atkvæði á
kjörfundi. I þá daga vora ekki bein-
ar kosningar heldur kusu 300 þjóð-
kjömir menn forseta í þremur um-
ferðum.
Fréttaskýrendur telja þó, að síð-
ari umferðin verði ekki jafn prúð-
mannleg og sú fyrri, og einkum ef
skoðanakannanir sýni að mjótt verði
á mununum. Miðflokkurinn og Jafn-
aðarmannaflokkurinn ráða yfir virk-
ustu flokksvélunum og því er búist
við mjög harðri rimmu næstu þrjár
vikurnar.
F(u$fre (si
1 Á ÍSLANDI!
Salan er hafin!
Flugfrelsi er bylting
10 áfangastaðir í Evrópu
Engin lágmarksdvöl
Engin hámarksdvöl
Engar kvaðir um hvaðan þú flýgur heim
Ótrúlegt verð
Þú getur bókað þig í Flugfrelsi og fengið frekari upplýsingar hjá Netferðum á www.visir.is, í
síma 569 1010 eða hjá þjónustufulltrúum okkar. Næstu fjórar vikurnar fá nokkrir heppnir
ferðalangar sem bóka sig á Netinu miðann sinn endurgreiddan!
Verð frá:
7.400 kr. til eða frá íslandi
I
- auk flugvallarskatts sem er breytilegur eftir brottfararstað
vísir.is net^pferðir
Samvinnuferðir
Landsýn
Á veröi fyrir þig!