Morgunblaðið - 06.02.2000, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 06.02.2000, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2000 43 legu íbúðina ykkar, sem þið voruð búin að bíða svo lengi eftir. Elsku amma, þú varst alltaf til staðar, þegar ég þurfti á þér að halda og ég þakka þér fyrir allar góðu stundirnar. Elsku afi, megi guð gefa þér styrk í þinni miklu sorg og vera með þér í framtíðinni. Sara Björk Sigurgísladóttir. Nú er sú stund runnin upp að hún Sigríður amma mín, eða Sigga amma, eins og ég kallaði hana frá því ég man eftir mér, er dáin. Hún átti svo mikið eftir. Hún var alltaf svo ungleg og skemmtileg. En svona eru slysin. Þau gera ekki boð á undan sér. Maður verður lengi að átta sig á því að Sigga amma sé ekki lengur hjá okkur. Það er furðulegt að fara í Kópavoginn til að hitta fjölskylduna og hitta enga ömmu, en samt veit ég og finn að hún er alltaf hjá mér. Ég verð að segja frá því að sem betur fer flutti ég til hennar í sex mánuði í fyrra og sá tími var mér ómetanleg- ur. Mér fannst alltaf svolítið skrítið að þegar ég var að fara í vinnuna á morgnana rauk hún oft á fætur og fram í eldhús og sagði að ég yrði að borða áður en ég færi í vinnuna. Ég fór alltaf mjög snemma, þannig að ég skildi þetta aldrei, en svona var hún alveg æðisleg. Hún gerði allt sem hún mögulega gat fyrir mig og stundum meira en það. Maður reynir að lifa með þessu þótt það sé erfitt því ég veit að hún hefði viljað það. Afi og amma komu á þorrablót norður á Hofsós um síðustu helgi og það var yndislegt. Þau skemmtu sér mjögvel og ég líka, enda var hún amma mín með þeim síðustu sem fóru að sofa. Þetta var mjög dýrmæt helgi að geta séð hana og verið með henni, en því miður endaði helgin með þessu hörmulega slysi. Guð veri með þér, afi minn. Sindri Freyr. Elsku Sigga amma! Okkur þykir leitt að þú hafir farið frá okkur. Þeg- ar við komum heim til Gestnýjar var allt svo tómlegt, því að það vantaði þig. Við munum vel eftir því þegar þú varst með okkur í berjamó í sumar. Það var alltaf svo gaman að sjá þig brosa. Við systurnar söknum þín svo mikið. Og við elskum þig allar og þú verður alltaf í brjósti okkar allra. Við skiljum ekki af hverju þú þurftir að fai'a frá okkur. Amma, Guð og Jesú, viljið þið passa afa eins vel og þið get- ið fyrir okkur öll. Viltu passa afa fyrir okkur öll, að hann lendi ekki í slysi eða veikist. Okkur þykir svo vænt um hann. Og þakka þér fyrir, kæri Guð, að leyfa afa að lifa. Við værum mjög mjög þakklát, ef amma hefði sloppið eins og afi. Við gleymum aldrei öllum góðu stundunum sem við áttum sam- an. Elsku amma, vonandi líður þér vel. Það var svo gaman að fá þig og afa í heimsókn í sveitina til okkar. Þú varst alltaf svo kát og glöð og nenntir að gera allt með okkur. Við söknum þín svo mikið, amma mín. Við sökn- um þess að þú segir okkur ekki fleiri sögur eins og þú sagðir okkur svo oft. Vertu guð faðir faðir minn ífrelsaransJesúnafni hönd þín leiðir mig út og inn svo allri synd ég hafni.: Drottinn blessi þig, elsku amma. Sigríður, Sunna, Bjarnveig, Lilja og Stella. Elsku amma Það var þungt og erf- itt högg sem við bræðurnir fengum þegar pabbi tilkynnti okkur það, að þú værir látin. Það tók okkur langan tíma að trúa því að þú værir