Morgunblaðið - 06.02.2000, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 06.02.2000, Blaðsíða 42
MORGUNBLAÐIÐ 42 SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2000 i r... ............ MINNINGAR t Við þökkum innilega þá samúð, hlýhug og vináttu, sem okkur hefur verið sýnd við andlát og útför ástkærs eiginmanns, sonar, föður okkar, tengdaföður og afa, ÞÓRIS SÍMONAR MATTHÍASSONAR, Fljótaseli 5, Reykjavík. Sérstakar þakkirtil starfsfólks á Krabbameins- deild Landspítalans. Olga Viktoría M. Sigurðardóttir, Cecilia Heinesen, Cecilia Ingibjörg Þórisdóttir, Helgi Már Hannesson, Kristjana Margrét Þórisdóttir, Daouda Mbaye, Matthías Karl Þórisson, Alda María Helgadóttir. t Hjartans þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vináttu vegna andláts og útfarar okkar kæru móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓNÍNU SIGMUNDSDÓTTUR, dvalarheimilinu Hlíð, áður Eyrarvegi 35, Akureyri. Vignir Einarsson, Aðalbjörg Ingvarsdóttir, Kristín Sigurlaug Einarsdóttir, (var Sigmundsson, Þormóður Jón Einarsson, Elínborg Árnadóttir, Sigmundur Rafn Einarsson, Guðbjörg Inga Jósefsdóttir, Jóhann Árelíuz Einarsson, Kerstin Venables, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir til þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför sambýlismanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, EIRÍKS KR. EYVINDSSONAR frá Laugarvatni, Hraunbæ 103, Reykjavík. Svala Konráðsdóttir, Eyvindur Eiríksson, Hlöðver Örn Ólason, Janne Eiriksson Larsen, barnabörn og barnabarnabarn. r. + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, FREYJU EIRÍKSDÓTTUR, Engimýri 2, Akureyri. Viðar Garðarsson, Sonja Garðarsson, Ása Bryndís Garðarsdóttir, Árni Ingi Garðarsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu, sem okkur hefur verið sýnd við andlát og útför ástkærrar móður okkar og tengdamóður, SIGRÍÐAR SVEINSDÓTTUR, Njálsgötu 82, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknar- deildar Landspítalans í Kópavogi. Hjalti J. Guðmundsson, Paula H. Guðmundsson, Jóhanna Margrét Guðmundsdóttir. Lokað Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra í Reykjavík verður lokuð frá kl. 13:00 mánudaainn 7. febrúar vegna útfarar SIGRÍÐAR ANDRÉSDÓTTUR. Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra í Reykjavík. SIGRÍÐUR ANDRÉSDÓTTIR + Sigríður Andrés- dóttir fæddist á Hamri í Múlasveit í Austur-Barðastrand- arsýslu 22. febrúar 1929. Hún Iést af slysförum 30. janúar síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Guð- ný Gestsdóttir, f. 12. ágúst 1895, d. 9. apríl 1987, og Andrés Gíslason, f. 21. apríl 1888, d. 5. mars 1976. Sigríður var níunda í röðinni af fimmtán systkina hópi. Elstur Haukur Breiðfjörð, f. 23. ágúst 1919; Gísli, f. 22. september, d. 21. febrúar 1945; Guðbjartur Gestur, f. 22. janúar 1922; Sigurbergur, f. 4. febrúar 1923, d. 12. febrúar 1989; Kristín, f. 11. maí 1924; Andrés Berglín, f. 28. júní 1925; Guðrún Jó- hanna, f. 3. janúar 1927; Páll Straumberg, f. 29. janúar 1928; Bjarni Kristinn, f. 3. mars 1930; Jón, f. 26. mars 1931; Ingibjörg Sig- urhildur, f. 27. apríl 1932, d. 12. ágúst 1943; Eggert, f. 17. ágúst 1933; Garðar, f. 20. mars 1935 og Björg, f. 23. janúar 