Morgunblaðið - 19.01.2000, Page 22

Morgunblaðið - 19.01.2000, Page 22
22 MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2000 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ íslenski hlutabréfasjóðurinn hf. Nafnávöxtun 29,4% á síðasta ári Airbus með forskot á Boeing REKSTUR íslenska hlutabréfa- sjóðsins hf. gekk vel á tímabilinu 1. maí til 31. október 1999, að því er fram kemur í tilkynningu sem bor- ist hefur Verðbréfaþingi Islands. Hagnaður samkvæmt rekstrar- reikningi nam 112,3 milljónum króna. Hlutafé félagsins var 1.155 milljónir króna í lok tímabilsins en eigið fé nam samtals 2.458,9 millj- ónum króna samanborið við 2.614.6 milljónir króna fyrir ári. Hinn 31. október 1999 átti sjóðurinn hluta- bréf í 31 hlutafélagi. Stærstu eign- arhlutar sjóðsins í innlendum hluta- félögum voru: íslandsbanki um 208,9 milljónir króna, Eimskip um 143,4 milljónir, Decode Genetics umll2,7 milljónir, Þormóður rammi-Sæberg um 87,9 milljónir, Samherji um 86,7 milljónir, FBA um 83,7 milljónir, Grandi um 81,8 milljónir, SÍF um 72,9 milljónir, Marel um 72,4 milljónir og Nýherji um 70,5 milljónir króna. Hluthafar íslenska hlutabréfa- sjóðsins hf. voru 7.195 í lok þessa tímabils, en þeir voru 7.417 í lok rekstrarársins á undan. Nafnávöxt- un íslenska hlutabréfasjóðsins síð- ustu 12 mánuði miðað við 1. janúar 2000 var 29,4% og 36,6% síðustu 6 mánuði að teknu tilliti til arðs, en sjóðurinn greiddi 10% arð á árinu. I stjórn Islenska hlutabréfasjóðs- ins hf. eru Gunnar Andersen for- maður, Júlíus Vífill Ingvarsson og Sigurður Sigurgeirsson. Landsbréf hf. sér um daglegan rekstur Is- lenska hlutabréfasjóðsins hf. EVRÓPSKI flugvélaframleiðand- inn Airbus Industrie hefur náð for- skoti á Boeing-flugvélaverksmiðj- urnar sem stærsti framleiðandi farþegaflugvéla í heiminum, en í fyrra seldi Airbus 476 vélar á með- an Boeing seldi 391 vél. Miðað er við pantanir þar sem að minnsta kosti 10% kaupverðsins hafa verið greidd. Aðeins einu sinni áður hefur Airbus selt fleiri flugvélar en Boeing, en það var árið 1994 þeg- ar Airbus fékk pantanir á 125 vél- um og Boeing seldi 124 vélar. Á sfðasta ári afhenti Airbus 294 flugvélar til viðskiptavina sinna, en Boeing afhenti hins vegar 620 vélar. Talsmaður Airbus hefur lýst því yfir að miðað við söluaukning- una hjá fyrirtækinu og samdrátt- inn hjá Boeing ætti Airbus að geta afhent svipaðan fjökla flugvéla og Boeing árið 2002. Á þessu ári reiknar Airbus með að afhenda viðskiptavinum sínum 307 flugvél- ar, en Boeing reiknar með að af- henda 480 vélar. Lexus á Islandi TOYOTA á íslandi, P. Samúelsson hf., hefur fengið umboð fyrir Lex- us-bifreiðar frá Toyota og hefst sala þeirra bíla hér á landi í marsmán- uði næstkomandi. Lexus-bílai- hafa verið framleidd- ir af Toyota í 10 ár en Toyota og Lexus eru tvö aðskilin umboð í eigu sömu aðila. Síðastliðið haust setti Lexus nýjan bíl á markað í flokki minni lúxusbíla og að sögn Boga Pálssonar, forstjóra P. Samúelsson- ar hf., verður nýr Lexus-jeppi markaðssettur á þessu ári. „Við teljum að með þessum tveimur bílum eigum við í fyrsta skipti greiða leið inn á íslenska