Morgunblaðið - 19.01.2000, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 19.01.2000, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2000 27 Stuðningur Bandaríkjanna við Kólumbíu, Perú og Bólivíu Sérþjálfaður her gegn eitur ly fj abar ónum Eiturlyfjaframleiðslan í Kólumbíu hefur stðrvaxið vegna bandalags skæruliða við eiturlyfjasalana Washington, Bogota. AP, AFP. BILL Clinton, forseti Bandaríkj- anna, tilkynnti í síðustu viku að Bandaríkjastjórn ætlaði að veita um 115 milljörðum ísl. kr. til baráttunn- ar gegn eiturlyfjum í þremur ríkjum í Suður-Ameríku, Kólumbíu, Perú og Bólivíu. Fer bróðurparturinn af þessu fé til Kólumbíu eða rúmlega 96 milijarðar kr. Stefnt er að því að þar verði ailt að 3.000 hermenn og 500 lögreglumenn þjálfaðir sérstaklega til að fást við eiturlyfjahringana í iandinu. Madeleine Albright, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, kom til Bog- ota, höfuðborgar Kólumbíu, sl. föstu- dag og átti þá og um helgina viðræður við forseta landsins, Andr- es Pastrana, um aðstoðina. Verður hún notuð að nokkru leyti til að greiða fyrir efnahagslegri þróun í landinu en stærstur hlutinn fer til baráttunnar gegn eiturlyfjahringun- um. í ræðu, sem Albright flutti í kvöldverðarboði, sagði hún að það væri unnt að vinna sigur í þessari baráttu eins og hefði sýnt sig í nágr- annaríkinu Perú. Pastrana kvaðst vera ánægður með aðstoð Bandaríkjanna, en hann hafði hins vegar farið fram á 252 milljarða ísl. kr. á þremur árum- .Pastrana og ríkisstjóm hans hyggj- ast verja allt að 540 milljörðum kr. til þess að kveða niður óöldina í landinu. 80.000 tonn af kókaíni 1998 Talið er að kókaínframleiðslan í Kólumbíu hafi aukist um allt að 140% frá 1989 til 1998 þegar hún var um 80.000 tonn. Fyrir áratug var engin ópíumframleiðsla í landinu en nú vex hún hröðum skrefum og var 61 tonn 1998. Baráttan gegn eitur- lyfjahringunum og marxískum skæruliðum í landinu hefur staðið í 35 ár og kostað að minnsta kosti 30.000 manns lífið. Ein meginástæð- an fyrir aukinni eiturlyfjafram- leiðslu í Kólumbíu er sú, að eitur- lyfjamafían og skæruliðarnir hafa tekið höndum saman. Áætlun Bandaríkjastjórnar um aðstoð við fyrrnefnd ríki, Kólumbíu, Perú og Bólivíu, á eftir að fá sam- þykki þingsins en búist er við að það gangi greiðlega. Nýtur hún raunar meiri stuðnings meðal repúblikana en demókrata, flokksbræðra Clin- tons. Framfleyta sér með glæpum Stuðningur Bandaríkjastjómar við ýmsar ríkisstjórnir i Mið- og Suð- ur-Ameríku á árum áður, einkum á Reagan-árunum á níunda áratugn- um, mæltist illa fyrir meðal banda- rísks almennings enda gerðust þær sekar um margvísleg grimmdarverk gagnvart skæruliðum og óbreyttum borgurum. Að þessu sinni er hins vegar lítil andstaða við stuðninginn þar sem ekki er litið á skæruliðana sem neina hugsjónamenn, heldur sem samverkamenn glæpamanna og eiturlyfj abaróna. Tvær helstu skæruliðahreyfing- arnar í Kólumbíu, Byltingarherinn, FARC, og Þjóðfrelsisherinn, ELN, nutu áður stuðnings kommúnista- ríkjanna, en eftir að kalda stríðinu lauk hafa þær framfleytt sér með hreinni glæpastarfsemi, fjárkúgun og mannránum auk þess að standa vörð um kókaíniðnaðinn gegn þókn- un. Kínverjar vígja „lifandi Búdda“ AP Kínverskur embættismaður heilsar Soinam Puncog, tveggja ára göml- um dreng, eftir að hann var vígður sem hinn „lifandi Búdda“. Aðeins leppur í augum Tíbeta Peking. AFP. Bendlaður við morð á ferða- mönnum Phnom Penh. AP. CHHOUK Rin, einn af íyrrver- andi foringjum í skæruliða- hreyfingu Rauðra khmera í Kambódíu, var handtekinn fyrir skömmu vegna morðs á þremur vestrænum ferðamönnum árið 1994. Það sama ár gekk hann til liðs við stjómarherinn í landinu. Hun Sen, forsætisráðherra Kambódíu, skýrði sendiheirum Frakklands, Bretlands og Ástr- alíu frá því sl. mánudag að Chhouk Rin hefði verið hand- tekinn á heimili sínu í suður- hluta landsins og væri nú í fang- elsi í höfuðborginni, Phnom Penh. Skæruliðai- Rauðra khmera rændu ferðamönnunum, Frakka, Breta og Ástralíu- manni, 26. júlí 1994 og voru þeir myrtir er stjómvöld urðu ekki við kröfum skæmliðanna um lausnargjald. Chhouk Rin var ákærður fyrir aðild að morðun- um í júní á síðasta ári en þá hafði Nuon Paet, fyrrverandi yfirmaður hans meðal Rauðra khmera, bendlað hann við þau. Rin hefur raunar áður viður- kennt að hafa skipulagt mann- ránið en það var Paet sem ákvað að þeir skyldu drepnir. Myrtu 1,7 railljónir manna Viðræðum kambódískra stjórnvalda og fulltrúa Samein- uðu þjóðanna um réttarhöld yf- ir leiðtogum Rauðu khmeranna er um það bil að ljúka en talið er að þeir hafi borið ábyrgð á dauða 1,7 milljóna manna að minnsta kosti seint á áttunda áratugnum. Margir óttast þó að fáir verði dregnir fyrir dóm vegna þeirra samninga sem skæmliðaleiðtogamir gerðu við Hun Sen forsætisráðherra er þeir gengu til liðs við stjórnvöld. Era sumir þeirra nú háttsettir foringjar í hernum. KÍNVERSKA stjórnin tilkynnti í fyrradag að hún hefði vígt tveggja ára gamlan dreng sem hinn „lifandi Búdda“ og æðsta trúarleiðtoga Tíb- eta. Dalai Lama, hinn útlægi leið- togi Tíbeta, viðurkennir ekki þessa ákvörðun Kínverja. Talsmaður kínversku stjórnar- innar sagði í gær að Soinam Puncog, tveggja ára gamall dreng- ur, hefði verið vígður sem æðsti trúarleiðtogi Tíbeta. Er litið á þetta sem tilraun Kínverja til að bjarga FORSETI Indónesíu, Abdumahman Wahid, vísaði á mánudag á bug orð- rómi um að herinn í landinu væri að undirbúa valdarán en bætti við að hann myndi grípa til „harkalegra ráð- stafana" gegn slíkri ögmn. Richard Holbrooke, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóð- unum, varaði fyrir helgi indónesíska málunum eftir að einn af æðstu leiðtogum tíbetskra búddatrúar- manna, Karmapa Lama, flúði til Indlands. Hugðust Klnverjar gera hann að trúarleiðtoga og lepp sín- um í Tíbet. Tíbetar óttast að Kínverjar hygg- ist síðar nota drenginn, sem þeir hafa valið, til að velja nýjan Dalai Lama að látnum þeim sem nú lifir. Hann býr nú í útlegð á Indlandi og líta landar hans á hann sem guðleg- herinn við öllum valdaránsáformum. Nefnd á vegum SÞ hefur mælt með því að alþjóðlegur dómstóll kanni meintan hlut yfirstjómar hersins í stríðsglæpum á Austur-Tímor. Utan- ríkisráðherra Indónesíu hyggst ræða við fulltrúa öryggisráðsins til að fá þá til að sætta sig við að indónesískir dómstólar kanni mál herforingjanna. an. Orðrómur um valdarán Jakarta. AP, AFP. Vertu gób vib búsbóndann - einn dag á áríl Bóndadagurinn er á föstudaginn. Þú finnur réttu gjöfina i Kringlunni. KriKq \CsJ\ P fl R S E Ml/fl J H R T fl fl S L Œ R UPPIÝÍIMBRSÍMI 5 0 B 7 7 B 8 5KRIFSTDFUSÍMI 5BB 32DD
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.