1937. Sigríður var í sam- búð með Kolbeini Guð- jónssyni. Þau slitu samvistir. Þeirra böm em: Gestný Kolbrún, f. 11. september 1955, gift Böðvari Emi Sig- urjónssyni, og Sigur- gísli Ellert, f. 15. nóv- ember 1957, kvæntur Ólöfu Jósepsdóttur. Böm Gestnýjar og Böðvars Arnar eru: Katrín Ólöf, f. 19. nóv- ember 1980, og Siguijón Öm, f. 16. júní 1986. Börn Sigurgísla og Ólaf- ar em: Sindri Freyr, f. 12. nóvem- ber 1980, og Sara Björk, f. 16. októ- ber 1987. Árið 1962 giftist Sigríður eftir- lifandi eiginmanni sínum, Þóri Kri- stjáni Bjamasyni, pípulagninga- meistara, f. 10. ágúst 1930. Þeirra börn em: Þórdís Sif, f. 1. febrúar 1962, í sambúð með Árna Egilssyni; Bjarni Kristinn, f. 6. nóvember 1963, kvæntur Ingibjörgu Sól- veigu; Alma, f. 9. október 1964, í sambúð með Olgeiri Karli Ólafs- syni; Anna Sigurbjörg, f. 19. mars 1968; Jón Þórir, f. 21. nóvember 1969, í sambúð með Valgerði Mar- gréti Gunnarsdóttur. Helgi Róbert, f. 15. júní 1974. Börn Þórdísar og Árna eru: Vilhjálmur, f. 29. október 1983 og Jóel Þór, f. 29. aprd 1988. Börn Bjarna og Ingibjargar eru: Sigrfður Ósk, f. 29. janúar 1990, Sunna Dís, f. 1. ágúst 1991, Bjarn- veig Rós, f. 27. apríl 1993, Lilja Dóra, f. 18. janúar 1996 og Stella Dröfh, f. 1. júlí 1997. Böm Ölmu og Olgeirs eru: Sigurbjörg Sandra, f. 19. október 1986, Ægir, f. 18. nóv- ember 1989, og Þórir Kristinn, f. 8. janúar 1998. Börn Ömiu Sigur- bjargar og Halls Símonarsonar, en þau slitu samvistir em; Tinna Lind, f. 26. október 1990, og Embla Sig- urást, f. 30.janúar 1993. Fóstur- böm Jóns Þóris, böm Valgerðar Margrétar em: Atli Hrannar, Daní- el Geir, og Ásdís Helga. Sigríður lauk almennri grunn- menntun í sinni sveit. Hún var Iengst af húsmóðir, en síðustu tvo áratugi starfaði hún utan heimilis, síðustu árin í mötuneyti Lands- bankans á Suðurlandsbraut 24. TJtför Sigríðar fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 7. febrúar, og hefst athöfnin klukkan 13.30. Ó, Drottinn, þú gjörðir oss svo smi Ævi vor líður hjá eins og saga væri sögð. Hjálpa oss til að muna, að handan við fáa ævidaga vora bíður eilífð kærleika þíns. (Reinhold Niebuh.r) Elskuleg móðir mín og amma okk- ar. Þegar við hugsum um þig finnum við hlýju þína í hjarta okkar. Þú varst svo dugleg að sá í líf okkar kærleika þínum og sá kærleiki mun ríkja í okk- ur, sem þekktum þig. Þú varst alltaf til staðar þegar við þurftum á þér að halda, án þess að ætlast til einhvers til baka. Iðulega þegar við hittumst gafstu okkur gott veganesti bæði fyrir líkama og sál, bestu pönnukökurnar fengum við hjá þér og alltaf stakkstu einhverju góð- gæti að okkur þegar við kvöddumst. Þrátt fyrir allan þann fjölda sem í kringum þig var áttum við það sam- eiginlegt að finna okkur sem heima, hjá þér. Sjálfsagt hefur margt farið í gegnum huga þinn á lífsleiðinni sem þú lagðir ekki á aðra að bera, maður gerði sér oft ekki grein fyrir að mömmu gæti liðið illa því það var alltaf svo létt yfir þér, þú varst svo áhyggjulaus og tókst lífinu eins og það kom fyrir. Við erum þakklátar fyrir þann tíma sem við fengum að hafa þig því það er svo margt sem við lærðum af þér, elsku mamma, elsku amma. Það verður erfitt að vera án þín, söknuðurinn er mikill en með