Morgunblaðið - 06.02.2000, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 06.02.2000, Blaðsíða 34
34 SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ SKOÐUN REKSTUR OG HJUKRUN Nýtt lyúkrunar- heimili Hinn 19. janúar sl. var viðtal við Ögmund Jónasson alþingismann í fréttatíma Ríkisút- varpsins um þá ákvörð- un heilbrigðisráðuneyt- isins að semja við Securitas/Verkafl um byggingu og rekstur nýs hjúkrunarheimilis. I framhaldinu var rætt við Guðmund Hall- varðsson, formann Sjó- mannadagsráðs, en það á og rekur Hrafnistu- heimiiin, og Davíð A. Gunnarsson ráðuneytisstjóra brigðisráðuneytisins. Þar sem þessi umræða tengist mjög þeim fyrirtækj- um sem við Guðmundur erum í for- ystu fyrir sé ég mig knúinn til að skýra nánar frá því hvemig þessi mál líta út frá okkar sjónarhóli. Sem fyrr segir tilkynnti heilbrigðisráðuneytið nýverið að stefnt væri að því að semja við Securitas um rekstur 90 rýma hjúkrunarheimilis við Sóltún í Reykjavík. Þessi tilkynning kom þéim sem vinna að málefnum aldr- aðra mjög á óvart og ekki síst þegar fréttir fóru að berast um þau daggjöld sem greidd skyldu fyrir þjónustuna og einnig vegna þess að í útboði sem farið hafði fram var miðað við 60 rýma hjúkrunarheimili. í febrúar 1999 var auglýst eftir aðilum sem vildu taka þátt í forvali vegna útboðs á byggingu og rekstri 60 rýma hjúkrunarheimilis í Reykjavík. Þegar upp var staðið voru það þrír aðilar sem tilkynntu vilja til þátttöku. Það voru Hrafnista/ Sjómannadagsráð, Nýsir/fstak og Securitas/Verkafl. Allir þessir aðilar voru metnir hæfir. Fulltrúar þessara Sveinn H. Skúlason heil- fyrirtækja og fulltrúar heilbrigðisráðuneytis og Ríkiskaupa hittust á nokkrum ftmdum til undirbúnings útboðs- ins. Var það mjög eðli- leg framvinda því aldrei hafði áður verið staðið að útboði sem þessu á Islandi. Þegar útboðs- gögnin voru afhent kom í Ijós að eitt af skilyrð- unum fyrir þátttöku væri að stofna yrði sér- stakt fyrirtæki um rekstur þessa hjúkrun- arheimilis. EkM mætti nýta sér stoðdeildir ef heimilið yrði reist á lóð hjúkrunar- heimilis sem væri í fullum rekstri. Selja bæri alla þjónustu sem þar færi á milli á sannanlegu markaðsverði. Þetta þýddi að Hrafnista gat ekki nýtt sér hagkvæmni þess að hafa eld- hús í næsta húsi, sameiginlegan hjúkrunarforstjóra, launadeild, bygg- ingadeild, sjúkraþjálfun, þvottahús, sérstök stjórn yrði að vera fyrir hjúkrunarheimilið og áfram mætti lengi telja. Gera yrði reikning fyrir allri þjónustu sem færi frá húsi A (gömlu Hrafnistu) yfír í hús B (nýja hjúkrunarheimilið). Þessu fyrirkomu- lagi hefði fylgt gríðarleg skriffinnska og að auki hefði þurft að leggja virðis- aukaskatt á alla reikninga sem hefði einfaldlega þýtt hærri daggjöld. Hrafnista ætlaði að taka þátt í þessu útboði til að auka þjónustu sína og auka hagkvæmni í rekstri með sam- nýtingu stoðdeilda. Mat okkar á fyrr- nefndum skilyrðum í útboðinu var að þessi markmið okkar næðust ekki og því ákvað Hrafnista að hætta við þátt- töku í útboðinu. Benda má á að Hrafnista var búin NTV SkÓlrtlTÚl í Hrtfllrtl fil ði Og KÓyrtVOgÍ bjóðrt npp rt tvö lirtgnýt og nicttkviss töliamómskeið fyrir byrjeruinr. 