farin frá okkur. Þó að þú yrðir alltaf eldri og eldri var ekki hægt að sjá það, þar sem þú varst alltaf svo hress og ung- leg. Þú varst okkur alltaf svo góð og skemmtileg amma og vildir alltaf gera okkur gott. Ailtaf þegar við komum suður til þín beiðst þú okkar með eftirvæntingu. Þegar við vorum að fara að sofa heima hjá þér komst þú alltaf og klóraðir okkur á bakinu og við fónim með faðirvorið saman. Þú passaðir alltaf upp á það, að við værum ekki svangir þegar við kom- um til þín eða þegar við fórum heim. Okkur var fagnað með pönnukökum og kvaddir með lambasteik. Við hlökkuðum mjög mikið til að koma næst suður og hjálpa ykkur að flytja í nýja húsið, sem þú varst að fara að flytja í. Okkur þykir gaman hvað þú skemmtir þér vel hérna fyrir norðan, þar sem þú hittir börnin og barna- bömin þín og skemmtir þér mjög vel á þorrablótinu með okkur. Elsku amma, við vitum að þér líðm- vel í örmum guðs. Hann passar þig og við vitum að þú passar og fylgist með okkur öllum og Þóri afa. Bræðumir, Vilhjálmur og Jóel Þór. Elsku Sigga amma mín, þú varst alltaf aðalskvísan á háu hælunum og þrönga pilsinu. Það var alltaf svo gaman þegar ég var lítil, þá var ég alltaf að máta skóna þína. Þú áttir svo mikið af skóm, allskonar skó græna, bleika og jafnvel silfurlitaða. Svo var líka svo gott að koma til þín því þú varst sannkallað 1000 stjömu hótel. Alltaf fékk maður gistingu hjá þér og nóg að borða. Það var sama hvað maður borðaði mikið þú varst alltaf að bjóða mér meir af allskonar góðgæti og alltaf þótti mér kjötsúpan jafn yndislega góð. Það var sama hvemig stóð á þú varst alltaf til með kjötsúpu. Þegar ég var yngri þá fannst mér svo gott að lúlla hjá þér og afa. Elsku amma, þú varst og verður alltaf í minningunni yndisleg og ég á eftir að sakna þín. Þín ömmustelpa, Sandra. Þegar ég kveð Siggu mína eftir 38 ára vinskap er mér efst í huga hvað hún var alltaf hress, kát og tilfinn- ingarík. Það er margt að minnast á þessum tíma og eins t.d. allra ferða- laganna sem við fóram í ásamt böm- um okkar og mökum. Af okkur sem vomm saman í spilaklúbb em þrír fallnir frá, Sigurður, Hermann og Sigga. Þegar við fómm eitt sumar í Hrafnadalinn um helgi rigndi allan tímann. Þótt ég hefði ekki verið par hrifin af veðrinu lét Sigga það ekki á sig fá og gerði gott úr öllu með sinni kímni. Það var dæmigert fyrir Siggu að sjá björtu hliðamar á öllum mál- um og lífinu yfirleitt. Hún átti miklu barnaláni að fagna og þótt því hefði fylgt mikið annríki var hún alltaf hress og hafði alltaf tíma aflögu fyrir aðra. Það er því margs að minnast eins og t.d. allra ættarmótanna á Suðureyri við Tálknafjörð og allra árshátíðanna hjá Barðstrendingafé- laginu. Við vomm t.d. stofnfélagar í Klúbb 44 fyrir 24 ámm en það er fé- lagsskapur eiginkvenna pípulagn- ingamanna. Á síðasta fundi okkar nokkmm dögum áður en hún fór í sína hinstu ferð keyrði ég hana heim. Það var í síðasta sinn sem ég sá Siggu þar sem ég kvaddi hana við heimili hennar í Kópavoginum. Þá óraði mig ekki fyrir því að þetta væri okkar síðasta samvemstund. Ég bið Guð að styrkja Þóri mág minn og börn í sorg þeirra við fráfall eigin- konu og móður. Þín vinkona Ruth. Sunnudaginn 30. janúar barst okk- ur sú sorgarfregn að Sigga vinkona okkar og samstarfskona