Morgunblaðið - 19.01.2000, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ómar
Opnun Þj ó ðminj asafnsins dregst
BÚIÐ er að tæma húsnæði Þjóðminjasafnsins og
rífa mikið innan úr því svo eftir standa aðeins
veggir og þak. Unnið er að byggingu nýs inn-
gangs sunnanmegin við Þjóðminjasafnið.
Upphaflega var ætlunin að opna safnið eftir
endurbætur hinn 17. júní í ár en núverandi áætl-
anir gera ráð fyrir opnun þess ári síðar. Langan
tíma tók að undirbúa geymslur fyrir muni safns-
ins. Þór Magnússon þjóðminjavörður segir að nú
sé verið að endurskoða verkáætlanir og fjár-
mögnun í ljósi fjárveitinga til verksins og telur
hann að mikla bjartsýni þurfi til að ætla að það
takist að opna safnið á næsta ári. Líklega sé
skynsamlegra að miða við opnun þess ári síðar
eða árið 2002.
Héraðslæknirinn
í Reykjavík
Flensan
hefur
náð
hámarki
FLENSAN sem gengið hefur í
Reykjavík undanfarnar vikur
hefur náð hámarki að mati Lúð-
víks Olafssonar héraðslæknis
en auk flensu hefur heyrst um
fjölmarga sem hafa þjáðst af
veirusýkingu í maga.
Lúðvík sagði að heldur hefði
di’egið úr flensunni undanfarna
daga samkvæmt þeim upplýs-
ingum sem hann hefði frá
bráðamóttöku Landspítalans
og frá Læknavaktinni. Sagði
hann töluvert álag hafa verið á
bráðamóttökunni en ekki væri
eingöngu ílensunni um að
kenna. Nefndi hann sem dæmi
að desember sl. hefði verið
annasamasti mánuðurinn frá
því deildin var opnuð. „Það má
reyndar ekki kenna flensunni
alfarið um það,“ sagði hann.
„Hún fór ekki að hafa áhrif fyrr
en í lok mánaðarins."
Lúðvík kvaðst kannast við að
auk flensunnar hafi magapest
herjað á borgarbúa síðustu sex
vikur eða svo. Þetta væri að öll-
um líkindum veirusýking en
erfitt væri að slá nokkru föstu
um það þar sem fá sýni hefðu
borist til rannsóknar.
Hlæja saman einu
sinni í mánuði
STUNDUM er sagt að hláturinn
Iengi lífið og víst er að Hlátur-
klúbbur Kópavogs hefur það á
stefnuskrá sinni að hlæja dátt
og innilega og viðhalda þannig
heilsu félagsmanna sinna.
Sigurbjörg Björgvinsdóttir,
forstöðukona Gjábakka, sem er
önnur tveggja félagsmiðstöðva
eldri borgara í Kópavogi, segir
að hláturklúbburinn sé tæplega
ársgamall og til hans hafi verið
stofnað eftir fréttaflutning af
Dönum sem hittust þúsundum
saman og hlógu sér til heilsu-
bótar.
„Reyndar má segja að hug-
myndin að stofnun klúbbsins
hafi kviknað á kynningardegi
félagsheimilanna Gjábakka og
Gullsmára. Þá er opið hús í
báðum félagsheimilunum hér í
Kópavogi og eitthvað varð til
þess að salurinn ætlaði hrein-
lega að rifna af hlátri. Ég sagði
fólkinu að hlæja bara áfram,
því hláturinn lengdi víst Iífið og
upp frá því varð þessi klúbbur
til,“ útskýrir Sigurbjörg.
Hananú!, sem er félagsskap-
ur Kópavogsbúa eldri en 50 ára
og hefur það að markmiði að
búa félagsmenn undir eftir-
Iaunaaldurinn, hefur haft um-
sjón með menningarlífi eldri
borgara í bænum og félags-
menn tóku að sér umsjón með
hláturklúbbnum undir forystu
Ásdísar Skúladóttur. „Hópur-
inn hittist alltaf einu sinni í
mánuði og hlær hressilega sam-
an,“ segir Ásdís, en mest hafa
um 40 manns sótt samkomurn-
ar.
