Morgunblaðið - 20.02.2000, Page 6
6 SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
CDU leitar að leiðtoga til að koma flokknum út úr fjármálahneykslinu
Y onir um
nýtt upphaf
-BAKSVIÐ
Innan flokks kristilegra demókrata er nú
tekist á um hver eigi að vera í forystu fyrir
flokkinn. Davíð Kristinsson, fréttaritari 1
Berlín, veltir kostunum fyrír sér.
Leuters
Friedrich Merz og Angela Merkel ræðast við á Sambandsþinginu í Berlín. Merz er talinn lfklegur til að taka við
formennsku í þingflokki CDU og Merkel er í umræðunni sem leiðtogi flokksins.
Reutcrs
Volker Riihe, fyrrverandi vamarmálaráðherra Þýskalands, ásamt
Helmut Kohl, fyrrverandi kanslara og formanni CDU. Riihe er meðal
þeirra sem minnst hefur verið á sem nýtt formannsefni CDU.
KRISTILEGIR demó-
kratar standa nú frammi
fyrir alvarlegustu kreppu
í sögu flokksins. Með
þessum orðum hóf Wolfgang
Scháuble tilkynningu sem hann las
upp á blaðamannafundi í Berlín á
miðvikudaginn var. Hann kallaði til
þessa fundar til að greina frá því að
hann mundi segja lausum embætt-
um sínum sem flokksformaður CDU
og formaður þingflokks CDU/CSU á
Sambandsþinginu. Scháuble sagði
áþreifanlegar breytingar vera orðn-
ar óhjákvæmilegar og því stigi hann
þetta skref til að „opna möguleikann
á nýrri byrjun". Þegar í síðasta mán-
uði hafði Scháuble boðist til að segja
stöðu sinni lausri en hlaut þá stuðn-
ing flokksins til að halda starfi sínu
áfram. Á undanfömum vikum hefur
örvæntingin innan flokksins farið
vaxandi og náði hún hámarki á
þriðjudaginn var þegar forseti Sam-
bandsþingsins, Wolfgang Thierse,
tilkynnti að CDU þyrfti að greiða 41
milljónar marka sekt í kjölfar þess
að kristilegir demókratar í Hessen
brutu lög um starfsemi stjórnmála-
flokka árið 1998.
Þegar leið á daginn var orðið ljóst
að Scháuble naut ekki lengur stuðn-
ing þingflokksins og því var ákveðið
að flýta kjöri nýs formanns þing-
flokksins.
Það voru fulltrúar Nordrhein-
Westfalen og Schleswig-Holstein
sem kröfðust afsagnar Scháubles. í
báðum þessum sambandslöndum
eru kosningar framundan og í kosn-
ingabaráttunni var orðið Ijóst að
borgararnir vildu sjá breytingar í
kjölfar fjármálahneykslisins. Innan
flokksins hafði myndast óánægja
með formannsstarf Scháubles á
þessum krepputímum og margir
töldu honum hvorki hafa tekist að
verja flokk sinn né sjálfan sig með
sannfærandi hætti. Scháuble, sem
vinna átti að upplýsingu, var að end-
ingu orðinn holdtekja slæmrar sam-
visku flokksins. Hinn 10. janúar ját-
aði hann að hafa, fyrir hönd CDU,
tekið við 100.000 mörkum af vopna-
salanum Karlheinz Schreiber og
málið versnaði mánuði síðar þegar
Brigitte Baumeister, fyrrverandi
gjaldkeri flokksins, greindi frá þvi
undir eið að afhending gjafafjárins
hefði farið fram með öðrum hætti en
Scháuble hefði áður greint frá. Mað-
urinn sem ætlaði að vinna í þágu
upplýsingar varð að endingu að fóm-
arlambi upplýsingarinnar.
Endirinn á
ferli Schaubles
Ólíkt Angelu Merkel, aðalritara
CDU, var „krónprinsinn" Scháuble
of innlimaður í kerfi Kohls til að geta
unnið að því að upplýsa málið á trú-
verðugan hátt. Scháuble, sem heyrir
til þeirra sem studdu við bakið á
Kohl áður en hann braust til valda
innan flokksins, hefur alltaf verið
tryggur kanslaranum fyrrverandi. I
upphafi níunda áratugarins hófst
samstarf Scháubles og Kohls og í lok
sama áratugar var Scháuble orðinn
mikilvægasti ráðgjafl Kohls og helsti
hugmyndafræðingur flokksins.
Sem innanríkisráðherra gegndi
Scháuble mikilvægu hlutverki við
sameiningu Þýskalands. Haustið
1990 varð hann fyrir árás á kosn-
ingasamkomu sem leiddi til lömunar
fyrir neðan mitti og hefur hann síðan
verið bundinn við hjólastól. Aðeins
mánuði eftir árásina tók hann aftur
upp starf sitt á sambandsþinginu og
ári síðar var hann valinn formaður
þingflokks CDU/CSU. Þótt lengi
hafl verið uppi efasemdir um hvort
framtíðarformaður CDU gæti verið
bundinn við hjólastól lýsti Kohl því
yflr 1997 að hann óskaði sér
Scháuble sem eftirmann sinn í emb-
ætti kanslara. Eftir ósigur Kohls var
engin spurning hver tæki við for-
mannsstöðunni í nóvember 1998.
