Morgunblaðið - 06.02.2000, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fyrirlestur um megin-
strauma í kínverskri hugsun
SENDIHERRA Kína á íslandi,
Wang Ronghua, flytur fjTÍrlestur
þriðjudaginn 8. febrúar kl. 17 á veg-
um rektors Háskóla íslands. Fyrir-
lesturinn verður í stofu 101 í Odda
og mun fjalla um þrjá megin-
strauma í kínverskri hugsun og já-
kvæð samfélagsleg áhrif þeirra
fram á þennan dag. Fyrirlesturinn
er öllum opinn og verður fluttur á
ensku.
Wang Ronghua var skipaður
sendiherra Kína á íslandi í mars
1998. Hann hefur starfað í kín-
versku utanríkisþjónustunni frá ár-
inu 1973, en hefur auk þess fengist
við skriftir og þýðingar skáldverka
og ævisagna á kínversku.
I kynningu á efni fyrirlestrarins
segir: „Með auknum samskiptum
Kína og umheimsins á seinni árum
hefur gagnkvæmur ókunnugleiki
fólks af ólíkum menningarheimum
að vonum gert vart við sig.
Markmiðið með erindinu er að
draga úr slíkum ókunnugleika og
margvíslegum misskilningi sem
hann getur haft í för með sér, með
því að gera grein fyrir þremur meg-
instraumum sem mjög hafa mótað
kínverska hugsun öld fram af öld:
Samspil manns og æðri máttar-
valda, almenningur sem hornsteinn
þjóðfélagsins og að skyldugt sé að
bera almannahag fyrir brjósti.
Samspil manns og máttarvalda
tekur m.a. til heimspekinnar um yin
og yang og þess stefnumarks taó-
ismans að starfa án strits. Undir
liðnum almenningur sem hornsteinn
þjóðfélagsins er lykilhugtaki Kon-
fúsíusar og Mensíusar um góðvild
gerð skil, bæði góðvild manna á milli
og einnig þehTÍ góðvild sem yfir-
völdum ber að sýna þegnunum. Sú
skylda að bera almannahag fyrir
brjósti kemur m.a. fram í því að
manni beri að rækta sjálfan sig til að
létta undir með öðrum, og setja sér
skýr markmið í lífinu en sniðganga
frægð og óhóf.
Pá er til skila haldið þeirri miklu
áherslu sem Kínverjar hafa ætíð
lagt á menntun og mannbætandi
áhrif hennar. Framangreindir meg-
instraumar hafa öldum saman haft
jákvæðu hlutverki að gegna í samfé-
lagslegu tilliti og eiga sér enn
traustan sess í hugsunarhætti Kín-
verja.“
Ný umhverfísvísitala kynnt
Island í öðru sæti
NY vísitala stöðu umhverfismála og
sjálfbærrar þróunar var kynnt á
World Economic Forum-fundinum í
Davos í Sviss í þessari viku. Þar lend-
ir Island í öðru sæti á lista yfir þau
lönd sem standa best í umhverfis-
málum og auðlindanýtingu.
Vísitalan er nefnd „Environmental
Sustainability Index“ og byggist á 64
mælikvörðum sem taka til umhverf-
isástands, álags á umhverfið, áhrifa
umhverfisþátta á þjóðfélagið, stjórn-
kerfis umhverfismála og þátttöku á
alþjóðavettvangi. Vísitalan er unnin í
samvinnu þriggja aðila, Yale- og Col-
umbia-háskóla í Bandaríkjunum og
samtakanna Global Leaders for To-
morrow. Nokkuð hefur verið fjallað
um vísitöluna í erlendum fjölmiðlum
m.a. í vikublaðinu The Economist.
Vísitalan er á þróunarstigi og
gagnasöfnun stendur enn yfir. Það
vekur athygli að mikil samsvörun er
milli umhverfisvísitölunnar og vísi-
tölu sem þróuð hefur verið til að
mæla samkeppnishæfni þjóða. Þær
þjóðir sem teljast hæfastar í sam-
keppni koma einnig best út í um-
hverfismálum. Þetta undirstrikar
það, að skynsamleg umhverfisstefna,
stöðugleiki og jákvæð efnahagsþró-
un fara vel saman. Samkvæmt vísi-
tölunni lendir Noregur í fyrsta sæti
og Sviss í því þriðja. Þar á eftir koma
Finnland, Svíþjóð, Nýja Sjáland og
Kanada. Danmörk lendir í 11. sæti,
Holland í 13. sæti, Þýskaland í 15.
sæti og Bandaríkin í því 16. Þróunar-
ríkin koma almennt verr út úr þess-
um samanburði.
Leiðrétt
Rangt nafn
í Morgunblaðinu í gær á bls. 16
þar sem fjallað var um löggæslu á
Suðurnesjum var rangt farið með
nafn Guðmundar Guðjónssonar yfir-
lögregluþjóns í myndatexta en hann
var sagður heita Gísli. Guðmundur
var fulltrúi ííkislögreglustjóra á
fundinum. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
Til sölu á Djúpavogi
Einbýlishús og verslun
Til sðlu þetta glæsilega einbýlishús á Steinum 9 og verslunin B-H búðin.
Húsið er um 230 fm með innb. bílsk.,
skemmtil. hannað og með vönduðum
innr. Húsið tekið í gegn 1996. Hægt er að
skipta húsinu í 2 íbúðir, sérinng. á hvorri
hæð. Stór garður með sólpalli. Fallegt
útsýni. Verð 9,8 millj.
Verslunin var stofnuð árið 1983 og hefur
verið rekin af sömu eigendum frá upphafi.
