Morgunblaðið - 19.01.2000, Blaðsíða 54
MORGUNBLAÐIÐ
54 MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2000
— ----------------------------
V etrarsúpur
Matur og matgerð
Það sem Kristín Gestsdóttir kallar
vetrarsúpur eru matarmiklar súpur, sem
ylja og metta í senn.
Jafnvel mætti
flokka þessar súpur
undir pottrétti. Okk-
ar íslenska kjötsúpa
gæti líka tilheyrt
vetrarsúpum. Fyrir
nokkrum árum var
mér boðin sjóðheit
íslensk kjötsúpa á
heitum sumardegi.
Eg gleymi ekki
hversu erfitt ég átti
með súpuna, eins og
mér finnst hún góð á
haustin og vetuma.
Nú fæst alltaf
mjög mikið af græn-
meti, bæði fersku og
frosnu, sem við get-
um soðið í súpu, ann-
að hvort eitt sér eða
með kjöti, fiski,
kjúklingum og baun-
um og búið til matarmiklar, hollar
súpur. Gott brauð hentar vel með
öllum þeim súpum. Hér er boðið
upp á kjúklingasúpu með hvítlauk
o.fl. og þykka sellerí/lauksúpu
með gráðaosti. Mikil umræða hef-
ur verið í vetur út af sýktum kjúkl-
ingum, einkum ferskum. Mér
dettur ekki í hug að kaupa ferska
kjúkling og þá frosnu þíði ég und-
antekningarlaust í ísskáp. Þegar
ég undirbý kjúklinginn fyrir mat-
reiðslu set ég hann á bakka eða
stórt fat og dreg einnota plast-
hanska á hendurnar. Þeir fást í
apótekum og kosta ekki mikið.
Þeir ættu að vera til á hverju
heimili og nota við matargerð ef
maður er með sár á höndunum.
Bakkann og hnífana eða skærin
sem notuð eru við kjúklingana
þarf síðan að þvo mjög vel með
sápuvatni.
3. Opnið tómatdósina og hellið
innihaldinu í pottinn.
4. Afhýðið engiferrótina og rífið
niður 1 sm. bút, setjið saman við.
Sjóðið við hægan hita í 30 mínút-
ur.
5. Þvoið gulrótina, skerið í
sneiðar og setjið út í. Afhýðið hvít-
laukinn og síðan hvem geira, setj-
ið geirana heila út í. Sjóðið áfram í
aðrar 30 mínútur. Athugið salt-
magnið.
6. Takið pottinn af hellunni, tak-
ið alla kjötbita úr, kælið ölítið og
fjarlægði bein og húð. Skerið kjöt-
ið í bita og setjið aftur í pottinn.
7. Sjóðið í 5 mínútur og súpan er
tilbúin.
Meðlæti: Brauð.
Sellerísúpa
med gráðaosti
Kiúklingasúpa m/hvítlauk o.fl. 1 stór sellerírót
1 stórlaukur
25 g smjör + 'A dl matarolía
1 frekar lílill kjúklingur 2 msk. hveiti
1 frekar stór laukur 2 lítrar kjötsoð eða vatn og soð-
2 msk. matarolía kraftur
2 tsk. salt 1 lítill gróðaostur
1 tsk. svört piparkorn mikið af ferskri steinselju
/
_______2 lítrar sjóðandi vatn_____
1 hálfdós niðursoðnir tómatar
1 heill hvítlaukur
______2 frekar stórar gulrætur
smábiti fersk engiferrót, má sleppa
1. Setjið matarolíu í pott, saxið
laukinn og sjóðið í henni í 5 mínút-
ur. Hafið hægan hita og gætið
þess að laukurinn brúnist ekki.
2. Klippið eða skerið kjúkling-
inn í sundur. Losið lærin frá,
klippið síðan upp með bringubein-
inu og losið líka bakið frá. Raðið
öllu þétt í pottinn. Stráið salti yfir
og hellið sjóðandi vatni í pottinn.
Setjið pipakom út í.
1. Afhýðið sellerírótina og rífið
gróft á rifjárni eða í gænmetis-
kvöm. Afhýðið lauk og saxið.
2. Setjið smjör og olíu í pott og
sjóðið lauk og sellerírót í feitinni
við mjög hægan hita í 5-7 mínútur.
Stráið þá hveitinu yfir og hærið
saman við.
3. Hellið soðinu yfir og sjóðið
við hægan hita í 20 mínútur.
4. Skerið gráðaostinn smátt,
setjið út í og látið súpuna vera á
hellunni við suðumark í 20 mínút-
ur.
5. Klippið steinselju yfir og ber-
ið á borð.
Meðlæti: Brauð
Myndakvöld
Ferðafélagsins
FYRSTA myndakvöld Ferðafélags
^ íslands á árinu verður haldið í
'kvöld, miðvikudagskvöldið 19. jan-
úar, kl. 20:30 í Fl-salnum í Mörk-
inni 6.