hefði látist af slysfömm þann sama dag. Okkur setti hljóð og hugur og hjarta fylltist djúpri sorg. Kynnin við Siggu hófust í ferð með skólahljómsveit Kópavogs þar sem hún var fararstjóri ásamt undirrit- aðri, en nánari kynni hófust svo síðar KRISTBJORG SVEINSDÓTTIR + Kristbjörg Sveinsdóttir fæddist á Barðsnesi í Norðfirði 29. júlí 1922. Hún lést á Dvaiarheimilinu Víðihlíð í Grindavík 29. janúar síðastlið- inn. Heimili hennar var í Innri-Njarðvík frá 16 ára aldri. Kristbjörg var næst- yngst sjö barna hjón- anna Sveins Guð- mundssonar, frá Parti og Hundruðum í Sandvík, f. 22. sept- ember 1883, d. 10. október 1932, og Oddnýjar Halldórsdóttur frá Þuríðarstöðum í Eiðaþinghá, f. 5. september 1892, d. 16. febrúar 1976. Bróðir Kristbjargar er Sveinn, f. 8. júlí 1932, skipasmiður í Neskaupstað. Onnur systkini Kristbjargar eru öll látin, en þau vom: Guðrún Rósa, f. 5. janúar 1910, búsett í Danmörku; Guð- mundur, f. 12. mars 1912, d. 3. desember 1994, bóndi á Geirólfs- stöðum í Skriðdal; Guðbjörg Hall- dóra, f. 5. febrúar 1916, d. 14. apr- íl 1992, síðast búsett í Kópavogi; Þórarinn, f. 26. október 1917, d. 25. júlí 1996, verkstjóri í Neskaup- stað; Árni Halldór, f. 5 febrúar 1919, dó á barnsaldri. Kristbjörg giftist 6. janúar 1945 Ragnari Guðmundssyni mat- reiðslumanni frá Tjarnarkoti í Innri-Njarðvík, f. 22. júní 1920. Móðir hans hét Þóra Steindórs- dóttir, dóttir Steindórs Steindórs- sonar á Dalhúsum, landspósts. Fósturforeldrar hans voru Þor- kelína Jónsdóttir, f. 7. mars 1888, d. 11. mars 1968, og Finn- bogi Guðmundsson, Tjarnarkoti, Innri- Njarðvík, f. 1. mars d. 17. mars Kristbjörg eignaðist fimm börn: 1) Oddný Rósa, f. 26. október 1940, búsett í Reykjavík, maður hennar er Stefán Guðmundsson. Dæt- ur þeirra em Kristín og Hrönn. 2) (Stein- unn) Margrét, f. 21. júní 1943, búsett í Mosfellsbæ, maður hennar er Sigurður Hrafn Þórólfsson. Dætur þeirra era Hólmfríður Hemmert og Ragn- hildur. 3) Steinar, f. 23. maí 1944, búsettur í Sandgerði, kona hans er Hulda Kragh. Synir þeirra em Ragnar og Örvar. Sonur Huldu og uppeldissonur Steinars, Helgi Birgir, fórst af slysförum árið 1998. Steinar á tvær dætur, Freyju og Kristbjörgu, með fyrri eiginkonu sinni. Þær eru búsettar í Bandaríkjunum. 4) Þorkelína Ragnheiður, f. 20. apríl 1957, bú- sett á Akranesi, maður hennar ÓI- afur Haraldsson. Dætur þeirra eru Jórunn María og Bergrós Fríða. 5) Helga Björk, f. 6. júlí 1962, maður hennar er Sigtrygg- ur Páll Sigtryggsson. Þeirra böm em Eva Dögg, Daníel Bergmann og pjalti Freyr. Utfór Kristbjargar fer fram frá Innri-Njarðvíkurkirkju mánudag- inn 7. febrúar og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku amma. Ég minnist þín með eftirsjá og þakklæti fyrir allar góðu minningarnar. Sérstaklega þær frá því ég var barn, er ég kom í heim- sókn í gamla húsið ykkar sem var mér sem ævintýraheimur. Garður- inn, kirkjan, sjórinn og fjaran. Æ, virzt mig að þér taka, méryfirláttuvaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson) Ragnhildur. Nú legg ég augun aftur. ó, Guð, þinn náðarkraftur mínverivömínótt. þegar Sigga réðst til starfa í mötu- neytinu á Suðurlandsbraut 24. Þar kynntumst við þeirri hlýju og létt- lyndu persónu sem Sigga hafði að geyma. Jafnframt því að spyrja okk- ur alltaf hvernig okkur liði, hvort all- ir væm friskir og allt gengi ekki vel sagði hún okkur frá bömum sínum og barnabömum sem vom henni ein- staklega hugleikin. Sigga var félags- lynd kona. Hún söng með kór SFR og starfaði með Kvenfélagi Kópa- vogs, þar var Sigga vel liðin og er hennar sárt saknað. Okkur fjölskylduna langar að þakka Siggu samfylgdina jafnt í leik sem starfi, megi góður guð geyma elsku Siggu okkar. Ó.