Mjög góð viðskiptavild og öruggur rekst-
ur. Engin sambærileg verslun í nágrenn-
inu. Býður upp á mikla möguleika.
Upplýsingar í sfmum 478 8976 og 893 8976.
Sérhæfð fasteigna-
sala fyrir atuinnu-
og skrifstofu-
húsnæði
STÓREIBN
FASTEIB NASALA
Austurstræti 18 sími 55 - 1 2345
Arnar Sölvason,
sölumaður,
Jón G. Sandholt,
sölumaður,
Gunnar Jóh. Birgisson hrl.,
löggildur fasteignasali,
Sigurbjörn Magnússon hrl.,
löggildur fasteignasali.
Suðurhraun 4, Garðabæ
Þetta glæsilega atvinnuhúsnæði, sem verður að hluta til nýbyggt
og að hluta til endurbyggt, er til sölu í heilu lagi eða smærri
einingum. Heildarflatarmál eignarinnar er ca 1.500 fm. Hægt er
að kaupa eignina í minni einingum eða alit frá ca 150 fm og upp í
ca 300 fm. Mjög góð iofthæð, þ.e. frá 4 metrum og upp í 8
metra. Teikningar og allar nánari uppiýsingar veittar á skrifstofu
okkar.
SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2000 4^
Alltaf rífandi sala!
Galtalind 13
Kópavogi
Opið hús
f dag, sunnudag,
milli kl. 14 og 16
Sérlega glæsileg 4 herb. endaíbúð, samt. ca 106 fm, á 3. h. á
þessum vinsæla stað. 3 góð svefnherb. Fallegar kirsuberjainn-
réttingar með halogen lýsingu. Spennandi eign sem þú verður
að skoða! Verð 13,2 millj.
Auður og Þorkell taka vel á móti þér og þínum.
Láttu sjá þig!
________________________________________________________________
Opið hús - Opið hús
Opin hús verða í dag fyrir áhugasama
kaupendur frá kl. 14-16.
Kambsvegur 17.
Glæsileg algjörlega endurnýjuð 100 fm
neðri sérhæð f góðu hverfi. 3 svefnherb.
Allt nýlegt, þ.e. gólfefni, innréttingar og
tæki. V. 11,5 m. Áhv. 3,7 m. 6060.
Sigurður og Guðbjörg taka á móti gest-
um frá kl 14-16 í dag.
Blönduhlíð 20 - björt 3ja - 4ra herb. risíb.
Glæsil. 3ja - 4ra herb. íb. í risi í fallegu
húsi. íb. er mikið endurnýjuð og öll í
toppst. Rúmg. stofa. Tvö svefnherb. og
lítið vinnuherb. Parket. Rúmgóð stofa.
Gott geymsluris. V. 9,5 m. Áhv. 5,6 m.
7100. Birgir tekur á móti gestum frá kl.
14-16 í dag.
Álagrandi 25.
Glæsileg 110 fm íb. á 1 hæð í glæsil. litlu
4ra íbúða húsi á fráb. stað í vesturbæ. 3
svefnherb., listar í loftum, hlýleg íbúð með
sérgarði og mögul. á sólstofu. Eign í sérfl.
V. 12,5 m. Áhv. 6,0 m. 2011.
Haraldur og Helga taka á móti gestum í
dag frá kl. 14-16 í dag.
i
Valhöll, fasteignasala,
opið í dag kl. 12-14,
sími 588 4477.
Sibumúta 11,2. hæö • 108 Reykjavík
Sími: 575 8500 • Fax: 575 8505
Veffang: www.fastmidl.is
Netfang: sverrir@fastmidl.is
Einbýlishús
BÚAGRUND - KJALARNES
134 fm einbýlishús á einni hæö ásamt 38 fm
innbyggðum bílskúr. íbúðin er m.a. stofa og
borðstofa, 4 svefnherb., mjög rúmgott eld-
hús, rúmgott baðherb. o.fl. Áhv. 5,7 m. byg-
gsj. Verð 14,9 m.
KJALARNES 141 fm einbýlishús
á einni hæð ásamt 40 fm bílskúr.
Stofa og boröstofa meö kamínu, 4
sv.herb., flísalagt rúmgott baðherb.,
rúmgott eldhús. Verönd. Parket og
flísar á gólfum. Áhv. 6,4 m. húsbréf
og bygg.sj. Verö 15 m.
Rabhús-Parhús |
4ra herbergja |
GRAFARVOGUR 4ra herb. íbúð
102,7 fm í lyftublokk í Grafarvogi,
gólfefni aðallega parket og flísar.
Góðar innréttingar.
3ja herberqja |
Laugavegur Sjarmerandi 3 her-
bergja útsýnisíbúð við Laugaveg.
Björt íbúð ( mikið endurnýuðu húsi.
94 fm. Áhv. 4,0 m. V. 8,9 m.
2ja herbergja |
NJÁLSGATA Ósamþykkt 41 fm
kjallaraibúð. Flisar á öllum gólfum.
Nýtt þak og gluggar. (búðin er laus.
Verð 4,1 m.
LINDARBYGGÐ-MOSF.
Glæsilegt 164 fm parhús ásamt 22
fm bllskúr ( fallegu umhverfi í Mosf.
Vandaðar innróttingar og gólfefni.
Verð 16,3 m.
HVERFISGATA 2ja herb. íbúð á
2. hæð ( fjölbýli. Inngangur frá
Frakkastlg.
V
OKKUR VANTAR ALLAR STÆRÐIR
OG GERÐIR ÍBÚÐA OG HÚSA Á
SÖLUSKRÁ
t