Einar Haukur Kristjánsson sýnir
og segir frá ýmsum forvitnilegum
stöðum, en hann er sérstaklega
kunnugur Snæfellsnesi og Vestur-
landi, en hefur auk þess farið vítt og
reitt um landið. Einar hefur skrif-
ð tvær árbækur Ferðafélagsins,
um Snæfellsnes 1982 og 1986. Hann
mun sýna og segja frá þeim slóðum
og fleiri forvitnilegum stöðum, m.a.
austan af Langanesi. Minnt verður
á þorraferð í Þórsmörk 21.-23. jan-
úar og þorrablótsferðina: Dalir-
Snæfellsnes 19.-20. febrúar.
Ferðaáætlun 2000 mun liggja
frammi á myndakvöldinu og kaffi-
veitingar eru að lokinni sýningu.
Allir eru velkomnir meðan húsrými
leyfir og aðgangur er 500 kr.
ÍDAG
VELVAKAJVDI
Svarað í síraa 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Þakkir til
Brimborgar
MIG langar að koma á
framfæri þökkum til starfs-
manna Brimborgar fyrir
einstaklega góða þjónustu
sem ég fékk þar íýrir jól.
Ég á bíl sem ég nota mikið,
en skömmu fyrir jólin bilaði
hann og leit út fyrir að ekki
ynnist tími til að koma hon-
um í lag fyrir hátíðirnar.
Panta þurfti varahluti er-
lendis frá og miklar annir
voru hjá fyrirtækinu. En
með því að allir lögðust á
eitt í umboðinu, fékk ég bíl-
inn fyrir jól. Ég sendi
starfsfólki Brimborgar
ofsalega góðar þakkir fyrir
sérlega góða þjónustu og
liðlegheit.
Sigrún Hjartardóttir.
Póstkort óskast
til eftirtöku
RAGNAR hafði samband
við Velvakanda og vill hann
vita, hvort einhver ætti í
fórum sínum, póstkort af
tveimur litlum mótorbát-
um, umdæmisnúmer sést á
öðrum bátnum, VE-88, en
ekki á hinum. Þetta voru
fyrstu mótorbátarnir á ís-
landi. Hann þarf að fá lán-
aða mynd af þessum bátum
vegna skrifa um þá í Sjó-
mannadagsblað Vest-
mannaeyja. Ragnar hafði
rekist á póstkort með mynd
af þessum bátum í Kola-
portinu, en áttaði sig ekki á
þvi, að þetta voru þessir
sömu bátar. Edinborg eða
Gísli J. Johnsen gáfu póst-
kortið út. Ef einhver á
þetta kort í fórum sínum og
vill lána Ragnari það til eft-
irtöku, þá er Ragnar í síma
568-7174.
Sammála Unni
ÉG hef verið að lesa pistla í
Velvakanda þar sem Unnur
kvartar undan viðskipta-
háttum í versluninni Mon-
soon. Vil ég taka undir það
sem þessi kona segir. Ég
hef lent í því að fá innleggs-
nótu sem var skömmtuð til
2 mánaða og skilyrði að
ekki yrði tekið út á útsöiu.
Finnst mér viðskiptavinum
sýnd mikil óvirðing með
þessu og mun ég beina við-
skiptum mínum annað.
Ég vii í leiðinni nefna
dæmi um góða þjónustu í
svipuðu máli. Var það í Sví-
þjóð en þar keypti ég föt
sem pössuðu ekki. Skilaði
ég fótunum og fékk í stað-
inn gjafakort sem gilda í 10
ár og gilda einnig á útsöl-
um. Eru sem sagt bein-
harðir peningar og mér
gert kleift að versla þar
hvað sem er hvenær sem
er, hvort sem er á útsölu
eða ekki.
Ester Sigurðardóttir.
Stöð 2 og Lottó
ÉG vil beina þeirri áskorun
til forsvarsmanna laugar-
dagslottósins að það verði
aftur fært á Stöð 1. Ástæð-
an fyrir því er sú að þar
sem ég bý norður á landi er
alls ekki hægt að ná Stöð 2.
Lottó er leikur allra lands-
manna og ætti að vera á
stöð allra landsmanna, Stöð
1.
Með kveðju.
Reið kona fyrir norðan.
Tapad/fundiö
Gullhringur fannst
í Kópavogi
KVENGULLHRINGUR
fannst við Alfatún í Kópa-
vogi, mánudaginn 17. jan-
úar sl. Upplýsingar hjá
Guðrúnu eða Pálínu í síma
564-2554.
Þríkross týndist
ÞRÍKROSS, merktur Stef-
án á bakhliðinni, týndist í
desember sl. einhvers stað-
ar í Reykjavík. Skilvís finn-
andi er vinsamlegast beð-
inn að hafa samband við
Elínu í síma 567-5824.
