Morgunblaðið - 20.02.2000, Page 1

Morgunblaðið - 20.02.2000, Page 1
43. TBL. 88. ÁRG. SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Lj ósmy nd/Thomas Ehvorzak Daglegt líf í skugga eyðileggingar Mubarak í Líbanon Beirút. AP, AFP. HOSNI Mubarak, forseti Egypta- lands, ræddi við Emile Lahoud, for- seta Líbanons, á laugardag um aukna spennu milli skæruliða Hizbollah og ísraela í Suður-Líban- on. Ekki hafði verið tilkynnt um heim- sókn Mubaraks, en forseti Egypta- lands hefur ekki heimsótt Líbanon frá því landið hlaut sjálfstæði 1943. Líbanon nýtur töluverðrar samúðar Egypta í kjölfar loftárása Israela fyrr í mánuðinum og sagði Issam Naaman, ráðherra samskiptamála, heimsóknina til vitnis um stuðning Egypta. -------------— Nýrri stjórn mótmælt BÚIST var við að allt að 250.000 manns tækju þátt í fjölmennum mót- mælum gegn þátttöku Frelsisflokks Jörgs Haiders í nýrri ríkisstjórn Austurríkis á Heldenplatz í Vín í gær. Um 700 lögreglumenn voru í við- bragðsstöðu vegna mótmælanna, en það var á Heldenplatz sem Hitler til- kynnti innlimun Austurríkis á sínum tíma. NOKKRIR íbúar höfuðborgar Tsjetsjníu, Grosní, sjást hér þiggja heita súpu í Staropromishlovsky, einu hverfa borgarinnar, þegar Ijósmyndarinn Thomas Dworzak var þar á ferð fyrr í mánuðinum. Mikil eyðilegging blasir við í Grosnf eftir átök undanfarinna mánaða og standa fáar byggingar eftir óskemmdar. Stór hluti íbúa hefur flúið borgina, en um 400.000 manns bjuggu í Grosní áður en ár- ásir Rússa hófust. ■ Tilgangslaus/24-25 Talið að a.m.k. 83% íranskra kjósenda hafí nýtt sér atkvæðisrétt sinn Umbótasinnar taldir vera sigurstranglegir Teheran Times. „Sagan er til vitnis um að þeir sem vinna gegn vilja fólksins afreka ekkert nema... að skaða jafnvægi og einingu þjóðar- innar. Allir ættu að taka sig saman um að sætta sig heilshugar við viija fólksins." Umbótum Khatamis íransforseta hefur víða verið tekið opnum örmum í landinu. Trúarleg boð og bönn hafa verið á undanhaldi síðan hann hlaut kosningu 1997 og er það mat margra að stuðningur við umbótasinna end- urspegli gremju margra írana á þeim skorðum sem fylgja túlkun íhaldsafla á boðorðum islams. Talið er að rúmlega 32 milljónir þeirra 39 milljóna sem voru á kjör- skrá hafi neytt atkvæðisréttar síns. FYRSTU tölur í þingkosningunum, sem haldnar voru í Iran á föstudag, sýna að umbótasinnar hafa náð a.m.k. 57 af 95 þingsætum í nokkrum af strjálbýlli sveitum landsins og voru forystumenn umbótasinna í kjölfarið vongóðir um sigur. Að sögn innanríkisráðuneytisins var kjör- sókn mjög góð, kjörstaðir voru opnir tveimur tímum lengur en tii stóð og var talið að a.m.k. 83% kjósenda hefðu kosið. Fjöldi þeirra þingsæta, sem fyrstu tölur sýna umbótasinna hafa hlotið, tilheyrði áður íhaldssamari flokkum sem hafa lengi átt örugg atkvæði á landsbyggðinni. Bjartsýni ríkti því meðal umbótasinna á laugardag og hétu þeir að leggja Mohammad Khatami, forseta írans, lið í að auka frjálsræði í landinu. „Byrði umbóta í Iran hvflir ekki lengur einungis á herðum Khatamis," sagði í dagblaði umbótasinna Mosharekat. Þá spáði Mohammad-Reza Khatami, leiðtogi eins stærsta flokks umbótasinna og bróðir forsetans, að umbótasinnar myndu hljóta um 60% atkvæða. Úrslit kosninganna munu þó ekki liggja fyrir fyrr en að nokkrum dög- um liðnum. I höfuðborginni, Teher- an, er til að mynda ekki búist við að úrslit liggi fyrir fyrr en í fyrsta lagi eftir viku, en metkjörsókn var í borginni og mættu um 75% kjósenda á kjörstað. Meira frjálsræði rfldr í Teheran en víða annars staðar í landinu og er því búist við að stór hluti kjósenda þar hafi greitt um- bótasinnum atkvæði sitt. I borginni keppa 838 frambjóðendur um 30 þeirra 290 þingsæta sem eru á ír- anska þinginu. Fólk hvatt til að sýna stillingu Þau kjördæmi þar sem atkvæði hafa þegar verið talin eru öll stijál- býl og því ekki talið að núverandi töl- ur endurspegli heildarúrslit kosn- inganna. Dagblöð í íran hafa engu að síður mörg hver hvatt til stillingar í kjölfar þessara fyrstu talna, en íhaldssamir flokkar hafa haft meiri- hluta á þingi frá byltingunni 1979. „Sé útkoma kosninganna ekki öll- um að skapi ættu þeir ekki að bregð- ast við á órökréttan hátt,“ sagði í ÓHEILLAÞRÓUN I UMFERÐINNI Af upstream blanket off backfill að bottom VÖKUBILAR, VARAHLUTIR OG UPPBOÐ Geimskipið á Greenwichnesl Ofureldgos í Yellowstone Ylli tjóni um allan heim HÆTTA er á gífurlegu eldgosi í Yellowstone-þjóðgarðinum í Wyoming í Bandaríkjunum og gæti það valdið miklum hörm- ungum um allan heim, að sögn breska dagblaðsins The Daily Express, sem hvatti breska þingmenn til að grípa til viðeig- andi ráðstafana. í blaðinu sagði, að jarðfræð- ingar hefðu tekið eftir að stórt kvikuhólf undir Yellowstone væri að blása út „eins og blaðra“ en það voru vísinda- menn hjá NASA, bandarísku geimvísindastofnuninni, sem uppgötvuðu hólfið fyrst á sjöunda áratugnum. Komist kvikan í þessu ofur- eldfjalli upp á yfirborðið munu drunumar heyrast um allan heim að sögn blaðsins og stórir hlutar Bandaríkjanna verða óbyggilegir. Þá mun sólin sortna er milljarðar tonna af ösku dreifast um jörðina og um allt norðurhvel mun ríkja „eld- fjallavetur" í mörg ár. 40.000 ára dráttur Gífurleg eldgos í Yellowstone hafa að jafnaði orðið á 600.000 ára fresti en nú eru liðin 640.000 ár frá því síðasta. Breska jarðfræðifélagið var beðið að taka saman skýrslu um málið og það hefur ráðlagt rík- isstjórninni að huga að ráðstöf- unum. Er haft eftir eldfjalla- sérfræðingnum Hazel Rymer, að áhrif hugsanlegs goss á hita- far jarðar yrðu gífurleg. I------------------------ I Sumarhúsa- eigendur á Spáni Alicante um Madrid fyrir aðeins 32.500kr* Beint flug til Madrid alla mánudaga ftá 12. júní tfl 4. sept *Innifalið: flug báðar leiðir og flugvallarskattar. www.icelandair.is ICELANDAIR JE MORGUNBLAÐIÐ 20. FEBRÚAR 2000

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.