Morgunblaðið - 19.01.2000, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 19.01.2000, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2000 53 BRÉF TIL BLAÐSINS FRÉTTIR Þriggja sekúndna reglan er.mjög góð til að meta bilið í næsta bfl. Telj- um 1001, 1002, 1003 (þá eru 3 sekúndur liðnar) og við eigum að vera komin þar sem bfllinn á undan var þegar við byrjuðum að telja. Hvað er hægt að gera til að fækka aftanákeyrslum? Fyrirlestur um fornar verstöðvar Frá ungum ökumönnum í ökuskóla Sjóvár-Almennra: VIÐ erum tveir hópar sem sóttu umferðarskóla Sjóvár-AImennra fyrir unga ökumenn í október. Við veltum fyrir okkur mikilvægum þætti er snertir öryggi okkar í um- ferðinni og einu mesta vandamáli í umferðinni í þéttbýli. Aftanákeyrsl- um. í umferðinni í Reykjavík og á Ak- ureyri eru aftanákeyrlsm- eitt stærsta vandamálið. Gera má ráð fyrir að þriðja hvert óhapp á þessum stöðum sé aftanákeyrsla. Ef teknar eru einstaka götur, þá er Mikla- brautin í Reykjavík með flest tjónin yfir landið og um 64% óhappanna eru aftanákeyrslur. Því viljum við gjarna benda á nokkra puntka sem minnka líkur á að þið akið aftan á bílinn fyrir framan. Hafíð nóg bil milli bíla og miðið ökuhraða alltaf við aðstæður hverju sinni og sýnið sérstaka varúð í hálku og bleytu. Þá er best að tipla rólega á bemsunni. Með því að hafa fulla athygli við aksturinn og fylgjast betur með bílunum fyrir framan okkur, líka þeim sem eru framan við bílinn á undan, sjáum við fyrr þegar umferðin á undan hægir á sér. Við teljum mikilvægt að vera ekki að gera neitt annað en að keyra, ekki fikta í útvarpinu eða tala í síma nema nota handfrjálsan búnað. Ekki borða eða reykja undir stýri, það truflar einbeitinguna. Sumar aftanákeyrslur verða við akreinaskipti. Umferðin á hinni ak- reininni getur verið hægari eða er að stöðvast. Notum því stefnuljósin þegar við skiptum um akrein eða beygjum. Við teljum að umferðar- hraðinn sé of breytilegur og leggj- um til að hámarkshraðinn sé lækk- aður og lágmarkshraðinn hækk- aður. Ef sjónin er farin að dofna ættum við að láta mæla augun. Með betri sjón sjáum við betur það sem gerist framan við bílinn. Að lokum má gera bílana örugg- ari með því að hafa auka bremsuljós í afturglugga og ABS-bremsur. Þær hafa þann kost að þótt nauðhemlað sé má samt stýra bílnum fram hjá hindrun. Með kveðju frá ungum ökumönn- um í ökuskóla Sjóvár-Almennra í Reykjavík í október. EINAR GUÐMUNDSSON forvarnafulltrúi Sjóvár-Almennra. RAGNAR Edvardsson fomleifafræð- ingur heldur fyrirlestur í boði Rann- sóknarseturs í sjávarútvegssögu og Sjóminjasafns íslands fimmtudaginn 20. janúar um fomai- verstöðvar á Vestfjörðum. Fyrirlesturinn verður fluttur í Sjóminjasafni íslands, Vest- urgötu 8 í Hafnarfirði, og hefst kl. 20.30. Aðgangur er ókeypis og allh- velkomnir. „Sumarið 1999 hófst fyrsti áfangi fomleifarannsókna á Vestfjörðum sem miðar að því að svara fjölmörg- um spumingum um fiskveiðar Islend- inga fyrr á öldum. Benda nýlegar at- huganir til þess að útgerð kunni að SAMFYLKINGIN hefur ákveðið að fara í vinnustaðaheimsóknir á Vesturlandi í þessari og næstu viku. Gert er ráð fyrir eftirfarandi dag- skrá, samkvæmt fréttatilkynningu frá Samfylkingunni: Miðvikudaginn 19. janúar, Akra- nes, vinnustaðaheimsóknir, fimmtudaginn 20. janúar, Snæfells- bær, vinnustaðaheimsóknir, fundir í Ólafsvík og á Hellissandi, föstudag- inn 21. janúar, Akranes og ná- grenni, vinnustaðaheimsóknir. Al- FYRSTI fyrirlestur Nýrrar dögunar á aldamótaári verður n.k. fimmtudag- skvöld kl. 20 í Safnaðarsal Háteigs- kirkju, gengið inn að norðanverðu. Þá mun sr. Solveig Lára Guð- mundsdóttir fjalla um efnið sorg og sorgarviðbrögð. Að loknu erindinu verða íyrirspurnir og almennar um- ræður. Fyrirlestrar Nýrrar dögunar eru öllum opnir. JARÐTÆKNIFÉLAG íslands og Jarðgangafélag Islands gangast fyrir fræðslufundi í húsi verkfræði- og raunvísindadeilda Háskóla ís- lands (VR-II), stofu 158 (gengið inn frá Hjarðarhaga) fimmtudaginn 20. janúar kl. 16.15 um ídælingu í berg og laus jarðlög. Fyrirlesari er Rolf Mattsson, framkvæmdastjóri De neef Scand- inavia AB. Dagskrá fundarins: Almennt um berg- og jarðídælingu, bergídæling með Combigrout. Fyrir og eftir hafa verið mun rneiri í upphafi byggð- ar en áður hefur verið talið og verslun með sjávarafurðir þar af leiðandi haf- ist íyrr, jafnvel á 12. og 13. öld. Fund- ist hefur umtalsvert magn fiskbeina í fornum bæjarstæðum og eykst hlut- fall þeirra stöðugt firá því á 13. öld. Sum þessara bæjarstæða eru langt frá sjó. Ragnar Edvardsson lauk M.A.