60 klst. eðd 90 kemislustimdir: - Grutmntriði í upplýsingatækni - Windows 98 stýrikerfið ► Wordritvinnsía ► Excel töflLireiknir *- Access gagnagrunniu' - PowerPoint (gerð kynningarefnis) «- Interne tið (vefnrinn og tölvupóstnr) 48 klst eða 72 kennslusfuudir: Almenntum tölvur ogWindows 98 Wordritvinnsla *■ Exceltöflureiknir *■ Interne tið (vefurinn og tölvupóstur) Boðið er upp á bæði morgun- og kvöldnámskeið sem hefjast I4.og22.febrúarnk. Upplýsingrtr og innritim i súniun 544 4500 og 555 4980 nlv Nýi tölvu- & viðskiptaskólinn Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirði - Sími: 555 4980 - Fax: 555 4981 Hlíðasmára 9- 200 Kópavogi - Sími: 544 4500 - Fax: 544 4501 Tðlvupósífang: skolf@ntv.ís - Heimasíða: www.ntv.is Eiga þeir aðilar sem eru í rekstri hjúkrunar- heimila í dag að taka því öllu lengur, spyr Sveinn H. Skúlason, að viðvar- andi taprekstur sé að eyða eigin fé þeirra? að láta gera frumdrög að 60 rýma hjúkrunarálmu á lóð Hrafnistu í Laugarási og grenndarkynning hafði farið fram án athugasemda um mitt ár 1998. Ef samið hefði verið við Hrafnistu á þeim tímapunkti væri verið að opna nýja hjúkrunarálmu við Hrafnistu í Reykjavík um þessar mundir. Heilbrigðisráðuneytið valdi aðra leið, leið sem seinkar opnum nýs heimils um allt að þrem árum. Og það mitt í allri bráðaþörfinni. Rétt er að benda á að nú bíða 170 einstaklingar metnir í brýnni þörf eftir hjúkrunar- plássi hér í Reykjavík. Einnig eru 169 aðilar metnir í brýnni þörf fyrir vist á dvalarheimili. Með byggingu þessa nýja heimilis er vandinn hvergi nærri leystur. Daggjöld hjúkrunarheimila Frá því að daggjaldanefnd var lögð niður 1990 hefur heilbrigðisráðuneyt- ið ákvarðað daggjöldin einhiiða. Þeir sem standa í þessum rekstri hafa haldið því fram að allt að 9% halli hafi myndast á þessum tíma. Hrafnista í Laugarási fékk í sjúkradaggjöld árið 1999 kr. 7.800 á sólarhring. Það er skilgreining heilbrigðisráðuneytisins að daggjöld eigi að duga fyrir rekstri heimilanna og miðað sé við að enginn hagnaður sé af rekstrinum. Það kom í Gleraugnasalan, Laugavegi 65. ljós fljótlega á síðasta ári að þessi daggjöld dygðu Hrafnistu engan veg- inn. Launahækkanir höfðu orðið miklar í heilbrigðisgeiranum og voru þær fyrst og fremst orsök hallans ásamt þeirri skekkju sem hafði mynd- ast frá 1991. Á árinu tókst með miklu aðhaldi að halda öðrum rekstrar- kostnaði í skefjum. I aukafjárlögum voru veittar kr. 60,5 milljónir til Hrafnistu í Laugarási til að leiðrétta þann rekstrarhalla sem var fyrir- sjáanlegur. Hvergi hefur annað kom- ið fram en að einungis var verið að bæta rekstrarhalla ársins 1999 og rétt er hjá ráðuneytisstjóranum að fullt tillit var tekið til þeirra talna er Hrafnista sendi Ríkisendurskoðun. Eftir að aukafjárlögin höfðu bæst við urðu sjúkradaggjöld