Morgunblaðið - 20.02.2000, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 2000 29
„Það er reynsla mín
að hægt er að vekja
áhuga útlendinga á
sögunni, sérstaklega
þegar maður notar
Njálu til að lýsa þjóð-
inni og breytingum
sem orðið hafa á
þjóðfélaginu."
ili að Fræðsluneti Suðurlands og er
fyrirhugað að halda þar ýmis nám-
skeið og ráðstefnur um söguna og
sagnahefð Islendinga. Fyrsta nám-
skeiðið heitir Njála og nútíminn.
Verið er að innrétta fundarsal í hús-
inu og mun hann koma að góðum
notum á námskeiðum og ráðstefn-
um.
Hluti af fræðsluhlutverki Sögu-
setursins er við móttöku skólanem-
enda. Segir Arthúr að hátt í 1000
nemar, bæði úr framhaldsskólum
og efstu bekkjum grunnskóla, hafi
komið þangað í haust. „Við höfum
mikinn áhuga á að auka þennan
þátt í starfseminni og bæta enda er
Njálusýningin kjörin kennslusýn-
ing. Til þess vantar okkur tilfinnan-
lega kennsluefni og þurfum aðstoð
yfirvalda menntamála til að bæta úr
því.“
Arthúr Björgvin hefur áhuga á að
koma upp bókmenntasögusýningu í
því mikla húsplássi sem enn er
ónýtt. „Gestir okkar gætu farið
þangað eftir að hafa skoðað Njál-
usýninguna og kynnt sér sögu bók-
mennta íslendinga til okkar daga.“
Hann hugsar sér að margmiðlunar-
tæknin yrði notuð til að koma upp-
lýsingum á framfæri við gestina og
lítur til skáldasafnsins í Dyflinni
sem fyrirmyndar. Þar eru hljóð-
dæmi notuð til að kynna höfundana
og verk þeirra. Hann sér sýninguna
þannig fyrir sér að þar fengju gestir
að sjá sögu þjóðarinnar með augum
skáldanna. Að hans mati liggur
beint við að nefna sýninguna Sögu-
eyjuna enda myndu gestir hennar
fá hugmynd um það af hverju þetta
nafn hafi verið notað um Island.
„Þetta yrði um leið saga þjóðar-
innar því það er snar þáttur í þjóð-
arkaraktemum að við höfum verið
sískrifandi. Það mátti aldrei neitt
gerast án þess að það væri skráð.“
Arthúr viðurkennir að uppsetn-
ing slíkrar sýningar taki langan
tíma og kosti töluvert. En áhugi sé
á að hefjast handa á þessu ári, helst
að koma upp vísi að Sögueyjarsýn-
ingu. Það sé þó háð fjármagni.
„Tekjur okkar koma af ferðaþjón-
ustunni og ný verkefni velta mikið á
því hvernig gengur að reka hana.
Ég beini því orku minni að því að
byggja upp reksturinn svo að hann
geti staðið undir þeim verkefnum
sem við höfum áhuga á að ráðast í.“
Njáluhandrit til sýnis?
Uppbygging Sögusetursins hefur
frá upphafi verið kostuð af sveitar-
félögunum sex og öðrum hluthöfum.
Á síðasta ári fékk stofnunin í fyrsta
skipti styrk á fjárlögum, 5 milljónir
kr., til uppbyggingarinnar. Þeir
fjármunir eru meðal annars notaðir
til að koma upp öryggis- og bruna-
varnakerfi í húsinu. Tilgangurinn er
að það fullnægi ítrustu kröfum til að
þar megi varðveita verðmæta muni
úr eigu þjóðarinnar.
Spurður að því hvaða muni hann
myndi helst vilja fá að hafa í safninu
nefnir Arthúr Björgvin beinhólkinn
með hjartamyndunum sem fannst
við Knafahóla, spjótsoddinn sem
fannst við Kotmúla eða Tröllaskóg-
arnæluna. Nælan stendur hjarta
hans nær enda er hún fyrirmyndin
að merki Sögusetursins - en er nú á
sýningu erlendis. Þá segir hann að
það myndi hafa mikla þýðingu fyrir
sýninguna ef leyfi fengist til að hafa
þar til sýnis eitt Njáluhandrit. „Það
myndi lyfta sýningunni mjög mik-
ið,“ segir Arthúr Björgvin Bollason.
Konudagsblómaúrvalið
er hjá okkur
Kvöldverður
á Naustinu
fylgir konudags-
blómvendinum
frá okkur
Einnig óvæntur
glaðningur frá
Snyrtivöruversluninni
PS. hú getur sparað |)ér sporin!
Heimsendingarþjónusta, símar 561 3030 og 551 9090
blómaverkstæði
INNA
Skólavörðustíg 12, Bergstaðastrætismegin, sími 551 9090
Næg bílastæði, Bílastæðishúsið Bergstaðir. Ekkcrt stöðumælagjald uni hclgar
Að aka BMW 316 er engu líkt. Þessi tilfinning er afrakstur þrotlausrar vinnu
vísindamanna og færustu hönnuða sem hafa náð að tvinna saman vísindi
og ástríðu á einstakan hátt. Við bjóðum þér að komast á flug - í BMW 316.
BMW 316 kostar frá 2.380.000 kr.
Grjótháls 1 Engum líkur
sími 575 1210