- prófi í fomleifafræði í London og leggur nú stund á doktorsnám í fræði- grein sinni í New York. Hann hefur starfað sem fornleifafræðingur á veg- um Arbæjarsafns,“ segir í fréttatil- kynningu firá Sjóminjasafni íslands. mennar umræður verða við íbúa byggðanna eftir þvi sem tækifæri gefst. Mánudaginn 24. janúar, Grund- arfjörður, vinnustaðaheimsókn og fundur, þriðjudaginn 25. janúar, Borgarnes, vinnustaðaheimsóknir, fundur í Hyrnu kl. 17-19 og mið- vikudaginn 26. janúar, Akranes, vinnustaðafundir, fundur í Verka- lýðsfélagssalnum kl. 20.30. Fundarefni: Kjaramál, sjávarút- vegsmál, bæjarmál. Samtökin munu nú á vormisserinu efla starfsemi sína. Innan skamms munu þau opna skrifstofu að Lauga- vegi 7,3. hæð og starfsmaður verður ráðinn til að sinna frekari kynningar- starfsemi, fræðslu og tengslum við syrgjendur. Þá munu samtökin opna heimasíðu þar sem hægt verður að finna upplýsingar um starfsemina auk fræðslu og tengla við erlendar síður sama efnis. ídæling með sementsblöndu eða polyuretan (dæmi frá Raumaríkis- porten, Noregi), TITAN ídælingar- boltar (injekteringsstaal), notaðir sem jarð-/bergfestur (dragstag), jarðnaglar (jorspikar), forstyrking (spiling) og staurar í undirstöður (piles), ídæling í laus jarðlög með akrylati (dæmi frá Boston, Bandar.), ídæling í steinsteypu- mannvirki (dæmi frá Eyrarsunds- tengingunni, Kph.). Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku. Leiðrétt Rangt heimilisfang Rangt var farið með heimflisfang ( frétt hér í blaðinu síðastliðinn laug-^ ardag um Hárgreiðslustofuna Aþenu. Aþena er til húsa í Þang- bakka 10 í Mjóddinni í neðra Breið- holti. Beðist er velvirðingar á þess- um mistökum. Röng fyrirsögn Orð víxluðust í fyrirsögn á grein Helga G. Þórðarsonar, sem bfrtist í blaðinu sl. sunnudag. Fyrirsögnin, sem átti að vera tilvitnun í Davíðs- sálm 90,12, hefði átt að hljóða þann- ig: „Kenn oss að telja daga vora“. Þá var hluti setningar í greininni tvítek- inn. Beðist er velvfrðingar á mistök-" unum. Nafn á listaverki í umfjöllun um sýninguna Þetta vil ég sjá í Gerðubergi á baksíðu síð- ustu Lesbókar féll niður nafn á lista- verkinu sem Vigdís Finnbogadóttfr stóð við. Það heitir Freyja og er eftfr Hildi Hákonai’dóttur. Verkið er frá árinu 1989. Beðist er velvirðingar á þessu. Rangt föðurnafn í Mbl. sl. laugardag var farið rangt með föðurnafn annars eiganda hárgi-eiðslustofunnar Korner, Krist- jönu Jónu Þorláksdóttur en hún var sögð Bjarnadóttir. Einnig var’' Freyja Siguijónsdóttir sögð heita Fanney Freyja og er beðist velvirð- ingar á mistökunum. Nafnabrengl í formála minningargreina um Hermund Þorsteinsson í Morgun- blaðinu laugardaginn 15. janúar síð- astliðinn var Hermundur ranglega nefndur Hermann. Þá var rangt far- ið með nafn tengdadóttur hans Elín- ar Bjarnveigar Sveinsdóttur. Þá var ranglega farið með dánardag Þor-, steins, föður Hermundar. Þorsteinn lést 2.12. 1918. Hlutaðeigendur eru beðnir afsökunar á þessum mistök- um. Höfundarnafn féll niður Nafn annars höfunda minningar- greinar um Fanneyju Þorgerði Gestsdóttur i Morgunblaðinu laug- ardaginn 15. janúar féll niður. Höf- undar greinarinnar eru Helga Gai’ð- arsdóttir og Gerður Garðarsdóttir. Hlutaðeigendur eru beðnir velvirð- ingar á þessum mistökum. -------M-*--------- Sýningu lýkur SÝNINGU á verkum finnska mjmd- listarmannsins Ola Kolehmainen í Galleríi i8 lýkur sunnudaginn 23. janúar. i8 er opið fimmtudaga til sunnu- daga frá kl. 14-18. Vinnustaðafundir Samfylkingarinnar Fyrirlestur um sorg og sorgarviðbrögð Idæling í berg Utsalan í fullum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.