vegna ársins 1999 kr. 8.492.1 fyrmefndu útvarps- viðtali segir ráðuneytisstjóri heil- brigðisráðuneytisins að í fjárlögum hafi uppsafnaður 9% rekstarvandi verið leiðréttur. Þar með var þá loks- ins viðurkennt opinberlega að sá vandi hafi verið fyrir hendi. Þar sem sú viðkenning er nú komin hjá ráðun- eytinu skyldi maður ætla að tekið yrði tÚlit til þess í ákvörðun sjúkradag- gjalda vegna ársins 2000. Nú þegar þessar línur eru skrifaðar hafa daggjaldastoftianir enn ekki fengið staðfestar upplýsingar frá ráðuneyt- inu um hver daggjöldin verði árið 2000. Það hefur gert daggjaldastofii- unum mjög erfitt fyrir við að áætla rekstur sinn fyrir líðandi ár. Óstað- festar fregnir hafa þó borist frá starfsmönnum heilbrigðisráðuneytis- ins um að daggjöld Hrafhistu í Laug- arási verði kr. 8.550 vegna ársins 2000. Þar sé búið að reikna inn 3% launahækkun sem varð um síðustu áramót og vegur hjá okkur um kr. 140 á hvem legudag. Sem þýðir að ef bera á saman daggjöld ársins 1999 og 2000 LÆKKA gjöldin úr kr. 8.492 í kr. 8.440. Svo er sagt að búið sé að leið- rétta 9% rekstrarhalla. Heyrst hefur úr ráðuneytinu að ástæðan sé lágt RAI-mat (mat á hjúkrunarþyngd) á Hrafnistu í Laugarási. Menn hafa verið að þróa sig áfram með RAI- matið. Þeir sem framkvæma matið hafa verið að læra á aðferðafræðina og skekkjur hafa víða komið fram. Við gerð matsins 1998 komu fram afger- andi skekkjur hjá Hrafnistu í Laugar- ási og var ráðuneytinu strax tilkynnt að svo væri. Ráðuneytið ákveður síð- an skyndiiega í lok árs 1999 að miða við matið frá 1998 við ákvörðun daggjalda ársins 2000. Það hafði eng- inn hugmynd um að RAI-mat þess árs yrði grunnur að daggjöldum og allir litu á að verið væri að vinna þró- unarvinnu til að allt yrði tilbúið þegar RAI-matið yrði endanlega tekið í notkun. Hver er framtíðin? í upphafi sagði ég að menn væm undrandi á því sjúkradaggjaldi sem nýju heimili verður greitt. Miðað við vísitölu í ágúst 1999 em það kr. 11.880 vegna rekstrar og kr. 2.420 vegna húsnæðis, eða kr. 14.300 samtals. Ég er alls ekki að segja að þeir hjá Secur- itas séu ofsælir af þessum upphæð- um. Gagnrýni okkar beinist ektó að þeim. Við vitum að þar em hæfir menn í forystu og bjóðum þá vel- komna í þann samhenta hóp sem starfar að rekstri hjúkrunar og elli- heimila. Gagnrýni okkar beinist að því hvemig heilbrigðisráðuneytið vinnur sína vinnu. Með því að bjóða rekstur og byggingu út á almennum markaði mátti vera Ijóst að einkafyr- irtæki sem tækju þátt í slíku útboði myndu kreijast a.m.k. 10-12% arð- semi fjárfestingar. Sem fyrr segir miðast daggjöld þeirra stofnana sem em í rekstri í dag við að arðsemi sé engin. Því vaknar sú spuming þegar heilbrigðisráðuneytið velur þessa nýju leið hvort það sé ekki siðferðis- leg skylda ráðuneytisins að tryggja öðrum hjúkrunarheimilum a.m.k. jafnvægi í rekstri hafandi í huga að rekstur nýja heimilisins kostar allt að 67% meira pr. legudag en hjá þeim hjúkranarheimilum sem fyrir era. Eiga