Þegar upp komst um fjármála-
hneykslið í lok síðasta árs tók
Scháuble að fjarlægjast Kohl og uppi
eru raddir um að Kohl hafi á undan-
förnum vikum beitt sér fyrir því að
Scháuble yrði komið frá. Scháuble
hveríur nú frá eftir einungis 15 mán-
uði í formannsstarfinu en hann mun
þó sitja áfram á sambandsþinginu og
gegna mikilvægu hlutverki innan
flokksins.
Stjarnan unga
í lok vikunnar náðist samkomulag
milli CDU og CSU um að varafor-
maður þingflokksins, Friedrich
Merz, tæki við formannsembætti
þingflokksins af Scháuble. Hinn 44
ára gamli Merz, sem er frá sam-
bandslandinu Nordrhein-Westfalen,
sem steypti Scháuble úr stóli, hefur
lengi verið leynivopn þess síðar-
nefnda. Hann sat á Evrópuþinginu
til ársins 1994, var ekki hluti af kerfi
Kohls og var einn af fáum sem var
ófeiminn við að gagnrýna kanslar-
ann fyrrverandi. Merz hefur rutt sér
til rúms sem efnahagssérfræðingur
flokksins og hefur unnið sér inn gott
orð fyrir starf sitt á sviði skattamála.
Þar sem hinn kaþólski Merz er tals-
maður íhaldssamra gilda nýtur hann
stuðnings CSU. Stefnt er að því að
velja aðra meðlimi hinnar nýju
stjómar þingflokksins 29. febrúar.
Barist um stöðu
flokksformanns
Enn er þó óljóst hver tekur við
embætti flokksformanns af
Scháuble. Sérhver sem sækist eftir
embættinu í núverandi stöðu flokks-
ins mun íhuga vandlega hversu lengi
viðkomandi geti haldið í formann-
sstöðu flokks sem er í efnahagslegri,
siðferðilegri og pólitískri lægð. Það
er því óvíst hvort krafan um kyns-
lóðaskipti muni einnig ná fram að
ganga hvað formannsembættið varð-
ar. Lengi hefur sú bráðabirgðalausn
verið rædd að einhver af eldri kyn-
slóðinni tæki við embætti Scháubles.
Hlutverk viðkomandi yrði þá að leiða
flokkinn í gegnum kreppuna og
hleypa síðan yngri manni að þegar
tekur að birta til að nýju. í þessu
samhengi hafa oftast verið nefndir
hinn 69 ára gamli forsætisráðherra
Saxlands, Kurt Biedenkopf, og for-
sætisráðherra Thiiringen, Bernhard
Vogel, sem er tveimur árum yngri.
Þrátt fyrir að skoðanakannanir sýni
að Biedenkopf sé einn vinsælasti
stjórnmálamaður CDU hefur hann
ítrekað látið þess getið að hann hafi
ekki hug á að taka við formannsem-
bættinu. Athyglin beinist því að Vog-
el sem nýtur stuðnings Nordrhein-
Westfalen sem er sterkasta fylking-
in inn CDU. Ekki er þó víst að með
slíkri bráðabirgðalausn takist að
endurheimta róna innan flokksins og
jafnvel mundi slík aðgerð einugis
hylja yfir áframhaldandi valdabar-
áttu innan CDU.
Konan úr austrinu
Verði ákveðið að yngja einnig upp
í stöðu flokkformanns er aðalritari
flokksins, Angela Merkel, líklegasti
frambjóðandinn. Merkel ólst upp í
A-Þýskalandi og nam efnafræði í
Leipzig. Eftir fall múrsins gerðist
hún fjölmiðlafulltrúi hinnar „lýðræð-
islegu viðreisnarfylkingar“ og eftir
fyrstu frjálsu þingkosningarnar í A-
Þýskalandi 18. mars 1990 var hún
gerð að talsmanni ríkisstjórnar de
Maziére. Hálfu ári síðar gekk hún til
liðs við CDU og í lok ársins var hún
valin á sambandsþingið í Bonn.
Árið 1991 gerði Kohl hana að ráð-
herra í sambandsstjóm sinni og
sama ár var hún kosinn varaformað-
ur CDU. Eftir ósigur Kohls 1998 tók
hún að fjarlægjast „fóstra" sinn og í
kjölfar fjármálahneykslisins sleit
hún endanlega sambandinu við Kohl.
Hún hefur verið talsmaður vægðar-
lausrar upplýsingar og þótt standa
sig vel í hlutverki aðalritara á
krepputímum. í kjölfarið hafa vin-
sældir hennar aukist innan flokksins
sem og meðal kjósenda.
