Morgunblaðið - 06.02.2000, Qupperneq 18
18 SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Körfubolti er líf
mitl og yndi
Ágúst Már að-
stoðar Pétur
ÁGÚST Már Jónsson, fyrr-
verandi landsliðsmaður og
leikmaður KR í knatt-
spymu, hefur verið ráðinn
aðstoðarmaður Péturs
Péturssonar, þjálfara KR.
Ág-úst Már mun liefja störf
með Pétri er KR-liðið fer í
æfingaferð til Hollands 22.
apríl.
Króatinn Petar Jelic,
sem þjálfaði körfu-
boltalið Tindastóls og
Hauka fyrir nokkrum
árum, býr nú í Zagreb.
Hann er þjálfari 2.
deildarliðs Bortines og
sér einnig um þjálfun
yngri flokka félagsins.
Hann rekur kaffíhús,
sem heitir Cafe Kos eða
„Körfuboltakaffíbarinn“
og er í úthverfí Zagreb.
Hann sagði í viðtali við
Val B. Jónatansson að
hann hugsaði mjög hlýtt
til íslands. Sagði hann
að Króatar stæðu ávallt
í mikilli þakkarskuld við
íslendinga eftir að þeir
voru fyrstir til að lýsa
yfír stuðningi við
sjálfstæði þjóðarinnar.
Jelic fór í háskólann í Zagreb eftir
að hann kom frá íslandi og lauk
þaðan viskiptafræðiprófi tveimur ár-
um síðar. Hann opnaði kaffihús fyrir
tveimur árum, auk þess sem hann á
stórt verslunarhúsnæði sem hann
leigir út. Hann þjálfar 2. deildarliðið
Bortines og sér einnig um þjálfun á
drengjaflokki félagsins. Hann segir
að þó svo að hann hafi nú í ríkara
mæli snúið sér að viskiptalífinu sé
hann mjög ánægður að geta stundað
þjálfun með, vegna þess að líf hans
hafi alla tíð snúist um körfubolta.
„Körfubolti er líf mitt og yndi,“ segir
hann.
Mikill íslandsvinur
Jelic er mikill íslandsvinur og
bauð hann fararstjóm íslenska hand-
boltalandsliðsins, sem tók þátt í EM
þar í landi á dögunum, í léttan kvöld-
verð á veitingastað sínum. Hann
sagðist í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins eiga marga vini á
Islandi síðan hann þjálfaði hér á
landi fyrir átta árum. Hann þjálfaði
lið Tindastóls á Sauðárkróki 1993 og
Hauka í Hafnarfirði árið eftir. „Ég er
oft í daglegu símasambandi við vini
mína á Islandi og sendi mörgum jóla-
kort. Mér er mjög hlýtt til íslendinga
og eins náttúru landsins, sem er
mjög falleg. Áður en ég fór að þjálfa
á Islandi var mér sagt að landið væri
mjög kalt og að mér myndi aldrei
líka við mig þar. Ég sagði: Ailt í lagi
og ákvað að prófa. Eftir að hafa dval-
ið á íslandi í tvö ár fékk ég allt aðra
mynd af landinu. Þar býr gott fólk og
ég fann aldrei fyrir því að landið væri
kalt.“
Gott að vera á Sauðárkróki
Hann þjálfaði Tindastól á Sauðár-
króki í eitt ár, síðan fluttist hann til
Hafnarfjarðar árið eftir og tók við
Haukum. Hann var ekki lengi í starfi
hjá Haukum því eftir nokkra mánuði
lenti hann í útistöðum við stjórn
Hauka og í framhaldi af því var
ákveðið að slíta samningum og hann
fór heim til Króatíu á miðju tímabili.
„Ég er atvinnuþjálfari og vidi
ákveðnar breytingar sem Haukar
voru ekki tilbúnir að samþykkja. Ég
var ekki sáttur við hvernig viðskiln-
aðurinn var við Hauka, en er alls
ekki að erfa neitt við Hauka og hef
fyrirgefið þeim fyrir löngu. Ég kunni
vel við mig í Hafnarfirði. Á Sauðár-
króki leið mér líka vel, bærinn er Iítill
og allir þekkja þar alla. Samfélagið
er eins og ein stór fjölskylda. Mér
líkaði að mörgu leyti betur við Sauð-
árkrók því þar var körfubolti íþrótta-
grein númer eitt, en í Hafnarfirði var
körfubolti númer þrjú eða fjögur í
bænum.“
Skortur á hávöxnum mönnum
- Hvað finnst þér um íslenskan
körfubolta?
