Morgunblaðið - 19.01.2000, Qupperneq 46
46 MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og son
LÁRUS SVEINSSON
trompetleikari,
Leirutanga 35b,
Mosfellsbæ,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur þriðjudaginn
18. janúar.
Ingibjörg Lárusdóttir,
Þórunn Lárusdóttir,
Hjördís Elín Lárusdóttir, Ægir Örn Björnsson,
Sigurlaug Sara, Ágúst Leó,
Þórunn Lárusdóttir.
+
Ástkær móðursystir okkar, föðursystir, mág-
kona og frænka,
ESTER BENEDIKTSDÓTTIR,
dvalarheimilinu Hlíð,
áður til heimilis
á Skólastíg 9, Akureyri,
lést mánudaginn 10. janúar.
Útförin hefur farið fram i kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug.
Guð blessi ykkur.
Edda Ingólfsdóttir, Guðmundur Bjarnason,
Bjargmundur Ingólfsson, Aðalbjörg Karlsdóttir,
Bára Arthursdóttir, Eggert E. Bollason,
Benedikt Arthursson, Hrönn Friðriksdóttir,
Hulda Sigurjónsdóttir,
Sigurlaug Ingólfsdóttir
og fjölskyldur þeirra.
+
Okkar elskulegi sonur, bróðir, mágur og föð-
urbróðir,
BENEDIKT INGI JÓHANNSSON,
Keldulandi 15,
Reykjavík,
(Herninggade 12, Kaupmannahöfn),
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju á morgun,
fimmtudaginn 20. janúar, kl. 13.30.
Guðbjörg Benediktsdóttir,
Örlygur Þórðarson,
Gylfi Þórðarson, Karitas M. Jónsdóttir,
Gústaf Reynir Gylfason,
Benedikt Gísli Gylfason,
Óskírður Gylfason.
+
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
ÞORSTEINN DAVÍÐSSON,
dvalarheimilinu Hlíð,
Akureyri,
lést mánudaginn 17. janúar.
Útförin verður gerð frá Akureyrarkirkju þriðju-
daginn 25. janúar kl. 13.30.
Ingólfur H. Þorsteinsson, Hrefna Helgadóttir,
Guðmundur Þorsteinsson, Birna F. Björnsdóttir,
Héðinn Þorsteinsson, Stefanía Einarsdóttir,
afabörn og langafabörn.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
LILJA SIGURÐARDÓTTIR
frá Hvaleyri,
sem lést miðvikudaginn 12. janúar, verður
jarðsungin frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði fimmtu-
daginn 20. janúar kl. 15.00.
Birgir Jónsson,
Ingibjörg Jónsdóttir,
Karólína Ágústsdóttir,
Fjóla Bára Friðfinnsdóttir,
Guðmundur Friðfinnsson,
Reynir Friðfinnsson,
Konráð Friðfinnsson,
Sigurður Friðfinnsson,
Sólrún Friðfinnsdóttir,
Sigfríður Friðfinnsdóttir,
Inga Tryggvadóttir
og fjölskyldur.
BALDUR JÓSEF
JÓSEFSSON
+ Baldur Jósef Jós-
efsson fæddist í
Keflavík 27. maf
1963. Hann lést í bíl-
slysi 30. desember
síðastliðinn og fór
útför hans fram frá
Keflavíkurkirkju 7.
janúar.
Elsku kæri Balli, það
var mikið áfall fyrir
mig að missa þig úr
þessari jarðvist, hvað
þá fyrir börn þín,
systkini, ættingja og
móður, er þú varst ætíð
svo nákominn. En hvað veit ég,
kannski hefur Guð almáttugan vant-
að brosandi og glaðan trommuleik-
ara í englasveit sína,
því þú lýstir ætíð upp
umhverfi þitt með létt-
leika, brosi og góðu
geði.