Ekki eru þó allir jafn hrifnir af
Merkel og óvíst er hvort Merkel tak-
ist að halda utan um hina ólíku arma
CDU/CSU. Mörgum þykir hún ekki
nógu hrífandi stjómmálamaður og
aðrir eru lítið hrifnir af hugmyndinni
um að kona taki við stöðu flokksfor-
mannsins. Edmund Stoiber, formað-
ur CSU, og forsætisráðherra Bæj-
aralands, er ekki hrifinn af Merkel
þar sem hann hefur áhyggjur af því
að formennska hennar myndi leiða
til þess að CDU færðist til vinstri á
pólitíska ásnum og fjarlægðist þann-
ig systraflokk sinn. Merkel þykir
þannig einum of frjálslynd fyrir sam-
bandslöndin S-Þýskalandi.
Horft til
Volker Rúhe
í stað Merkel hefði Stoiber helst
viljað sjá Volker Ruhe í formanns-
embætti CDU en Ruhe er mjög vel
liðinn innan CSU. Auk þess sýna
skoðanakannanir að Rúhe er tals-
vert vinsælli meðal almennings en
Merkel. Vangaveltur um formann-
sefnið Rtihe koma þó á fremur
óheppilegum tíma þar sem Ruhe er í
miðri kosningabaráttu í Schleswig-
Holstein. Áður en upp komst um
fjármálahneykslið í lok síðasta árs
virtist Rúhe eiga góða möguleika á
því að verða næsta forsætisráðherra
Schleswig-Holstein. Nú sýna skoð-
anakannanir að CDU hefur 7-11
prósentustiga minna fylgi en SPD og
því má telja útilokað að Rtihe nái
markmiði sínu. Líklegan ósigur í
Schleswig-Holstein mætti skrifa á
reikning fjármálahneykslisins og
ljóst er að magir hefðu frekar viljað
sjá Rúhe sem formann CDU í Þýska-
landi en forystumann stjórnarand-
stöðunnar í fyrrnefndu sambands-
landi. Upphaflega ætlaði CDU að
taka snögga ákvörðun um eftirmann
Scháubles til að styrkja ímynd
flokksins í komandi kosningum.
Rúhe virtist því óraunhæfur kostur
þar sem hann var að einbeita sér að
kosningunum 27. febrúar. CSU lagði
þó áherslu á að slíkar ákvarðanii'
þurfi að yfirvega vandlega, gæði 1,
þurfi að ganga fyrir hraða. I kjölfarið |
hafa líkurnar á því að Rtihe verði
næsti formaður CDU aukist á und-
anförnum dögum. Helsti ókosturinn
við Ruhe er þó að hann er, ólíkt
Merkel, ekkert síður innlimaður í
„kerfi Kohls“ en Scháuble.
Koch neitar að
segja af sér
Fyrir ári var nýkjörinn fbrsætis- |
ráðherra Hessen, Roland Koch, ein
hinna ungu stjarna flokksins. Eftir f
að Hessen varð að miðpunkti fjár- f
málahneykslisins dettur engum í
hug að stinga upp á Koch sem verð-
andi formanni flokksins. Eftir upp-
sögn Scháubles beinist athyglin að
Koch sem einnig hefur þurft að við-
urkenna að hann hafi farið með
ósannindi. Þeim fjölgar ört sem eru
þeirrar skoðunar að Koch verði einn-
ig að taka afleiðingunum af því að
hafa blekkt almenning. Stjórnar- |
andstaðan hefur krafist afsagnar
Kochs en innan forystu CDU hafa
fáir hvatt Koch til að segja af sér.
Fari þeim röddum fjölgandi kemst
Koch vai-la hjá því að segja af sér.
Þótt skoðanakönnun sýni að % að-
spurðra séu þeirrar skoðunar að
Koch beri að segja af sér hefur hann
ítrekað að það geri hann ekki á með-
an að hann nýtur stuðnings meiri-
hluta þingsins í Hessen. Búist er við
því að Koch verði endurkjörinn íbr-
maður á flokksþingi CDU í Hessen
sem verður haldið um helgina.
Erfítt verkefni
framundan
Næstu vikur munu leiða í ljós
hvort afsögn Scháubles veitir CDU
möguleikann á nýrri byrjun. Var
þetta skref stigið of seint eða var það
jafnvel vanhugsað? Ljóst er að flokk-
urinn kemst ekki upp úr lægðinni án
breytinga. Innan flokksins eni uppi
ólíkar skoðanir um það hvort flokks-
formaðurinn þurfl að vera af yngri ;
kynslóðinni eða hvort reynslan sé
nýjungunum mikilvægari á þessum
erfiðu tímum. CDU hefur ákveðið að
hleypa af stað líflegri umræðu innan
flokksins um arftaka Scháubles og
áætlað er að tillaga liggi fyrir í lok
næsta mánaðar. Hvort sem formað-
urinn mun heita Vogel, Merkel eða
Rtihe þá er eitt víst: Sá sem tekur
embættið að sér mun þurfa að kljást
áfram við fjármálahneykslið og ekki
sér fyrir endann á því máli.