Morgunblaðið - 20.02.2000, Qupperneq 16
16 SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Tónlistarfólk
fagnar nýju
orgeli
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna fagnar
í dag, sunnudag, kl. 17 nýju orgeli í
Neskirkju með tónleikum, þar sem meðal
annars verða fiutt ný tónverk eftir Qliver
Kentish og Hildigunni Rúnarsdóttur.
Einleikari á tónleikunum verður Lenka
Mátéová. Þorvarður Hjálmarsson hitti
tónskáldin að máli.
Morgunblaðið/Jim Smart
Hildigunnur Rúnarsdóttir og Oliver Kentish bera saman bækur sínar fyrir tónleikana.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT áhuga-
manna heldur í dag tónleika í Nes-
kirkju. Tónleikamir eru haldnir til að
fagna nýju orgeli kirkjunnar sem tek-
ið var í notkun síðastliðið haust en
hljómsveitin og Neskirkja hafa um
árabil haft með sér margvíslegt sam-
starf. Á efnisskránni eru Fjórar
myndir, nýtt hljómsveitarverk eftir
Oliver Kentish, þáttur úr orgelkon-
sert eftir Hildigunni Rúnarsdóttur og
orgelkonsert eftir Francis Poulencs.
Einleikari á orgel verður Lenka
Mátéová sem fædd er í Tékkóslóvak-
íu, en hefur búið og starfað á Islandi
frá árinu 1990 og er nú organisti og
kórstjóri við Fella- og Hólakirkju.
Lenka hefur tekið þátt í kammer- og
kórtónleikum hér á landi og komið
fram víða um lönd sem einleikari m.a.
í Þýskalandi og Rússlandi.
Eins og áður segir verða tvö ný
tónverk á efnisskránni á sunnudag-
inn og höfundar þeirra taka báðir
þátt í flutningum svo segja má að tón-
skáldin leiki tveimur skjöldum á tón-
leikunum, Oliver sem stjómandi
hljómsveitarinnar og Hildigunnur
sem konsertmeistari. Þá vaknar sú
spuming hvort verkin séu eftiivill
samin gagngert fyrir tónleikana og
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna?
Samið með SÁ í huga
„Já, hljómsveitarverkið er samið
með hljómsveitina í huga,“ segir Oli-
ver Kentish, „þetta er léttmeti í fjór-
um stuttum köflum og ég hafði engar
ákveðnar myndir í huga þegar ég
samdi verkið. Það er samið á stuttum
tíma, í rauninni varð hver kaili til á
einni morgunstund. Upphaflega átti
Ingvar Jónasson að stjóma flutning-
num en hann veiktist af flensu og bað
mig að taka við stjóminni sem ég
auðvitað þáði.“
„Það sem frumflutt verður eftir
mig á tónleikunum," segir Hildi-
gunnur Rúnarsdóttir, „er 2. kafli úr
orgelkonsert sem ég er að vinna að en
hljómsveitin hefur tvisvar áður fmm-
flutt verk eftir mig. Kaflinn er fluttur
í tilefni af nýja orgelinu en það verður
í íyrsta skipti sem orgelið er notað
með hljómsveit. Orgelið smíðaði
Bandaríkjamaðurinn Noack, sá hinn
sami og smíðaði orgelið í Langholts-
kirkju. Hugmyndin með konsertinum
er að fara í gegnum tónlistarsöguna,
fyrsti kaflinn er undir barrokkáhrif-
um, annar í sónhenduformi og þriðji
kaílinn er í nútímalegri formi.“
„Þetta er mjög fallegt verk, og vel
samið,“ skýtur stjómandinn Oliver
Kentish inni í samtalið. „Og ekki
spillir túlkun einleikarans eða flutn-
ingur hljómsveitarinnar fyrir verk-
unum.“
„Nei, það gerir það svo sannarlega
ekki og það sem gerir þessa tónleika
einstaka," bætir Hildigunnur bros-
andi við, „er að þar koma fram tvö
tónskáld og taka þátt í flutningnum,
annað sem stjómandi og hitt sem
konsertmeistari. Samstarfið gengur
ágætlega þó skotin gangi á milli, en
það er enn sem komið er bara í gríni.“
- Einleikarinn á tónleikunum verð-
ur Lenka Mátéová og hún flytur m.a.
orgelkonsert eftir Francis Poulenc.
Hvaðgetið þið sagt mér um Lenku og
orgelkonsertinn ?
„Einleikarinn er alveg fyrsta
flokks, hún Lenka,“ svarar Oliver
Kentish. „Hún er organisti í Fella- og
Hólakirkju og hefur búið hér á landi í
ein átta til níu ár. Orgelkonsert Poul-
encs er erfiður en Lenka flytur hann
með glæsibrag! Þetta er eitt af vin-
sælustu verkum tónskáldsins samið
um miðbik aldarinnar, árið 1938
minnir mig, fyrir orgel, strengi og
pákur. Pákurnar leika stórt hlutverk
í verkinu. Lenka er hrifinn af nýja
orgelinu í Neskirkju og segir að það
sé eins og smíðað fyrir þetta verk og
búi yfir öllum þeim blæbrigðunum
sem einleikarar þurfi á halda við túlk-
un verka á borð við konsert Poulencs.
