Morgunblaðið - 10.03.2000, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 10. MARS 2000 59r
UMRÆÐAN
Alþingi árið 1000
og árið 2000
SKÖMMU fyrir áramótin 2000,
nánar tiltekið þann 21. desember
1999, lagði alþingi blessun sína yfir
kaffæringu Eyjabakkasvæðisins, og
veitti Landsvirkjun aftur leyfí til
framkvæmda og var það réttlætt
með umhverfismati sömu stofnun-
ar. Það, að taka gilt mat
Landsvirkjunar sem er höfuðaðili
að málinu, er hneyksli og tíðkast
ekki meðal siðmenntaðra þjóða.
borganir sem munu nema upp undir
helmingi þeirra 16 milljarða, sem
ríkissjóður þ.e. skattborgarar
greiða í vexti af erlendum lánum.
Og nú er góðæri og næg atvinna.
Hvað kemur til?
Þessi ódrepandi hugsjónaáhugi
ríkisstjórnarinnar minnir um margt
á fagnaðarboðskap sovéskra komm-
únista um iðnvæðingu hins sam-
virka samfélags. Stóriðjudraumar
Lenins og Stalins voru framkvæmd-
ir með eyðileggingu stórra lands-
svæða og jafnframt hruni rússnesks
landbúnaðar, landsbyggðinni var
fórnað. Þessar ráðstafanir vöktu að-
dáun víða um lönd á sínum tíma.
Ætla mætti að minningin um
stóriðjuhugsjón frá dögum alþýðu-
hetjanna frá Sovétríkjunum væri nú
steindauð. En sjá, hún virðist lifa
góðu lífi í hugarheimi íslenskra
áldraumamanna og stuðnings-
manna þeirra.
„Við erum á heimsmælikvarða “
var yfirskrift Landsvirkjunar á
heilsíðuauglýsingum frá Lands-
virkjun í Morgunblaðinu nýlega og
fyrir skömmu voru samtöl við ein-
hverja fulltrúa Norsk Hydro í
sjónvarpinu þar sem menn máttu
sjá glæsileika málmbræðslna fyrir-
tækisins. Jafnframt var talað um að
ísland væri mjög ákjósanlegur
staður fyrir 480 þúsund tonna álver
vegna nálægðar við markaði. Af
hverju leitar fyrirtækið sér ekki
staðar í Noregi eða Evrópu? Einfalt
svar, enginn vill þá. Og störf í málm-
bræðslum eru lítið eftirsóknarverð,
sú vinna er engri þjóð hugsjón nema
ef vera skyldi Islendingum. Og þó.
Þegar Ortega y Gasset skrifaði
um barbara nútímans, sem hann
nefndi verkfræðinga, þá var stór-
iðjan hugsjón sovéskra kommúnista
upp á sitt besta. Uppreisn múgsins
kom út 1930. Hann var mjög lítið
hrifinn af „náttúrunýtingarsinnum"
þeirra tíma. Nú „grasserar" þessi
frumstæða manntegund hér uppá
Islandi sem lítur hálendisvíðerni
landsins girndaraugum sem vænt-
anlega bráð og hugsjón þeirra og at-
vinnupólitíkusa er sem flest sel-
stöðuálver, byggðaeyðing bæði til
sjávar og sveita og umsköpun íbúa
eyddra byggða sem starfskrafta í
mynd stóriðjugreina „glaðra
prúðra“.
Þetta mun vera stefnumörkun al-
þingis og ríkisstjórnar á þúsund ára
afmæli kristnitökunnar á alþingi við
Öxará, árið 2000.
Höfundur er rithöfundur.
Siglaugur
Brynleifsson
Eyjabakkar
Störf í málmbræðslum
eru engri þjóð hugsjón,
segír Siglaugnr Bryn-
leifsson, nema ef vera
skyldi Islendingum.
Undanfarin misseri hafa stjórn-
völd ásamt stjórn Landsvirkjunar
unnið að undirbúningi náttúru-
spjalla norðan Vatnajökuls, oft á
laumulegasta hátt. Dæmi: Tal
stjórnvalda um ofþenslu í þjóðfélag-
inu, sem var notuð sem röksemd til
að draga m.a. úr vegaframkvæmd-
um. Fé til nauðsynlegra vegabóta á
mesta þéttbýlissvæði landsins var
skorið niður um hundruð milljóna,
en skömmu eftir samþykktina 21.
desember var svipaðri upphæð var-
ið til vegaframkvæmda í sambandi
við væntanlegar framkvæmdir við
Eyjabakka, utan fjármagns til
vegaáætlana.
Allt þetta þenslutal og ráðstafan-
ir ríkisstjórnarinnar til að draga úr
þenslu er fremur einkennilegt þar
sem höfuðviðfangsefni stjórnvalda
virðist vera að tryggja Landsvirkj-
un og hagsmunaaðilum þeirrar
stofnunar áframhaldandi verkefni
við kaffæringu Eyjabakka. Nú telja
stjórnvöld að virkjanaframkvæmdir
hafi mikil þensluáhrif. Er tilgangur-
inn með þessum útlistunum stjórn-
valda á hættu af of mikilli þenslu sá
að draga úr þenslu í ýmsum fram-
kvæmdum ríkisins til þess að færa
þensluna í virkjanageirann? Ef svo
er, þá hljóta menn að undrast og
spyrja um ástæðurnar fyrir þessari
einstöku virkjanahugsjón stjórn-
valda. Virkjanahugsjón Landsvirkj-
unar er auðskilin, starfsmenn þeirr-
ar stofnunar líta á hálendið og
vatnsföllin sem bráð, lífsframfæri
þeirra er stíflu- og uppistöðulóna-
gerð til rafmagnsframleiðslu fyrir
selstöðuálver. En öll sú starfsemi er
arðlaus og meira en það fyrir ís-
lendinga nema verktaka og starfs-
fólk Landsvirkjunar. Islendingar
greiða tapið sem hlýst af stóriðju-
hugsjóninni með skattgreiðslum til
ríkisins og okurverði á orku. Því það
þarf mikið fé til þess að ríkissjóður
geti greitt vaxtagreiðslur og af-
Sparaðu tugbúsundír
. Endurvinnum flestar gerðir
tölvuprentborða svo
^vþeir verða sem nýir
Jvar@vortex.is
Nú efnum við til stórglæsilegrar SÝNINGAR á ISLENSKUM RÓSUM.
Á sýningunni sem er opin fram til sunnudagskvölds 12. mars, verða yfir 30 rósategundir.
Þið veljið fallegustu rósina, að ykkar smekk og við drögum út 3 vinningshafa í
RÓSALEIKNUM og sendum þeim veglegan rósavönd.
ct4
sýningardögunum verður
ýmislegt fleira í boði:
Blómstrandi
alparósir
595,- kr. stk.
öéó'
■■> u i' •í w
ÍÍ\ >
10 stk.
rósavöndur
775,- kr.
Blómstrandi
primúlur
175,- kr. stk.
Blómstrandi
begoniur
375,- kr. stk.
GARÐHEIMAR
GRÆN VERSLUNARMIÐSTÖÐ
STEKKJARBAKKA 6 • REYKJAVÍK • SÍMI 540 3300
Hsmm
■mm