„Ég held að íslenska landsliðið
hafi verið að bæta sig á undanförnum
árum. Sem dæmi um það má nefna
að þegar íslenska landsliðið lék við
Króata í Evrópuriðli fyrir tveimur
árum stóð íslenska liðið fullkomlega
uppi í hárinu á því króatíska í leikn-
um á í slandi. Ég vona að í sland verði
fljótlega með í annarri deild Evrópu-
keppninnar, en það er ekki raunhæft
að ætlast til að ísland sé með lið í
efstu deild í Evrópu. Það sem háir ís-
lenska landsliðinu er skortur á há-
vöxnum leikmönnum. Þið eigið frá-
bæra bakverði eins og Helga Jónas
(Guðfinnsson) og Fal (Harðarson).
Þetta eru strákar með góða tækni og
mikinn hraða. Það hafa öll lið not fyr-
ir svona stráka, ekki bara á Islandi.
Ég get líka nefnt Teit Örlygsson,
sem hefði getað styrkt hvaða lið sem
er í Evrópu hefði hann farið utan
þegar hann var yngri.“
Gefa ungu strákunum tækifæri
Hann segir að íslensk lið eigi ekki
að fá til sín erlenda leikmenn í svo
miklum mæli, alls ekki lægri leik-
menn en tveggja metra og alls ekki
neina meðaljóna. „Ég held að íslensk
lið hafi verið að fá til sín allt of marga
erlenda leikmenn sem eru í öðrum
eða þriðja styrkleikaflokki í Banda-
ríkjunum. Það er miklu nær að gefa
eigin yngri leikmönnum tækifæri og
byggja þannig upp gott lið. Það er
ekkert óeðlilegt við það að fá há-
vaxna erlenda leikmenn vegna þess
að ekki er mikið til af þeim á Islandi.
En það á ekki flytja inn einhverja
meðaljóna sem oftar en ekki minnka
í flugvélinni á leiðinni yfir hafið til Is-
lands og standa ekki undir vænting-
um. Það er hrein peningasóun."
Banna erlenda leikmenn
Hann segir að króatíska körfu-
boltasambandið hafi nú í hyggju að
banna erlenda leikmenn í króatísku
deildinni næsta tímabil. Það verði
gert vegna slæmrar reynslu af er-
lendum leikmönnum sem hafa ekki
staðið undir væntingum og hefur það
komið illa við fjárhag margra félaga.
„Ég held að það sé af hinu góða að
byggja lið upp á heimamönnum.
Yngri leikmenn fá þá tækifæri og
þeirra er framtíðin. Ef við ætlum
okkur að eignast gott landslið þurf-
um við að ala upp góða íþróttamenn
og þeir verða að fá tækifæri í félags-
liðunum, annars gefast þeir upp og
hætta. Ég held að þetta eigi líka við
um ísland."
Símskeytið frá Jóni Baldvini
Hann sagði Króata standa í mikilli
þakkarskuld við Islendinga. „Við
minnumst Islands fyrir að vera
fyrsta þjóðin til að samþykkja og
styrkja sjálfstæði Króatíu árið 1990.
Við munum aldrei gleyma símskeyt-
inu sem barst frá Jóni Baldvini
Hannibalssyni, þáverandi utanríkis-
ráherra, þar sem hann lýsti yfir
stuðningi Islands við sjálfstæði okk-
ar. Skeytið var lesið upp í útvai'pinu
og það fékk mörg gleðitárin til að
renna niður kinnamar. Island og Is-
lendingar munu því ávallt eiga sér-
stakan heiðurssess í sögu okkar,“
sagði Jelic.
Aftur Wallau
Massenheim
ÞÝSKA handknattleiksliðið
Wallau Frankfurt sem
breytti um nafn síðasta
tímabil - mun aftur heita
sinu gamla nafni; Wallu
Massenheim, næsta tímabil.
Þetta tilkynnti einn af
stofnendum og eigandi
félagsins Bodo Strömann
sem nú kemur á ný til starfa
eftir árs veikindahlé. Hann
segir að það að binda nafnið
við Frankfurt hafi engu
skilað og því muni félagið
aftur taka upp sitt gamla
nafn. Þá tilkynnti Strömann
að framtíð félagsins væri
trygg því nýir styrktaraðil-
ar kæmu nú til liðs við Wall-
au næsta tímabil og myndu
umsetningur liðsins aukast
úr 120 inilljónum í 170
næstu ár. „Við ætlum okkur
á þremur árum að komast í
heimsklassa á ný,“ sagði
Strömann.
^ Morgunblaðið/Ásdís
Króatískir Islandsvinir
KRÓATINN Petar Jelic, sem þjálfaði lið í körfubolta hér á landi fyrir nokkrum árum og eiginkona hans, Zlatica, eru miklir íslandsvin-
ir. Hann hefur nú opnað kaffihús í úthverfi Zagreb jafnframt því að þjálfa lið í króatísku 2. deildinni.