Þetta er ekki stórt verk en það byijar
með sterkum hljómum, verður síðan
innhverft, íhugult og dramatískt inn á
milli. Konsertinn er mjög aðgengileg-
ur en gerir kröfur bæði til einleikar-
ans og hljómsveitarinnar.“
Fólk úr öllum stéttum
- Sinfóníuhljómsveit áhugamanna
fagnar brátt tíu ára afmæli. Er starf-
semi hljómsveitarinnar þróttmikil?
„Hljómsveitin æfir einu sinni í
viku,“ svarar Hildigunnur. „Hljóm-
sveitina skipar fólk úr öllum stéttum
þjóðfélagsins og líka tónlistarnem-
endur sem eru að fikra sig áfram á
listabrautinni. Síðan er þama líka
tónlistarfólk sem komið er á eftirlaun
og vill halda áfram að spila. Hljóm-
sveitin kemur fram opinberlega
nokkrum sinnum á ári, ýmist á sjálf-
stæðum tónleikum, með kórum eða
við önnur tækifæri. Það er mjög gott
samstarf á milli okkar og þeirra sem
koma að málinu fyrir hönd Nesk-
irkju. Það er alltaf gaman að fá tæki-
færi til að vinna með hljómsveitinni
og ekki verra að fá að frumflytja verk
eins og á tónleikunum í dag.“
---------------
Spænskt
kvöld í Lista-
klúbbnum
FLAMENCO, dans, Ijóð og söngur
verða á dagskrá Listaklúbbs Þjóð-
leikhúskjallarans mánudaginn 21.
febrúar kl. 20.30. Dansarinn Franca
Zuin dansar flamencodansa. Símon
Ivarsson gítarleikari flytur flam-
encotónlist. Vilborg Halldórsdóttir
leikkona flytur ljóð úr Tatararímum
Federicos García Lorca. Ingveldur
Yr Jónsdóttir óperusöngkona syng-
ur Habanera úr óperunni Carmen og
tónlist eftir Granados við píanóleik
Bjarna Jónatanssonar.
Sýning á verkum Sveins Björnssonar listmálara opnuð á Hrafnistu í Hafnarfírði
Ahorfand-
anum boð-
ið í krókótt
ferðalag
Morgunblaðið/Jim Smart
Bræðumir Sveinn og Erlendur Sveinssynir við saltfiskmynd föður síns, Sveins Björnssonar, Þeir fara í fyrsta flokk, en á föstudag var opnuð á Hrafn-
istu í Hafnarfirði sýning á verkum Sveins.
Á HRAFNISTU í Hafnarfirði hefur
verið opnuð sýning á verkum
Sveins Björnssonar listmáiara. Þar
gefur að líta 63 verk og spanna þau
fjóra áratugi á listamannsferli
Sveins, frá 1957 til 1997. Tilefni
sýningarinnar, sem er sett upp í
samvinnu Sveinssafns og Hrafn-
istu, er að í gær, laugardaginn 19.
febrúar, voru liðin 75 ár frá fæð-
ingu listmálarans, en hann lést vor-
ið 1997.
Yfirskrift sýningarinnar er Fjöl-
breytnin í list Sveins Björnssonar. I
sýningarskrá kemur þó fram að
ekki sé um tæmandi yfirlitssýningu
að ræða. „Það sem fyrir okkur
vakti þegar áhugi vaknaði á að
setja þessa sýningu upp á Hrafn-
istu var að gleðja gamla fólkið og
gesti þess með gömlum, nýjum og
fjörlegum myndum. Valið er nokk-
urs konar slembiúrtak þar sem
drifkrafturinn við að koma sýning-
unni upp og ánægja samstarfsfólks
okkar á Hrafnistu og vistmann-
anna sjálfra við að fá þessar mynd-
ir í hús mótaði útlit sýningarinnar.
Myndunum er ætlað að vekja gaml-
ar minningar, gleðja og bjóða
áhorfandanum í krókótt ferðalag
eftir þróunarbraut Sveins Björns-
sonar, frá hinu gamla til hins
nýja,“ ritar Erlendur, sonur
Sveins, í sýningarskrá.
Sýningin er í fjórum hlutum. Á
ganginum eru klippimyndir í fyrir-
rúmi og þar eru einnig myndir úr
fjörlegri baðstrandarsyrpu frá
Espergærde í Danmörku. Heiðurs-
rúm í borðsalnum skipar saltfis-
kmyndin stóra, Þeir fara í fyrsta
flokk, og kallast á við myndina af
Guddu gömlu. I kapellunni eru
myndir með trúarlegu ívafi, þar á
meðal tvær myndir gerðar við
Sálma á atómöld eftir Matthías
Johannessen. Setustofan er helguð
síðasta hluta listamannsferils
Sveins, þegar Iitirnir tóku yfir og
ríktu einir. Þrjár myndir í þeim stíl
eru úr passíusálmamyndaflokkn-
um sem listamanninum entist ekki
aldur til að ljúka við.
Sýningin stendur til 9. júní nk.