Við kynntumst fyrir
um það bil 23 árum, en
þá varst þú að ljúka
skólagöngu þinni hér á
Suðurnesjum. Eg sá
um að keyra þig í skól-
ann þar sem ég hafði
það starf að aka skóla-
börnum frá Höfnum til
Keflavíkur og Njarð-
víkur.
Mér er það minnis-
stætt er ákveðið var að lagfæra
gamla skólahúsið í Höfnum í sjálf-
boðavinnu. Þá varst þú strax reiðu-
búinn til hjálpar ásamt flestum ung-
mennum Hafna til þess að vinna við
þessa framkvæmd. Þú varst alltaf í
fararbroddi, lítill naggur, hörkudug-
legur og alltaf með brandara á vör-
unum. Frá fyrstu stundu urðum við
einstaklega góðir vinir og félagar og
aldrei hefur neitt breytt því hvað
sem á daga okkar hefur drifið, við
umgengumst hvor annan með kær-
leika og virðingu, og við þekktum
kosti og galla hvor annars.
Ég man hvað þú varst hreykinn og
ánægður sl. sumar er við sátum
heima hjá þér á þínu nýja heimili og
vorum að tala um líf okkar og þrár,
tónlist, listir, og almenna framkomu
fólks hvort við annað, þegar ég sagði
þér hversu vænt mér hefði þótt um
pabba þinn (en hann hafði látist
stuttu áður) og hversu mér þætti þið
feðgarnir vera líkir í framkomu, svo
virðulegir og vel talandi og einstak-
lega heillandi persónuleikar.
Ég man hvað þú varst ánægður er
ég sagði þér að ég vildi að þú lékir á
+ Ástríður Sigurð-
ardóttir, hús-
freyja og ljósmóðir,
fæddist á Oddsstöðum
í Lundarreykjadal 9.
desember 1913. Hún
lést á Sjúkrahúsi
Akraness 10. desem-
ber siðastliðinn og fór
útför hennar fram frá
Lundarkirkju 18. des-
ember.
Það er vordagur fyrir
rúmum 30 árum. Ég
stend á hlaðinu á Odds-
stöðum, burstaklipptur
í gallabuxum með stóru uppábroti
og í hvítbotna gúmmískóm og horfi
á eftir bíl foreldra minna renna úr
hlaði. Langþráður draumur minn
hafði ræst - ég var kominn í sveit til
Ástu og Kristjáns frænda míns á
Oddsstöðum. Þar dvaldi ég stóran
hluta bernskunnar og átti á Odds-
stöðum mitt annað heimili fram á
fullorðinsár og hjá
þeim leið mér vel.
Við fráfall Ástu er
margs að minnast.
Oftsinnis hef ég setið
við eldhúsborðið með
hönd undir kinn með-
an hún sagði mér
sögur af ferðum við
erfiðar aðstæður að
vitja sængurkvenna.
Enn get ég séð hana
fyrir mér spretta úr
hlaði á gæðingi frá
Oddsstöðum eða
Kristján bera hana á
bakinu yfir ána, en
þaðan var farið á jeppa sem geymd-
ur var í skúr hinum megin á bakk-
anum. Frá því að ég stóð á hlaðinu á
Oddsstöðum eins og fyrr er getið
hefur margt á dagana drifið og
sumt af því rifjuðum við upp í haust
heima hjá Sigrúnu dóttur hennar í
síðasta skipti sem við hittumst og
auðvitað hlógum við mikið.