markaðinn með Lexus. Það er ástæðan fyrir því að við erum að fara út í þetta og einnig fyrir því að við höfum ekki gert þetta fyrr,“ segir Bogi. Hann segir að Lexus-umboðið verði rekið sem sérstök rekstrar- eining innan P. Samúelssonar enda geri framleiðandinn kröfu um að vörumerkinu sé sinnt á annan hátt en Toyota og jafnframt í annars konar umhverfi. Starfsemi umboðsins og sýning- arsalur verði þó, a.m.k. til að byrja með, í húsnæði fyrirtækisins við Nýbýlaveg. Islenski fjársjóðurinn hf. N afnávöxtunin 30,8% í fyrra HAGNAÐUR íslenska fjársjóðs- ins hf. á tímabilinu 1. maí 1999 til 31. október 1999 nam samkvæmt rekstrarreikningi 8.118 þúsund krónum. í tilkynningu til Verð- bréfaþings íslands kemur fram að hlutafé félagsins var 450.429 þús.kr. í lok tímabilsins, en eigið fé nam samtals 940.932 þús.kr. sam- anborið við 1.037.099 þús.kr. fyrir ári síðan. Heildareignir íslenska fjársjóðs- ins 31. október 1999 námu 1.105.959 þús. kr. Eignir sjóðsins eru nær allar í hlutabréfum eða um 98%. Hinn 31. október 1999 átti sjóðurinn hlutafé í 29 hlutafé- lagi. Tíu stærstu eignarhlutarnir að markaðsverðmæti voru eftirfar- andi (í þúsundum króna): Decode 118.208, Grandi 93.131, Samherji 90.723, SÍF 80.944, Þormóður rammi-Sæberg 78.944, Opin kerfi 61.860, Marel 57.454, Nýherji 53.301, íslenski hugbúnaðarsjóður- inn 52.421 og Hugvit 51.633. Hluthafar íslenska fjársjóðsins hf. voru yfir 3.800 talsins í lok reikningsárs. Nafnávöxtun Is- lenska fjársjóðsins síðustu 12 mán- uði m.v. 1. janúar 2000 var 30,8% og 34,8% síðustu sex mánuði að teknu tilliti til arðs, en sjóðurinn greiddi 7% arð á árinu. I stjórn Islenska fjársjóðsins hf. eru Viðar Þorkelsson formaður, Einar Benediktsson og Svanur Guðmundsson. Landsbréf hf. sjá um daglegan rekstur íslenska fjársjóðsins hf. Skolphreinsistöð kostar 716,4 milljónir BORGARRAÐ hefur samþykkt til- lögu frá stjórn Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar um að ganga til samninga við Ólaf og Gunnar ehf. um byggingu skolphreinsi- stöðvar við Klettagarða. Olafur og Gunnar ehf. áttu lægsta tilboð, 716.372.352 krónur eða 87,5% af kostnaðaráætlun. í bréfi dagsettu 6. janúar hafði gatnamálastjóri lagt til að næst- lægsta tilboði í verkið yrði tekið, m.a. vegna þess að tæknileg yfir- stjórn væri of veikburða hjá fyrir- tækinu, eftir því sem upplýsinga- leit leiddi í ljós. I bréfi dagsettu 14. janúar gerði gatnamálastjóri grein fyrir því að Olafur og Gunn- ar ehf. hefðu lagt fram lista yfir helstu stjórnendur og birgja auk þess að ráða Verkfræðistofu Sig- urðar Thoroddsen hf. til að annast tæknilega stjórnun og ráðgjöf við framkvæmdina og telur því ekki lengur ástæðu til að hafna boði lægstbjóðanda í framkvæmdina. Næstlægsta tilboði í verk í Öskjuhlíð tekið Á fundi stjórnar Innkaupastofn- unar var jafnframt samþykkt að leggja til við borgarráð að tilboði Orra ehf. í „Lokahús Öskjuhlíð - uppsetning búnaðar“ yrði tekið. Orri ehf. átti næstlægsta tilboð í verkið að upphæð kr. 24.394.501 eða 75,99% af kostnaðaráætlun. Lægsta tilboð var frá MP-verktaki ehf., kr. 24.274.582 eða 77,37% af kostnaðaráætlun. Eftirgrennslan