Morgunblaðið - 19.01.2000, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Félags-
bústaðir
rifta samn-
ingi við 29
leigjendur
AF þeim fimmtíu leigjendum
Félagsbústaða í Reykjavík,
sem fengu viðvörun vegna
skuldar húsaleigu, eru þrír
fluttir út úr íbúðum sínum að
eigin frumkvæði, átján hafa
samið um greiðslur en 29 hafa
ekkert aðhafst.
Að sögn Sigurðar Friðriks-
sonar, framkvæmdastjóra Fé-
lagsbústaða, er verið að stfga
fyrstu skrefin og er búið að
rifta leigusamningum við þá
leigjendur sem ekkert hafa
látið heyra frá sér. „í fram-
haldi munum við eiga fund
með Félagsþjónustunni, þar
sem farið verður yfir stöðu
málsins," sagði hann.
Sagði hann að riftun leigu-
samnings leiddi ekki til út-
burðar. Áður en til þess kæmi
þyrfti að koma til dómur.
„Auðvitað hlýtur fólk að
vera fjárhagslega illa statt
sem ekki greiðir húsaleigu,“
sagði Sigurður. „Það hefur
frestað að greiða leigu í langan
tíma og þá eru þetta orðnar
nokkuð stórar upphæðir. Van-
skil í einn eða tvo mánuði
nægja oft tekjulágu fólki.
Þetta fer allt eftir ráðstöfun-
artekjum fólks og hvernig það
forgangsraðar gjöldum sín-
um.“
Sagði hann að meðal þeirra
sem skulduðu leigu væri fólk
með börn á framfæri og að
reynt yrði að gera allt sem
hægt væri til að bjarga mál-
um. I mörgum tilvikum væri
um að ræða almennt sinnu-
leysi. „Fólk sækir til dæmis
ekki um húsaleigubætur þó
svo það eigi rétt á þeim,“ sagði
hann. „Það er oft sinnuleysi
sem ræður og á sér félagsleg-
ar rætur í mörgum tilvikum."
Sagði hann að í örfáum til-
vikum væri um að ræða fólk
sem ekki fengi húsaleigubæt-
ur vegna hárra tekna.
Margháttuð hátíðahöld verða
í Kjalarnesprófastsdæmi
MARGHATTUÐ hátíðahöld verða í
Kjalarnesprófastsdæmi þegar
minnst verður þúsund ára afmælis
kristnitökunnar. Dr. Gunnar Krist-
jánsson prófastur segh' að bæði verði
skipulagðar sérstakar hátíðir, stórar
sem smáar, og ráðist í ákveðin sam-
eiginlegverkefni.
„Við ákváðum að skipta hátíðahöld-
unum með þessu í þrennt og verðum í
fyrsta lagi með fimm stórhátíðir víðs
vegar í prófastsdæminu, í öðru lagi
nokkur sameiginleg verkefni á vegum
prófastsdæmisins og í þriðja lagi
verða hátíðir einstakra safnaða," seg-
ir Gunnar þegar hann er beðinn að
rekja helstu liðina. í prófastsdæminu
eru 17 sóknir og íbúar alls um 55 þús-
und. Hefur prófastsdæminu verið
skipt í fimm svæði og verður ein stór-
hátíð á hverju þeirra. Sú fyrsta verð-
ur í Garðabæ 30. janúar, næsta í Mos-
fellsbæ 5. mars, síðan í Reykjanesbæ
2. apríl, þá í Hafnarfirði á sjómanna-
daginn og loks í Vestmannaeyjum 30.
júlí. „Þessar hátíðir hafa allar verið
undirbúnar í samvinnu viðkomandi
presta og sóknarnefnda við sveitar-
félögin sem taka virkan þátt í þeim
bæði hvað varðar skipulagningu og
kostnað og finnst mér hafa tekist sér-
lega vel að koma þessu öllu í kring,"
segir prófastur en héraðsnefnd pró-
fastsdæmisins hefur haft yfirstjórn
verkefnisins með höndum.
