Morgunblaðið - 20.02.2000, Page 28
28 SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Islendingasögurnar notaðar til að byggja upp ferðaþjónustufyrirtæki á Hvolsvelli
kjarninn í ferðaþjónust-
unni í Sögusetrinu á
Hvolsvelli. Arthúr
Björgvin Bollason for-
stöðumaður segir Helga
Bjarnasyni að unnt
sé að nýta Islendinga-
sögurnar með þessum
hætti og telur mögulegt
að vekja áhuga erlendra
ferðamanna. Hann er
með hugmyndir um
að koma upp bók-
menntasögusýningu
í Sögusetrinu, í tengsl-
um við Njálusýning-
una sem þar er.
ARTHÚR Björvin Bolla-
son, forstöðumaður
Sögusetursins á Hvols-
velli, leikur mörg hlut-
verk sem eini starfsmaður fyrirtæk-
isins í vetur. Auk forstöðu-
mannsstarfsins er hann sýning-
arstjóri Njálusýningarinnar og
tveggja minni sýninga, veitinga-
maður og stundum leikstjóri í Sögu-
skálanum, verslunarstjóri í minja-
gripaversluninni, umsjónarmaður
upplýsingaskrifstofu ferðamála og
leiðsögumaður í ferðum sem safnið
skipuleggur. Þessi upptalning á
konar ferðir og er ákveðið að far-
þegum skemmtiferðaskipa verður
boðið að kaupa ferðir um söguslóðir
Njálu næsta sumar. Gerir hann sér
vonir um að til dæmis hluti þýskra
farþega skipanna muni sýna þeim
áhuga.
„Það er reynsla mín að hægt er
að vekja áhuga útlendinga á sög-
unni, sérstaklega þegar maður not-
ar Njálu til að lýsa þjóðinni og
breytingum sem orðið hafa á þjóð-
félaginu,“ segir Arthúr Björgvin
þegar hann er spurður að því hvort
erlendir ferðamenn, sem ekki hafi
kynnt sér íslendingasögurnar sér-
staklega, hafi gagn og gaman af
þessum ferðum. „Njála varpar ljósi
á þjóðarsálina, það má nota hana
sem lykil til að opna mikilvægan
kafla í sögu þjóðarinnar,“ segir
hann.
Þá segir hann að í söguhringnum
fái fólk sögu þjóðarinnar í hóflegum
skömmtum en einnig þverskurð af
náttúru landsins. Nefnir í því sam-
bandi að fólk komist í snertingu við
Hekluauðnina og afleiðingar eld-
gosa, ekið sé beint út úr auðninni
inn í trjágöng í einum fallegasta
skógi landsins, og ekki megi gleyma
Fljótshlíðinni og baráttunni við
landeyðingu jökulvatnanna sem þar
blasi við. „Fólkið fær ekki einungis
innsýn í sögusvið Njálu heldur einn-
ig samanþjappaða mynd af sögu
þjóðarinnar og útistöðum hennar
við náttúruna í ellefu hundruð ár.“
Björn G. Björnsson hannaði Njál-
usýninguna. Hún hefur þótt vel
heppnuð og er enn unnið að þróun
hennar. Þannig er verið að undir-
búa uppsetningu hljóðkerfis. Hug-
myndin er að setja upp hljóðdæmi á
vissum stöðum á sýningunni, þar
heyri gestir leikna kafla úr Njálu
sem tengjast myndefni og texta á
sýningarspjöldum. Arthúr Björgvin
hefur hug á að koma upp litlum sýn-
ingarsal þar sem stöðugt verði sýnd
kvikmynd sem snertir efni sýning-
arinnar. Hann hefur einnig áhuga á
að setja upp tölvuskjá þar sem unnt
verði að komast inn í efni geisla-
diska sem gerðir hafa verið um
víkingatímann.
Yeislur
í Söguskálanum
Miklir möguleikar sköpuðust við
flutning Sögusetursins í Sunnuhús-
ið. í anddyri hússins er aðstaða fyr-
ir upplýsingamiðstöð ferðamanna
og minjagripaverslun. Auk Njál-
usýningarinnar er safn um sögu
Kaupfélags Rangæinga í húsinu og
lítil veiðisýning. Þá hefur verið
komið þar upp veitingasal í fornum
stíl og er hann nefndur Söguskál-
inn. Hann er notaður til funda- og
ráðstefnuhalds og þar eru haldnar
veislur. Meðal annars verður haldin
söguveisla síðar á árinu en hún er
samstarfsverkefni Reykjavíkur -
menningarborgar Evrópu árið
2000.