Guðs náð og styrk og þeirri vitneskju að þú ert hjá honum munum við halda lífinu áfram eins og þú hefðir óskað. Við kveðjum þig með sömu orðum og þú notaðir þegar þú kvadd- ir okkur, Guð veri með þér. Drottinn styrki þig, elsku pabbi, afi, og okkur öll sem eigum um sárt að binda. Leið oss, algóði Drottinn, og ráð í oss með anda þínum, svo að vér megum lifa í slíkri einingu með þér hér, að eigi verði sundurs- kilinn þegar þér þóknast að kalla oss héð- an, heldur megum vér ganga samferða inn til dýrðar þinnar fyrir Jesú Krist, vom blessaða Drottin og frelsara. (JohnWesley.) Þín dóttir og ömmustelpur, Anna, Tinna Lind og Embla Sigurást. Það er skammt milli lifs og dauða, og milli gleði og sorgar. Alltaf erum við minnt á þetta reglulega í fréttum fjölmiðla, og vitum þetta af reynslu okkar af lífinu. Dauðinn er alltaf yfir- vofandi og hremmir okkur öll ein- hvem tíma. Við veitum þessu sem betur fer ekki mikla athygli, fyrr en höggvið er skyndilega og óvægið í vina- og ættingjahópinn. Glöð og ánægð óku tengdaforeldrar mínir, Þórir og Sigga, suður á leið eftir vel- heppnaða skemmtiför til bama sinna þriggja og fjölskyldna þeirra í Skagafirði. Þau höfðu skemmt sér vel á þorrablóti, og tekið þátt í af- mæh sonardóttur, og notið samvista við ástvini sína. Við heyrðum í þeim í síma í Austur-Húnvatnssýslu, ferðin gekk vel. En í einni svipan var gleðin orðin að sorg. Hræðilegt slys hafði orðið. Sigga, mín kæra tengdamóðir, var dáin. En það er huggun harmi gegn að tengdafaðir minn bjargaðist úr helju ómeiddur, og verður það að teljast kraftaverk miðað við allar að- stæður. Sigga er alin upp í stórum syst- kinahópi í sveit vestur á fjörðum. Hún mat sveitina sína mikils, og tal- aði alltaf af virðingu um foreldra sína, systkin og uppvaxtarárin á Hamri. Hún ólst upp í fátækt, en kærleikur var ríkur þáttur í uppeld- inu. Sigga naut þess mjög á síðustu áram að fara í heimsóknir að Hamri, tína ber, kanna fjörana, og rifja upp minningarnar frá því að sveitinn hennar iðaði af mannlífi. Það urðu tengdamóður minni að sama skapi mikil vonbrigði að upplifa það fyrir nokkrum árum að fjölskyldan þurfti að afsala sér æskuheimilinu vegna þess að jörðin hafði verið gefin kirkju sveitarinnar fyrir nærri eitt hundrað árum. Það eru nær þrjátíu ár síðan ég kynntist Siggu fyrst. Ég minnist þess hve hún var góð við okkur unglingana og umgekkst okk- ur á jafnréttisgrandvelli. Hún var glaðlynd, stutt í hláturinn og grínið, og alltaf hrókur alls fagnaðar á mannamótum. Þegar kynnin urðu nánari varð mér ljóst hve góð mann- eskja tengdamóðir mín var. Ekki aðeins við fólk almennt heldur dýrin í kringum hana. Ég minnist þess sérstaklega, þegar hún hrellti ná- granna sína í Holtagerðinu með því að gefa útigangandi köttum mat. Einnig leitaði einstaka máfur í mat- inn líka, og þeir vora velkomnir líka. Allir voru velkomnir á heimili Sig- ríðar og í faðm hennar. Hún var húsmóðir allrar fjölskyldunnar. Öll barnabörnin leituðu strax í fangið hennar. Hún gældi við þau eða huggaði. Sigga elskaði alla, og leit- aði að því góða í fólki. Ég er viss um að hún átti aldrei neina óvini. Ég sakna minnar góðu tengda- móður. Minningarnar um hana munu hugga vini hennar og