Sameiginlegu verkefnin, sem nú er
unnið að, eru útgáfa sjóferðabænar,
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þau hafa yfírsýn yfir verkefni og hátíðir Kjalamesprófastsdæmis vegna
kristnitökuafmælisins. Frá vinstri: Sr. Gunnar Kristjánsson prófastur,
sr. Magnús Bjöm Björnsson og sr. Kristin Þ. Tómasdóttir.
útgáfa fræðslubæklings sem dreift
hefur verið til grunnskólanema í 5. til
7. bekk í prófastsdæminu og útgáfa á
sögu Kjalamesprófastsdæmis sem
stefnt er að fljótlega.
Sjóferðabæn og saga
prófastsdæmisins
„Við höfum látið útbúa sjóferða-
bæn séra Odds V. Gíslasonar, sem
var prestur á Stað í Grindavík á
seinni hluta 19. aldar, á málmplötu
sem við ætlum að gefa í öll skip og
báta á svæðinu sem eru kringum 500,
þetta er helsta útgerðarprófasts-
dæmi landsins ef svo má að orði kom-
ast.“ Fyrstu sjóferðabænimar verða
afhentar við guðsþjónustu í Grinda-
vík sunnudaginn 23. janúar og síðan
um allt prófastsdæmið í framhaldi af
því. „Prestar á hveijum stað munu
finna út hvemig þeir hyggjast af-
henda skipstjóram eða útgerðum sjó-
ferðabænina en hugmynd okkar er sú
að hún verði hengd upp á áberandi
stað í bátunum þannig að menn hafi
hana daglega fyrir augum. Við kom-
umst í samband við fjölmarga sjó-
menn og fjölskyldur þeirra með þessu
tiltæki og ég vona að þetta ýti undir
bænir sjómanna sem ég þykist vita að
oft séu beðnar í hljóði.“
í ritinu „í sátt og samlyndi", sem
grunnskólanemar í 5. til 7. bekk í
prófastsdæminu hafa nú fengið, er
rakin saga kristnitökunnar á Þing-
völlum og birtir ýmsir þekktir biblíu-
textar og segir Gunnar að einkum sé
lögð áhersla á þrjú atriði; sáttargjörð-
ina, samfélagið og sköpunina. Segir
hann fleiri hafa óskað eftir ritinu og
er nú verið að prenta viðbótampplag
en milli fjögur og fimm þúsund börn á
þessum aldri eru í prófastsdæminu.
Þriðja sérverkefnið er síðan útgáfa á
sögu prófastsdæmisins sem Jón Þ.
Þór sagnfræðingur hefur tekið sam-
an. „Hann rekur sögu prófastsdæm-
isins aftur í miðaldir og er hér að
ýmsu leyti um frumrannsóknir Jóns
að ræða. Þarna hafa verið margir
merkir prestar eins og Hallgrímur
Pétursson sem sat um tíma á Hvals-
nesi, Matthías Joehumsson í Móum á
Kjalamesi, Jón Vídalín í Görðum á
Álftanesi og fleiri og ég á von á því að
þetta verði hið fróðlegasta rit.“
Gunnar segir að hver og einn söfn-
uður muni efna til hátíðar og kveðst
hann reikna með að þær verði flestar
haldnar í sumar. Frekari upplýsingar
um verkefnin er að finna á heimasíðu
prófastsdæmisins, kjalamespr.is.
YR vill semja um markaðslaun á þriggja ára samnmgstíma
Rætt um að
krefjast 4-5%
launahækkana
KJARAÞING Verzlunarmannafé-
lags Reykjavíkur samþykkti kröfu-
gerð félagsins í komandi kjara-
samningum á kjaraþingi, sem
haldið var sl. laugardag. VR gerir
m.a. kröfu um að tekið verði upp
markaðslaunakerfi í áföngum á
gildistíma samningsins en í upphafi
verði samið um prósentuhækkun
launa sem taki gildi við undirskrift.
Skv. upplýsingum blaðsins er gert
ráð fyrir að farið verði fram á 4-5%
launahækkanir þótt ekki hafi verið
útfært nákvæmlega hvemig ná eigi
því marki í viðræðum við viðsemj-
endur.
f kröfugerð VR er gert ráð fyrir
að á öðm ári kjarasamningsins taki
markaðslaun við af umsömdum
launatöxtum VR og að gildistíma
loknum meti samningsaðilar
árangur hins nýja markaðslauna-
kerfis.