Grá úlpa og
GSM-sími týndust
LJÓSGRÁ ullarúlpa,
herra, og Ericsson GSM-
sími týndust sl. föstudags-
nótt við Lækjartorg við
pylsuvagninn. Skilvís finn-
andi vinsamlega hafi sam-
band í síma 587-3634.
Ensk vasabók
í óskilum
ENSK vasabók fannst fyrir
framan Vörðuskóla. Upp-
lýsingar í síma 552-5886.
Dýrahald
Kettlingar
fást gefins
NÍU mánaða kassavanir
kettlingar fást gefins á góð
heimili. Upplýsingar gefur
Eyjólfur í síma 565-5935.
Feðgar á heimleið eftir Gagnveginum í hlákunni um helgina.
Morgunblaðið/Ómar
Víkverji skrifar...
FORVITNILEGT er að skoða
tölur um flutning fólks um land-
ið og hvar fólki fjölgar og hvar því
fækkar. I tölum um mannfjöldaþró-
un á íslandi síðustu 10 ár kemur
m.a. fram að hlutfall íbúa á höfuð-
borgarsvæðinu hefur hækkað úr
56,8% í 61,5% á árunum 1989 til
1999. Á þessum tíu árum hefur það
svo til staðið í stað á Suðurnesjum
en lækkað í öðrum kjördæmum.
Mest er fækkunin hlutfallslega á
Vestfjörðum, rúm 15%, og ef litið er
á breytingu frá árinu 1998 til 1999 er
fækkunin einnig mest á Vestfjörð-
um.
XXX
RÁTT fyrir fjölgun á höfuðborg-
arsvæðinu hefur íbúum ekki
fjölgað hjá öllum sveitarfélögunum
þar. Þannig fækkaði þeim til dæmis
um 31 á Seltjamarnesi milli áranna
1998 og 1999 sem þýðir 0,66% fækk-
un íbúa. Þá varð fjölgun íbúa minnst
í Garðabæ eða 0,41%. Einhvern tíma
var því haldið fram að fasteigna-
skattar væru einna lægstir í þessum
bæjarfélögum og því mætti ætla að
þar hefði íbúum jafnvel getað fjölgað
enn meira. En kannski er farið að
þrengjast um lóðir. Mesta fjölgun
íbúa meðal sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu varð í Mosfellsbæ,
6,42%. í Reykjavík var fjölgunin
1,33% og í Kjósarhreppi 2,88% þar
sem íbúum fjölgaði um fjóra.
Sé litið á einstaka staði út um land
kemur í ljós að Búðahreppur á Aust-
fjörðum og Höfðahreppur á Norður-
landi vestra hafa mátt þola einna
mesta fækkun íbúa milli áranna
1998 og 1999 eða um 5,84% og 5,62%.
Þá varð 4,49% fækkun í Isafjarðar-
bæ og 4,26% á Vopnafirði. En þeir
staðir eru líka til úti á landi þar sem
íbúum hefur fjölgað, til dæmis í Ár-
borg (Selfossi og nágrenni) og
Hrunamannahreppi þar sem íbúum
fjölgaði um 3,13% og um 3,21% í
Hveragerði, á Djúpavogi fjölgaði
íbúum um 2,84%, á Seyðisfirði um
2,73%, um 1,66% á Austur-Héraði og
um rúmt 1% í Eyjafjarðarsveit.
xxx
MARGS konar skýringar eru
vitaskuld á búferlaflutningum.
Atvinna, laun, nám og margs konar
félagsleg aðstaða fyrir utan aðrar
langanir og þrár manna svo sem
vegna sambands við ættingja og þar
fram eftir götunum. í umræðu um
byggðamálin hafa menn býsnast yfir
þeirri ósvinnu að fólk skuli flykkjast
á suðvesturhornið og leyfa sér að yf-
irgefa góðar og fallegar byggðir víða
um land. Öðrum finnst sjálfsagt að
menn sæki á þennan landshluta sem
hefur upp á allt að bjóða. Hér verður
að hafa í huga að áhersla okkar sem
búum á þessu horni er kannski alltof
mikil á eigin hag og það er stundum
eins og fátt gerist annars staðar á
landinu en hér. Undantekning er
umræðan um virkjanamálið á Aust-
urlandi. En niðurstaða þessara hug-
leiðinga út frá búferlaflutningunum
er kannski sú að stilla ekki upp
landsbyggðinni og höfuðborgar-
svæðinu sem andstæðum pólum.
Blómleg byggð á að geta þróast
þokkalega á báðum þessum svæð-
um, sem hvort hefur sín sérkenni og
sérþarfir, en hvorugt getur án hins
verið. Þéttbýlið verður að líta á sig
sem þjón dreifbýlis að nokkru leyti
og dreifbýlið hefur miklu hlutverki
að gegna fyrir þéttbýlið. Þess vegna
má ímynda sér að eitthvert jafnvægi
þurfi að vera fyrir hendi, spurning
er hvort hlutfallið er 61% á móti 39%
þéttbýlinu í hag eða eitthvað annað.