Mér er þó efst í huga sú um-
hyggja sem hún bar fyrir mér alla
tíð líkt og ég væri hennar eigið
barn. Hún stóð mér nálægt þegar
eitthvað á bjátaðiog gladdist er hún
vissi að vel gekk. Spurningar og at-
hugasemdir eins og til dæmis
„hvernig gengur að börga af hús-
inu“ eða „er ekki ómögulegt að hún
Lilja sé að læra á trompet, það
belgir út kinnarnar á svona fallegri
stelpu“ voru mér aldrei óþarfar
enda sagðar af kristaltærri um-
hyggju og hreinskilni eins og henni
var eðlilegt. Hún kenndi mér að
umgangast fólk hleypidómalaust og
gera engan mannamun. En það
reyndist mér seinna meir gott veg-
anesti er ég hóf störf á vettvangi
þar sem reynir töluvert á mannleg
samskipti. Nokkru fyrir andlát
hennar ræddum við saman í síma
drjúga kvöldstund. Enn sem fyrr
vildi hún ráða mér heilt enda vissi
hún að það gustaði dálítið. Þegar
við kvöddumst sagði hún: Vertu
blessaður, Gummi minn, og þakka
þér fyrir. Ég segi nú á þessari
stundu: Vertu blessuð, Ásta mín, og
þakka þér fyrir allt. Blessuð sé
minning hennar.
Guðmundur Garðar.
ÁSTRÍÐUR
SIGURÐARDÓTTIR
HELGA
KRISTINSDÓTTIR
+ Helga Kristins-
dóttir fæddist á
Dallandi í Húsavík-
eystri 25. maí 1947.
Hún lést á heimili
sínu 28. desember
síðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Sauðárkróks-
kirkju 8. janúar.
Um leið og ég minn-
ist Helgu frænku
minnar vil ég þakka
fyrir allar þær dýr-
mætu stundir sem við
áttum saman. Ég,
borgarbarnið, var þeirrar hamingju
aðnjótandi að fá að dveljast hjá
þeim hjónum í nokkur
sumur. Þar öðlaðist ég
dýrmæta lífsreynslu
sem ég mun búa að
alla tíð. Þegar ég kom
í sveitina var sauð-
burðurinn í fullum
gangi og fyrir mér
sem óreyndu borgar-
bami var sauðburður-
inn stórkostlegt
kraftaverk og að sjá
öll þessi nýju líf verða
til.
Mikil upplifun var
fyrir mig að fá að
halda á lömbunum
undir mörkun. Á dvöl minni í Víði-
nesi lærði ég að umgangast dýrin
og skilja þarfir þeirra og hegðun.
Helga var bóndakona af lífi og sál
eins og þær gerast mestar og best-
ar á Islandi. Hún elskaði það heitt
bæinn sinn og sveitina að það var
henni kvöl að fara burtu þótt aðeins
tímabundið væri. Helga var höfð-
ingi heim að sækja og enginn sem
kom í Víðines fór þaðan svangur.
Minningarnar um Helgu frænku
eru æði margar og eru með mínum
dýrmætustu minningum. Þótt
Helga sé horfin á braut verður hún
ávallt í huga mínum þar sem hún
var, svo nátengd lífinu í sveitinni.
Ég kveð hana með miklum sökn-
uði en með minningum sem ég
geymi í hjarta mínu alla tíð.
Elsku Siggi, Inga, Halli, Aron,
Sindri, Víðir, Eyrún, Nökkvi,
Sveinbjörg og systkini Helgu,
söknuðurinn er mikill megi Guð
styrkja ykkur á þessum erfiðu tím-
um. Guð geymi ykkur öll.
Jóhanna Lilja Hólm.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HELGA STEFÁNSDÓTTIR,
Stóragerði 24,
áður til heimilis
í Hafnarstræti 8,
ísafirði,
sem andaðist á Landakotsspítala þriðjudaginn
11. janúar, verður jarðsett frá Fossvogskirkju í dag, miðvikudaginn
19. janúar, kl. 15.
Elsa Finnsdóttir, Örn Arnar Ingólfsson,
Magnús E. Finnsson, Bergljót Davíðsdóttir,
Stefán Finnsson, Einfríður Þórunn Aðalsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Formáli
minningar-
greina
ÆSKILEGT er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upp-
lýsingar um hvar og hvenær sá,
sem fjallað er um, er fæddur,
hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka og
börn, skólagöngu og störf og
loks hvaðan útför hans fer
fram. Ætlast er til að þessar
upplýsingar komi aðeins fram í
formálanum, sem er feitletrað-
ur, en ekki í greinunum sjálf-
um.