ættingja. Það er til hafsjór góðra minninga. Megi almættið styrkja Þóri og börnin hennar í þeirra sorg. Ég vil drúpa höfði í lotningu fyrir Siggu og þakka henrú fyrir frábær kynni og samverana á lífsins braut. Böðvar Örn. Það er svo margs að minnast þeg- ar maður hugsar til baka. Allar minn- ingarnar sem við höfum að geyma verða svo dýrmætar. Hún Sigga amma okkar var nú engri lík. Við hugsum oft um það núna hve óskaplega heppin við voram að fá að hafa þau ömmu og afa í þessa sex mánuði, sem þau bjuggu hjá okkur. Það var svolítið undarlegt fyrst þeg- ar þau komu, að amma og afi skyldu alltaf vera hér, en þegar líða tók á tímann var maður óneitanlega farin að leiða hugann að því hvernig það yrði þegar þau færu frá okkur. Þau áttu að fá nýju íbúðina sína afhenta núna í febrúar. Nú er hún amma farin og söknuð- urinn er mikill. Það var svo margt sem við gerðum með ömmu. Hún var alltaf til í að bregða á leik, baka pönnukökur, strjúka manni á bakinu og nudda tærnar. Hún hugsaði svo vel um okkur og fylgdist með því sem við voru að gera í hinu daglega lífi af heilum hug. Maður var varla komin inn úr dyranum þegar hún spurði „Ertu búin að borða, elskan mín?“ Þegar við voram að faraspurði hún alltaf hvert við væram að fara. Við voram stundum að fíflast með það að amma væri alltaf að hafa áhyggjur af okkur, t.d. hvort við væram svöng, en samt sá maður hana svo sjaldan setj- ast niður og borða með okkur öllum. Þá veltum við því svona fyrir okkur, hvort ömmur þyrftu ekkert að borða. Sigga amma var svo ungleg og frísk.Við leiddum aldrei hugann að því að hún myndi kveðja okkur svo snögglega. Það verður tómlegt í vor, þegar líða fer að fermingu og stúd- entsútskrift og Sigga amma verður ekki viðstödd þessa viðburði í lífi okkar á þann hátt er við helst vildum, þó að við vitum með vissu að hún fylgist með okkur. Við systkinin munum alltaf minnast ömmu. Hún verður hress og kát í minningunni og hjálpsöm eins og hún var ætíð í lif- anda lífi. Við söknum hennar sárt. Katrín Ólöf og Sigurjón Örn. Elsku Sigga amma, það er erfitt að trúa því að þú sért farin frá okkur og það svona snöggt. Ég hefði ekki trúað því, þegar ég kyssti þig bless á sunnudaginn, að það yrði síðasta sinn sem við hittumst. Samt muntu alltaf búa í hjarta okkar allra sem elskuð- um þig svo heitt. Þú sem alltaf varst svo hress og skemmtileg amma. Það var alltaf jafn mikil tilhlökkun að koma til þín og afa og fá heita og góða kjötsúpu og þínar bestu pönnukökur. Þú gafst þér alltaf tíma til að spjalla við okkur krakkana og það var svo gott að kúra í fanginu á þér. Ég man svo vel þegar við fóram í einn veiði- túrinn, þá fóram við upp í móa og tíndum heilu föturnar fullar af berj- um. Þú varst til í að fara í alls konar leiki með okkur krökkunum og alltaf varstu jafn hress. Ég þakka þér fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman í sveitinni, sem þér þótti svo vænt um, þar sem þér leið svo vel og hver klettur og hver hóll hét ákveðnu nafni. Þar tíndum við upp í okkur stærstu og bestu aðalbláber sem til era. Við öll hlökkuðum svo til eftir tvær vikur þegar við ætluðum að hjálpa ykkur afa að flytja í nýju fal-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.