Morgunblaðið - 06.02.2000, Page 16

Morgunblaðið - 06.02.2000, Page 16
16 SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ Kosningabaráttan hefur að mestu farið fram í sjónvarpi og þar sem stóru stöðvamar em fjórar, hefur verið í nógu að snúast hjá þeim Halonen og Aho. Oft hefur fremur verið um að ræða gaman en alvöru en í síðustu kappræðum þeirra á fímmtudagskvöld þótti Aho standa sig betur ef eitthvað var. Lítill munur á fylgi frambjóðenda Draugur sósíalismans, kristin trú og for- ______dómar í garð samkynhneigðra____ geta ráðið úrslitum í annarri umferð for- setakosninganna í Finnlandi segir í þessari grein eftir Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins í Helsinki. Asunnudaginn kjósa Finnar ellefta forseta lýðveldisins og í annað skipti á kona verulegan möguleika að ná kjöri. Það eru hins vegar fleiri mál en kynferði frambjóðenda sem munu ráða úrslitum í huga landsmanna. Tarja Halonen utanríkisráðherra og Esko Aho, íyrrverandi forsætisráð- herra, njóta nákvæmlega jafn mikils fylgis samkvæmt skoðanakönnunum sem birst hafa nú á lokasprettinum. Síðari hluti kosningabaráttunnar hefur snúist um sósíalisma, kristna trú og afstöðu til hjónabandssam- kynhneigðra og vettvangurinn hefur næstum eingöngu verið sjónvarpið. Fyrir tæpum þrem vikum sigruðu þau Tarja Halonen utanríkisráð- herra (jafn.) og Esko Aho, fyrrver- andi forsætisráðherra (miðfl.), í fyrri umferð fínnsku forsetakosninganna. Síðan hefur Halonen reynt að sann- færa sveitamenn í dreifbýlinu um að lögfræðingur Alþýðusambandsins, sem fæddist og ólst upp í fátækra- hveríi í höfuðborginni, geti orðið for- seti allra landsmanna og Aho hefur á hinn bóginn reynt að skapa sér ímynd sem landsfaðir í þéttbýlinu þótt hann sé sonur smábónda og hafl verið orðinn sextán ára þegar hann heimsótti höfuðborgina í fyrsta sinn. Svo kölluð fjölskyldugildi og ættjarð- arást hafa verið hornsteinarnir í málflutningi hans. Margir spyrja þó hvers konar fjölskyldufaðir það er, sem varð þingmaður fyrir átján ár- um og síðar ráðherra og hefur lítið sem ekkert sinnt heimilinu síðan. Ekki láta allir sér nægja þá skýringu að hann hafl notað farsímann til að ala upp fjögur böm. Verða að höfða til margs konar kjósenda Strax í upphafi þóttust menn vita, að mjótt yrði á mununum í síðari um- ferðinni. Að vísu sýndu skoðana- kannanir í fyrstu, að fylgi Halonen væri um það bil tíu prósentustigum meira en fylgi Ahos, en skoðana- kannanir, sem birtast á lokaspretti kosningabaráttunnar, sýna að íylgi Ahos hefur aukist mikið og nú munar litlu sem engu á þeim. Kosningabar- áttan hefur farið skikkanlega fram en hvorki miðflokksmenn né jafnað- armenn geta einir og sér tryggt sigur frambjóðanda síns. Forsetaefnin verða því að gera hosur sínar grænar fyrir kjósendum annarra flokka og afleiðingin er sú, að pólitíkin verður einhvers konar meðaltal af öllu sam- an og enginn munur á stefnu fram- bjóðendanna. Dansað við Mannerheim Mikið hefur verið um sjónvar- psþætti þar sem þau Aho og Halonen hafa komið fram sem hreinir skemmtikraftar. í einum þætti sl. miðvikudag sögðust þau vera orðin svo vön að skemmta saman að þau gætu alveg hugsað sér að halda því áfram. Það eru samtals fjórar innlendar sjónvarpsstöðvar sem senda út um land allt. Af þeim sökum hafa for- setaefnin stundum orðið að berjast við sjálf sig um lýðhylli áhorfenda. Miðvikudagurinn var gott dæmi um dagskrá skemmtikraftanna Ahos og Halonens. Þau tóku þátt í spuminga- keppni milli sjö og átta. Meðal þeirra, sem fram komu í þessum þætti, voru einnig leikarar í gervi hins fræga hershöfðingja Manner- heims og forsetanna fyrrverandi, Kekkonens og Koivistos. í lok þáttarins varð Halonen fyrst að.dansa við Mannerheim en síðar skipaði marskálkurinn gamli Aho „undirliðsforingja" að taka við af sér til að kjósendur gætu dæmt um dansleikni beggja frambjóðenda. Aho átti svo viðtal við fréttamenn stöðvar 4 klukkan átta og svo var gert hlé nema hvað varðar fréttatíma ríkissjónvarpsins á TVl klukkan hálfníu. Fimmtán mínútur fyrir 10 hófst ítarlegur viðtalsþáttur við Aho á stöðinni TV2. Áður en honum lauk um klukkan hálfellefu gátu menn skipt yfir á MTV3-stöðina og horft á fimmtán mínútna daglegan þátt um helstu atburði