En er fólki alltaf hlátur í
hug? - „Það er nú mesta furða.
Fyrst í stað þurfti aðeins að
kynda upp með skemmtisögum,
eða örbröndurum, eins og við
nefnum þá, en nú er það ekki
lengur nauðsynlegt. Nú kemur
fólk bara og hlær. Og hlær og
hlær,“ segir Sigurbjörg graf-
alvarleg.
Hláturklúbburinn hefur feng-
ið lækni til að útskýra hollustu
þess að hlæja vel og innilega
endrum og sinnum og að sögn
Sigurbjargar hefur uppátækið
mælst afar vel fyrir. „Er þetta
ekki einmitt málið? Er það ekki
hláturinn sem lengir lífið?“
Tillaga um breytingar á aðalskipulagi Reykjavíkur
Mislæg gatnamót á
mótum Miklu- og
Kringlumýrarbrautar
Á FUNDI borgarstjórnar nk.
fimmtudag verður lögð fram tillaga
frá borgarfulltrúum Sjálfstæðis-
flokksins um að núgildandi aðal-
skipulagi 1996-2016 verði breytt
þannig að gert verði ráð fyrir mis-
lægum gatnamótum Miklubrautar
og Kringlumýrarbrautar. Megin-
tilgangur breytinganna er að greiða
fyrir umferð og bæta umferðar-
öryggi vegfarenda, segir í tillögunni.
I greinargerð með henni kemur
m.a. fram að gatnamótin séu ein þau
fjölförnustu í borginni. Umferðar-
álagið hafi aukist verulega undanfar-
in ár og haft í för með sér vaxandi
slysahættu og umferðartafir. Um-
ferðarþunginn og bið á gatnamótun-
um hafi jafnframt í för með sér að
umferð um íbúðahverfi aukist þegar
vegfarendur sjá sér hag í að stytta
sér leið þar í gegn. Afleiðingin sé
aukin slysahætta í hverfunum fyrir
börn á leið í skóla og aðra vegfarend-
ur.
Bent er á að í aðalskipulagi áranna
1986-2010 hafi verið gert ráð fyrir að
gatnamótin yrðu mislæg en við end-
urskoðun skipulagsins árið 1987 hafi
þeirri ákvörðun verið breytt og þess
í stað samþykkt að stýra umferðinni
LÖGREGLAN á Selfossi stöðvaði
um kvöldmatarleytið í gær ökumann
bifreiðar sem grunaður var um að
hafa ekið undir áhrifum áfengis eða
lyfja og sendi hann til sýnatöku á
heilsugæslustöð. Ökumaðurinn var
frjáls ferða sinna að lokinni af-
með umferðarljósum.
Ljóst sé að slík gatnamót anni
ekki umferð með sama hætti og mis-
læg gatnamót með þeim afleiðingum
að afkastagetan minnki. Minnt er á
að flest slys á Miklubraut verði við
gatnamót Kringlumýrarbrautar.
greiðslu lögreglunnar á málum hans
en lögreglan hélt bifreið hans eftir.
Tilkynning barst um ökumanninn
frá borgara, en ábendingar frá borg-
urum verða að sögn lögreglu oft til
þess að ölvaðir ökumenn eru stöðv-
aðir í umferðinni.
Stöðvaður eftir
tilkynningu frá borgara
Sérblöð í dag
4 ^teust
b g 0
<mskra
Verðlaunakrossgáta
► Þættir - íþróttir
► Kvikmyndir - Fólk
Hálfur mánuður
af dagskrá
frá miðvikudegi
til þriðjudags
Á MIÐVIKUDÖGUM
650 milljónir fyrir sigur á
EM í knattspyrnu / C1
Vala stökk 4,10m og vann
á móti í Malmö / C1