leiddi í ljós að lægstbjóðandi hefur ekki reynslu af stjórnun sambæri- legra verka, að því er fram kemur í umsögn verkfræðistofunnar Fjar- hitunar. Skeljungur hf. Hlutabréfaeign H. Benediktssonar hf. skipt í þrennt VERÐBRÉFAÞINGI íslands hefur borist tilkynning um að hlutabréfa- eign H. Benediktssonar hf., Hest- hálsi 2-4, Reykjavík, í Skeljungi hf., samtals að nafnverði kr. 60.592.827, sem var 8,02% af heildarhlutafé í fé- laginu, hafi verið skipt niður á eftir- farandi einkahlutafélög í þremur jöfnum hlutum: Bjöm Hallgrímsson ehf., Erna ehf. og Lynghagi ehf. ÍSLANDSSÍMI hefur samið við eig- endur Gagnaveitunnar um kaup á fyrirtækinu, en Gagnaveitan starfar að gagnaflutningum um örbylgju- kerfi á höfuðborgarsvæðinu og Akur- eyri. Meðal viðskiptavina fyrirtækis- ins eru Skeljungur, Kögun, KEA og Dominós. Þrjú fyrirtæki buðu í Gagnaveit- una, þar á meðal Íslandssími. Stjórn Gagnaveitunnar ákvað að loknum viðræðum að semja við Islandssíma um sölu fyrirtækisins. í tilkynningu frá Íslandssíma kem- ur fram að fyrirtækið hafi hingað til H. Benediktsson hf. sem fyrir þessa breytingu átti 8,02% af heild- arhlutafé í Skeljungi hf. hverfur þar með af hluthafaskrá félagsins. Að sögn Kristins Björnssonar, for- stjóra Skeljungs, er um það að ræða að eign þriggja bama Hallgríms Benediktssonar í hlutafélaginu H. Benediktsson hefur verið skipt til búa þeirra. aðeins boðið upp á 2MB tengingar og upp úr, en hins vegar hafi Gagnaveit- an boðið upp á smátengingar og því sé Íslandssíma með kaupunum unnt að bjóða upp á heildarlausn til fyrir- tækj a með mörg útibú. Er það mat stjórnenda Islan- dssíma að fyrirtækið sé nú betur í stakk búið að bjóða upp á gagna- og talflutninga um örbylgjukerfi sitt, en það nær eftir kaupin til 80% fyrir- tækja á landinu. Eftir sem áður mun Íslandssími einnig þjónusta fyrir- tæki um land allt á koparlínum og með ljósleiðai-a. Bæjarstjórn- arfundur um málefni Fiskiðju- samlag*sins BOÐAÐ hefur verið til bæjarstjórn- arfundar á Húsavík í dag kl. 16. A dagskrá fundarins verða tvær tillög- ur bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksg Framsóknarflokks um málefni Fisk- iðjusamlags Húsavíkur. Annars veg- ar tillaga um að bæjarstjórn lýsi yfir andstöðu við samrana FH og Ljósa- víkur hf. í Þorlákshöfn. Hins vegar tillaga um að bæjarstjórn fari fram á hluthafafund í Fiskiðjusamlagi Húsavíkur hf. þar sem fram fari stjórnarkjör. Bæjarfulltrúar minnihluta Sjálf- stæðisflokks og Framsóknarflokks á Húsavík fóru fram á aukabæjar- stjórnarfund í fyrradag. í greinar- gerð frá bæjarfulltrúunum Aðal- steini Skarphéðinssyni, Önnu Sigrúnu Mikaelsdóttur, Dagbjörtu Þyrí Þorvarðardóttur og Sigurjóni Benediktssyni kemur fram að nauð- synlegt sé að tryggja hag bæjarfé- lagsins og annarra hluthafa FH mið- að við breyttar aðstæður og framkomin gögn í málefnum Fisk- iðjusamlagsins og með samþykkt til- lagnanna sé stefna stærsta hluthafa félagsins ljós. Húsavíkurkaupstaður er stærsti hluthafi í Fiskiðjusamlagi Húsavíkur með um 26,5% hlut. Íslandssími kaupir Gagnaveituna í

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.