Hópar geta pantað Söguskálann
fyrir veislur. „Við höfum ákveðið að
sérhæfa Söguskálann sem lamba-
kjötsstað, það verður eini rétturinn
sem hér verður á boðstólum. Okkur
finnst það viðeigandi. Við erum í
miklu landbúnaðarhéraði og sauð-
fjárræktin á undir högg að sækja.
Verkefni fyrirtækisins er að lyfta
undir atvinnulíf og mannlíf á svæð-
inu og þótt þetta framlag okkar
breyti ekki miklu þá er það lóð á
vogarskálarnar fyrir bættum hag
bænda. Ég veit að ekki þarf að
neyða þetta kjöt ofan í gestina því
sjálfur hef ég farið með þúsundir
ferðafólks um landið og tekið eftir
því að erlendir ferðamenn eru alltaf
mjög ánægðir með íslenska lamba-
kjötið," segir Arthúr.
í Söguskálanum er einnig hægt
að bjóða fólki upp á söng og leik
sem tengist Njálssögu. „Fólkið
kemur ekki hingað einungis til að
borða og drekka, heimsóknir eru yf-
irleitt í tengslum við Njáluferðir og
svo er sýningin skoðuð. Þetta vinn-
ur allt saman,“ segir forstöðumað-
urinn.
Sögueyjarsýning
Enn er mikið húspláss ónýtt í
Sögusetrinu og er Arthúr Björgvin
uppfullur af hugmyndum um nýt-
ingu þess. Hann vill gera Sögusetr-
ið að menningarmiðstöð. Það er að-
fjölbreyttu starfi Arthúrs Björgvins
veitir nokkra innsýn í starfsemi fyr-
irtækisins.
Sögusetrið er í eigu sex sveitarfé-
laga í austurhluta Rangárvallasýslu
og 60 annarra hluthafa.- Upphafið
var Njálusýning sem sett var upp í
öðru húsnæði á Hvolsvelli.
„Tilgangurinn með sýningunni var
að nýta þá auðlind sem menn sjá í
fornum sögum, ekki síst Njálu, og
unnt er að nýta til að efla ferðaþjón-
ustuna,“ segir Arthúr Björgvin.
Sögusetrið fór fljótlega að standa
fyrir ferðum um söguslóðir Njálu
og er móttaka ferðafólks af ýmsu
tagi nú orðin aðalverkefni þess.
Sögusetrið fékk til afnota hús á
Hvolsvelli, Sunnuhúsið svokallaða,
sumarið 1998 og þar var Njálusýn-
ingin sett upp að nýju.
Hægt að vekja
áhuga útlendinga
Sýningin er tvíþætt, að sögn Ar-
húrs Björgvins, hún á að veita inn-
sýn í heim víkinganna og Brennu-
Njálssögu. Á síðasta ári komu á
milli fimm og sex þúsund gestir á
sýninguna.
Arthúr vekur athygli á því að af
liðlega 300 örnefnum í Njálu eru/10
í Rangárvallasýslu og 40 í Ár-
nessýslu. Það sýnir að sögustaðir
eru mjög þétt á Suðurlandi. Um
þessar slóðir eru einmitt söguferð-
irnar sem Sögusetrið skipuleggur
og eru orðnar stór þáttur í starf-
semi fyrirtækýsins. Um flestar helg-
ar eru hópar íslendinga á ferðinni.
Boðið er upp á mismunandi ferðir
og bæði hálfs dags ferðir og heils
dags. Hann segir að ferðaskrifstof-
urnar hafi einnig sýnt áhuga á að
bjóða erlendum ferðahópum sams
Morgunblaðið/Helgi Bjamason
Arthúr Björgvin Bollason, forstöðumaður Sögusetursins á Hvolsvelli, telur mögulegt að nýta íslendingasögumar við uppbygginguferðaþjónustu. Hér
er hann við kálfskinn í bókagerðarbásnum á Njálusýningunni. Arthúr hefur áhuga á að fá eitt handrit Njálu til að hafa á Njálusýningunni.
Brennu-Njálssaga er
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Söguskálinn er veitingasalur í fornum stfl. Hér em Friðrik Sigurðsson veitingamaður, Hulda Dóra Eysteins-
dóttir og Christiane Bahner. Á bak við þau glóðast lamb á teini. Söguskálinn sérhæfir sig í lambakjöti.
Stefnt að uppsetn-
ingu bdkmennta-
sögusýningar