í kosningabaráttunni. Að lokum komu þau Aho og Halonen fram í gamansömum viðtalsþætti á MTV3. Munur á afstöðunni til Haiders í umfjöllun um utanríkismál hefur stjórnarþátttaka flokks Jörgs Haid- ers í Austurríki markað nokkurs konar þáttaskil. Aho segist ekki vilja íhlutun erlendra ríkja þar til sannað hafi verið, að um öfgastjórn sé að ræða en Halonen er hins vegar fylgj- andi stefnu ESB í þessum málum. Utanríkismál eru helsti starfsvett- vangur Finnlandsforseta. í allflest- um málum, sem rædd hafa verið, hafa þau Aho og Halonen þó verið mjög sammála. Þau eru ákveðnir stuðningsmenn ESB-aðildar en hyggjast ekki vinna að því að undir- búa umsókn um aðild Finna að Atl- antshafsbandalaginu. Gamaldags gildi skipta sköpum Það þykir merkilegt hvers konar gildi hafa verið í brennidepli þessar þrjár vikur. Forsetaefnin hafa orðið að skilgreina sitt kristna gildismat og afstöðu sína til hjónabandsins. Halonen hefur áður starfað fyrir samkynhneigðaog hún sagði sig úr þjóðkirkjunni á unga aldri. Munurinn á Aho og Halonen í þessum málum virðist helst sá að Aho segist mæla með þeim siðferðis- reglum sem meirihluti landsmanna hefur kosið. Halonen hins vegar ræð- ir opinskátt hverja spumingu íyrir sig. Til dæmis segist Halonen geta hugsað sér að gerast meðlimur í kirkjunni á nýjan leik. Hún hafi þó ekki viljað gera það að einhverju inn- leggi í kosningabaráttuna. Síðast en ekki síst hefur draugur sósíalismans orðið vopn í höndum stuðningsmanna Ahos. Þeir minna á að Halonen hafi áður unnið sem lög- fræðingur Alþýðusambandsins. Að mati Aho-manna sé óhugsandi að borgaralegur meirihluti landsmanna kjósi sér vinstrimann sem þjóðhöfð- ingja. Halonen hefur svarað þessu með því, að hún sé fylgjandi endurreisn velferðarþjóðfélagsins. Hennar stefna sé alls ekki þjóðnýting af neinu tagi. Grikkir vilja fá stytturnar úr Meyjarhofínu Auka enn þrýsting- inn á Breta Aþenu. AP, Daily Telegraph. GRIKKIR ætla að reyna að fá stuðn- ing ýmissa nánustu bandamanna Breta við þá kröfu sína, að Bretar skili þeim aftur Elgin-marmarastytt- unum, sem svo eru kallaðar. Var það haft eftir menningarmálaráðherra Grikklands í fyrradag. Elisavet Papazoi, menningarmála- ráðherra Grikkja, sagði, að reyntyrði að fá stjórnvöld eða frammámenn í ýmsum ríkjum, til dæmis Bandaríkj- unum, Kanada og Ástralíu, til að leggja að Bretum að skila styttunum, sem eru 2.500 ára gamlar. Eru þær kenndar við Elgin lávarð, sem var sendiherra Bretlands í Ottómanarík- inu eða Tyrkjaveldi. Keypti hann styttumar 1801 og lét fjarlægja af Parþenon eða Meyjarhofinu á Akró- pólishæð í Aþenu. Keyptar af Tyrkjum Papazoi kom með fyrmefnda yfir- lýsingu eftir viðræður við Jeff Kenn- ett, fyrrverandi forsætisráðherra Viktoríuríkis í Ástralíu, en hann situr í ástralskri nefnd, sem skorað hefur á neðri deild breska þingsins að skila Grikkjum styttunum. Era þær 17 talsins og auk þess er um að ræða hluta af 160 metra langri mynd- ræmu, sem skreytti á sínum tíma Meyjarhofið. Bretar halda því fram, að listaverkin hafi verið keypt með löglegum hætti þegar Grikkland var hluti af Ottómanaríkinu og þeir neita þeim ásökunum Grikkja, að myndim- ar haíi verið skemmdar í hreinsun. Jeff Kennett sagði, að um væri að ræða mikilvægustu deilu um menn- ingarleg verðmæti í upphafi þessarar þúsaldar. „Stytturnar era óaðskiljan- legur hluti af Meyjarhofinu og þang- að á að skila þeim,“ sagði hann. Buðu samninga 1994 Samkvæmt upplýsingum, sem ný- lega vora birtar, var gríska stjómin fús til að semja um þetta mál árið 1994. Fór hún þá fram á að fá nokkr- ar styttnanna og bauðst um leið til að afsala sér tilkalli til hinna. Ef rétt er, hefur þetta boð veikt stöðu Grikkja ef eitthvað er en gríska sendiráðið í London vill ekki staðfesta, að það hafi verið lagt fram fyrr en að höfðu samráði við grísku stjómina. Það ítrekaði hins vegar, að hin opinbera afstaða væri, að öllum listaverkunum yrði skilað. AP Elgin-marmarastytturnar svokölluðu í breska þjóðminjasafninu í Lond- on. Grikkir hafa krafíst þess að Bretar skili styttunum og segja að þær hafí verið skemmdar í hreinsun. Bretar hafa hins vegar neitað þeirri ásökun og segjast ekki ætla að skila þeim.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.