Morgunblaðið - 06.02.2000, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2000 25
LISTIR
Rósa frænka á
N orðurlandi
STOPPLEIKHÓPURINN er að leggja upp í
leikferð um Norðurland eystra með leikritið
Rósu frænku en hópurinn mun á næstunni
sýna þrjú verk í grunnskólum og kirkjum
landsins.
Rósa frænka er eftir Valgeir Skagfjörð og
fjallar um auglýsingagerðarmanninn Baldur
og Rósu frænku pistiahöfund og hjúkrunar-
fræðing. Þau hittast á kaffihúsi og taka tal
saman, meðal annars um kynfræðslu fyrir
unglinga.Leikendur eru Eggert Kaaber og
Katrín Þorkelsdóttir en leikstjóri Jón Stefán
Kristjánsson.
Sýningar nyrðra verða sem hér segir:
Mánudag 7. febrúar: Brekkuskóla á Akureyri
kl. 8.45. 10 og 11.15. Þriðjudag 8. febrúar:
Síðuskóla á Akureyri kl. 9.40 og 11.15. Gler-
árskóla á Akureyri kl. 13.10. Miðvikudag 9.
febrúar: Svalbarðseyri kl. 9, Ólafsfirði kl. 12,
Dalvík kl. 14. Fimmtudagur 10. febrúar: Húsa-
vík kl. 9.30, Hafralækjarskóla kl. 11.30.
Sýningar á Rósu frænku eru alls orðnar um
eitt hundrað. Þeim fer nú að ljúka.
Ósýnilegi vinurinn
og Á-kafi
Á næstunni hyggst Stoppleikhópurinn taka
upp að nýju sýningar á leikritinu Á-kafi eftir
Morgunblaðið/Golli
Eggert Kaaber og Katrín Þorkelsdóttir í
hlutverkum sínum í Rósu frænku.
Valgeir Skagfjörð en það var
frumsýnt fyrir tveimur árum.
Leikritið fjallar á kaldhæðnislegan
hátt um tóbaksreykingar unglinga
og fullorðinna og verður nú boðið
nýjum árgöngum skólanna. Leik-
endur eru Eggert Kaaber og Katrín
Þorkelsdóttir en lcikstjóri er Val-
geir Skagfjörð
Þá mun Stoppleikhópurinn sýna
barnaleikritið ðsýnilegi vinurinn í
leikskólum og kirkjum landsins á
næstunni.
Sýningin er ætluð börnum á aldr-
inum 1-8 ára. Leikgerðin, sem er
eftir Eggert Kaaber, er byggð á
bók eftir Kari Vinje og Vivian Zahl
Olsen. Fjallar verkið um kynni og
vináttu tveggja krakka. Tónlist
samdi Valgeir Skagfjörð en leikend-
ur eru Eggert Kaaber og Katrín
Þorkelsdóttir.
Kristbjörg
Kjeld
Listaklúbbur
Leikhúskjallarans
„Þar sem
égsit
og sé“
í LISTAKLÚBBI LeikhúskjaOarans
verða pólsk ljóð og tónlist í öndvegi á
mánudagskvöldið næsta, hinn 7. febr-
úar.
Leikaramir
Hjalti Rögnvalds-
son, Halla Mar-
grét Jóhannes-
dóttir og
Kristbjörg Kjeld
flytja Ijóðin og
Anna Guðný Guð-
mundsdóttir
píanóleikari og
Sigurður I.
Snorrason klarin-
ettuleikari leika
pólska nútíma-
tónlist.
Ljóðin eru öll
þýðingar Geir-
laugs Magnússon-
ar, annars vegar
úr ljóðabókinni
Úr andófinu sem
kom út 1993 og
hefur að geyma
ljóð 12 pólskra
skálda. Hins vegar er um að ræða Ijóð
úr ljóðabókinni Endir og upphaf eftir
skáldkonuna Wislawa Szymborska
sem hún hlaut Nóbelsverðlaunin fyiir
1996. Þær Kristbjörg og Halla Mar-
grét munu flytja öll ljóð bókarinnar,
18 talsins.
Auk þeirra mun pólski málfræðing-
urinn Stanislaw Jan Bartoszek flytja
nokkur ljóð á frummálinu, en hann er
búsettur hér á landi og er formaður
vináttufélags íslands og Póllands.
Umsjón með þessari dagskrá hefur
Hjalti Rögnvaldsson og sagði hann að
báðar ljóðabækumar yrðu til sölu „...
á viðráðanlegu verði fyrir ijóðelskt al-
þýðufólk.“
Hjalti
Rögnvaldsson
M-2000
Sunnudagur
íslensk kammertónlist frá
fyrri hluta aldarinnar
Tónleikar á vegum Tón-
skáldafélags íslands í Ými -
tónlistarhúsi Karlakórs
Reykjavíkur. Ýmsir flytjendur
leika íslenska tónlist frá 20. öld,
m.a. eftir Jón Leifs, Pál Isólfs-
son, Arna Björnsson, Jón Þór-
arinsson og fleiri tónskáld.
Tónleikarnir hefjast kl. 16:00.
Vefslóð www.listir.is
Islenska einsöngslagið
í Gerðubergi verður sungin
og leikin tónlist eftir tónskáldið
Sveinbjöm Sveinbjörnsson.
Flytjendur em Bergþór Páls-
son, Signý Sæmundsdóttir og
Jónas Ingimundarson. Tónleik-
arnir hefjast kl. 20:00. Vefslóð
www.rvk.is/gerduberg.
Gjald fyrir forfallatryggingu
er 602 kr. Farþegi, sem verður
af gildum ástæðum að hætta
við fyrirhugaða ferð til Italíu,
fær allt fargjaldið endurgreitt
hjá Flugleiðum.
Engin þjónustugjöld.
Flogið á þriðjudögum, 11. júlí—19. sept. og laugardögum
27. maí—19. sept. og einnig á miðvikudögum frá 12. júlí—19. sept.
Sannkölluð gullnáma fyrir ferðamenn
Mflanó er töfrandi staður, háborg tískunnar, höfiiðstaður matargerðarlistar og
lífsnautnar og víðfrægt menningarsetur.
Feneyjar og sólarstrendur við Adríahaf
í Mílanó er tilvalið að taka bílaleigubíl og aka niður Pódal, heimsækja Feneyjar eða
Bologna og njóta lífsins í vinsælum sólarstrandarbæjum við Adríahaf eins og Rimini.
ítölsku Alparnir og stöðuvötnin fimm
Frá Mílanó er stutt að aka að rótum ítölsku Alpanna. Einstök náttúrufegurð við
stöðuvötnin fimm, Maggiore, Lugano, Como, Iseo og Garda.
Sólarstrandarbæir við Genúuflóa
Beint í suður frá Mílanó bíða heillandi sólarstrendur í grennd við Genúu.
Ferðatímabil er frá 27. maí tál 19. sept.
Lágmarksdvöl er 7 dagar; hámarksdvöl eru 3 mánuðir.
Börn, 2ja—11 ára, fa 25% afslátt.
Börgn, yngri en 2ja ára, greiða 10% af fargjaldi.
Hafið samband við söluskrifstofur okkar
eða pantið strax á vefnum: www.icelandair.is
* Innifalið: Ftug báðar
leiðir og jiugmllarskattar.
Flugleiðir auglýsa verðið,
sem neytandinn greiðir,
fargjald báðar leiðir með
Jlugvallar sköttum.
fSliNSKA AUClfSINCASTOFAN EHF./SlA.IS