þánáðaðeigajJesú einkavin í hverri þraut Ó,þáheillaðhallamega höfði sínu í drottins skaut Ó, það slys því hnossi að hafna, hvflíkt fár á þinni braut, ef þú blindur vilt ei varpa von og sorg í drottins skaut. (Þýð. M. Joch.) Elsku Þórir, böm, tengdaböm og bamaböm, ykkur sendum við alla okkar samúð. Megi góður guð styrkja ykkur í ykkar miklu sorg. Minningin um góða konu lifir. Guðrún Tómasdóttir og fjölskylda. TU sölu Túngata 24 Fyrrum viðskiptaskrifstofa Rússlands Húsið er 636,6 fm á þremur hæðum. Tveir bíiskúrar fylgja, 27 fm og 30,6 fm. Lóð 824,2 fm. í húsinu eru nokkrar íbúðir og skrifstofur. Húsið er opið til skoðunar frá mánudeginum 7. febrúar til 11. febrúar frá kl. 16.30—18.00. Upplýsingar í síma 551 5156. * Opið í dag; sunnudag, milli kl. 12 og 15. ■B* 533 4800 Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is Hulduland Vorum að fá I sölu glæsilegt raðhús með bílsk. I Fossvogi. Fallegar stofur meö arni. Gott skipulag. Úr stofum er gengið út á verönd I grónum garði. Falleg eign á eftirsóttum stað. V. 19,2 m. 2587 Þingholtin Vorum að fá í sölu 170 fm einbýlishús í hjarta borgarinnar. Húsið er byggt fyrir aldamótin 1900 en hefur allt verið endurný- jað á afar smekklegan hátt. Á gólfum eru upprunaleg gólfborð, skrautlistar ( loftum og lofthæð mikil. Endurnýjað eldhús, baðherbergi, iagnir o.fl. Lftill afgirtur garður er við húsið. Einstök eign. 2570 Suðurmýri - Seltj. Höfum fengið f sölu glæsilegt raóhús I þessu ettirsótta hverfi á Seltjarnarnesi. Eignin selst allt aö þvl fullbúin, þ.e. án gólfefna. Mjög vandaðar innréttingar og gott skipulag. Góð eign á fallegum stað. Stutt í alla þjónustu. V. 24,0 m. 2585 Kambsvegur - glæsileg. Gullfalleg u.þ.b. 100 fm neðri sérhæð í góðu tvíbýli. Öll gólfefni eru ný, parket og fllsar. Nýtt fallegt eld- hús og nýtt baðherbergi. Þrjú stór svefnher- bergi. Stór sólverönd f fallegum garöi. Bllskúrsréttur. Áhv. 3,4 hagst. lán. Þessi fer fljótt! V. 11,5 m. 2589 Hraunteigur. Vorum að fá (sölu fallega 87 fm Ibúð á jarðhæð í þessu rólega hverfi. íbúðin skip- tist í tvö stór svefnherbergi og fallegar stofur. Eldhús og baö í ágætu ástandi. Áhv. húsbréf. og Byggingasj. V. 8,5 m. 2586 Leifsgata - útsýni Sérlega glæslleg tæplega 90 fm íbúð á 3. hæð ásamt 12,2 fm aukaherbergl I kjallara sem mætti leigja út frá sér. Vönduð gólfefni, marmaraflísar og parket. Nýleg eldhúsinnr. Útsýni til Esjunnar. Áhv. 5,0 m. I hagst. lánum. V. 10,3 m. 2470 Barmahlíð - Sérhæð og ris Vorum að fá I sölu tæplega 140 fm sérhæö og u.þ.b. 55 fm ris. Eignin er öll I útleigu fyrir kr. 225 þús. á mánuði. Áhv. 13,0 m. V. 20,0 m. 2575 Tömasarhagi - kjallari. Vorum að fá I sölu 62 fm kjallaraíbúö á þessum vinsæla staö ( vesturbænum. Eignin þarfnast standsetn- ingar. V. 6,0 m. 2590
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.