Þá er þess krafist að lágmarks-
laun verði hækkuð sérstaklega og
er markið sett á 90.000 til 100.000
kr. lágmarkslaun á mánuði.
„Þung áhersla verður lögð á að
viðsemjendur VR samþykki bind-
andi ákvæði um að gerðir verði sér-
stakir vinnustaða- eða fyrirtækja-
samningar við þau fyrirtæki sem
enn greiða félagsmönnum VR lágm-
arkstaxtalaun, svo að ná megi fram
viðunandi hækkun á lágmarks-
launum," segir í kröfugerðinni.
Gunnar Páll Pálsson, forstöðu-
maður hagdeildar VR, kveðst gera
ráð fyrir að kjaraviðræður félagsins
og vinnuveitenda hefjist af alvöm í
þessari viku eða næstu.
Samið verði um 36 stunda
vinnuviku
í kröfugerð VR er einnig farið
fram á styttingu vinnuvikunnar og
að vinnuvika félagsmanna taki mið
af virkum vinnutíma, með því að
færa 38/40 stunda vinnuviku niður í
36 stundir á viku. „í reynd er 38/40
stunda vinnuvikan, að frádregnum
kaffihléum, á bilinu 36:45 til 37:05
Morgunblaðið/Jim Smart
Fjölmennt var á kjaraþingi Verzlunarmannafélags Reykjavíkur sem
haldið var á Grand Hóteli sl. laugardag.
stundir á viku. Þessi breyting verði
lögð til grundvallar ákvæða um
sveigjanleika vinnutímans. Með
sveigjanlegum vinnutíma er átt við
að hliðra megi til vinnutíma félags-
manna innan samningsbundins
ramma gegn því að vinnuvika
þeirra styttist að meðaltali á gefnu
tímabili og að laun skerðist ekki,“
segir í kröfugerðinni.
Einnig er krafist lengri orlofs-
réttar, að vinnuveitendur greiði
0,25% af heildarlaunum félags-
manna í sérstakan fræðslusjóð, og
gerð er sérstök krafa um að til
komi 2% mótframlag vinnuveitenda
vegna greiðslna félagsmanna í sér-
eignasjóð.
Þá fer VR m.a. fram á að orlofs-
uppbót leggist við desemberappbót,
sem verði 40.000 krónur, og loks er
lagt til að gildistími nýs kjarasamn-
ings verði þrjú ár, enda sé samning-
ur til svo langs tíma í samræmi við
markmið um efnahagslegan stöðug-
leika.
Verslunarmenn úti á landi
með efasemdir um markað-
slaun
Að sögn Gunnars Páls hafa full-
trúar verslunarmannafélaga úti á
landsbyggðinni nokkrar efasemdir
um að markaðslaunakerfi, eins og
VR gerir kröfu um, sé framkvæm-
anlegt á minni stöðum úti á landi,
þar sem markaðurinn sé ekki eins
virkur og á höfuðborgarsvæðinu.
Mun skýrast á næstu dögum hvort
félögin úti á landi verða í samfloti
með VR í viðræðunum um þessar
kröfur.
Lóðsinn
dreg’ur
flutninga-
skip
til Eyja
LÓÐSINN í Vestmannaeyjum
var væntanlegur til Eyja í nótt
með norskt skip sem varð vél-
arvana suður af landinu um
helgina.
Hafnarstjórinn í Vestmanna-
eyjum fékk beiðni um að að-
stoða norska flutningaskipið
Cincobulk á sunnudagskvöld en
það var þá vélarvana suður af
Ingólfshöfða.
Vonskuveður fyrst í stað
Lóðsbáturinn var sendur af
stað og tók norska skipið í tog
um klukkan 13 í fyrradag en
það var þá 140-150 mílur frá
Vestmannaeyjum. Leiðinlegt
veður var á þessum slóðum og
gekk drátturinn illa fram á
þriðjudagsmorgun en þokka-
lega eftir það.
Skipið var á leiðinni til
Straumsvíkur með rafskaut
fyrir álverið. Það er 2100 lestir
að stærð.