þeir aðilar sem eru í rekstri í dag að taka því öllu lengur að viðvarandi taprekstur sé að eyða eigin fé þeirra? I lokin skal það tekið fram að stjómendur Hrafnistuheimilanna hafa átt mjög gott samstarf við starfs- menn heilbrigðisráðuneytisins. Því urðu það okkur mikil vonbrigði þegar Davíð Á. Gunnarsson sagði eftirfar- andi í viðtali við RQdsútvarpið hinn 21.1. sl. „Þannig að ef menn ætluðu til dæmis að nýta hagkvæmni fyrirliggj- andi þjónustueininga eins og eldhúss og annars slíks yrðu menn að gera grein fyrir því á hvaða verðlagi eld- húsin vora að selja þjónustu. Annars hefði auðvitað verið ákveðin hætta á því að í svona samkeppni hefðu menn einfaldlega undirboðið verð og síðan leitað eftir því að fá bættan hallann með öðmm leiðum hjá ríkisvaldinu." Með þessum orðum sínum gaf hann í skyn að Hrafnista væri lítóeg til að vinna á þann hátt. Ekki gat hann átt við aðra. Þetta finnst okkur vera óma- tóeg ávirðing. Við héldum að Hrafh- ista ætti ekki inni þvílíka sendingu eftir áralangt samstarf við heilbrigð- isráðuneytið. Við töldum reyndar að það hefði verið til að gæta jafnræðis milli bjóðenda sem skilyrðin vom sett. Við gátum sætt okkur við þau rök. Fyrmefnd ummæli ráðuneytis- stjórans breyta þó ekki þeirri skoðun okkar að í heilbrigðisráðuneytinu sé yfirleitt mjög hæft fólk sem vinnur fáliðað erfið störf í stærsta ráðuneyt- inu. Við viljum eiga áfram gott sam- starf við þessa aðila, enda em það sjaldnast þeir sem ráða stefnumörk- Höfundur er forstjóri Hrafnistuheimilanna. Daníel Námskeið hjá Yoga Studio í febrúar Júga gegn kvíða með Ásmundi Gunnlaugssyni hefst 8.febrúar - þri. og fim. ki. 20.00 4ra vikna uppbyggjandi námskeið, m.a. byggt á eigin reynslu Ásmundar fyrir þá sem eiga við streitu, kvíða og fælni að stríða og/eða eru að ganga í gegnum miklar breytingar í lífinu. Kenndar verða leiðir til þess að slaka á og öðlast aukið frelsi og lífsgleði. Engin reynsla eða þekking á jóga nauðsynleg. Yoga - breyttur lífsstíll með Daníel Bergmann hefst 7.febrúar - mán. og mið. kl. 20.00 4ra vikna grunnnámskeið fyrir þá, sem eru að taka sín fyrstu skref í jóga. Námskeið fyrir fólk á öllum aldri sem vilja læra eitthvað nýtt til að vinna gegn spennu. Engin reynsla eða þekking á jóga nauðsynleg. Á námskeiðum hjá Yoga Studio eru eftirfarandi þættir teknir fyrir: ★ jógaleikfimi (asana) * öndun ★ slökun ★ mataræði og lífsstíll ★ andleg lögmál sem stuðla að velgengni, jafnvægi og heilsu. Jóga gegn kvíða er yfirgripsmeira heldur en Yoga - breyttur lífsstíll. Frír aðgangur að opnum jógatímum og saunu fylgir námskeiðunum. H. Við minnum á að næsta kennaraþjálfun hefst 18. febrúar. STUDIO Yoga - Sauna Auðbrekku 14, Kópavogi, sími 544 5560. (•) HALUR OG SPRUND ehf. Afsláttardagar til 4. febrúar BIOTONE nuddvörur, Oshadhi 100% hágæða ilm- kjarnaolíur, nuddbekkir frá Custom Craftworks, nuddplaköt, slökunartónlist, ilmker, bækur o.m.fl. ■—s—ai
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.